Tíminn - 25.03.1975, Side 20
Nútíma búskapurþarfnast
BJOfBR
haugsugu
Guðbjörn
Guöjónsson
GBÐI
fyrir góóttn nmt
^ KJÖTIÐNAÐARSTÖÐ SAMBANDSINS
GOSSTRÓKUR UPR
ÚR ELLIÐAÁNUM!
Um sex-leytiö I gærkvöldi hófst
hiö myndarlegasta gos upp úr
vestasta farvegi Eiiiöaánna,
fimm metrum sunnan við hita-
veitustokkinn. Var þetta hið
my ndarlegasta gos, og mun
strókurinn hafa náð um tiu metra
upp i loftiö, þegar bezt lét. Þegar
Timaljósmyndarinn Róbert kom
þarna aö, var ekki verið aö vinna
aö viögerðum, og um átta-leytið
hafði gosinu iinnt. Hvað hér var á
seyði vissum við ekki, er blaðið
fór i prentun, þvi að við náðum
ekki sambandi við neinn for-
svarsmanna Vatnsveitunnar,
sem vafalaust hefur þekkt bezt til
þessara mála.
Kissinger hefur gefizt upp við að sætta Araba og ísraelsmenn:
Auka Bandaríkin
aðstoð við ísrael?
Deiluaðilar kenna hvor öðrum um, hvernig fór
NTB/Reuter—Washington/Tel
Aviv/Kairó/Damaskus. Samn-
ingaumleitanir Henry Kissingers,
utanrlkisráðherra Bandarikj-
anna, i deilum Araba og tsraeis-
manna fór út um þúfur um helg-
ina. Þetta er talið mikið áfall
fyrir stefnu Kissingers, og Gerald
Ford Bandaríkjaforseti tilkynnti
i gær, að stefna stjórnarinnar 1
málefnum Miðjarðarhafslanda
yrði nú tekin til endurskoðunar.
Ford ræddi i gærmorgun við
leiötoga Bandarikjaþings um
ástandið i Miðjarðarhafslöndum
og var Kissinger viðstaddur.
Þingleiðtogarnir sögðu að við-
ræðunum loknum, að forsetinn
hefði sagzt ætla að taka stefnu
stjórnar sinnar i Miðjarðarhafs-
löndum til endurskoðunar — á
breiðum grundvelli. Þegar byrj-
uðu fréttaskýrendur að bolla-
leggja, hvaða breytingar væru i
aðsigi og helzt hölluðust þeir að
breytingu á hernaðaraðstoð
Bandarikjanna við Israel, þá
væntanlega i þá átt, að hún yrði
aukin. Talsmenn stjórnarinnar
visuðu þó á bug öllum getgátum i
þessa átt.
Báðir deiluaðilar hafa sakað
hvorn annan um, að samninga-
umleitanir fóru út um þúfur.
Yitzhak Rabin, forsætisráð-
herra Israel, skellti i gær skuld-
inni á Egypta. Hann sagði, að
egypzkir ráðamenn hefðu áhuga
á þvi einu að bæta hernaðarað-
stöðu sina, áður en nýtt strið
skylli á i Miðjarðarhafslöndum.
Ismail Fahmi, utanrikisráð-
herra Egyptalands, sagði aftur á
móti i gær, að Israelsmenn hefðu
valið þann kost, er hættulegur
gæti reynzt. Arabar yrðu nú að
taka höndum saman og hegna
israelsku þjóðinni fyrir stifni
hennar.
Einn af æðstu hershöfðingjum i
Sýrlandsher sagði i gær, að sú
stefna Kissingers að ná friðar-
samningum i deilum Araba og
ísraelsmanna skref fyrir skref,
hefði verið dæmd til að mistakast,
þegar i upphafi.
