Tíminn - 26.03.1975, Qupperneq 2
2
TÍMINN
Miövikudagur 26. marz 1975.
Miðvikudagur 26. marz 1975 Þ
Vatnsberinn (20. jan.—18. febr.)
Vatnsberinn: Það verður mikið áð snúast hjá
þér i dag, og þú skalt ætla þér nógan tlma. Það
er annað, sem þú skalt athuga: Þér kemur betur
að beita lagi en eftirrekstri, og þú skyldir varast
að setja nokkra afarkosti i dag.
Fiskarnir (19. febr.—20. marz.)
Fiskarnir: Þú skalttaka daginn snemma, það er
ýmislegt um að vera hjá þér, svo að þú kemst
ekki hjá þvi að skipuleggja viðfangsefnin og ráð-
ast á þau eitt i einu, unz öllu er lokið, ef þú mögu-
lega getur komið þvi við.
Hrúturinn (21. marz—19. april)
Hrúturinn: Það er ekkert liklegra en dagurinn
valdi þér einhverju hugarangri. Þetta er mikill
amstursdagur, en þó er varla, að hann valdi þér
beinum áhyggjum, nema þá ef það kynni að vera
i einhverju sambandi við störf, sem þú hefur
trassað.
Nautið (20. april—20. mai)
Nautið: Þessi dagur hefur alla möguleika m
þess að verða góður, en þó fylgir böggull
skammrifi: Þú verður að hafa hemil á skaps-
munum þinum og varast hvers konar geðshrær-
ingar, jafnvel þó að þér finnist þó nokkurt tilefni
til.
Tviburarnir (21. mai—20. júni)
Tviburarnir: Það er aldrei að vita nema þetta
verði eitthvað erfiður dagur framan af, en það
mun rætast úr ýmsu, þegar frá liður, ef þú beitir
lagni og hóflegri festu. Það er eitthvað sem þú
tekur nærri þér, en ættir að gleyma.
Krabbinn (21. júni—22. júli)
Krabbinn: Það er ekki óliklegt, að að þér sæki
eitthvert óyndi eða kviði. Þetta er þvi verra, sem
þú gerir þér ekki grein fyrir ástæðunum, af
hverju þetta stafar, eða hvernig þú átt að bregð-
ast við. Flasaðu ekki að neinu.
Ljónið (23. júlí—23. ágúst)
Ljónið: Það litur út fyrir, að þetta sé erfiðleika-
dagur hjá þér. Að likindum ertu með einhverjar
áhyggjur út af góðum vini eða nánum ættingja,
og kannski eru raunverulegar ástæður fyrir
hendi, en hitt er þó miklu likegra, að svo sé
ekki.
Jómfrúin (24. ágúst—22. sept.)
Jómfrúin: Þú kemst ekki hjá þvi að láta hendur
standa fram úr ermum i dag, og það er ýmislegt,
sem bendir til þess, að þú verðir að fylgjast held-
ur betur með, ef þú átt ekki að verða af sérstak-
lega góðu tækifæri.
Vogin (23. sept.—22. okt.)
Vogin: Það er hætt við þvi, að þetta verði harla
rólegur og viðburðarlitill dagur hjá þér. Það lit-
ur ekki út fyrir neina stórviðburði, en ef þeir
gerast, þá færðu að finna fyrir þeim. Að minnsta
kosti verða þeir eftirminnilegir.
Sporðdrekinn (23. okt.—21. nóv.)
Sporðdrekinn: Þú verður að hafa augun opin i
dag. Það er aldrei að vita nema setið sé um þig,
svo að þú skyldir fylgjast vel með öllu, sem ger-
ist i kringum þig. Það gæti einhver orðið til þess
að misnota tiltrú þina og traust.
Bogmaðurinn (22. nóv.—21. des.)
Bogmaðurinn: Þetta ætti að geta orðið góður og
notadrjúgur dagur, en það er alls ekki vist, að
neitt sérstakt beri að höndum. Þú skalt veita
öðrum af þvi, sem þú átt, en þú ættir að varast
að gefa nokkur loforð fram I timann.
Steingeitin (22. des.—19. jan.)
Steingeitin: Þú skalt hafa hægt um þig i dag, að
svo miklu leyti, sem það kemur til greina, og þú
ættir að láta hlutina gerast af sjálfu sér. Þú skalt
gera þér grein fyrir þvi, að þú færð ekki alltaf
allt, sem þú sækist eftir.
