Tíminn - 29.01.1975, Síða 6
6
TÍMINN
Miðvikudagur 29. janúar 1975.
Lífeyriss|óðirnir ráða yfir
13-14 milljörðum — ráð-
stöfunarfé á þessu
ári 5,5 milljarðar
Rætt um misræmi, sem gætir miili einstakra lífeyrissjóða.
Lífeyrissjóðir hérlendis um eitt hundrað talsins
Kjartan Ólafsson
Taka sæti
á Alþingi
Tveir varamenn tóku sæti á
Aiþingi i gær. Kjartan ólafsson,
ritstjóri Þjóviljans, tók sæti
Svövu Jakobsdóttur, sem er fjar-
verandi vegna veikinda, og Jón
Baldvin Hannibaisson, skóla-
meistari á tsafirði, tók sæti Kar-
vels Pálmasonar, sem einnig er
fjarverandi vegna veikinda.
Kjartan Ólafsson hefur áður setið
á Alþingi, en Jón Baldvin Iianni-
balsson situr nú i fyrsta sinn á
þingi.
Jón Baldvin Hannibalsson.
Þaö kom fram í ræðu
Tómasar Árnasonar (F) í
umræðum í sameinuðu
þingi i gær, að ráð-
stöfunarfé hinna ýmsu líf-
eyrissjóða hér á landi væru
u.þ.b. 5,5 milljarðar króna
á þessu ári, en samtals
nemur inneign þessara líf-
eyrissjóða, sem eru nálægt
eitt hundrað talsins, milli
13 og 14 milljörðum króna.
Nokkrar um-
ræður urðu i
sameinuðu
þingi i gær
vegna fyrir-
spurnar
Magnúsar
Kjartanssonar
(Ab) um lif-
eyrissjóð fyrir
alla landsmenn. Fyrirspyrjandi
gerði að umtalsefni það misrétti,
sem nú ætti sér stað með þvi að
sumir landsmenn væru i lifeyris-
sjóðum, sem væru verðtryggðir,
en aðrir yrðu að sætta sig við
lakari kjör i þessum efnum. Hér
yrði að koma á jafnrétti, og það
væri fólgið i þvi, að allir lands-
menn væru i einum lifeyrissjóð og
nytu sömu kjara. Sagði fyrir-
spyrjandi, að aðrar Norðurlanda-
þjóðir hefðu leyst sin mál farsæl-
lega með þeim hætti. Þá minnti
fyrirspyrjandi á það, að i ráð-
herratið sinni hefði hann falið
nefnd að gera athugun á þessum
málum.
Matthías Bjarnason heil-
brigðis- og tryggingamálaráð-
herra svaraði fyrirspurn
Magnúsar Kjartanssonar og rakti
nokkuð gang þessara mála. Gat
hann þess, að Guðjón Hansen
tryggingafræðingur hefði bent á
mismunandi leiðir til að ná þvi
marki, að allir landsmenn ættu
aðild að lifeyrissjóðum, en nú
stæðu sakir þannig, að 90-95%
landsmanna væru i lifeyris-
sjóðum.
Magnús Kjartansson tók aftur
til máls og sagði, að málið væri
fullkannað og kominn væri timi
til, að Alþingi léti málið til sin
taka af alvöru.
Guömundur H. Garðarsson (S)
sagðist ekki hafa séð þá skýrslu,
sem Guðjón Hansen hefði samið
um þetta mál. Hann sagðist vilja
benda Magnúsi Kjartanssyni á,
að málið væri ekki svo einfalt, að
hægt væri fyrirvaralaust að sam-
eina alla lifeyrissjóði. Minnti
hann á það, að einn þáttur gild-
andi kjarasamninga verkalýðs-
hreyfingarinnar væri tengdur lif-
eyrissjóðunum.
