Fréttablaðið - 04.02.2005, Síða 38
K vikmyndirnar MillionDollar Baby og Meet theFockers eiga það báðar
sameiginlegt að vera hlaðnar stór-
stjörnum í flestum hlutverkum,
en annars eru þær mjög ólíkar.
Þær verða báðar frumsýndar hér
á landi um helgina og eiga vafalít-
ið eftir að falla vel í kramið hjá
kvikmyndaáhugamönnum.
Baráttuandinn kviknar
Million Dollar Baby fjallar um
Frankie Dunn (Clint Eastwood),
þjálfara og umboðsmann boxara,
sem má muna sinn fífil fegurri.
Ýmislegt hefur gengið á í
einkalífi hans og á hann erfitt með
að tengjast öðru fólki tilfinninga-
böndum. Mest samband hefur
hann við Scarp (Morgan Freem-
an) sem aðstoðar hann við að reka
æfingarsal hans. Þegar inn í æf-
ingasalinn gengur hin unga og
efnilega hnefaleikastúlka, Maggie
Fitzgerald (Hilary Swank), breyt-
ist líf hans til muna. Hann ákveð-
ur að taka hana upp á sína arma
þrátt fyrir að hafa ekki haft mikla
trú á henni til að byrja með.
Smám saman sjá þau hversu mikl-
um baráttuanda þau bæði búa yfir
og á hann eftir að nýtast þeim vel.
Auk þess að fara með aðalhlut-
verkið í Million Dollar Baby leik-
stýrir gamli jaxlinn Clint
Eastwood einnig myndinni. Hún
hefur verið tilnefnd til sjö Ósk-
arsverðlauna og þar er Eastwood
tilnefndur til tveggja verðlauna.
Auk þess er Swank tilnefnd sem
besta leikkonan í aðalhlutverki.
Þykir hún afar líkleg til að hreppa
styttuna í annað sinn, en síðast
vann hún verðlaunin fyrir frá-
bæra frammistöðu í Boys Don’t
Cry. Eastwood hefur aftur á móti
aldrei unnið Óskarinn sem leikari
en einu sinni bar hann sigur úr
býtum sem leikstjóri. Það var fyr-
ir vestrann Unforgiven sem sóp-
aði til sín Óskarsverðlaunum árið
1992. Fyrir tveimur árum var
hann tilnefndur sem leikstjóri
fyrir Mystic River en fékk ekki að
handleika styttuna á nýjan leik.
Tengdaforeldrar hittast
Margir hafa beðið með mikilli
óþreyju eftir gamanmyndinni
Meet the Fockers sem er fram-
hald hinnar geysivinsælu Meet
the Parents sem kom út fyrir fjór-
um árum.
Nú hafa hin gamal-
reyndu Dustin Hoffman
og Barbra Streisand bæst
í leikarahópinn sem for-
eldrar klaufabárðarins
Gaylord M. Focker (Ben
Stiller). Í nýju myndinni
eru Focker og unnusta
hans í fullum undirbúningi
fyrir brúðkaup sitt. Til að fjöl-
skyldur þeirra kynnist betur
ákveða þær að hittast eina helgi,
sem auðvitað á eftir að enda með
ósköpum. Sem fyrr er Robert De
Niro í hlutverki tengdaföður
Fockers en eins og margir muna
sættust þeir undir lok fyrri
myndarinnar eftir að illa hafði
farið á með þeim. Vonandi glatar
Focker ekki
traustinu sem
hann hafði
unnið sér
svo ræki-
lega fyrir
í Meet the
Parents. ■
26 4. febrúar 2005 FÖSTUDAGUR
Ómissandi á DVD
Collateral eftir Michael Mann er fyrirtaksspennumynd enda kann Mann
að búa til þéttar ræmur. Það fer Tom Cruise afskaplega vel að leika
skúrk og Jamie Foxx sýnir í hlutverki leigubílstjóra, sem situr uppi með
að keyra Cruise á milli fórnarlamba sinna, að hann er kominn til að
vera.
