Fréttablaðið - 04.02.2005, Blaðsíða 32
Gráta ekki Gunnlaug
Straumur fjárfestingarbanki heldur aðalfund í dag. Úr
stjórn fara Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson og Orri
Hauksson. Gunnlaugur er stjórnarformaður Trygg-
ingamiðstöðvarinnar og getur því ekki verið á báðum
stöðum. Það er hin opinbera skýring á brottför hans
úr stjórn Straums og hin rétta skýring. Hitt er ekki
jafn víst að allir stærstu hluthafarnir innan Straums
gráti mikið brottför hans. Núningur hefur verið á milli
manna og hefur sumum í hluthafahópnum þótt
Gunnlaugur Sævar horfa fremur til pólitískra hags-
muna en viðskiptahagsmuna. Upp
úr sauð þegar reynt var að fá
Straum til að kaupa í Skjá
einum. Gunnlaugi mislíkaði
að Straumur skyldi ekki styðja
sig við þau kaup. Svar Straums
var afdráttarlaust að kaupin á
enska boltanum og Skjá einum
samræmdust ekki fjárfestingar-
stefnu fyrirtækisins.
Kátir með Carnegie
Sænska verðbréfafyrirtækið Carnegie sem Burðar-
ás á fimmtungshlut í hækkaði á markaði í gær
eftir gott uppgjör. Fjárfesting Burðaráss virðist því
hafa verið vel tímasett. Carnegie var valið fjárfest-
ingarbanki ársins á Norðurlöndum af Financial
News og skaut þar mörgum þekktum alþjóðleg-
um fjármálafyrirtækjum á bak við sig. Verðbréfa-
stofan hefur verið umboðsaðili Carnegie hér á
landi og þykir sjálfsagt ekki skemmtilegt að
Landsbankamenn með Björgólf Thor í fararbroddi
séu að ná sterkri stöðu hjá Carnegie.
Verðmæti Carnegie byggir mikið á viðskiptavild
og þekkingu starfsmanna og því þarf að ríkja ein-
hugur milli eigenda og lykilstarfsmanna. Ekki er
ólíklegt að Burðarás auki hlut sinn í Carnegie, en
fregnir berast af því að Burðarás sé iðið við kaup
á sænskum krónum þessa dagana. Fleiri fyrirtæki
eru á sænskum matseðli Burðaráss og því ekki
hægt að fullyrða að sænsku krónurnar verði not-
aðar til kaupa á bréfum í Carnegie.
MESTA HÆKKUN
ICEX-15 3.739
KAUPHÖLL ÍSLANDS [ HLUTABRÉF ]
Fjöldi viðskipta: 464
Velta: 6.670 milljónir
+1,27%
MESTA LÆKKUN
MARKAÐSFRÉTTIR...
Aðeins eitt félag í Úrvals-
vísitölunni lækkaði í Kaup-
höllinni í gær. Tvö stóðu í stað
en tólf hækkuðu í verði.
Hagnaður Jarðboranna í
fyrra nam 431,7 milljónum
króna. Þetta er 92 prósenta
hækkun frá árinu 2003.
Alþjóðlega matsfyrirtækið
Moody’s staðfesti í gær láns-
hæfismat á Landsbankanum
og lét í ljós þá skoðun að láns-
hæfismatið gæti batnað á
næstu misserum.
Samdráttur virðsit framund-
an í fjárfestingum fyrirtækja.
Þetta kemur fram í könnun
sem Samtök Atvinnulífsins
gerðu í janúar.
20 4. febrúar 2005 FÖSTUDAGUR
Greiningardeild Íslands-
banka telur líkur á að
krónan muni lækka hratt
fyrir lok stóriðjufram-
kvæmda. Skuldir heim-
ila og fyrirtækja hækka
og kaupmáttur rýrnar
gangi spáin eftir. Verð-
bólguskot mun fylgja í
kjölfar falls krónunnar.
