Tíminn - 10.01.1975, Blaðsíða 3

Tíminn - 10.01.1975, Blaðsíða 3
Föstudagur 10. janúar 1975. TÍMINN 3 Nú eru loðnuveiðiskipin óðum að ferðbúast. Þessa mynd tók Róbert i Reykjavlk i gær. Skipverjar á Gisla Arna voru að taka nótina um borð og gera allt klárt. Eggert Gislason skipstjóri sagði Tíma- mönnum, að hann byggist jafnvel við þvi, að þeir færu út í dag. Olíukreppan örvar þróunina Það var ekki að ófyrirsynju, að orkumálin voru ofarlega á baugi á Alþingi sfðustu vikurnar fyrir þinghlé. Heilu landshlutarnir búa við sllkt öryggisleysi I raforkumálum, að jafnvel atvinnulffi er stefnt I voða af þeim sökum. Til að mvnda er mikið I húfi á Aust- fjörðum, að næg raforka sé fyrir hendi meðan loðnuvertiðin stendur yfir. Norðlendingar hafa heldur ekki farið varhluta af þessu slæma ástandi I raforkumál- um. En það er ekki einungis vegna þess öryggisleysis-, sem nú rlkir, að orkumálin hafa verið mikið rædd. Stöðugt hækkandi verðlag á oliu ýtir undir þá sjálfsögðu kröfu, að innlendir orkugjafar séu nýttir f ört vaxandi mæli. Olíukostnaður á Norðurlandi Ingi Tryggvason alþingis- maður benti á það i umræðum um þessi m á 1 á Alþingi nýlega, að verulcgur hluti þeirrar raf- orku, sem nú væri dreift um Norðurland, væri framleiddur með dlselvélum. Sagði þing- maðurinn, að áætlaður oliu- kostnaður fyrir árið 1974, vegna raforkuframleiöslu á Norðurlandi, myndi nema um 120 millj. króna, og myndi sá kostnaður hækka um 50% á þessu ári. Sagði Ingi Tryggva- son, að á meðan ekki tækist að nýta innlenda orkugjafa i rikari mæli, héldi kostnaðurinn við rckstur dfselstöðva áfram að velta upp á sig með hverju árinu sem liði. Kröfluvirkjun 1977 Tilefni þessara umræðna var fyrir- spurn Inga Tryggva- s o n a r t i 1 iðnaðar- og o r k u - málaráð- herra, Gunnars Thoroddsen, um rannsóknir og virkjunar undirbúning á Kröflusvæðinu. Kom fram i svari ráðherrans, að búast mætti við raforku- framleiðslu frá Kröfluvirkjun árið 1977. Jafnframt upplýsti ráðherrann, að væntanlega yröi hægt að ganga frá kaup- samningi á vélum og tækjum til virkjunarinnar { næsta mánuði, en afgreiðslufrestur á þeim er 18-20 mánuðir. Má I þvi sambandi geta þess, að nú eru staddir hér á landi japanskir aðilar, sem áhuga hafa á sölu véla til Kröflu- virkjunar. Hitaveita Suðurnesja Orkumálin veröa áfram i brennidepli. islendingar búa yfir orkulindum, sem verða nýttar i vaxandi mæli. Oliu- kreppan flýtir þeirri þróun. Eitt af merkari þingmálum, sem hlaut afgreiðslu fyrir þinghlé, var frumvarp um hitaveitu d Suðurnesjum. Þegar hún tekur til starfa, mun hún þjóna byggðar- lögum, sem nú telja um 12 þús. manns. Afram veröur að halda á þessari braut með stöðugum rannsóknum á virkjunar- möguleikum. Og þar sem hita- veitu verður ekki komið við, ber aðstefna að rafhitun húsa. -a.þ. 18,4 MILLJONIR í NORÐFJARÐAR- SÖFNUNINA NORÐFJARÐARSÖFNUNIN heldur áfram af fullum krafti. Nú hafa safnazt nokkuð á nítjándu milljón eða 18,351,675 kr. Stærstu gjafir frá siðasta uppgjöri eru 250 þús. frá Útvegsmannafélagi Akraness, 100 þús. frá Hibýlaprýði h.f. I Reykjavík, 100 þús. frá Verzlunarmannafélagi Reykjavikur, Þá hefur verið safnað 257 þús. kr. á Egils- stöðum, 211 þús. á Seyðisfirði og 626 þús. á Húsavik. Enn fremur hefur borizt söfnunar- fé úr áramótafögnuði islendinga, sem