ÚTBOÐ
Tilboð óskast I lögn hitaveituæöar meðfran Suðurlands-
braut i Reykjavik, fyrir Hitaveitu Reykjavikur.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Frikirkjuvegi 3.
gegn 10.000.- skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað, þriðjudaginn 15. april
kl. 11.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 — Sími 25800
Landfari verður að biðjast af-
sökunará þvi, að bréfin, sem nú
birtast, hafa beðið nokkuð. Or-
sökin er sú, að hann hefur ekki
haft undan við birtinguna.
Eru þeir lika hér?
Við byrjum á bréfi frá S.E.
Hann segir:
„Það virðist komið upp úr
kafinu, að CIA, leyniþjónustan
bandariska, sé ekki aðeins með
starfslið I löndum eins og Chile
og Grikklandi, heldur einnig i
Vestur-Evrópulöndum. Fjöl-
mennur hópur brezkra þing-
manna hefur borið það blákalt
fram, að tiu slikir náungar
leynist i sendiráði Bandarikja-
manna i London, og þegar þetta
er skrifað, hefur þvi að minnsta
kosti ekki verið andmælt.
Flestum hefði sennilega þótt
það óliklegt, að CIA væri með
starfsemi sina I Bretlandi, og lái
mér hver sem er, þó að ég
spyrji: Eru þeir kannski lika
hér, þessir CIA-menn?
Spyr sá, sem ekki veit.”
Sædýrasafnið til
skammar
Vesturbæingur, sem fór með
börn sin i Sædýrasafnið gefur
þvi heldur slæma einkunn. Hann
segir:
Óþverraleg framkoma
gesta
,,Um helgar reyni ég eins og
aðrir barnakallar að samneyta
bömum minum meira en timi
gefst til fyrir brauðstritinu
virka daga. Stundum er þá
brugðið á það ráð að fara i smá-
skemmtiferðir til þess að skoða
eitthvað það, sem krökkunum
leikur forvitni á. Eina slika ferð
fórum við i Sædýrasafnið
svokallaða fyrir skömmu og er
skemmst af þeirri ferð að segja,
að hún varð litill ánægjuauki.
ömurlegri aðbúnað að saklaus-
um skepnum er vart hægt að
hugsa sér. Dýrin lokuð inni i
þröngum búrum og allt vaðandi
i skit, enda leyndi sér ekki að
kvikindin undu illa hag sinum.
Mér skilst, að safn þetta njóti
opinberra styrkja, en hafa þeir
góðu herrar, sem styrkina veita
af almannafé, nokkru sinni gert
sér ferð á siaðinn og hugað að
aðbúnaði dýranna? Eru ekki i
gildi i þessu landi lög og reglur
um meðferð dýra? Ég veit ekki
betur en svo sé — og þá held ég
að þeir, sem bera ábyrgð á þvi,
að þeim sé framfylgt ættu að
takast á hendur ferð i Sædýra-
safnið.
Ég held, að flestir, sem séð
hafa hljóti að vera mér sam-
dóma um að nær einu dýrin,
sem þokkalega sé búið að, séu
hvitabirnirnir og er þó ekki
nógu rúmt um þá greyin. Þetta
læt ég nægja um almennan
aöbúnað að dýrunum af hálfu
safnsins.
En svo er annað — eftirlit
með framferði gesta virðist ekk
ert vera og væri þó full þörf á
eftir reynslu minni þennan
sunnudag að dæma. Á einum
stað i safninu eru saman i húsi
tveir apar og tvö ljón —■
auðvitað sin tegundin i hvoru
búri, sem bæði eru þó þröng og
sóðaleg. Ekki leyndi sér af hátt-
emi kvikindanna að þau hafa öll
geðbilazt af aðbúðinni, þvi að
þau æða linnulaust fram og
aftur um búrin — og óhugnan-
legt var að heyra eymdarvælið i
öpunum.
