Tíminn - 07.03.1975, Síða 1

Tíminn - 07.03.1975, Síða 1
vélarhitarinn i frostí og kulda HF HÖRÐUR 6UNNARSS0N SKULATUNI 6 - SIMI (91)19460 ÆNGIRf Áætlunarstaðir: Blönduós — Sigluf jörður Búðardalur — Reykhólar Flateyri — Bíldudalur Gjögur — Hólmavík Hvammstangi — Stykkis- hólmur — Rif Sjúkra- og leiguflug um allt land Símar: 2-60-60 & 2-60-66 32 Vinstri menn sigruðu ÚRSLITEM I kosningunum til stildentaráðs Háskóla Is- lands voru kunn i gærkvöldi. A-listi, listi Vöku, félags lýðræðissinnaðra stUdenta hlaut €71 atkvæði eða 43% greiddra atkvæða. B-listi, listi vinstri manna hlaut 848 atkvæði eða 54,4% greiddra atkvæða. Auðir seðlar voru 31 og ógildir 8. A kjörskrá voru 2549. Atkvæði greiddu 1558 eða 61,12%. Af A-lista hlutu kosningu.: 1. Eirikur Þorgeirsson, 2. Margrét Guðmundsdóttir, 3. Kristinn Sigurjónsson, 4. Þórður Sverrisson, T. 5. Við- ar Már Matthiasson, 6. Guöný Asta Sveinsdóttir. Af B-lista hlutu kosningu: 1. Gestur Guðmundsson, 2. Steinunn Hafstað, 3. Her- mann Sveinbjörnsson, 4. össur Skarphéðinsson, 5. Valgerður Sigurðardóttir, 6. Þórður Ingvi Guðmundsson, 7. Jónina Einarsdóttir. Fulltrúi stúdenta I Há- skólaráð var kosinn Þor- steinn Magnússon og til vara Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, báöir af lista vinstri manna. Þingeyingar fótsmáir, en Árnesingar stórfættir FB-Reykjavlk. — t tilefni af opnun Kaupstefnunnar ts- lenzkur fatnaður, sem nú stendur yfir að Hótel Loftleið- um, ræddu fulltrúar framleið- endanna, sem þar sýna viö blaðamenn. Kom þar fram, að tslendingar vaxa stööugt að ummáli, og virðist velmegun- in m.a. koma fram I þvl, að fólk þarf stöðugt að kaupa sér stærri fatnað. Meöalmittismál karlmanna var til skamms tíma 32 þumlungar, en er nú komið upp 136 til 37 þumlunga. Karl- mannsbuxur eru framleiddar I víddum frá 27 þumlungum I 52 þumlunga, sem mun vera 130 sm. Þá kom fram, að íslending- ar þurfa allt annað skólag en flestar aðrar þjóðir. íslend- ingar eru með breiðari fætur heldur en flestir aðrir, og þeg- ar skóframleiðendur kaupa leista til þess að smlða skóna eftir, þurfa þeir yfirleitt alltaf tveim breiddum stærri leista en sendir eru sem sýnishorn. Þá kom fram sú merkilega staðreynd, að fólk á Norður- landi og Austurlandi er með minni fætur heldur en Sunn- lendingar. Minnsta fætur og hæstar ristar hefur fólk I Þing- eyjarsýslum og á Austurlandi, en stórfættast er það hins veg- ar I Árnessýslu. Astæðan mun vera sú, að fólk sem býr I fjall- lendi er yfirleitt með styttri fót, og hærri rist heldur en þeir sem búa á láglendi. Um höfuðföt höfðu framleið- endurnir það að segja, að minnstar húfur keyptu menn á Djúpavogi, og einnig væru til- takanlega minni höfuðföt seld til Þórshafnar en annarra staða, sem þeir mundu eftir. Stórí borínn kominn til landsins Ms. Mælifell kom til Reykjavikur eftir hádegi I gær, og var þegar hafizt handa um að koma bornum I land. A myndinni I horninu eru, taldir frá vinstri: Páll Hafstað, fulltrúi Orkumálastjóra, Rögnvaldur yfirverkstjóri hjá Orkustofnun, Bergur Pálsson, skripstjóri á ms. Mælifelli, og Hjörtur Hjartar, for- stjóri skipadeildar StS. Tlmamynd: G.E. — kostar tæplega 500 milljónir króna gébé—Reykjavlk — í gær kom fyrstioliuborinn, sem islendingar eignast, til landsins meö ms. Mælifelli frá Houston I Texas. — Borinn er millistærð af olfubor, sagði Rögnvaldur Finnbogason, forstjóri Jarðborunardeildar Orkustofnunar, en hér verður hann notaður til að bora eftir heitu vatni. Borinn, sem er að Gardner-Denver gerð, er um 566 tonn á þyngd og mun geta borað niður á 3.600 metra. — í upphafi var kaupverð bors- ins áætlað um 280 