Tíminn - 29.01.1975, Blaðsíða 16

Tíminn - 29.01.1975, Blaðsíða 16
MiOvikudagur 29. janúar 1975. Nútíma búskapur þarfnast BJUfER haugsugu Guöbjörn Guöjónsson Heildverzlun Síöumúla 22' Símar 85694 & 85295 GSDÍ fyrir gódttn wai ^ KJÖTIÐNAÐARSTÖÐ SAMBANDSINS Cunhal, leiötogi komnuinista, sést hér (lengst til vinstri) á fundi meO stuöningsmönnum sinum. Vantraust á Hartling? Reuter-Kaupmannahöfn. Sósialdemókratar báru fram vantrauststillögu á minni- hlutastjórn Vinstri flokksins á þingi i gær. i tillögunni var þess krafizt, að Poul Hartling bæöist lausnar fyrir ráOuneyti sitt, svo að þegar i staö gætu hafizt viðræður um myndun stjórnar ,,á breiðuin grund- velli.” 1 gær hófst umræða um til- lögur stjórnarinnar um mikinn niöurskurð á fjár- lögum, en þingfundi var hvað eftir annað frestað, svo að þingmönnum gæfist íimi til aö ræða stjórnmálastöðuna. Siðast var fundi frestað til klukkan 18.45 að beiðni Vinstri flokksins. Fréttaskýrendur töldu siðdegis i gær, að a.m.k. 75 þingmenn (af 179) styddu van- trauststillöguna, þ.e. þingmenn sósialdemókrata, Róttæka vinstri flokksins og Sósialska þjóðarflokksins. Aö auki er liklegt. að þing- menn kommúnista, vinstri sósialista og e.t.v Kristilega þjóðarflckksins greiði henni atkvæði — alls 20 þingmenn til viðbótar. \ /ri HORNA A IVIILLI Wilson í Samdráttur í bifreiðafram- leiðslu senn vesturveg úr sögunni Reuter-London. Harold Wil- son, forsætisráðherra Bret- lands, flaug i gær vestur um haf til viöræðna við þá Pierre E. Trudeau, forsætisráðherra Kanada og Gerald Ford Bandarikjaforseta. Wilson ræddi við Trudeau i Ottawa i gær, en er væntan- legur til Washington i kvöld. Fundur þeirra Fords verður fyrsti fundur þeirra þjóðar- leiðtoganna. A fundinum er búizt við, að efnahags- og orkumál verði efst á baugi, svo og ástandið i Miðjarðar- hafslöndum, framtið Efna- hagsbandalags Evrópu og samskipti austurs og vesturs. Siðastnefnt umræðuefni er einkum á dagskrá vegna fyrirhugaðrar farar Wilsons til Moskvu um miðjan febrú- ar. Þá hittir Wilson Kurt Wald- heim, aðalritara Sameinuðu þjóöanna, að máli i New York i heimleiðinni. Reuter-Detroit. Stjórnarfor- maður General Motors, sem er stærsti framleiðandi bif- reiöa i Bandarikjunum, hefur lýst yfir, aö sá samdráttur I bifreiðaframleiösiu, er aö undanförnu hefur átt sér staö, heyri brátt liðinni tiö. Thomas Murphy — en svo heitir formaður GM — sagði i viðtali við Reuter-fréttastof- una fyrr i vikunni, að vonandi ykist atvinnuleysi ekki i bif- reiðaiðnaðinum i náinni fram- tið. Murphy kvaðst sannfærð- ur um, að með vori rofaði til i bandarisku efnahagslifi. Þá yrði hægt að auka framleiðslu á ný og ráða til starfa það fólk, er sagt hefði verið upp störf- um að undanförnu. GM hefur til þessa sagt upp 96 þús. starfsmönnum, enda hefur verið dregið verulega úr framleiðslu bifreiðaverk- smiðja fyrirtækisins. Kissinger til AAiðjarðarhafslanda Reuter-Washington. Henry Kissinger, utanrikisráöherra Bandarikjanna, lýsti yfir i gær, aö hægt væri að sam- ræma kröfur Egypta