Tíminn - 29.01.1975, Blaðsíða 8
8
TÍMINN
Miövikudagur 29. janúar 1975.
Fiskneyzla í Sovétríkjunum
Rætt við Alexander Isjkov,
sjóvarútvegsráðherra Sovétríkjanna
— Hvað er að segja um fisk-
neyzlu i Sovétrikjunum?
— Nú neytir hver sovétborgari að
meðaltali 17 kg. af unnum fiskaf-
urðum, tilbúnum til neyzlu á ári.
Það er erfitt að segja fyrir um,
hvort þetta er mikið eða litið. Það
fer eftir við hvað er miðað. Við
vonumst til þess, að fiskneyzlan
verði orðin 20-22 kg. á hvern
sovétborgara eftir 2-3 ár.
— En mun það ekki koma við
hagsmuni annarra þjóða, sem eru
fiskneyzluþjóðir frá fornu fari?
— Aðeins rányrkja getur skaðað
hagsmuni annarra þjóða, en
rányrkja eyðir fiskstofnunum.
Þess vegna eru Sovétrikin
eindregið fylgjandi heiðarlegu
alþjóðasamstarfi á sviði
sjávarútvegs, grundvölluðu á
visindarannsóknum. Afstaða
Sovétrikjanna um fiskveiðar utan
fiskveiðitakmarka var lögð fram
á hafréttarráðstefnunni i Caracas
i Venezúela ekki fyrir löngu. Við
erum þvi fylgjandi, að samári fari
hagsmunir strandrikja og rikja,
sem stunda veiðar úti á opnu hafi.
Veiðimöguleikar i heimshöfun-
um eru mjög miklir. Það má jafn-
vel veiða miklu meira á land-
grunninu, þar sem mestur hluti
heimsveiðanna fer fram og þar
sem þær hafa valdið hvað mest-
um usla, eða 80-100 milljón tonn i
stað þeirra 70 milljón tonna, sem
nú eru veidd. Þessi viðbótar veiði
mundi ekki hafa neinn skaða i för
með sér fyrir náttúruna. Auk
þessa eru mikil auðævi á nýjum
veiðisvæðum og á miklu dýpi
heimshafanna.
Sovétrikin hafa gert yfir 50
samninga um fiskveiðimál við
ýmis lönd. Við erum félagar
ýmissa alþjóölegra samtaka og
gætum þess að standa við allar
skuldbindingar okkar. Að frum-
kvæði Sovétrikjanna hafa verið
gerðar ráðstafanir til að vernda
fiskstofna Eystrasalts, Norð-
vestur-Atlantshafs, ráðstafanir
að takmarka sildveiðar á nokkr-
um stöðum i Kyrrahafi og til að
koma reglu á veiðar verðmætra
fisktegunda og laxa á hafi úti.
í Sjávarútvegsmálaráðúneyti
Sovétrikjanna er sérstök deild,
sem sér um vernd og eflingu fisk-
stofnanna. Þar eru settar
veiðireglur og fylgzt með þvi, að
þeim sé framfylgt. Einnig heyrir
fiskeldi undir þessa deild.
130 stórar fiskeldisstöðvar
starfa viðsvegar i Sovétrikjunum,
á ströndum Azovskhafs, Hvita-
hafs, Eystrasalts, Kaspiahafs og
á Austurströnd Siberiu. Þar eru
aldar 40 fiskategundir, þ.á.m.
styrjur,laxar og fl. verðmætir
stofnar. Arlega sleppa þessar
stöðvar 80 milljón styrjuseiðum i
sjó og vötn, 740 milljón laxa-
seiðum og 9 milljörðum ýmissa
annarra tegunda. Við höfum lengi
unnið að þvi að flytja Kyrrahafs-
lax I Barentshaf og venja þá að-
stæðum þar. Það er þegar hafin
veiði á þeim i sovézkum ám og i
nágrannarfkjunum.
— En er það ekki rétt hjá mér, að
aðaláherzlan sé lögð á veiðar I
hafi?
— Nei. Það er ekki rétt. í Sovét-
rikjunum eru mjög mörg vötn og
það væri óviturlegt að leggja
áherzlu á aðeins eitt atriði. Aukin
veiði mannsins hefur óumflýjan-
lega i för með sér skaða fyrir fisk-
stofna i stöðuvötnum landsins.