„There are no heroes anymore, Bis-
hop. Just men who follow orders.“
- Captain Collins trúði ekki á hetjur í gömlu Assault on
Precinct 13 frá árinu 1976.
Hnefaleikadrama og
Fockerar á hvíta tjaldið
Aðeins 599 kr.
5 690691 2000
08
Lífsreynslusagan • Heilsa • • Matur • Krossgátur
5. tbl. 67. árg., 2. febrú
ar 2005.
g•á~t
Aðeins
599 kr.
Svanhildur Jakobsd
óttir,
söng- og útvarpsko
na,
er alltaf jafnglæsile
g
Ungleg án
leyndarmála!
40+ Flottar konu
r í góðu formi
Tíðahvörf!
Hvað er það?
Íslenskar konur
kynþokkafullar!
4 þekktir karlmenn ha
fa skoðun á því
Dekraðu við þig
!
Vikan gefur góð ráð
Með dellu fyrir
stórum bílum
00 Vikan05.
tbl.'05-1
24.1.2005
11:48 Page
1
Náðu í eintak á næsta sölustað
ný og f rsk í hverri viku
13 vikna nám í ljósmynda- og
tískuförðun hefst 14. febrúar.
Skráning og upplýsingar eru í síma 564 0406 og á
makeup@fjoltengi.is. Góð greiðslukjör.
Hamraborg 7
Hamrabrekkumegin.
Sími 564 0406
1950 tímabil, nemandi Anna Kristín
TENGDAFEÐUR HITTAST Dustin Hoffman og Robert De Niro í hlutverki tengdafeðranna í gamanmyndinni Meet the Fockers.
HILARY SWANK Hin stórgóða leikkona
Hilary Swank fer með hlutverk boxarans
Maggie Fitzgerald í Million Dollar Baby.
Árás á löggustöð
Löggur og bófar verða að snúa bök-
um saman til að halda lífi í Assault
on Precinct 13 sem var frumsýnd í
gær. Myndin er endurgerð sam-
nefndrar myndar sem John
Carpenter gerði árið 1976. Carpent-
er byggði handrit sitt á John Wayne
vestranum Rio Bravo og sagði frá
síðasta starfsdegi lögreglustöðvar-
innar í hverfi 13 en honum lauk með
því að tryllt glæpagengi réðist til
inngöngu þannig að örfára löggur
og nokkrir fangar í geymslum urðu
að snúast til varnar.
Að þessu sinni eru árásarmenn-
irnir á eftir glæpaforingjanum
Marion Bishop sem Laurence Fis-
hburne leikur. Tilgangurinn árásar-
innar er að drepa hann þannig að
hann geti ekki borið vitni. Ethan
Hawke leikur lögreglu á vakt en
þessir andstæðingar verða að sam-
einast um að stjórna nauðvörn lög-
reglustöðvarinnar þar sem vopn og
mannafli eru í lágmarki. Fishburne
stýrir liðinu sem gistir fanga-
geymslurnar en löggurnar treysta á
Hawke.
Eðalleikararnir Brian Denehy og
Gabriel Byrne fara einnig með
veigamikil hlutverk og skutlan
Drea De Matteo, sem leikru
Adriönu í The Sopranos, fer með
hlutverk ritara á lögeglustöðinni. ■
LAURENCE FISHBURNE Leikur glæpa-
foringja sem er í haldi í lögreglustöðinni í
hverfi 13. Þegar árásarmenn ógna lífi hans
snýst hann til varnar ásamt .eim löggum og
bófum sem eru á stöðinni.
SMÁAUGLÝSINGAR ALLA DAGA
Smáauglýsingasíminn er 550 5000
auglysingar@frettabladid.is
- mest lesna blað landsins
38-39 (26-27) bíó á föstudegi 3.2.2005 20:47 Page 2