Krónan er við það að ná hámarks-
styrk sínum og fyrirsjáanleg er
veruleg leiðrétting á gengi henn-
ar áður en stóriðjuframkvæmd-
um lýkur. Þetta er mat Greiningar
Íslandsbanka á stöðu krónunnar
og nánustu framtíð. Greining Ís-
landsbanka býst við að lækkunin
verði á bilinu 20 til 25 prósent.
Verði þetta niðurstaðan má búast
við verðbólguskoti í kjölfarið og
gerir Íslandsbanki ráð fyrir að
ársverðbólga fari árið 2006 um
skamma hríð í átta til níu prósent,
svipað og gerðist í ársbyrjun
2002. Það er nánast tvöföld þol-
mörk Seðlabankans.
Ingólfur Bender, forstöðumað-
ur Greiningar Íslandsbanka, og
Ingvar Arnarson hagfræðingur
kynntu skýrslu deildarinnnar um
gengi krónunnar. Þeir segja krón-
una ofmetna og leiðrétting sé rök-
rétt skref. „Það er í raun ómögu-
legt að segja hvenær það gerist
nákvæmlega,“ segir Ingólfur
Bender. „Við teljum hins vegar
nánast öruggt að það gerist áður
en stóriðjuframkvæmdum lýkur.“
Hann segir líklegt að þegar lækk-
unarferlið fari af stað þá muni
það gerast hratt. Hann segir
gengi krónunnar nú hvorki sam-
rýmast innri né ytri mælikvörð-
um hagkerfisins. Frekari styrk-
ing krónunnar í bráð sé ekki úti-
lokuð, en hún verði varla mjög
mikil.
Greining Íslandsbanka telur
líkur á því að lækkun krónunnar
verði meiri en efni standa til þeg-
ar hún fer af stað og spá því að
gengisvísitalan fari í 140 stig um
mitt ár 2006. Krónan muni svo
finna nýtt jafnvægi í gengisvísi-
tölu á bilinu 130 til 135 árið 2007
og hagkerfið nái jafnvægi á ný.
Greiningardeildir Íslandsbanka
og Landsbanka eru ekki sammála
um hvert hið nýja jafnvægi krón-
unnar verður. Landsbankinn telur
að krónan verði sterkari til lengd-
ar og jafnvægið verði nálægt
gengisvísitölu í 120.
Ingvar segir slíka lækkun á
borð við þá sem Íslandsbanki spáir
ekki verða sársaukalausa og hún
muni hafa víðtæk áhrif. „Hagkerf-
ið virðist betur undir gengislækk-
un búið en þegar gengið lækkaði
eftir síðustu uppsveiflu. Hagkerfið
er fjölþættara og sveigjanlegra,
markaðir virkari og fyrirtækin
stöndugri og alþjóðlegri.“ Hann
segir að fremur beri að líta á geng-
islækkunina sem aðlögun að lang-
tímajafnvægi eftir umfangsmestu
framkvæmdir Íslandssögunnar.
Erlendar skuldir þjóðarinnar
eru mun meiri en eignir og því
mun hrein skuldastaða aukast
við gengislækkun. Lækkunin
mun einnig hafa áhrif á eigna-
markaði. Kaupmáttur muni
rýrna og leiða af sér minni eftir-
spurn á íbúðamarkaði með til-
heyrandi áhrifum á fasteigna-
verð. Gengislækkunin mun
hækka erlendar skuldir heimil-
anna fyrst, en í beinu framhaldi
mun verðbólgan sjá um að
hækka þær innlendu sem flestar
eru verðtryggðar.