Franska sendiherranum í Sómalíu rænt:
Óvíst, hvort frönsk
yfirvöld gangi að
kröfum ræningjanna
NTB/Reuter-Mogadishu,
Sómaliu. Fjöldi lögreglu- og her-
nianna héldu I gær vörð um ein-
býlishús I útjaðri Mogadishu,
höfuðborgar Sómaliu, þar sem
hópur hermdarverkamanna hélt
sendiherra Frakklands i Sómaliu
i gislingu.
Hermdarverkamennirnir réð-
ust að sendiherranum, er hann
kom út úr dómkirkjunni i Moga-
dishu að lokinni guðsþjónustu i
fyrrakvöld. Þeir hafa hótað að
taka hann af lifi, nema frönsk
yfirvöld láti lausa tvo fanga, er nú
afplána lifstiðardóma i frönskum
fangelsum.
Þá hafa mannræningjarnir —
sem sagðir eru úr hreyfingu, er
berst .fyrir frelsun
Sómaliu—strandar — krafizt
þess, að Frakkar láti af yfirráð-
um sinum i héruðunum Afars og
Issas, sem eru i norðvestur-horni
landsins. (Héruðin ná yfir
landsvæði það, er áður nefndist
Franska-Sómalia) Þeir tveir,
sem sitja i fangelsum i Frakk-
landi, voru dæmdir fyrir tilraun
Framhald á 19. siðu
Ný stjórn í Portúgal
Leynileg hreyfing ó Spóni safnar fé, í því skyni að steypa af
stóli valdhöfum í Portúgal
Reuter-Lissabon/Madrid. Stjórn-
málahreyfing Portúgalshers og
stjórnmálaflokkar landsins hafa
náð samkomulagi um skipun
nýrrar stjórnar I Portúgal. 1 gær
var búizt við, að skipun hinnar
nýju stjórnar yrði tilkynnt á
hverri stundu.
Það var Jorge Correia Jesuino
upplýsingaráðherra, sem skýrði
frá þessu siðdegis i gær.
Ráðherrann kvað nýju stjórnina
svipa mjög til hinnar fyrri, að þvi
valdahlutföll varðaði — þó ætti
nýr flokkur — Portúgalska
lýðræðishreyfingin, sem stendur
nálægt kommúnistum — aðild að
stjórninni. Þetta staðfestir þann
orðróm, er verið hefur á kreiki
um,að Vinstrisinnaði
miðdemókrataflokkurinn eigi
áfram aðild að stjórninni, þrátt
fyrir ásakanir kommúnista i garð
flokksins.
Fréttaskýrendur álita, að áhrif
kommúnista i hinni nýju stjórn
gæti mun meira en i fyrri stjórn.
Merki þess sjái þegar á þeim
flokkum, sem aðild eigi að henni
— annars vegar séu
miðdemókratar og sosialistar, en
hins vegar kommúnistar og
lýðræðishreyfingin, er i raun og
veru lúti vilja kommúnista.
Portúgalskir flóttamenn, sem
dvelja nú á Spáni, sögðu i gær að
nú stæði yfir fjársöfnun á Spáni
meðal portúgalskra útlaga á veg-
um hreyfingar, er nefndist
Portúgalski lýðræðisherinn.
Markmið hans er að steypa af
stóli núverandi valdhöfum i
Portúgal. Spænsk yfirvöld hafa
þegar lýst þvi yfir, að þeim sé
ekki kunnugt um starfsemi
neinnar leynilegrar hreyfingar i
landinu á borð við þessa.
Enskir fiskimenn krefjast innflutningsbanns á frystum fiskafurðum og
ferskfiski að vetrarlagi:
AAótmælaaðgerðir breiðast út
að nó réttl sínum fyrlr dómstólunum
Hafnareigendur hóta
NTB/Reuter-London/Newcastle.
Mikil ólga rikir nú meðal fiski-
manna i nokkrum hafnarborgum
á austurströnd Englands. Fiski-
menn hafa krafizt þess, aö inn-
flutningi á frystum fiskafurðum
frá Noregi og tslandi (sjá þó með-
fylgjandi fréttatilkynningu) til
Bretlands verði tafarlaust hætt.