Auk þess stækka borgirnar,
iðnaðurinn þróast og allt þetta er
tengt aukinni ferskvatnsveiði.
Ráðstafanir gegn mengun og til
fiskeldis hafa orðið til þess, að
aukin veiði hefur ekki skaðað
fiskstofnana.
Settar hafa verið mjög strang-
ar veiðireglur i ýmsum vötnum
og þung viðurlög liggja við
veiðiþjófnaði. Unnið er að þvi að
fullkomna fiskeldi. Visindamenn
hafa jafnvel hafið kynbætur á fiski
og nú er til i Sovétrikjunum fisk-
ur, sem heitir „bester” og minnir
einna helzt á styrju. Þessi nýi
fiskur lifir góðu lifi i vötnum og
tjörnum.
A oliusvæðinu Tjúmen eru mjög
mörg vötn, bæði stór og smá. Þar
er verið að koma á fót fiskeldi og
verða þar að mestu leyti alin seiði
verðmætra fisktegunda, s.s. laxa.
Nokkrar stöðvar eru þegar
farnar að gefa af sér góðan arð.
— Nú nefna margir þær
ráðstafanir, sem gerðar hafa
verið I sambandi við Bajkal sem
gott dæmi um umhverfisvernd og
fiskeldi. Hvað segið þér um það?
— Já, það hafa verið gerðar
áhrifarikar ráðstafanir i sam-
bandi við ómúleldi i Bajkal. Veiði
var algerlega bönnuð I átta ár, frá
1968-1975, og gerð var og
samþykkt áætlun, þar sem gert
var ráð fyrir endurbótum á göml-
um fiskeldisstöðvum við strendur
Bajkal og byggingu nýrra. Sam-
kvæmt þessari áætlun verður
fimm milljónum ómúlseiða sleppt
I Bajkal árlega og 2 milljónum
Bajkalstyrjuseiða.
Fiskifræðingar segja, að þessar
ráöstafanir hafi þegar haft góð
áhrif á ómúlstofninn.
Það hefur oft komið fram sú
hugmynd að gera Bajkalvatn að
veiðivatni fyrir sportveiðimenn,
en friða það alveg fyrir allri
annarri veiði. Hvað álitið þér um
þetta?
— Já, þessi hugmynd hefur
komið fram og mörg rök mæla
með henni, en ég álit að heppileg-
ast sé að bæði útvegur og sport-
veiðar séu stundaðar i
Bajkalvatni.
ALEXANDER Isjkov, sjávarútvegsráðherra Sovétríkjanna
FAGÆTI NÁTTURUNNAR Á
SEYCHELLESEYJUM í INDLANDSHAFI
SEYCHELLESEYJAR eru I
Indlandshafi, alllangt norður
af Madagaskar, og er þaö all-
mikil eyjaþyrping. Heitir sú
eyjan Mahé, sem stærst er. A
þessum eyjum er mikiö fugla-
lif, og þar er aragrúi afarlit-
skrúöugra smáfiska, sem
kallaöir eru fiörildisfiskar
vegna litbrigöa sinna.
Til dæmis um fuglalifið á
eyjunum má geta þess, að þar
eru þrjátiu tegundir, sem
hvergi eru til annars staðar i
heiminum. Fátt er þó um
suma, en meira af öðrum.
Meðal þessara fugla eru
tveir, sem eru hvað algengast-
ir — sólskinsfuglinn og fugl,
sem nefndur er búlbúl. Al-
þjóðafuglaverndunarráðið á
og hefur tilsjón með einni af
eyjunum, Frændaeyju, og er
gestum heimilt að koma þang-
að þrjá daga i viku. Þeir verða
þó að skrá sig til hópferðar
þangað og lúta leiðsögn gæzlu-
manna I einu og öllu.
Frændaey er einmitt sið-
asta heimkynni sumra fugla-
tegunda, og við höfnina þar
hafast við siðustu kynhreinu
Seychelles-turtildúfurnar. A
öðrum eyjum hafa þær bland-
azt turtildúfum frá Madaga-
skar. Það eru ekki landfuglar,
sem hafast þarna við heldur er
þar margt sjófugla, þar á
méðal svokallaðir hitabeltis-
fuglar með .hvitt stél og
þernutegundir, drifhvitar.
