Fréttablaðið - 07.02.2005, Síða 63
26 7. febrúar 2005 MÁNUDAGUR
Lárétt: 1 undrandi, 6 ìskammî, 7 kvað, 8
þrengsli, 9 ábreiða, 10 kúst, 12 þræta, 14
helgidómur, 15 fæddi, 16 keyr, 17 vit-
skerta, 18 frjáls.
Lóðrétt: 1 hvatning, 2 læri, 3 ekki, 4 geð-
góð, 5 til viðbótar, 9 fugl, 11 bíða, 13
drykkjarílát, 14 mann, 17 ármynni.
LAUSN
1
6 7
98
10
12 13
1514
16
18
17
11
2 3 4 5
Dessertkokkurinn Mortein Heiberg verður sérstak-
ur gestur á Food & Fun hátíðinni í febrúar. Heiberg
hefur komið víða við á ferli sínum og útbjó meðal
annars eftirréttinn sem borinn var fram í brúðkaupi
Friðriks krónprins í maí í fyrra. Hann rekur sitt eig-
ið fyrirtæki, Dessertcirkus, sem sérhæfir sig í mat-
reiðslu á hvers kyns eftirréttum fyrir veitingastaði.
Heiberg er einnig höfundur bókarinnar Súkkulaði
sem gefin var út á Íslandi fyrir jól.
Food & Fun hátíðin hefst 16. febrúar og stendur
yfir í fjóra daga. Kokkar víðs vegar að úr heiminum
munu útbúa matseðla á íslenskum veitingastöðum og
keppa sín á milli í matreiðslu. ■
Dessertkokkur
prinsins til landsins
MORTEN HEIBERG Dessertkóngur Danmerkur er á leið til lands-
ins og mun eflaust töfra fram yndislega eftirrétti á Food & Fun
hátíðinni.
Tvö kvikmyndahandrit frá Bret-
landi eru í lestri hjá kvikmynda-
fyrirtækinu Radar um þessar
myndir. Verði handritin að veru-
leika hefjast tökur hér á annarri
myndinni hér á landi næsta vet-
ur.
Önnur myndin, sem verður að
mestu tekin upp hér á landi, fjall-
ar um mann sem kemur úr stór-
borg og inni í íslenskt samfélagi.
Myndin er pólitísk, með húmor
og dramatík í bland. Verið er að
leita að leikstjóra fyrir þá mynd
og vill Radar ráða Íslending til
verksins en hefur enn ekki fund-
ið þann rétta. Hin myndin er
spennumynd sem verður tekin
upp jafnt á Íslandi og í Englandi.
Ekki er enn komið í ljós hverjir
muni koma að myndunum enda
enn verið að lesa handrit.
Einnig er fyrirhugað að taka
upp hér á landi stuttmynd eftir
leikstjóra frá Suður-Afríku, sem
upphaflega átti að mynda í
Höfðaborg. Leikstjórinn, sem
hefur gert auglýsingar hér á
landi, ákvað að breyta handriti
myndarinnar þannig að hægt
væri að taka hana hér. Svo gæti
reyndar farið að myndin yrði í
fullu lengd en það á eftir að
koma betur í ljós.
Að sögn Selmu Karlsdóttur
hjá Radar er mikill áhugi á Ís-
landi í Bretlandi og til að mynda
hafa margir leikstjórar sem hafa
komið hingað sýnt áhuga á að
leikstýra íslenskum auglýsing-
um. Hingað til hefur Radar mest-
megnis gert auglýsingar fyrir
erlenda aðila undir nafninu
Labrador, meðal annars fyrir
Coca-Cola, Zero-súkkulaði og
símafyrirtækið Belgacom. Nokk-
ur erlend auglýsingaverkefni
eru þegar komin upp á borð fyrir
sumarið og má þar nefna stóra
bílaauglýsingu fyrir BMW sem
stefnt er að taka upp hér á landi í
júní.
Þess má geta að Radar vann
fyrir nokkru síðan að undirbún-
ingi að fyrirhuguðum tökum á Ís-
landi fyrir kvikmyndina The
Hitchhiker's Guide to the Galaxy
en hætt var við tökur af sparnað-
arástæðum. „Við vorum búin að
ferðast með fólkinu um landið,
en þetta voru menn sem hafa
unnið með okkur áður. Síðan var
senan minnkuð niður og þeir sáu
ekki ástæðu til að koma hingað,“
segir Selma.
freyr@frettabladid.is
AUGLÝSING Úr auglýsingu Coca-Cola sem var tekin upp hér á landi fyrir skömmu.