En ég ætlaði að ræða fram-
ferði gestanna. Þegar ég kom i
húsið, var annar apinn að jórtra
tyggigúmmi, sem einhver hafði
gefið honum sér til gamans, en
skepnunni til óþurftar. Meðan
ég staldraði við bar þarna að
fleira fólk, sem gerði sér það til
dundurs að gefa hinum apanum
tyggigúmmi, svona eins og til
þess að hann yrði nú ekki af-
skiptur. Og ekki nóg með þetta
— konukind, sem þarna kom,
gerði sér leik að þvi að rétta
öðrum apanum logandi sigar-
ettustubb, sem greyið kastaði
auðvitað frá sér, þegar hann fór
að finna fyrir glóðinni. Á búr-
gólfinu er sag, og má mildi
kallast að ekki kviknaði i þvi.
Einhverjum kann að þykja
ótrúlegt að til sé fólk á borð við
þessa gesti Sædýrasafnsins —
sem eru réttnefndir fantar og
illmenni — en þetta er samt
dagsatt. Og raunar mætti drepa
á fleira, sem bar fyrir augu min
og barnanna þennan dag —
þama valsaði lika um krakka-
stóð og gerði það sér til gamans
að kvekkja kvikindin með þvi
að kasta i þau snjóboltum, allt
átölulaust af hálfu starfsmanna
safnsins. Og bágt á ég með að
trúa þvi, að gestir safnsins
þennan dag hafi verið stórlega
frábrugðnir þvi, sem gerist aðra
daga.
Ekki kæmi mér á óvart , þótt
svör ráðamanna safnsins við
þessari ádrepu, — ef einhver
verða — yrðu á þá lund, að safn
af þessu tagi sé dýrt I rekstri og
ekki sé unnt að gera allt i einu.
Það er sjálfsagt satt og rétt, en
sé fjárhagur safnsins bágur,
væri þá skömminni til skárra að
hafa i safninu færri dýr og búa
þá betur að þeim, og sjá svo um
að þau fái frið fyrir samvizku-
lausum niðingum.”
íslenzk orðabók að gjöf
Svava Valdimarsdóttir,
Kleppsvegi 50, skrifar á þessa
leið.
„Virðulegi Landfari! Hvort
sem ég er sendibréfsfær eða
ekki, langar mig til þess að
koma tillögu á framfæri. Hún er
sú, að öllum nemendum i tólf
ára bekk sé gefin islenzk orða-
bók. Rikisútgáfa námsbóka ætti
að velja stærðina og sjá um út-
breiðslu. Þá ættu allir að geta
leitað til þessarar bókar, ef þeir
væru i vafa um orð og orðasam-
bönd.
Hvað getum við gert fyrir
móðurmálið? Þegar min börn
voru tólf áj'a, fengu þau Nýja
testamentið að gjöf. Hvers
vegna er ekki hægt að gefa öll-
um orðabók — islenzka?
Ég veit til þess, að fullorðnir
samvinnuskóla- og verzlunar-
skólanemendur —nemendur frá
fyrri tið — hafa komið með
minus út frá prófi, sem lagt var
fyrir nemendur I Verzlunar-
skólanum fyrir nokkru — i is-
lenzku. Þessi próf eru erfið, en
mér finnst samt, að z eigi að
haldast áfram vegna uppruna
orðanna, sem þá er farið að
hugsa út i. En þi ekki höfð eins
þung.
Menn eiga misjafnlega gott
með að koma fyrir sig orði. Mér
finnst oft áberandi, hvað óskóla-
gengið fólk á gott með að tjá
hugsanir sínar — að minnsta
kosjti i kunningjahópi. Það væri
bót* ef hægt væri að kenna slikt.
Mætti þá sleppa einhverju ár-
talinu, sem notað er á prófum til
þess að fella krakkana. Þeir
muna slíkt, er hafa sjónminni.
En það hafa ekki allir.”
Kl
Electrolux
Frystikista
310 itr.^ár
Electrolux Frystikista TC114
310 lítra Frystigeta
21,5 kg á dag. Sjálfvirkur hita-
stillir (Termostat). Öryggisljós.
Ein karfa. Útbúnaður til að fjar-
lægja vatn úr frystihólfinu. Seg-
ullæsing. Fjöður, sem heldur
lokinu uppi.
Vörumarkaðurinn hf.
r
ARÐUR í STAÐ
0 SAMVINNUBANKINN
YÐSLU
ÚRVAL VASARAFREIKNA
til fermingar-
VERÐ FRÁ KR. 4.590.-
ÞOR HF
REYKJAVÍK SKÓLAVÖRÐUSTÍG 25