staddir voru á Kanarieyjum um hátiðarnar. Búið er að úthluta einni og hálfri milljón króna til Norð- firðinga. Fé til söfnunarinnar má leggja inn á giróreikninga númer 20003, 90003 og 90004. Ennfremur er tekið á móti framlögum á afgreiðslum dagblaðanna, skrifstofu RKI að Nóatúni 21, skrifstofu Reykjavikurdeildar RKl og öldugötu 4 og skrifstofu Hjálparstofnunar kirkjunnar að Klapparstig 27. Söfnunarnefndin hefur beðið blaðið að koma á framfæri þökkum fyrir höfðinglegar gjafir. AAest um sjúkra- og slysa- flutninga í janúarmánuði gébé—Reykjavik — Frá slökkvi- stöðinni i Reykjavik hefur borizt skýrsla um sjúkra- og slysaflutninga árið 1974, ásamt skýrslu um útköll og eldsvoða i Reykjavik og nágrenni áriö 1974. Tala ferða i sjúkra- og slysaflutningum á árinu 1974 er alls 10.196, en þá eru taldar með ógjaldskyldar ferðir til baka. 1 janúarmánuði eru flestar ferðirnar farnar, eða 968 talsins. Ferðir i útköll og vegna eldsvoða urðu 426 á árinu, þar af voru 400kvaðningar i sima, 24 um brunaboða og 2 kvaðningar frá sendiboða. 122 sinnum var slökkviliðið kvatt út, án þess að eldur væri laus. Þar af var 35 sinnum um gabb að ræða. Oftast var slökkviliðið kvatt út vegna eldsvoða i ibúðarhúsum, eða alls 94 sinnum. 1 langflestum tilvikum voru orsakir eldsvoða ikveikjur, alls 101 sinni. Ókunnugt var um orsakir i 73 tilvikum, og 59 sinnum kviknaði i út frá raf- magnstækjum og raflögnum. Tjón var mikið á þrem stöðum og talsvert i 30 tilvikum en 150 sinnum taldist það litið og ekkert i 121 tilviki. íþróttafélag fatlaðra stofnað á Akureyri NOKKRU fyrir s.l. áramót var stofnað tþróttafélag fatlaðra á Akureyri. Það var Í.S.t., sem beitti sér fyrir félagsstofnuninni I samstarfi við Sjálfsbjörgu á Akureyri, en fyrr á árinu var stofnað sams konar félag i Reykjavik. Fundarstjóri stofnfundarins á Akureyri var hinn dugmikli for- ystumaður Sjálfsbjargar, frú Heiðrún Steingrimsdóttir, en auk hennar vann Magnús H. ólafsson iþróttakennari ötullega að framgangi málsins. A fundinum mætti Sigurður Magnússon, fulltrúi I.S.I., og flutti hann kveðjur og árnaðar- óskir Iþróttasambandsins. Hann tilkynnti jafnframt, að l.S.Í. hefði ákveðið að gefa hinu nýja félagi 100 þúsund krónur. Auk þess, sýndi hann kvikmyndir frá iþróttaiðkunum fatlaðra i öðrum löndum og greindi frá alþjóðlegu samstarfi á þessum vettvangi. Isak Guðmann, form. Iþrótta- bandalags Akureyrar, ávarpaði einnig stofnfundinn, bauö hið nýja félag velkomið til samstarfs innan l.B.A. og færði þvi að gjöf kr. 10.000.00 frá bandalaginu. Meðal annarra, sem sátu stofn- fundinn, voru Hermann Sig- tryggsson, iþróttafulltr. Akureyr- ar, og Hermann Stefánsson, fyrrv. form. IBA og forystumaður i iþróttahreyfingunni um áratugi. Samkvæmt upplýsingum frá Akureyri hefur félögum fjölgað ört, og bjartsýni rikir meðal þeirra um starfsemina. 1 fyrstu stjórn félagsins voru kjörin: Stefán Arnason form., Jakob Tryggvason varaform., Kristjana Einarsdóttir ritari, Ásgeir P. Asgeirsson gjaldkeri og Tryggvi Sveinbjörnsson. Isak Guömann, form. lþróttabandalags Akureyrar, ávarpar stofnfund tþróttafélags fatlaðra og býður félagið velkomið til samstarfs. Sitjandi eru Heiðrún Steingrimsdóttir fundarstjóri og Kristjana Einars- dóttir fundarritari.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.