FYRIRTÆKIÐ RADAR STENDUR Í STÓRRÆÐUM: HANDRITSLESTUR STENDUR YFIR.
Tvær breskar kvikmyndir
„Ég er búin að eiga marga sembala í gegnum tíð-
ina,“ segir Helga Ingólfsdóttir semballeikari, sem
hlaut heiðursverðlaun íslensku tónlistarverðlaunanna
í síðustu viku.
„Þetta hljóðfæri á sér langa sögu og hefur mjög sér-
stakan hljóm. Meðan ég var í námi ríkti sá skilningur
að semballinn væri bara fyrirrennari píanósins. Menn
reyndu allt til að endurbæta hljóðfærið, en það hef-
ur bara orðið til hins verra. Sjálf lærði ég á slíkt
hljóðfæri, sem reynt hafði verið að bæta með hlið-
sjón af píanóinu, en þegar ég er nýhætt í námi átt-
aði fólk sig loks á því að þetta er hljóðfæri í sínum
rétti. Þá fóru menn að smíða eftirlíkingar af eldri
hljóðfærum og þær hafa svo reynst best. Hljóðfæra-
smíðin á þeim tíma var svo fullkomin að það hefur
ekki verið hægt að bæta sembalinn neitt frá því sem
var. Bestu hljóðfærin í dag eru nákvæmar eftirlíking-
ar af þessum gömlu hljóðfærum.“
Helga varð fyrst Íslendinga til að læra á sembal og er
því brautryðjandi í semballeik hér á landi. Fleiri hafa
þó fylgt í kjölfarið, gerst nemendur Helgu og nú eru
þrjár konur auk hennar starfandi semballeikarar hér
á landi.
Þegar Helga var nýkomin frá námi byrjaði hún fljót-
lega að spila í Skálholti, sem hefur verið hennar
staður æ síðan. Hún hætti í fyrra að hafa umsjón
með Sumartónleikum í Skálholti, sem hún stofnaði
ásamt Manuelu Wiesler flautuleikara fyrir 30 árum.
Einnig tók hún þátt í að stofna Bachsveitina í Skál-
holti, sem hefur einbeitt sér að flutningi barokktón-
listar.
„Það var fyrir einhverja handleiðslu að ég komst í
Skálholt. Ég var að leita að stað þar sem ég gæti
starfað sem semballeikari og þá fann ég þennan
stað þar sem semballinn hljómar svo stórkostlega.
Hann þarf að geta
fyllt hvern krók og
kima í því húsnæði
sem spilað er í til
að ná almennilega
eyrum fólks. Kirkj-
an í Skálholti er
sjálf eins og hljóð-
færi því hún tekur
svo vel við hljómn-
um.“
Helga hefur flutt
töluvert af íslenskri
sembaltónlist sem
hefur verið samin
sérstaklega fyrir
hana.
„Ég er nýbúin að
leika inn á disk
töluvert af þessum verkum, en hann kemur ekki út
fyrr en líklega með sumrinu.“
Semballeikur: Hljómar hvergi betur en í Skálholti.
SÉRFRÆÐINGURINN
HELGA INGÓLFSDÓTTIR
Semballinn á sér merkilega sögu
og hefur sérstæðan hljóm sem
nýtur sín ekki í stórum tónleika-
höllum.
Hljómurinn þarf
að fylla salinn
... fær Impregilo fyrir að fagna
kínverska nýárinu um helgina
með kínverskum hádegisverði í
aðalmatsalnum á Kárahnjúkum
og kínverskri dagskrá með bíó-
sýningu og karaókí.
HRÓSIÐ
Lárétt: 1hlessa,6vei,7ku,8ös,9lak,
10sóp,12agg,14hof, 15ól,16ak,17
óða,18laus.
Lóðrétt: 1hvöt,2les,3ei,4skapgóð,5
auk,9lóa,11doka,13glas,14hal,17
ós.
Selma
Björnsdóttir
– hefur þú séð DV í dag?
Valin í Júróvisjon
fyrir Íslands hönd
i
Á FIMMTUDÖGUM
Auglýsingasíminn
er 550 5000
auglysingar@frettabladid.is
- mest lesna blað landsins -