og israelsmanna. Ennfremur, aö hann væri á förum til Mið- jarðarhafslanda i þeim til- gangi að samræma kröfurnar, svo að varanlegum friði yröi náð. Kissinger sagði á fundi meö fréttamönnum I gær, aö ástandiö I Miöjaröarhafslönd- um væri nú mjög hættulegt og viðkvæmt. Agreiningur innan stjórnar magnast Loft lævi blandið í Portúgal: Kommúnistar og sósíalistar boða til mikilla mótmælaaðgerða ó föstudag Reuter-Lissabon. Loft er lævi blandið i Portúgal þessa dagana. Mikill ágreiningur hefur komið upp milli þeirra stjórnmála- flokka, sem aöild eiga aö rikis- stjórn landsins. Og ábyrgir stjórnmálamenn óttast, að til átaka komi innan tiðar, þ.á. m. Mario Soares, leiötogi sósialista og utanrfkisráöherra i núverandi stjórn, sem opinberlega hefur varaö viö hættu á borgarastyjöld i Portúgal. Flokkur miðdemókrata varpaði fram þeirri spurningu — i yfirlýs- ingu, sem gefin var út i gær — hvort öryggissveitir hefðu í raun og veru reynt að aftra vinstri sinnuðum mótmælendum frá að hleypa upp landsfundi miðdemp- krata i Oporto um helgina. Átökin i Oporto hafa breikkað biliö milli kommúnista annars vegar og sósialista hins vegar, en báðir þessir flokkar eiga aðild að stjórn landsins. Flokkarnir tveir undirbúa nú — hvor um sig — mótmælaaðgerðir i Lissabon á föstudag. Búizt er við, að þær leiði til enn harðari átaka milli þess- ara tveggja stjórnmálaafla. 1 fyrrnefndri yfirlýsingu mið- demókrata — er ber yfirskriftina: Hverjir stjórna Portúgal — segir m.a.: — Hvaða lög gilda i land- inu? Eru skipulagðar hersveitir við stjórnvölinn eða götulýður? Francisco da Gosta Gomes Portúgalsforseti hefur beðið einn þeirra erlendu gesta, er sóttu landsfund miðdemókrata, Ge- offrey Rippon, sem er „utanrikis- ráðherra” I skuggaráðuneyti Ihaldsflokksins brezka, afsökun- ar á óeirðunum i Oporto. Forset- inn hefur jafnframt fullvissað Rippon um, að hersveitir sjái um, að þingkosningar þær, sem fyrir- hugaðar eru j vor, fari fram með friði og spekt. Talsmenn kommúnista hafa gert litið úr þeirri viðvörun Soares, að borgarastyrjöld kunni að brjótast út. Þeir segja, að utanrikisráðherrann sé með þessu að þyrla upp moldviðri, til að dylja þann ósigur, er sósialist- ar hafi óneitanlega beðið fyrir kommúnistum i valdabaráttu innan portúgölsku verkalýðs- hreyfingarinnar. Fréttaskýrend- ur telja, að tilgangur með mót- mælaaðgerðum kommúnista og sósialista á föstudag sé liklega sá einn, að efna til liðskönnunar, en eins og er sé erfitt að gera sér grein fyrir, hvor flokkurinn njóti meira fylgis. Tyrkir lóta undan þrýstingi frd Bandarikjaþingi: 1000 HERMENN KALLADIR HEIM FRÁ KÝPUR Reuter-Ankara. Tilkynnt var i gær, aö Tyrkir ætluöu aö kalla u.