Fréttablaðið - 07.02.2005, Síða 7

Fréttablaðið - 07.02.2005, Síða 7
6 7. febrúar 2005 MÁNUDAGUR AUGLÝSINGAR Birtingar á auglýs- ingum frá Umferðarstofu hafa nú verið stöðvaðar ótímabundið, eft- ir að Samkeppnisstofnun fór þess á leit við Umferðarstofu. Um- boðsmaður barna skrifaði Sam- keppnisstofnun kvörtun, þar sem vísað er til 22. greinar samkeppn- islaga, en þar kemur meðal ann- ars fram að auglýsingar skuli miðast við að börn sjái þær og heyri og ekki megi misbjóða þeim á neinn hátt. Þær skuli sýna sér- staka varkárni vegna trúgirni barna og unglinga og að þess sé gætt að ekki eru nein hættuleg at- ferli eða atvik sýnd, sem geta leitt til þess að þau eða önnur börn komist í hættu. Birgir Há- konarson hjá Umferðarstofu sagði þessar auglýsingarnar hafa þjónað sínum tilgangi, þær hefðu vakið sterk viðbrögð og fólk til umhugsunar, sem væri nauðsyn- legt í umferðarmálum. „Við mun- um skila greinargerð til Sam- keppnisstofnunar í dag, og jafn- framt stöðva auglýsingarnar þar til hún kemst að niðurstöðu.“ - fgg Stefnuræða George W. Bush: Áherslan á lífeyrismál BANDARÍKIN Uppstokkun banda- ríska lífeyriskerfisins var helsta áherslumál George W. Bush Bandaríkjaforseta þegar hann flutti stefnuræðu sína í fyrrinótt. „Við verðum að tryggja lífeyris- kerfið til frambúðar, ekki að láta verkefnið bíða seinni tíma,“ sagði hann. Bush vill breyta kerfinu þannig að launþegar geti fengið skattaafslátt svo þeir geti lagt fé til hliðar nú og átt það sem einka- lífeyri þegar þeir fara á eftirlaun. Hann sagði að yrði ekki brugðist við nú yrði lífeyriskerfið gjald- þrota árið 2042 og þá þyrfti hærri skatta, miklar lántökur ríkissjóðs eða niðurskurð á lífeyri til að bregðast við vandanum. Demókratar andmæla stefnu Bush og segja að hún geti leitt til þess að sá lífeyrir sem ríkið tryggi ungum Bandaríkjamönn- um í ellinni lækki um 40 prósent. Bush fagnaði írösku kosning- unum og sagði að fyrir lægi að minnka hlutverk Bandaríkjahers í Írak. Hann setti þó engin tíma- mörk fyrir brottför Bandaríkja- hers þaðan. Hann hét því að vinna að því að koma á friði í Mið-Austurlöndum og lofaði andvirði 22 milljarða króna í aðstoð við palestínsku heimastjórnina. Hann hvatti Sýr- lendinga til að hætta stuðningi við hryðjuverkamenn og lýsti Íran sem helsta stuðningsríki hryðju- verkamanna. - bþg Lykketoft hefur ekki tekist að slá í gegn Séra Þórir Jökull Þorsteinsson í Danmörku segir að kosningabaráttan standi milli Jafnaðarflokksins undir forystu Mogens Lykketoft og Venstre með Anders Fogh Rasmussen í broddi fylkingar. DANMÖRK Kosningabaráttan hefur verið stutt og snörp og einkum snúist um innflytjendamálin, at- vinnumálin og skólamálin en ut- anríkismálin lítið verið rædd, þar með talið Íraksmálið. „Umræðan um innflytjendur, ekki síst frá löndum íslam, er óendanleg og sitt sýnist hverjum þó flestir Danir virðist óska þess að geta gert meira. Einhvern veg- inn hefur sú pólitík samt orðið ofan á að stemma stigu við straumi inn- flytjenda,“ segir Þórir Jökull. Honum heyrist samstarf Venstre, íhaldsmanna (Kon- servative) og Dansk Folkeparti ætla að halda sér eftir kosningar. Jafnaðarmenn undir forystu Lykketofts virðist ekki komast í þá stöðu að geta leitt stjórnar- myndun. Spurningin sé sú hvort þessir þrír flokkar muni starfa saman áfram. „Ég heyri samt umræðu um að sósíaldemókrötum væri líklega betur treystandi til þess að efla danskt velferðarkerfi sem hefur verið á undanhaldi,“ segir hann. Kvikmyndaleikstjórinn Lars von Trier lagði nafn sitt við harða árás á Anders Fogh Rasmussen í blaðaauglýsingu en Þórir Jökull segist lítið hafa heyrt um áhrif hennar. Hin pólitíska umræða hafi náð út í öll horn síðustu daga. Danir séu meðvitaðir um að þeir hafi áhrif á það hvernig þjóðfélagi verði byggt. Stjórnmálamenn séu líka ofurseldir fjölmiðlaumræðu og þar séu þeir dæmdir, vegnir og léttvægir fundnir. Fjölmiðlar taki þá í bakaríið með óvægnum hætti ef ástæða þyki til. - ghs Breska leyniþjónustan: Neitar aðild LONDON, AP Charles Clarke, innan- ríkisráðherra Bretlands, lýsti því yfir í gær að breska leyniþjónust- an, MI6, hefði ekki átt þátt í því að Bretinn Martin Mubanga hefði verið handtekinn og vistaður í fangabúðum Bandaríkjamanna í Guantanamo á Kúbu. Breskir fjölmiðlar hafa haldið því fram að breskur njósnari á vegum MI6 hafi átt þátt í handtök- unni. Mubanga var látinn laus fyrir um mánuði eftir að hafa setið í þrjú ár í fangabúðunum án þess að hafa verið birt kæra. Hann hefur í fjölmiðlum lýst margvíslegri illri meðferð sem hann sætti í fangelsinu. ■ Fjórðungssjúkrahúsið í Neskaupstað: Fær nýjan tækjakost HEILBRIGÐISMÁL Breytingar standa nú yfir á Fjórðungs- sjúkrahúsinu í Neskaupstað til að hýsa nýjan tækjakost í mynd- greiningarþjónustu sjúkrahúss- ins. Heilbrigðisráðuneytið hefur ákveðið að verja fé til kaupa á nýjum röntgentækjum sem tengd verða stafrænum búnaði. Þá var gengið frá kaupum á nýju sneiðmyndatæki á gamlársdag sem hollvinasamtök sjúkrahúss- ins stóðu að en tækið kostaði átján milljónir. Fimm hundruð íbúar Austurlands leita árlega til Reykjavíkur eða Akureyrar í sneiðmyndatöku með tilheyrandi ferðakostnaði greiddum af rík- inu. - hrs 29.956,-* Subaru Legacy Wagon sjálfskiptur 2.590.000 2.790.000Ver› á›ur Ver› nú 200.000 ■ LÖGREGLUFRÉTTIR Hefurðu farið í Þjóðminjasafn- ið eftir endurbæturnar? SPURNING DAGSINS Í DAG: Viltu jarðgöng til Vestmannaeyja? Niðurstöður gærdagsins á visir.is 89,1% 10,9% Nei Já Farðu inn á fréttahluta visir.is og segðu þína skoðun KJÖRKASSINN UMDEILDAR AUGLÝSINGAR Auglýsingarnar frá Umferðarstofu hafa vakið athygli en nú hefur birting þeirra verið stöðvuð ótímabundið. BUSH FLYTUR STEFNURÆÐU SÍNA George W. Bush flutti stefnuræðu sína frammi fyrir báðum deildum Bandaríkjaþings. Fyrir aftan hann standa Dick Cheney varaforseti og Dennis Hastert, forseti fulltrúadeildarinnar. SÉRA ÞÓRIR JÖKULL ÞORSTEINSSON Hefur fylgst með umræðunni um þingkosningarnar í Danmörku síðustu vikur og telur að Venstre haldi velli í kosningunum á þriðjudaginn. BÍLVELTA Í ÁRNESSÝSLU Bíll valt á Skeiðarvegi í gær. Ein kona var í bílnum. Slapp hún með lítils- háttar óþægindi í baki og er talið að notkun bílbeltis hafi þar ráðið miklu um. Bíllinn er hins vegar mikið skemmdur ef ekki ónýtur. GRUNAÐIR UM ÖLVUNARAKSTUR Tveir ungir ökumenn voru stöðv- aðir af lögreglunni á Akureyri grunaðir um ölvun við akstur, ann- ar í nágrenni við Dalvíkurbyggð, en hinn á Akureyri. Annars var frekar rólegt um að vera í bænum og fór skemmtanahald helgarinnar að mestu leyti vel fram. RUSLIÐ ALVEG ÓNÝTT Eldur kom upp í ruslagámi á Álftanesi á föstudag. Logaði glatt í gámnum, sem var opinn, en tókst að slökkva eldinn með vatni. Skemmdir voru ekki miklar að öðru leyti en því að ruslið er gerónýtt. Talið er að um íkveikju hafi verið að ræða. Brotið á rétti barna? Auglýsingar stöðvaðar

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.