milljónir króna, en sú upphæð hækkaði verulega við síðustu gengisfellingu og mun verðiö nú vera 330 milljónir króna, en það er fyrir utan að- flutningsgjöld, sagði Rögn- valdur, — sem verða ekki undir 150-160 millj. króna. Borinn kemur nokkuð seinna til landsins en upphaflega var áætlað, en skipiö, sem náði I hann til Texas, ms. Mælifell, hreppi mjög slæmmt veður á leiðinni út og einnig á heimleið, og sagði skipstjórinn Bergur Pálsson, að Framhald á bls. 3 Bræðsluskipið Norglobal I Hvalfirði I gær, en mikið hvassviðri hamlaði þvi aö hægt væri að taka á móti loðnu eins og áætlað hafði veriö. — Timamynd: Róbert. Norglobal í Hvalfirði gébé—Reykjavik — Um klukkan 19:00igærkvöldi,höfðu þrjátlu og fimm bátar tilkynnt Loönunefnd um afla, frá miðnætti á miöviku- dag, og var hann samtals 8.500 tonn. Aflahæstur af þessum bát- um, var Faxaborg meö 580 tonn og Loftur Baldvinsson með 520 tonn. Þessir bátar fengu aflann vestur af Garðsskaga, út af Selvogi, út af Knarrarósvita og viö Tvlsker. Bræðsluskipið Norglobal kom til Hvalfjarðar I gærmorgun, en litiö var hægt að taka á móti loönu I gær, sökum veðurs, en mjög hvasst var þar I allan gærdag. Reynt var að finna betra lægi fyrirskipið I gærkvöldi, en áætlað haföi veriö að skipa upp úr þrem- ur bátum I bræðsluskipið i gær. Þá er föstudagurinn fullpantaður hjá Norglobal og komiö langt á veg með laugardaginn Ilka. Aldrei komizt í hann krappari — segir Sigurgeir Jónsson, hdseti ó ís. leifi VE um gönguna upp ó Ingólfshöfða Gsal-Reykjavik — „Gangan frá gúmmlbátnum upp að vitanum á Ingólfshöfða var það erfiöasta af þessu öllu. Ég held ég megi segja, að það sé það versta sem ég hef komizt I um dagana”. Þannig fórust Sigurgeiri Jónssyni orð, háseta á isleifi VE, er Tlminn hafði tal af hon- um I gær á Svinafelli I öræfum. — Það var óhemjurok alla leiðina og við höfðum vindinn beint i fangið. Það hafa senni- lega verið ein 10 vindstig og leiðin um 7 km löng að höfðan- um. Við vorum allir mikið klæddir, bæði i ullarfötum og sjóstökkum og klófháum stig- vélum, sem gerði ferðina erfið- ari en ella. Flestir okkar áttu nokkra orku eftir, þegar upp I vitann var komið. Sigurgeir sagði, að þeir hefðu hvilzt ágætlega i vitanum þá fáu klukkutima, sem þeir hefðu dvalizt þar. Sagði hann, að tveir björgunarsveitarmenn hefðu komið og leitað álits þeirra, hvort þeir vildu halda kyrru fyrir I Höfðanum eða halda að jeppunum og fara til byggða. Var ákveðið að taka siðari kost- inn. Sigurgeir sagði, að leiðin að jeppunum hefði verið miklu léttari, þvi þeir hefðu haft vind- inn I bakiö og eins hefði veðrið lægt mikið, — og síðast en ekki sizt hefðu skipverjar verið Framhald á 19. siöu Grjóthríð á sandinum — jeppar Öræfinga sandblósnir eftir ferðina ofan sandinn Gsal-Reykjavik — Þrettán brotnuðu og þeir eru meira og björgunarsveitarmenn.úröræfa- minna sandblásnir. sveit stóöu i ströngu við björgun Framhald á 19. siðu áhafnarinnar á Isleifi VE, sem strandaði skammt undan Ingólfshöfða. Björgunarsveitin varhálfan niunda tlma að brjót- ast niður sandana, en sú leið er um 15 km. Að sögn Páls Björns- sonar, formanns björgunar- sveitarinnar er þessi Ieið yfir- leitt farin á klukkutima. Ahöfn tsleifs og björgunarsveitar- menn komu til byggða I fyrri- nótt. — Já, það var erfitt að komast til skipbrotsmanna, þvi veðrið var mjög slæmt, sagði Páll, — sennilega um ellefu til tólf vindstig með snjókomu um tima. Það var mikið sandrok á p^R Björgvinsson, formaöur leiðinni og jafnvel grjóthrið um björgunarsveitar SVFÍ I öræfa- tima. Tvær rúður i jeppunum svejt.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.