Tíminn - 25.03.1975, Síða 19
Þriðjudagur 25. marz 1975.
TÍMINN
19
Kjaradeilan:
Tíðir og langir sáttafundir
AAark Twain:
Tumi gerist
leyni-
lögregla
gefið mér. Ef ég hefði
aðeins hegðað mér
öðru visi, mundi vesa-
lings bróðir minn vera
á lifi og ekki
i’ggja þarna grafinn
sem fórnarlamb, er
féll fyrir morðingja
hendi, hann, sem var
svo friðsamur og
gerði aldrei mús
mein”.
Hér var eins og
Brúsi yfirbugaðist af
geðshræringu. Það
var helzt svo að sjá,
að hann væri að kafna
og hann stóð þegjandi
um stund likt og til að
ná sér. Og allir nær-
staddir létu i ljósi
samúð sina með hon-
um, konurnar snöktu
og grétu og allt var
svo hátiðlegt. Vesa-
lings Silas frændi
stundi, svo að heyrðist
um allan salinn. Siðan
hélt Brúsi áfram:
,,Þegar hann kom
ekki heim þetta
laugardagskvöld, fór
ég að verða órólegur
og sendi einn af svert-
ingjum minum yfir til
kærða til að spyrja
um Júpiter. En svert-
inginn kom aftur, og
sagði, að bróðir minn
væri ekki þar. Ég
varð æ órólegri og
hafði enga ró i minum
beinum. Að lokum fór
ég þó að hátta en ég
gat ekki sofnað og fór
á fætur aftur. Og seint
um nóttina gekk ég út
og hélt i áttina til
landeignar ákærða og
reikaði þar um i þeirri
von að rekast kannski
á vesalings bróður
minn. Já, þarna gekk
Samninganefndir deiluaðila i
kjarasamningunum hafa setið
langa fundi hjá sáttasemjara
fyrir og um helgina. í gær var
fundi haldið áfram og hófst hann
kl. 14 og laust fyrir kl. 19 sagði
sáttasemjari að hann byggist allt
eins við að fundurinn stæði eitt-
hvað fram eftir kvöldi.
A laugardaginn var lagt fram
sáttatilboð sem i fólst hækkun á
láglaunabótum og var þjarkað
um þá tillögu fram á sunnudags-
kvöld og aftur i gær. t byrjun
marz settu vinnuveitendur fram
tilboð um 3800 króna láglauna-
bætur og við það hefur setið,
nema að eitthvað hafi þokast í
viðrasðunum í gær.
Torfi Hjartarson, sáttasemjari
rikisins, sagði i gærkvöldi, að
verið væri að ræða deiluna alla,
Geysileg
ölvun
í Reykjavík
gébé Reykjavik — Geysileg ölvun
var i Reykjavfk á föstudagskvöld
og aðfaranótt laugardagsins.Lög-
reglumenn á vakt líktu kvöldinu
og nóttinni viö gamlárskvöld, og
höfðu óhemju mikið gera. Ekki er
vitað um nein slys á mönnum, en
allar fangageymslur lögreglunn-
ar voru yfirfullar. Engin skýring
virðist vera á þessari óvenju-
miklu ölvun, sem var bæði i sam-
komu- og heimahúsum.
Um hádegi á laugardaginn var
16 ára piltur tekinn réttindalaus
og ölvaður á bifreið sem hann
hafði fengið að láni hjá kunningja
sinum. Ók hann aftan á leigubif-
reið. Kunninginn kom svo á lög-
reglustöðina eftir hádegi, á bif-
reið móður sinnar, og ætlaði að
sækja bifreið sina, en hann reynd-
ist þá ölvaður sjálfur, og var að
sjálfsögðu meinað að aka meira
þann daginn.
A laugardag var rafgeymi stol-
ið úr bifreið manns sem hafði
brugðið sér i heimsókn i Land-
spltalanum. Lögreglan hefur nú
handtekið tvo pilta um tvitugt,
sem játuðu að hafa stolið raf-
geymnum og ætluðu að nota i bif-
reið annars þeirra.
