Tíminn - 29.05.1975, Qupperneq 7
Fimmtudagur 29. mai 1975
TÍMINN
7
Slysavarnafélagsmenn taka viö björgunarbátnum.
Ljónin gefa
björgunarbót
BH-Reykjavik — A lokadaginn,
11. maf s.l., afhenti Lionsklúbbur
Sandgeröis Slysavarnadeildinni
Sigurvon i Sandgeröi aö gjöf mjög
fullkominn gúmmibjörgunarbát
meö 25 ha utanborösvél, til afnota
fyrir björgunarsveit sina. Tilefni
þessarar gjafar er, aö Lions-
klúbbur Sandgeröis er 10 ára á
þessu ári, en hann var stofnaöur
18. febrúar 1965.
Á 10 ára starfsferli slnum hefur
klúbbúrinn unniö aö ýmiss konar
menningar- og liknarmálum.
Lionsklúbbur Sandgeröis hefur
sett sér það markmið að láta sem
mest af þvi fé, er hann safnar,
renna tií málefna innan sins
byggðarlags, en að sjálfsögðu
hefur klúbburinn alltaf tekið þátt
i þeim söfnunum, sem islenzka
Lionshreyfingin sem heild hefur
beitt sér fyrir.
Eitt er það málefni, sem Lions-
menn i Sandgerði hafa ætið haft
ofarlega i huga og reynt að styðja
eftir mætti, en það er starfsemi
Slysavarnadeildarinnar Sigur-
vonar, sem er elzta slysavarna-
deild landsins, stofnuö árið 1928,
sama ár og Slysavarnafélag Is-
lands var stofnað. Hefur klúbbur-
inn m.a. afhent deildinni öndun-
artæki að gjöf og lagt fram fé til
talstöðvakaupa.
Jón H. Bergs
aðalræðismaður
Kanada
Ambassador Kanada á íslandi
vill hér með tilkynna þá ákvörðun
rikisstjómar Kanada að skipa
herra Jón H. Bergs forstjóra
aðalræðismann Kanada á Islandi
(Honorary Consul-General).
Skipun þessi tekur gildi 1. júni
1975. Jón H. Bergs tekur við þessu
starfi af Hallgrimi F. Hallgrims-
syni forstjóra, sem hefur gegnt
þvi s.l. 18 ár.
Jón H. Bergs fæddist i Reykja-
vik, 14. september 1927. Hann
lauk embættisprófi i lögum frá
Háskóla íslands 1952 og stundaði
framhaldsnám i lögfræði við
Columbia University, New York
1953-1954. Héraðsdómslögmaður
varö hann i júni 1956. Hann varð
fulltrúi forstjóra Sláturfélags
Suðurlands 1951, og var ráðinn
forstjóri fyrirtækisins 1. janúar
1957, og gegnir hann þvi starfi
enn. Hann gegnir formennsku og
er stjórnarmaður i ýmsum at-
vinnufyrirtækjum á sviði iðnaðar
og verzlunar, tók sæti i fram-
kvæmdastjórn Vinnuveitenda-
sambands íslands 1961 og hefur
verið formaður samtakanna sið-
an 1971.
Jón H. Bergs var forseti
Rotary-klúbbs Reykjavikur frá 1.
júli 1971 til 30. júni 1972. Hann er
kvæntur Gyðu Sch. Thorsteins-
son, og eiga þau þrjú börn.
Fjórtón óra
drengur
óskar eftir að komast í
sveit. Er mjög natinn
við smábörn. Upplýs-
ingar í síma 8-63-47.
NBB2
Vörubila
hjólbar&ar
VERÐTILBOD
825-20/12 Kr. 22.470,-
825-20/14 — 26.850,-
1.000-20/14 — 34.210,-
1.000-20/16 Kr. 35.630,-
1.100-20/14 — 35.900,-
1.400-24/16 — 59.440,-
TÉKKNESKA BIFREIÐAUMBOÐIÐ Á ÍSLAND/ H/F
AUÐBREKKU 44-46 S/MI 42606
m/hælbandi 1440,-kr
; m/hælbandi 1440,- kc
DOMUS Laugavegi 91
GEFJUIV1 Austurstræti
an/hælbands 1270,- kr
Starfsstúlknafélagið SÓKN
Félagsfundur
verður haldinn, föstudaginn 30. mai kl.
8.30 e.h. i Lindarbæ (niðri)
Fundarefni: Heimild handa stjórn- og
trúnaðarmannaráði til verkfallaboðunar.
Önnur mál.
Mætið vel og stundvislega
Stjórnin.
arformaður, Hafsteinn Berg-
þórsson o.fl., skildu að fastakaup-
ið á togurum yrði að fylgja al-
mennum launum i landinu, annað
hlyti að bjóða heim stöðugum
vinnustöðvunum á togurunum.
Voru þó mörg ár á þessu timabili
talin erfið, hvað afkomu útgerð-
arinnar snerti.