Þær hafa hann siö að verpa
svo að segja hvar sem er, og
eiga egg sin jafnvel á trjá-
greinum, þar sem þær geta
skoröað þau við stofninn. Sé
farið svo óvarlega i byggðum
þeirra, að þær styggist, er
algengt aö egg detti til jarðar
og brotni, þegar þær fljúga af
þvi.
Arid heitir önnur fuglaeyja i
eyjaklasanum, og hefur ný-
lega verið friðlýst. Mun
sérstök fuglaverndarnefnd
heimamanna á Seychelleseyj-
um halda hlifiskildi yfir henni.
Sumum eyjanna er svo farið,
aö þar er mjög örðugt að kom-
Paradfsarfuglar við hreiöur á Seychelieseyjum — þeir eru þar
aðeins til á einum staö — og hvergi annars staöar I heiminum.
— Ljósmynd: Peter Scott.
ast að landi vegna ókyrrðar i
sjó við klettótta og afdreps-
lausa strönd. Á slikum eyjum
fá fuglarnir næði, án þess að
Ihlutun manna komi til. Á
einni þessara eyja er til dæm-
is fáliöaður stofn sérstakrar
tegundar rauðbrystinga, eitt-
hvað fjörutiu til fimmtiu fugl-
ar. Þar er einnig þó nokkur
stofn bládúfna.
A ey, sem heitir La Digue,
er svört tegund paradisar-
fugla, sem lifa á flugum, um
áttatiu til hundrað fuglar, og
þar er sérstakur gæzlumaður,
er hefur það verk eitt með
höndum að vernda.paradisar-
fuglana. Karlfuglinn er ákaf-
lega fallegur, blásvartur á lit
og með afarlangar stélfjaðrir.
A Prasliney eru svartir
i páfagaukar, og hafast þeir
við i pálmalundum, sem frið-
lýstir hafa verið.
Á Mahé, stærstu eynni,
verpa fágætir fuglar i garði
stjórnarráðsbyggingarinnar.
Þar á eynni er litil uglutegund,
sem er afarfágæt, svo að ekki
sé meira sagt. Til skamms
tima var talið, að hún væri út-
dauð, en i seinni tið hefur
heyrzt til hennar annað veifið,
þótt hún sjáist afarsjaldan.
Blómjurtir, sem hvergi eru
nema á Seychelleseyjum, eru
um áttatiu og burknategundir
fimmtán. Margar þessara
jurta lifa snikjulifi á trjám, og
fannst ein þeirra ekki fyrr en
árið 1970. Ekki eru trjáteg-
undir, sem þekkjast annars
staðar i heiminum, nema sex,
ef undan eru skilin tré, sem
gróðursett hafa verið þar, og
fyrir skömmu fannst nýr
blómrunni á Aride. Mestan
svip setja pálmaviðirnir á
Seychelleseyjum, og af þeim
eru sex tegundir, er ekki hafa
fundizt annars staðar. Meðal
þeirra eru hinir frægu
sækókospálmar, sem vaxa
hvergi nema i Maidalnum á
Prasliney. Þeir hafa stærst
laufblöð allra trjáa i hinu
forna heimsveldi Breta.
Sé svo litið til lifsins i sjón-
um við strendur eyjanna og
kóralrifin umhverfis þær, þá
er þá sögu að segja, að fiska-
tegundir eru hálft niunda
hundrað. Margir þessara fiska
eru litlir vexti, en þar eru
einnig fiskar, sem háski stafar
af, bæöi bitvargar og eitraðir
fiskar. Þar er tegund barra-
kúta, alþekktur skaðræðis-
fiskur I fljótum Suður-
Ameriku, en hefst hér við I sjó,
og ræðst ekki á fólk, þótt
margir búist við sliku. Ljóna-
fiskur svonefndur er aftur á
móti með baneitraða ugga, og
á hann er þvi bezt að horfa að-
eins. En mesta athygli munu
vekja alls konar smáfiskar,
sem ljóma I öllum regnbogans
litum, fiðrildafiskar, engla-
fiskar, páfagaukafiskar og
margir aðrir. í þjóðgarði á
Mahé eru um hundrað tegund-
ir fiska I lónum, og þar eru um
hundrað tegundir kóralla, sem
hýsa fjölda sjávarvera.