Landskeppnin
í skók:
Keppninni
seinkar um
sólarhring
— Færeyingarnir
fó ekki flugveður
gébé Reykjavik — Fyrsta
landskeppni Færeyinga og
islendinga I skák, átti að
hefjast á mánudagskvöldið,
en Færeyingarnir komust
ekki til lslands, þvi að ekki
var flogið vegna veðurs. Bú-
izt er þvi við að keppnin hefj-
ist einum sólarhring seinna
en áætlað var. Skákkeppnin
verður tvöföld umferð, tvær
skákir, og teflt verður á tiu
borðum. Teflt verður I
Hreyfilshúsinu við Grensás-
veg.
Það eru rúmlega tuttugu
Færeyingar, sem koma hing-
að til lands I þessa fyrstu
landskeppni, tiu keppendur,
tveir varamenn og konur
þeirra. Færeyingarnir munu
einnig taka þátt i félaga-
keppni i skák, en áætlað er
að ljúka landskeppninni með
hraðskák n.k. laugardag.
Friðrik Ólafsson teflir á
fyrstaborði fyrri skákina, en
ekki er vitað hvort hann get-
ur tekið þátt i þeirri seinni.
Skákkonan unga, Guðlaug
Þorsteinsdóttir mun taka
þátt I landskeppninni og tefl-
ir á tíunda borði. Þetta er i
þriðja skipti, sem hún tekur
þátt i landskeppni fyrir ts-
lands hönd, en áður tefldi
hún við sveitir frá Danmörku
og Þýzkalandi.
en vildi litið gera úr þvi að hann
hafi lagt fram sérstaka sáttatil-
lögu um láglaunakjarabætur.
Sáttasemjari hefur haldið
deiluaðilum á fundum mun tiðar
og lengur siðustu daga en áður og
spurði Timinn hann hvort það
benti til að samkomulag væri að
nálgast.
— Maður veit það ekki, svaraði
Torfi, það getur farið á allan veg
ennþá og vildi ekkert láta hafa
eftir sér um hvort hann væri
vongóður um árangurinn.
Verkalýðsfélögin innan ASI
hafa boöað verkföll 7. april n.k.
hafi samningar ekki tekist fyrir
þann tima. Nú eru páskar I nánd
og fækkar vinnudögum fram til
boöaðs verkfallsdags. Er þvi
eölilegtað sáttasemjari fari að
herða á samningaumleitunum og
að fundir verði tiðir og langvar-
andi, eins og einatt áður er svipað
hefur staðið á.
-OÓ.
0 Alþingi
nú væri hugsanlega mögulegt að
skila niðurstöðum snemma á ár-
inu 1978.
Það hefur verið talið, að afl i
megawöttum af vatni, sem renn-
ur i Lagarfljót gæti orðið allt að
337 megawött ef það væri allt
saman virkjað. En hér vantar
fjármagn til rannsókna. Hér er
engin Landsvirkjun sem getur
rannsakað. Hér þarf að leita til
hæstvirts Alþingis um fjármagn
eða fjármagna þetta með lántök
um, ef hægt er að fá hagstæö lán i
þvi skyni. Mér er sagt að erlendir
sérfræöingar, sem hafa skoðað
virkjunarmöguleika hér á landi
og raunar innlendir einnig, telji,
að virkjunarmöguleikar Fljóts-
dalsvirkjunar séu e.t.v. þeir álit-
legustu sem um er að tefla hér á
landi. Ég segi e.t.v. vegna þess,
að það á eftir að rannsaka þetta
svo til hlitar að menn geti fullyrt
um samanburð við aðra mögu-
leika i þessu sambandi. En það er
augljóst, að það er fjármagnið
sem ræður ferðinni i þessum efn-
um og það er mögulegt að eystra
gætu gerzt hlutir fyrir 1984, ef
fjármagn væri til staðar. Ég tel
timabært að þessar rannsóknir
hefjist sem fyrst og takmarkist,
einsog sakir standa, við þau vötn,
sem þegar renna i Lagarfljót.
Þegar rannsókn er lokið er fyrst
unnt að ákveða/með hverjum
hætti nota skuli þá virkjunar-
möguleika sem fyrir hendi eru.
VI.
Þegar Islendingar reisa stærri
orkuver sin, sýnist eðlilegt að
staðsetja þau a.m.k. að einhverju
leyti með hliðsjón af þeirri
reynslu og vitneskju, sem menn
hafa af eldgosum og jarðskjálft-
um I landinu. Það er talið að um
þriöjungur landsins sé virkt eld-
fjallasvæði og 30 eldstöðvar hafi
gosið eftir landnám tslands.
