Tíminn - 31.01.1975, Síða 8

Tíminn - 31.01.1975, Síða 8
8 Föstudagur 31. janúar 1975. Nýárskveðja til vinar míns Upp er að renna árið nýja, oft eru kröggur i vetrarferðum. Sjötiu ár á sumra herðum, sviti á enni, þó að hlýja máske sé að mestu leyti i minningunni frá horfnum dögum. En margt er i lifsins lygasögum litils virði — bara glýja. Sizt skyldi gráta gamlar syndir og gengin spor, þau koma ei aftur, en samur er lifsins sóknarkraftur, svo það er ekki neitt að láta. Vinur minn góði i Hrafnahrófi, hver veit nema þú finnir siðar vindatjörn og borðabáta, blikandi sund og eyjar friðar? Hver veit nema hnellin hnáta hitti þig og varir bjóði i öllu þessa englastóði alheimsins á vetrarbrautum? Eitt er vist, án kærleiks konu kynni ég ekki sælu að njóta. Hjálpi þér guð til höfða og fóta, hirtu svo ljóðið — en þvi skal brenna. Holt FAGURT VEÐUR Á NORÐURLANDI — fyrri hluta þessarar viku JH—Reykjavík. — Fyrri hluta þessarar viku hefur verið mikið blíðviðri á Norðurlandi, og hefur sums staðar ekki bærst hár á höfði manns. Að sjálfsögðu eru fannalög mikil, geysilegar snjödyngjur i fjöllum og allt á kafi, þar sem ekki reif af i norðangarðinum á dögunum. Þessu fylgir, að jarö- Iaust er viðast hvar. Kemur það sér illa i þeim sveitum, þar sem menn eiga margt hrossa. En sú er bót f máli, aö þorri manna er nú farinn að gera betur við útgöngu- hross en áður, þótt þar sé óneitan- lega enn misbrestur á hjá sum- um. Mjög fagurt er um að litast I sveitum, þegar sólfar er, sindr- andi fönn hvert sem litið.er, nema svört klettabeiti I brúnum, þar sem svo hagar til. Eins og nærri má geta er skiðafæri með miklum ágætum, og ófáir, sem nota sér það, enda beztu skíðamenn lands- ins I sumum byggðarlögunum nyrðra — einkum I byggðarlögun- um á milli Eyjafjarðar og Skaga- fjarðar. Fyrstu sex lotunum lokið í bridge Sex lotur voru spilaðar um sl. helgi, I forkeppni fyrir landsliðs- val I bridge. Spilað var i tveim flokkum, opna flokknum og ung- lingaflokki. Mótið fór fram I fé- lagsheimili Hreyfils. Staöa efstu paranna i opna flokknum er sem hér segir: 1. Asmundur Pálsson — HjaltiEliasson 105 stig 2. Hallur Simonarson — Þórir Sigurðsson 84 stig 3. Jakob R. Möller — Jón Baldursson 76 stig 4. Höröur Arnþórsson — Þórarinn Sigþórsson 70 stig Staöa efstu paranna i unglingaflokknum: 1. Guðmundur G. Sveinsson — Þórir Sigursteinsson 95 stig 2. Helgi Jóhannsson — Logi Þormóðsson 90 stig 3. Jón Alfreðsson — ValurSigurðsson 84 stig 4. Skafti Jónsson — SkúliEinarsson. 74 stig Mótinu verður haldið áfram um næstu helgi i félagsheimili Hreyfils og hefst kl. 13:00 á laugardag. Keppnisstjóri er Agnar Jörgenson. Hvernig á að stjórna fyrirtæki? Samstarf Stjórnunarfélags Islands og Stjórnunarfræðslu iðn- aðarráðuneytisins hófst sl. haust, en I vetur verða haldin 25 sameig- inleg námskeið á vegum þessara aðila. Markmið námskeiðanna er að veita þeim, sem fást við stjórn- unarstörf og fyrirtækjarekstur, haldgóða þekkingu, sem komi að Tímitin er peningar beinum notum i starfi þeirra og auðveldi ákvörðunartöku á hinum ýmsu sviðum fyrirtækjarekstrar. Hvert námskeið fjallar um á- kveðinn þátt stjórnunar, en þátt- takaendur geta tengt saman námskeiðin á ákveðnum sviðum. Sextán námskeið verða haldin á timabilinu janúar/april. Nám- skeiðin eru haldin seinni hluta dags, nema laugardaga fyrir há- degi. Hin námskeiðin verða svo haldin i april og marz. Allar nánari upplýsingar er að fá á skrifstofu Stjórnunarfélagsins. 'fíMINN JÓHANN EYFELLS SÝNIR í MONTGOMERY I ALABAMA FB-Reykjavík. Frá 7. janúar síðast liðnum og fram til mánaðamótanna janúar-febrúar hefur staðið yfir i Montgomery Museum of Fine Arts í Mont- gomery í Alabama i Bandaríkjunum listsýning, Marathon Art, eftir þrjá listamenn. Einn þeirra er Islendingurinn Jóhann Eyfells, serrt undanfarin ár hefur dvalizt i Bandaríkjunum. Jóhann er myndhöggvari, en með honum sýna í þetta sinn Walter Gaudnek, sem er listmálari og Steve Lotz, sem er teiknari. Maraþon-list er list, sem sköpuð er í áhlaupum, og í samvinnu þeirra, sem taka þátt i sköpuninni hverju sinni. Þremenningarnir sem áður voru nefndir, sýndu í fyrsta sinn Maraþon-list sína i Jacksonville Art Museum í Florída í janúar 1971. Síðan hafa þeir tekið þátt í tíu slíkum sýningum, þar á meðal á ólympíu-leikunum í Munchen í Þýzkalandi. Þar til fyrir skömmu lögðu aðeins þessir þrír eitthvað af mörkum á Maraþon-sýningum sínum, en nú eru þeir farnir að leita til áhorfendanna um framlag til listsköpunarinnar, að því er segir í sýningarskrá sýningarinnar í Montgomery, sem Tímanum hefur borizt. Hér með fylgja tvær myndir frá sýningunni. önnur myndin sýnir verk Jóhanns á þessari sýnjngu, en hin er af einu verkanna, sem gert er úr gúmmislöngum, eins og sjá má. Steinmyndirnar fremst á mýndinni kallast í skránni Hydroston. Aftast og fyrir miðri þeirri mynd er svo Cactus with Roots, eða kaktus með rótum, en gúmmislönguverkið er nefnt Ensemble.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.