Lækkun krónunnar mun hins
vegar hafa góð áhrif á fyrirtæki
sem flytja út vörur og þjónustu
og þær sem keppa við innfluttar
vörur. Gengi krónunnar veiktist í
gær um 0,91 prósent sem er tals-
verð lækkun á einum degi.
haflidi@frettabladid.is
vidskipti@frettabladid.is
Peningaskápurinn…
Actavis 40,90 +0,25% ... Atorka 6,30
+2,44% ... Bakkavör 25,30 +2,85% ... Burðarás 13,25 +2,32% ... Flug-
leiðir 14,00 +1,82% ... Íslandsbanki 11,95 +0,42% ... KB banki 508,00
+1,80% ... Kögun 46,50 +0,43% ... Landsbankinn 14,35 +0,70% ... Mar-
el 52,00 -0,95% ... Medcare 5,95 +0,68% ... Og fjarskipti 3,72 +0,54%
... Samherji 11,35 – ... Straumur 10,40 +0,97% ... Össur 83,50 +0,60%
Krónan gæti fallið hratt
Þormóður rammi 4,29%
Bakkavör 2,85%
Síminn 2,44%
Hampiðjan -14,29%
Marel -0,95%
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU:
nánar á visir.is
OFMETIN KRÓNA Ingólfur Bender, forstöðumaður Greiningar Íslandsbanka, segir óhjá-
kvæmilegt að krónan muni falla. Hvenær og hvernig er erfitt að spá, en Íslandsbanki
væntir þess að það muni gerast vel fyrir lok stóriðjuframkvæmda og líkur séu á því að að-
lögun krónunnar verði hröð.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
KB banki fjármagnar
KB banki fjármagnar kaup versl-
anakeðjunnar Shoe Studio á
annarri breskri verslunarkeðju,
Rubicon. Verð Rubicon í viðskipt-
unum var 140 milljónir sterl-
ingspunda, sem samsvarar um
16,8 milljörðum króna.
Shoe Studio er að stærstum
hluta í eigu Donald McCarthy og
annarra stjórnenda en Baugur
Group á þrjátíu prósent í fyrirtæk-
inu.
Með sameiningu Shoe Studio
og Rubicon verður til ein stærsta
tískuvörukeðja Bretlands og er
talið að árlegar rekstrartekjur
muni nema um sextíu milljörðum
íslenskra króna. - þk
Flugleiðir fljúga hæst
allra í Kauphöll Íslands
um þessar mundir.
Greiningardeild Íslandsbanka
gaf í gær út nýtt verðmat á Flug-
leiðir. Að mati greiningardeild-
arinnar eru Flugleiðir 35,1 millj-
arðs króna virði. Síðast þegar Ís-
landsbanki lagði mat á Flugleið-
ir, í júní 2003, var niðurstaðan að
félagið væri 9,7 milljarða virði.
Að mati greiningardeildar-
innar hefur verðmæti Flugleiða
því ríflega þrefaldast á aðeins
einu og hálfu ári. Að sögn Jónas-
ar G. Friðþjófssonar, sérfræð-
ings í greiningardeild Íslands-
banka, hafa rekstrarhorfur fé-
lagsins batnað mikið auk þess
sem ávöxtunarkrafa á markaði
hafi lækkað frá því að félagið
var síðast greint.
Gengi bréfa í Flugleiðum hef-
ur hækkað langmest allra bréfa í
Kauphöll Íslands það sem af er
ári. Verð hlutabréfa í lok við-
skipta í gær var 14,0 en að mati
Íslandsbanka gefur reksturinn
tilefni til að hlutabréfaverðið sé
13,9. Í upphafi árs var gengi
bréfanna 9,8. Hækkunin það sem
af er ári er því 42,1 prósent.
Hagræðingaraðgerðir Flug-
leiða haustið 2001 virðast að
mati Jónasar hafa skilað Flug-
leiðum varanlegum rekstrar-
bata, enda var árið 2002 hið
besta í sögu félagsins þrátt fyrir
áfallið sem flugfélög urðu fyrir í
kjölfar hryðjuverkaárásanna í
Bandaríkjunum haustið 2001.
- þk
Verðmætið sagt hafa þrefaldast
FART Á FLUGLEIÐUM Hlutabréf í Flug-
leiðum rjúka upp á markaði og í gær gaf
greiningardeild Íslandsbanka út nýtt verð-
mat á félagið sem gefur til kynna að inni-
stæða sé fyrir hækkuninni.
32-33 (20-21) viðskipti 3.2.2005 22.05 Page 2