Fiskimenn i borgunum
Grimsby og Immingham hófu
mótmælaaðgerðir á föstudag i
fyrri viku, til að leggja áherzlu á
kröfu sina um innflutningsbann.
Þeir lögðu bátum sinum fyrir
hafnarmynnið og stöðvuðu alla
umferð um höfnina. 1 fyrrakvöld
fóru fiskimenn i Newcastle og
stöðvuðu umferð um ána Tyne og
fréttir frá Whitby, Sunderland og
Scarborough hermdu i gær, að
fiskimenn á þessum slóðum hefðu
ákveðið að fara að dæmi starfs-
bræðra sinna. Og fleiri fylgdu i
kjölfarið, þvi að i gær lá niðri um-
ferð um tiu hafnir á austurströnd
Englands vegna mótmælaað-
gerða fiskimanna. Norska frétta-
stofan NTB sagði i gær, að nú
væri óttazt, að fiskimenn á Skot-
landi gripu til sams konar að-
gerða, til að votta enskum starfs-
bræðrum samúð sina. Skozku
fiskimennirnir ræddu um hugsan-
legar aðgerðir af sinni hálfu á
fundum siðdegis i gær.
I fyrrakvöld lokaðist norskt
farþegaskip inni i höfninni i New-
castle. Skipið átti skv. áætlun að
snúa aftur til Bergen I gærkvöldi,
en fiskimenn hótuðu að meina þvi
för um hafnarmynnið vegna þess
að það hefði flutt 30 tonn af fryst-
um fiski til Newcastle. Siðdegis I
gær féllust þeir þó á að láta m/s
England — en svo heitir skipið —
sigla sinn sjó.
Fred Peart, landbúnaðar- og
sjávarútvegsráðherra Bretlands,
hefur boðizt til að hitta fulltrúa
fiskimanna að máli i dag, en ekki
var ljóst i gær, hvort þeir ætluðú
að taka þvi boði. Fiskimennirnir
krefjast ekki aðeins banns við
innflutningi á frystum fiskafurð-
um, heldur og banns við löndun
ferskfisks að vetrarlagi. Ráð-
herrann sagði aftur á móti i Neðri
málstofunni i gær, að brezka
stjórnin ætlaði ekki að gripa til
neinna fljótfærnislegra aðgerða
gegn vinsamlegum rikjum.
Hafnirnar i Grimsby og Inning-
ham eru i eigu „British Trans-
port Docks Board” og lýstu for-
ráðamenn ráðsins yfir þvi I gær,
að þeir yrðu að leita réttar sins
fyrir dómstólunum — en ráðið
hefur skuldbundið sig til að leyfa
alls kyns förum aðgang að höfn-
unum.
1 fréttaflutningi af mót-
mælaaðgerðum brezkra fiski-
manna gegn innflutningi á
fiski hefur verið skýrt frá, að
tilefnið væri innflutningur á
frystum fiski frá Noregi og Is-
landi.
Það hlýtur aö byggjast á
ökunnugleika eða misskilningi
brezkra aðila, að Island er
nefnt i þessu sambandi, þvi
undanfarið hálft ár höfum við
einungis selt 550 tonn af fryst-
um fiskflökum til Bretlands.
Miðað við innflutning og fisk-
neyzlu i Bretlandi er þetta
magn svo óverulegt, að þess
gætir ekki á fiskmarkaði þar.
Skýringin á þessu litla
magni er sú, að við höfum ekki
talið fært að selja á svo lágu
verði, sem norskir frystitog-
arar sætta sig við.
Reykjavik, 24. marz 1975,
SÖLUMIÐSTÖÐ
HRAÐFRYSTIHÚSANNA,
Eyjólfur isfeld Eyjólfsson.
(Fréttatilkynning)