þ.b. eitt þúsund hermenn heim frá Kýpur. Þetta er taliö merki um, að sá þrýstingur, er Banda- rikjaþing hefur sett á aö lausn finnist á Kýpurdeilunni, sé aö bera einhvern árangur. Ilhami Sancar landvarnaráð- herra sagði i gær, að hermennirn- ir yrðu fluttir á brott frá eynni fyrir lok þessa mánaðar. (Þess má geta, að frestur sá, er Banda- rikjaþing setti Gerald Ford for- seta til að ná einhverjum árangri i samningaumleitunum I Kýpur- deilunni, rennur út þann 5. febrú- ar n.k. Þetta er aftur skilyrði þess, að Bandarikin veiti Tyrk- landi hernaðaraðstoð.) Embættismenn bandariska utanríkisráðuneytisins hafa lýst yfir, að stjórn Tyrklands hafi tek- iö þessa ákvörðun einhliða. Aftur á móti draga þeir i efa,. að heim- köllun eitt þúsund hermanna af eitthvað á milli 34-39 þúsund her- mönnum, sem nú eru til staðar á Kýpur, nægi til að tillaga um áframhaldandi hernaðaraðstoð til handa Tyrkjum fáist samþykkt á Bandarikjaþingi. Þó voru nokkrir fréttaskýrenda á þeirri skoðun, að þessi viðleitni af hálfu Tyrkja gefi Bandarfkjastjórn kjörið tækifæri til að knýja sam- þykktina i gegn. Sem kunnugt er hafa miklar deilur risið milli aðila að Kýpur- deilunni að undanförnu. Astæðan ersú, að ellefu þúsund tyrknesku- mælandi eyjaskeggjar hafa verið fluttir loftleiðis til Tyrklands frá herstöð Breta á Kýpur, en ætlunin er að flytja þá aftur til eynnar og þá norðurhluta hennar, sem er á valdi tyrkneskra hersveita. Fyrsti hópur tyrkneskumæl- andi eyjarskeggja hefur þegar verið fluttur sjóleiðis til norður- hluta Kýpur og þeim fengnir til afnota bústaðir, sem áöur voru i eigu grískumælandi manna. Áformað er, að fólksflutningum þessum verði að fullu lokið innan nokkurra vikna, en flutningarnir hafa að vonum vakið mikla ólgu meðal griskumælandi eyjar- skeggja. Árangur viðræðna Sadats og Giscard d'Estaings: 120 Mirage-þotur til Egyptalands NTB-Paris. Anwar Sadat Egyptalandsforseti er sem kunn- ugt er i opinberri heimsókn i Frakklandi þessa dagana. t gær átti Sadat viöræöur viö Valery Giscard D’Estaing Frakklands- forseta. Talsmenn forsetanna sögöu — aö viöræöunum loknum — aö samkomulag heföi náöst um sölu á 120 Mirage-þotum til Egyptalands. Sadat hefur ekki dregið neina dul á, að megintilgangur Frakk- landsfarar hans er að semja um kaup á nýjum vopnum til handa Egyptalandsher i staö þeirra, er fóru forgörðum i striðinu i októ- ber árið 1973. (Eins og skýrt var frá I Timanum I gær, hafa Sovét- menn neitað að láta Egyptum i té nýtizku vopn, svo að ekki er um annað að ræða fyrir þá en róa á önnur mið.) 1 gær var Saöat m.a. sýnd vopnaverksmiðjan Thomson- CSF, er framleiðir ratsjárbúnað i Mirage-þotur og Crotale-eld- flaugar. Sagt er, að Sadat hafi mikinn áhuga á að festa kaup á nýrri gerð Crotale-eldflauga, sem kallast „Shahin”. („Shahin” er arabiska og þýðir „fálki”, en Arabar hafa um aldaraðir notað fálka við veiðar i eyðimörkum.) Abba Eban, fyrrum utanrikis- ráðherra Israels, sem staddur er I Paris um þessar mundir i einka- erindum, gagnrýndi samninga Egypta og Frakka um vopnakaup harðlega i útvarpsviðtali i gær. Aðspurður kvað Eban, að hrein tilviljun réði, að dvöl þeirra Sad- ats I Paris bæri upp á sama tima. Sömuleiðis visaði hann á bug orð- rómi um, að ráðgerður væri leynilegur fundur með þeim. Sadat: Vopn, vopn og aftur vopn

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.