Fimmta hvert ár hefur gosið að
meðaltali. Hið virka jarðelda-
svæði siðan isöld leið liggur á all-
breiöu belti, um 70 km. breiðu,
beggja vegna Vestmannaeyja
norður yfir virkjunarsvæði
Landsvirkjunar, Kröflu og Detti-
foss. Þá er annað belti 40 til 60
km. breitt frá Reykjanesi norð-
austur og um virkjunarsvæði
Hengils og Sogs, norður um Lang-
jökul og Hofsjökul, og sameinast
þar hinu beltinu. Mér sýnist
einnig, að þær einu stór-
virkjanir sem um er talaö og
liggja fyrir utan jarðskjálfta-
hættusvæði i landinu, séu Blanda
og Fljótsdalsvirkjun. Það er erfitt
að imynda sér, hvaða afleiðingar
þaö myndi hafa fyrir þjóðina,
sérstaklega byggðina á Suðvest-
urlandi, ef stóru orkuverin á
miöhálendinu yrðu fyrir skakka-
föllum af völdum eldgosa og jarð
skjálfta. Talsverð trygging ætti
að felast I stórum virkjunum utan
hættusvæöisins. Það er auðvitað
engin ástæða til þess að vera að
hræða menn i þessum efnum, en
allur er varinn góður i sambandi
viö þessi málefni, sérstaklega
þegar menn horfa til lengri
framtiðar og enginn vafi á þvi, að
skynsamlegt er fyrir þjóðina og
hagsmuni hennar i bráð og lengd,
að reyna að virkja stórar virkjan-
ir viöar en hér á þessum tiltölu-
lega viðkvæmu svæöum, jarðelda
og jarðskjálfta.
Borgarnes — aðalfundur
Aðalfundur Framsóknarfélags Borgarness veröur haldinn I
Snorrabúð þriðjudaginn 25. marz 1975 kl. 21.
Dagskrá fundarins:
1. Aðalfundarstörf, 2. Hreppsmál (fjárhagsáætlun o. fl.) 3.
Onnur mál. Stjórnin.
r a
Framsóknarvist —
Rangórvallasýsla
V
Föstudaginn 4. april kl.9, verður spiluð siðasta vistin i þriggja
kvölda keppni Framsóknarfélags Rangæinga. Góð verðlaun.
Avarp og dans.
Stjórnin.
Loðnuveiðarnar:
Sigurður
lang
hæstur
— er með rúmlega
þrettán þús. lestir
gébé Reykjavik — Samkvæmt
skýrslu Fiskifélags tslands, fengu
45 skip einhvern afla I slðustu
viku og var vikuaflinn samtals
29.167 lestir, sem er miklu minni
vikuaflien undanfarnar vikur, en
veður var sérlega slæmt fyrri
part vikunnar. Heildaraflinn nú
er þvi rúmlega átján þúsund lest-
um minni en á sama tlma I fyrra,
eða 426.000 lestir.
Aflahæsta skipið I vikulokin var
ms. Sigurður RE 4 frá Reykjavik
með samtals 13.338 lestir. Skip-
stjóri er Kristbjörn Arnason.
Annar var Börkur NK 122 með
11.809 lestir og Gísli Arni RE 375
þriðji með 10.933 lestir, Guð-
mundur RE 29 fylgir fast á eftir
með 10.777 lestir.
Loðnu var landað á tiu stöðum á
landinu i vikunni, auk bræðslu-
skipsins Norglobal, en frá byrjun
vertiðar hefur loðnu verið landað
á tuttugu stöðum á landinu, auk
Norglobal. Vestmannaeyjar eru
enn sem fyrr hæsti löndunar-
staðurinn með samtals 76.119
lestir, Norglobal næstur með
66.974 lestir. Siðan koma Seyðis-
fjörður með 34.756 lestir, Eski-
fjörður með 27.275 lestir og
Reyðarfjörður með 24.440 lestir.
A sunnudag veiddust um tvö
þúsund lestir af loðnu, og fengu
Reykjaborgin og Gísli Arni meiri
hluta þess afla vestur undir Jökli.
Um klukkan 18:00 á mánudags-
kvöld hafði enginn bátur tilkynnt
um loðnuveiði, en margir eru þó
að veiðum, flestir vestur undir
Jökli.
