Fréttablaðið - 07.02.2005, Qupperneq 58
21MÁNUDAGUR 7. febrúar 2005
FRÉTTIR AF FÓLKI
■ FÓLK
Michael Jackson, sem hefur verið
ákærður fyrir að beita ungan
dreng kynferðislegu ofbeldi, seg-
ist hafa fengið samþykki Guðs til
að fá til sín börn í heimsókn á bú-
garð sinn Neverland.
Hann segir að allar ákærur á
hendur sér hafi verið upplognar
og eigi einungis rætur að rekja til
frægðar hans. „Því stærri stjarna
sem þú ert, því stærra skotmark.
Sannleikurinn mun koma í ljós,“
sagði Jackson í viðtali við Geraldo
á sjónvarpsstöðinni Fox. Þetta var
fyrsta viðtalið sem Jackson veitir
í tæpt ár.
Jackson segist hafa hugsað sér
Neverland sem heimili fyrir sjálf-
an sig og börnin. Þar gæti hann
gert hluti sem hann náði ekki að
upplifa í æsku sinni sem liðsmaður
hljómsveitarinnar Jackson Five. ■
George Clooney segir fólk oft
halda að hann sé eldri en raunin
er. Clooney er 43 ára og er því í
rauninni aðeins þremur árum
eldri en félagi hans, Brad Pitt. Í
nýju myndinni hans, Ocean's
Twelve, er sena sem leikarinn
lenti í alvörunni í. „Þetta kom í al-
vörunni fyrir mig, við settum
þetta inn í handritið því þegar við
vorum á Ítalíu á síðasta ári sagði
yngri stelpa við mig: „George,
hvað ertu gamall?“ Ég spurði
hana þeirri heimskulegu spurn-
ingu hvað hún héldi að ég væri
gamall. Hún sagði: „Fimmtug-
ur?“, og ég sagði: „Heldurðu í al-
vörunni að ég sé fimmtugur?“, þá
sagði hún: „Uuu, ertu fimmtíu og
eins?“ Steven Soderbergh fannst
þetta sniðugt í myndina,“ sagði
Clooney. ■
Drew Barrymore hefur slitiðsamningi við umboðsmann sinn
Patrick Whitesell. „Drew ætlar að
leita annað en hefur ekki enn tekið
ákvörðun um hvert. Þau
hittust á fundi í síðustu
viku og ákváðu að hætta
samstarfi. Þau eru þó
enn góðir vinir og hann
gerði margt gott fyrir
hana,“ sögðu tals-
menn leikkonunnar.
Meðal viðskiptavina
Whitesell eru Matt
Damon, Ben Af-
fleck, Hugh Jack-
man og Christian
Bale.
Mariah Carey er dugleg að sparapeningana sína og segist varla
hafa snert 14 milljónir dollara sem
hún hlaut fyrir að skrifa undir samn-
ing hjá Virgin Records árið 2001.
Hún segist heldur ekkert botna í
fræga fólkinu sem
eyðir peningunum
sínum í glæsibif-
reiðir. „Ég hef ekki
enn keypt bílaflota.
Ég á samt
Mercedes Benz en
mér er alveg sama
á hvernig bíl ég er í
New York. Fyrir mér
er bíll bara staður til þess að leggja
frá mér töskuna,“ sagði söngkonan.
Clint Eastwood segist ennþá faraí líkamsrækt á hverjum degi til
þess að halda sér í formi. „Ég fer
enn í líkamsrækt
á hverjum degi
og mér líkar það
vel. Þegar við
vorum að taka
upp Million Doll-
ar Baby var frá-
bært að við vor-
um með eigin
líkamsræktarstöð
og ég gat gert
flestar armbeygj-
ur þó ég væri 74!“ Eastwood er til-
nefndur til Óskarsverðlauna fyrir
leikstjórn sína í myndinni Million
Dollar Baby. Myndin hlaut alls sex
tilnefningar, þar á meðal fyrir bestu
myndina.
Imelda Staunton er tilnefnd tilÓskarsverðlauna fyrir aukahlutverk
í myndinni Vera Drake. „Það sem ég
hef mestar áhyggjur af í sambandi
við verðlaunaafhendinguna er að
skórnir mínir eigi eftir að meiða
mig. Þakkarlisti er frekar glötuð
þakkarræða svo kannski
ég ætti að standa þarna
uppi og segja fólki frá
fótavandræðum mín-
um. Ég botna ekkert í
fólki sem segist ekki trúa
því að það
hafi unnið.
Auðvitað
trúir þú því
– líkurnar á
að þú yrðir
sigurvegari
voru einn af
fimm!“
sagði
Staunton.
Jennifer Garner er að spáí að hætta sem leikkona
til þess að uppfylla aðra
framtíðardrauma. „Mig
langar að mennta mig
meira og fá gráðu í ein-
hverju. Mig langar að
vera viðskiptakona, fjár-
festari, rithöfundur og pí-
anóleikari. Ég vildi óska
að ég kynni að elda,“
sagði leikkonan.
GEORGE CLOONEY Segir fólk oft halda
að hann sé eldri en hann í rauninni er.
Yngri en hann lítur út
fyrir að vera
[ MÁL ]
MICHAELS JACKSON
MICHAEL JACKSON Jackson
segist alsaklaus af þeim ákærum
sem hafa verið bornar á hann.
Stór stjarna,
stórt skotmark