Tómas
Árnason sagði,
að þetta væri
stórt mál og er-
fitt. Nauðsyn-
legt væri að
samræma þessi
mál til að koma
i veg fyrir al-
varlegt mis-
rétti, þar sem aðeins hluti lands-
manna væri i verðtryggðum lif-
eyrissjóðum. Siðan varpaði þing-
maðurinn þeirri spurningu fram
hvaða aðili væri þess megnugur
að verðtryggja alla lifeyris-
sjóðina. Kom fram i ræðu hans,
að ráðstöfunarfé tæplega eitt
hundrað lifeyrissjóða i landinu
væri á þessu ári 5,5 milljarðar
króna, en inneign þeirra næmi 13-
14 milljörðum króna samtals.
Bjarnfriður Leósdóttir (Ab)
sagði, að i þessum málum væri
óréttlætið mest. Hún sagði, að
lifeyrissjóðir opinberra starfs-
manna, þ.e. bæjar- og rikisstarfs-
manna væru verðtryggðir og
kvaðst vilja vekja athygli á þvi,
aö i nýsamþykktum fjárlögum
væri gert ráð fyrir 400 milljón
króna fjárveitingu sem uppbót til
lifeyrissjóðs rikisstarfsmanna.
Einnig tóku til máls Geir
Gunnarsson (Ab), Ingi
Tryggvason (F), Eðvard
Sigurðsson (Ab) og Gylfi Þ.
Gislason (A). Vildi Gylfi þakka
Alþýðuflokksmönnum heiðurinn
af þvi að farið var að athuga þessi
mál á breiðum grundvelli.
Einar
Agústsson .
utanrikisráð-
herra leiðrétti
Gylfa, og benti
á, að Ólafur
Jóhannesson
hefði tvivegis
flutt þetta mál á
Alþingi, i fyrra
skiptið 1956. Það væri hins vegar
út i hött að deila um heiður i þessu
máli. Þingmenn allra flokka væru
áhugasamir um framgang þessa
máls.
Bifreiðatryggingar hag-
kvæmari og ódýrari9
Þrír af þingmönnum Alþýðuflokksins vilja
hvort unnt sé að gera breytingar í þó dtt
t gær var lögö fram þings-
ályktunartiliaga frá þremur
þingmönnum Alþýðuflokksins,
Benedikt Gröndal, Eggert Þor-
steinssyni og Sighvati Björgvins-
syni, um athugun á bifreiða-
tryggingum. Er ráð fyrir þvi gert
i tillögunni, aö rikisstjórnin láti
Ný umdæma-
skipan dýra-
lækna á
Austurlandi
Lagt hefur verið fram frum-
varp um nýja umdæmaskiptingu
dýralækna i Austurlandskjör-
dærni. Flutningsmenn eru þeir
Tómas Arnason, Sverrir Her-
mannsson og Lúðvik Jósefsson. t
greinargerð með frumvarpinu
segja flutningsmenn, að ástæða
sé til að ætla, að meiri möguleik-
ar séu á að fá fleiri dýralækna til
starfa á Austurlandi en verið hef-
ur hingað til. Þess vegna sé
frumvarpið flutt að ósk heima-
manna og að höfðu samráði við
dýralækna i Austurlands-
kjördæmi. Gert er ráð fyrir þvi i
frumvarpinu, að kjördæminu sé
skipt i þrjú svæði, þ.e. Austur-
landskjördæmi nyrðra (Norður-
Múlasýsla), Austurlandskjör-
dæmi syðra (Suður-Múlasýsla),
og Austur-Skaftafellssýsluum-
dæmi. I frumvarpinu er skipting-
unni gerð nánari skil.
fara fram sérfræðilega rannsókn
á þvi, hvort unnt sé að gera bif-
reiðatryggingar þjóðinni ódýrari
og hagkvæmari, og verði í því
sambandisérstaklega athuguð ný
tryggingakerfi.sem breiðast ört
út i Bandarikjunum og Kanada. t
greinargerö með tillögunni segir:
„Bifreiðaeign íslendinga hefur
farið ört vaxandi á siðustu árum,
og jafnframt hefur kostnaður við
bifreiðatryggingar aukizt að
sama skapi. Ýmislegt veldur þvi,
að tjón á farþegum, ökumönnum
og bifreiðum er hér mikið, og
kemur það eðlilega fram i mikl-
um tryggingakostnaði. Er þvi til
mikils að vinna, ef unnt reyndist
að draga úr þessum kostnaði eða
gera bifreiðatryggingar á annan
hátt hagkvæmari en þær hafa
verið.