O Blikastaðir
Reykjavikurborg eða einhver
annar aðili muni kaupa Blika-
staði, sagði Sigsteinn Pálsson,
er Timinn hafði tal af honum i
gær. Sigsteinn var spurður
hvort jörðin Blikastaðir væri til
sölu.
— Þeir eru ekki auglýstir,
eingöngu húsin,og fylgir ekki
land með, nema það
sem húsin standa á. Sigsteinn
sagði, að ekki hafi farið fram
formlega viðræða milli sin og
Reykjavikurborgar um kaup á
Blikastöðum.
Aðspurður um hvort aðrir
aðilar en Reykjavikurborg eða
Mosfellshreppur hafi sýnt
áhuga á að kaupa Blikastaði,
svaraði Sigsteinn, að oft væri
spurt eftir hvort ekki væri hægt
að fá keyptar smáspildur undir
byggingar, en þannig er landið
ekki falt.
Sigsteinn sem brá búi á
Blikastöðum fyrir tveim árum,
sagðist ekki búast við að neinn
aðili hefði áhuga á að kaupa
húsin til þess að stunda
búrekstur, að minnsta kosti ekki
þann sem land þarf undir, en
samkvæmt fyrrgreindri
auglýsingu er einvörðungu
ibúðar- og gripahús auglýst til
sölu eða leigu. -Oó.
0 Sendiherra
til að ráða af dögum forsætis-
ráðherra þessara héraöa, en
tilraunin fór út um þúfur.
Loks hafa ræningjarnir krafizt
lausnargjalds að upphæð 100 þús-
und dala. Sú upphæð verður að
sögn þeirra greidd föngunum
tveim.sem bætur fyrir illa með-
ferð i fangavistinni.
Ræðismaöur Sómaliu i Frakk-
landi var i gær kallaður á fund
franskra yfirvalda. Þau kváöust
lita mannránið mjög alvarlegum
augum, en það átti sér stað I
dagsbirtu, aö fjölda vegfarenda
aðsjáandi.
SIÐUSTU FRÉTTIR:
Franska sendiherranum llður
vel, að sögn sendiherra ttallu I
Sómallu, sem gerzt hefur milli-
göngumaöur I samningaviðræð-
um við mannræningjana. Þeir
hafa nú krafizt þess, að lausnar-
gjaldið verði greitt i skira gulli. t
gærkvöldi var óvlst, hvort frönsk
yfirvöld ætluðu að ganga að kröf-
um ræningjanna.
SAMVIRKI
fry electrolux
LiJ Eftirtaldir aðilar
anom se|i.a Electr°>“*
HEIMILISTÆKI:
a*
93-1880
93-7200
93- 6685
94- 1295
94-7351
94- 3321
95- 4200
95- 5200
96- 71162
96-62164
96 21400
96-21338
96- 41137
97- 3201
97-1200
97-2200
97-6200
97-4200
97- 8200
98- 1200
99- 5650
Akranes:
Orin hf. Skólabraut 31
Borgarnes:
Kf. Borgfiróinga
Hellissandur:
Raftækjaverzlun Ottars
Sveinbiörnssonar
Patreksfjöröur:
Baldvin Kristjánsson
Bolungarvik:
Jón Fr. Einarsson
Isal jöröur:
Straumur
Blönduós:
Kf. Húnvetninga
Sauðárkrókur:
Kf. Skagfirðinga
Sigluf jörður:
Gestur Fanndal
Olafsfjörður:
Raftækjavinnustofan sf
Akureyri:
KEA
Svalbarðseyri:
Kf. Svalbarðseyrar
Húsavik:
Grimur 8. Arni
Vopnaf jörður:
Kf. Vopnfirðinga
Egilsstaðir:
Kf. Héraðsbúa
Seyðisf jörður:
Kf. Héraðsbúa
Eskif jörður:
Pöntunarfélag
Eskf irðinga
Reyðarf jörður
Kf. Héraðsbúa
Höfn, Hornafirði:
Kask
Vestmannaeyjar:
Húsgagnaverzlun
Marinós Guðmundssonar
Þykkvibær:
Verzlun Friðriks
Friðrikssonar
Keflavik:
Stapafell
Reykjavik
Raflux
Vörumarkaðurinnhf.
L.
ÁRMÚLA 1 A
Matvörudeild
Húsgagnadeild
Heimilistækjadeild 86-112
Vefnaðarvörudeild 86-113
Skrifstofan 86-114
Símar:
86-111
86-112