Tíminn - 29.04.1975, Side 7
Þriðjudagur 29. apríl 1975.
TÍMINN
7
stærstu framkvæmdaaðila. Þaö
hefur hjálpað, að yfirleitt hefur
tekizt gott samstarf við stærstu
aöilana, sem að staðaldri hafa
framkvæmdir með höndum.
Samt fer þvi fjarri að viðunandi
tök hafi náðst á þessum verkefn-
um, enda kannski tæpast við þvl
að búast.
Erfiðast er, að oft er farið af
stað með framkvæmdir, án þess
að leita álits Náttúruverndarráðs
skv. ákvæðum laganna. Er þá
stundum of seint úr að bæta þegar
þess háttar mál koma til kasta
ráðsins eftir dúk og disk. Veldur
þetta oft miklum leiðindum, ó-
þægindum og tjóni, sem hægt
hefði verið að komast hjá. Sjá
menn þá oft, en of seint, að koma
hefði mátt öllu betur fyrir ef
menn hefðu borið málið undir
Náttúruverndarnefndir eða Nátt-
úruvemdarráð fyrirfram og i
tæka tlð eins og lög gera ráð fyrir.
Areiðanlega er hér stundum um
vangá að ræða, og verðum við að
vona að það verði mönnum æ rik-
ara Ihuga að muna eftir Náttúru-
vemdarráði þegar til koma fram-
kvæmdir, sem röskun valda.
Telur Náttúruverndarráð afar
miklu skipta að náttúruverndar-
nefndir og náttúruverndarsamtök
vinni að þessum þáttum heima i
héruðum I samvinnu við þá, sem I
framkvæmdum standa.
Það er mála sannazt að sum á-
kvæði náttúruverndarlaga eru
þannnig, að farsæl framkvæmd
þeirra veltur mest á viðhorfi
manna til góðrar sambúðar við
landið. Vilja menn ekki vera nær-
gætnir við landið? Það er spurn-
ing, sem hver maður ætti að bera
upp við sjálfan sig. Það mundi
breyta miklu ef menn myndu
eftir aðspyrja sjálfa sig að þessu.
Ég efast ekki um svarið. Þetta á
við um almennar framkvæmdir,
sem ég hef drepið á, og ekki siður
um óþarfana akstur utan vega, en
ógætilegur akstur um viðkvæmt
land er að verða alvarlegt vanda-
mál. Sumir virðast leggja kapp á
að kalla torfæruakstur iþrótt og
að útbreiða hann sem keppnis-
grein. Þeir, sem þetta vilja verða
að gera sér grein fyrir þvi, að á
þeim hvílir þá sú skylda að hafa
fullnægjandi hemil á þeim öflum,
sem þeir leysa með þessu úr læð-
ingi, þvi undir keppni æfa menn.
Ráða þeir við það og hvað vilja
þeir á sig leggja til þess? Nátt-
úruverndarráð vill hafa sam-
vinnu við öll þau félög og aðra,
sem setja vilja torfæruakstri eðli-
leg takmörk, þar með bæði æfing-
um og samkeppni. Það verður að
vera sameiginlegt áhugamál
landsmanna að rótfesta þá skoð-
un, að það er engum manni sæm-
andi að gera sér það að leik, að
særa landið meiðslasárum, sem
seinteða aldrei gróa. Trúi ég ekki
öðru en að góð sam vinna náist um
þessi efni, þvi reynslan sýnir
mjög skýrt, að ef menn koma
auga á vandamál þessu lik þá
leysast þau.
Við komum alltaf að þessu
sama: Viðunandi framkvæmd
náttúruverndar verður að byggj-
ast á vinsamlegu viðhorfi ein-
staklinga til landsins, sem reynist
mönnum nógu ofarlega I huga að
jafnaði til þess að móta verkin og
sambúðina. Með mörgu móti má
minna sig á þetta t.d. með því að
hafa fast i huga að meiða landið
sem minnst, og að koma mann-
virkjum vel fyrir i landinu, smá-
um og stórum.
Fjárveiting til náttúruverndar-
mála hefur aukizt verulega, — og
er það vel, enda var nánast engu
til þeirra kostað. Samt sem áður
eru fjárráð mjög takmörkuð og
afar litið hægt að vera til friðunar
landi þar sem fé þarf til að kosta,
og til að búa þjóðgarða hæfilega,
hvað þá stofna nýja, nema úr
fjárráðum rætist. Er það brýnt
úrlausnarefni að fá ráðna á þessu
bót. Verður það eitt af verkefnum
næstu ára að vinna að auknum
fjárráðum I þessu skyni.
Að lokum vil ég þakka sam-
starfsmönnum minum I ráðinu
mjög góða samvinnu og fágætt á-
hugastarf. Þar á varaformaður
ráðsins Eyþór Einarsson óskilið
mál með aðalmönnum I ráðinu
þvihann hefur allan timann unnið
með okkur fullt starf.
Framkvæmdastjóranum Árna
Reynissyni þakka ég frábært
starf og þeim, sem kynna sér
starfsskýrsluna verður ekki
skotaskuld úr þvi að skilja, að
hann hefur ekki auðum höndum
setið þessi þrjú ár. Menntamála-
ráðuneytinú þakka ég ágæta
samvinnu.
Sumarhjólbarðar:
STÆRÐ 5% SS9HÍE3S
155—12 Kr. 4.150 Kr. 3.930
135—13 4.230 4.010
145—13 4.290 4.060
155—13 4.320 4.090
165—13 4.940 4.680
175—13 5.740 5.440
155—14 4.400 4.170
165—14 5.580 5.290
175—14 6.180 5.850
185—14 7.250 6.870
215/7Q—14 10.980 10.400
550—12 3.490 3.310
600—12 4.030 3.820
615/155—13 4.370 4.140
560—13 4.450 4.220
590—13 O 4.150 3.930
Sumarhjólbarðar:
STÆRO - 5% 10%
640—13 Kr. 5.090 Kr. 4.820
700—13 5.410 5.130
615/155—14 4.020 3.810
5,0—15 3.570 3.330
560—15 4.080 3.870
590—15 4.730 4.480
600—15 5.030 4.770
Jeppahjólbarðar • •
600—16/6 4.930 4.670
650—16/6 6.030 5.710
750—16/6 7.190 6.810
Weapon hjólbarðar:
900—16/10 16.970 16.080
TEKKNESKA BIFREIÐAUMBOÐIÐ Á ÍSLANDIH/F
AUÐBREKKU 44-46 SÍMI 42606
Garðahreppur: Hjólbarðaverkstæðið Nýbarði
Akureyri: Skoda verkstæðið á Akureyri h.f. Óseyri 8
Eyilsstaðir: Varahlutaverzlun Gunnars Gunnarssonar
5*
VERBTILBOD
til l.mai 7
aftveim
dekkjum
%af fjórum
' dekkjum