Sams konar vandamál hafa i
öðrum löndum leitt til þess, að
fram hafa komið hugmyndir um
veigamiklar breytingar á
tryggingakerfi bifreiða, og hafa
þær sérstaklega verið reyndar i
Bandarikjunum og Kanada.
f Bandarikjunum ber mest á
svokölluðum ,,no fault” bifreiða-
tryggingum, sem fyrst voru tekn-
ar upp i fylkinu Massachusetts
árið 1971. Siðan hafa fjölmörg
fylki tekið upp slik kerfi i mis-
munandi myndum, og fram hafa
komið á þinginu i Washington til-
lögur um að skylda öll fylkih til
þess.
Sameiginlegt þessum kerfum
er, að greiðslur tjóna eru án tillits
til sakar og fara fram innan
tiltekins tima, sem er allt niður i
30 daga. Sparast við þetta mikil
málaferli, enda lögfræðingar
Idta kanna,
andvigir kerfinu, en trygginga-
félög yfirleitt hlynnt þvi. Þá er
það talin mikil framför, að bóta-
mál fástafgreidd á mun skemmri
tima en áður. Þar að auki hefur
reynslan orðið sú, að iðgjöld hafa
lækkað. Sem dæmi má nefna, að
hjá hinu gagnkvæma trygginga-
félagi Allstate lækkaði iðgjald
tiltekinna bifreiðatrygginga i
New York úr $ 134 i $ 85, en hjá
öðrum félögum nokkru minna.
Sem dæmi um Kanada má
nefna fylkið Manitoba sem hefur
tekið upp ,,no fault” kerfi bif-
reiðatrygginga, sem nær jöfnum
höndum til slysa á fólki og
skemmda af völdum bifreiða.
Kerfið gengur undir nafninu
„Autopak” og er i höndum eins
opinbers aðila, The Manitoba
Public Insurance Corporation.
Kerfið tók til starfa seint á árinu
1971 og hefur þótt gefazt mjög vel.
Tryggingaiðgjöld eru annars veg-
ar af ökutækjum og fylgja þá ár-
legri skráningu þeirra en hins
vegar af ökumönnum, en sá hluti
er mishár eftir aldri og kyni, en
auk þess eru hækkandi iðgjöld ef
ökumaður hefur lent i óhöppum
og fer það eftir sérstökum skala.
Hér er ekki unnt að gera itar-
legri grein fyrir þessum nýjung-
um, en þær gefa ástæðu til þess,
að þeim sé gaumur gefinn, enda
þótt aðstæður séu um margt ólik-
ar á Islandi og i þeim löndum,
sem nefnd hafa verið. Þvi er þessi
tillaga flutt um að rikisstjórnin
láti fram fara sérfræðilega at-
hugun þessara mála.”
Launasjóður
rithöfunda
Lagt hefur verið fram frum-
varp á Alþingi um launasjóð rit-
höfunda. Er frumvarpið flutt af
rikisstjórninni. Gert er ráð fyrir
þvi, að stofnaður verði launasjóð-
ur islenzkra rithöfunda og skal
stofnfé hens vera 21,7 millj. kr.
sem greiðist úr rikissjóði. Er gert
ráð fyrir þvi, að f járveiting verði i
fyrsta sinn veitt i fjárlögum fyrir
árið 1976. t 2. gr. frumvarpsins
segir, að árlega skuli ætluð fjár-
veiting, sem sé eigi lægri en sú
upphæð, sem áður er nefnd. Skal
fjárhæðin endurskoðuð ár hvert
við undirbúning fjárlaga með til-
liti til breytinga á byrjunarlaun-
um menntaskólakennara. Rétt á
greiðslu úr sjóðnum hafa islenzk-
ir rithöfundar og höfundar fræði-
rita. Einnig er heimilt að greiða
úr sjóðnum fyrir þýðingar á is-
lenzku.
1 frumvarpinu er gert ráð fyrir
þvi, að menntamálaráðuneytið
setji reglugerð um framkvæmd
laganna að höfðu samráði við
félagasamtök rithöfunda.