Þegar þannig hafði staðið á
annað ár frá þvi að fyrri samn-
ingar féllu úr gildi og enn var öll-
um umbótum á kjörunum harð-
neitað þar með talið, að svo-
kallaðar jafnlaunabætur voru
með sennilega hæpnum lögskýr-
ingum hafðar að mestu af togara-
sjómönnum, áttu félög sjómanna
ekki annarra kosta völ en að ráð-
ast i vinnustöðvun til að freista
þess að rétta hlut þeirra félags-
manna, sem á togurunum störf-
uðu.
Upp á siðkastið hafa útgerðar-
menn lagt megináherzlu á það að
fækka I áhöfnum togaranna frá
þvi, sem nú er, þ.e. úr 24 til 25
manna áhöfnum i 19 menn, það er
nánast um 1/5 hluta, og þá helzt,
að tekinn verði upp hlutaskipti,
llkt og er á minni togurum og
fiskibátum.
F.I.B. bauð þó aldrei sömu
hlutakjör og I gildi eru á hinum
minni skuttogurum, eins og látið
er að liggja i umræddri greinar-
gerð F.I.B.
A hinum minni skuttogurum
ber að greiða áhöfn til jafnra
skipta 40% af afla, ef 19 manna
áhöfn er, en F.l.B. bauð 33% til
jafnra skipta eða um það bil 20%
lægri kjör en samningar á minni
togurunum kveða á um. Eða þá
að sama launafyrirkomulag verði
áfram eins og verið hefur, þ.e.
fast kaup, fæði og aflahlutur, en
fækkað I áhöfnum, eins og áður
sagði.
Skal nú rifjað upp, hvernig
háttað hefir verið um fjölda
manna I áhöfnum á hinum stærri
togurum. Lengst af voru 33ja
manna áhafnir á svokölluðum ný-
sköpunartogurum við ísfiskveið-
ar. Voru þá 11 menn til að vinna
að aðgerð og frágangi á fiskinum
I lest og við veiðarfærin á hvorri
vakt.
Þaðmunhafa verið árið 1962 að
fækkað var i áhöfnum i 31 mann,
þ.e. i 10 menn á hvorri vakt.
Nokkru siðar var hætt að hafa
sérstakan bræðslumann og
áhöfnin þá 30 menn.
Þegar skuttogararnir voru að
byrja aðkoma 1973var gengið inn
á mikla fækkun i áhöfn eða um 4
menn á siðutogurunum og um 6
menn á skuttogurunum, þ.e. i 24
menn. Á flestum skipunum var
fækkunin 5 hásetar og 1 i vélar-
rúmi. Eftir það voru 7 menn á
annarri vaktinnien 8 á hinni. Var
þá af öllum talið og það m.a. rætt
viö reyndustu skipstjórana á tog-
urunum að komið væri i algert
lágmark þess, sem vit væri i,
varðandi fækkun a.m-.k. á háset-
um, ef nokkur kostur ætti að vera
að halda uppi vöktum á togurun-
um, eins og lög mæla fyrir um,
þannig eru nú 7 eða 8 menn á
hvorri vakt til að gera að og
ganga frá fiskinum og sinna neta-
viögerðum og öðru, en áður voru
11 menn til þessarra starfa.
Oll er þessi vinna eins og áður i
höndum, bæði fiskaðgerð, isun i
lest og netaviðgerð og fiskurinn
isaður 1 kassa i sumum skipunum
sem er mjög mikið aukin vinna,
og vaxandi kröfur gerðar um
góðan frágang á aflanum.
Hin nýju skip, sem eru um
helmingi stærri en nýsköpunar-
togararnir voru, með 3var sinn-
um meiri vélarkraft og geta verið
að veiðum i flestum veðrum og
þvi sjaldan frátök, og svo bætist
við, að þessi skip hafa mikið
stærri vörpu en hin eldri skip
höfðu. Má af þessu vera ljóst, að
ef fækka ætti hásetum frekar en
orðið er, er með þvi horfið að
óhæfilegum þrældómi á togurun-
um I líkingu við það, sem var fyrr
á árum. Mun þá ekki þurfa að tala
mikið um vökulög og eiginlegt
gildi þeirra, þegar bærilegur afli
bærist að.
Viljum við minna á það, að tog-
arasjómenn áratugnum milli
1950 og ’60 höfðu of mikið fyrir þvi
að koma á 12 kl.st. hvild á sólar-
hring, fyrst með löngum verkföll-
um I tvigang til að ná samningum
um þennan hvíldartima, sem
slðar var lögfest 1956.
Ötrúlegt verður að teljast, að
togarasjómenn nú á 8unda ára-
tugnum vilji verða til þess að
troöa niður i skarnið þær réttar-
bætur, sem vökulögin eru, og sjó-
mennimir lögðu svo mikið á sig
að koma á fyrir 20 árum.
Við, sem erum nú I samninga-
nefnd um kjör á togurunum, höf-
um ekki hugsað okkur að eiga
hlut að þvi verki.
Krafa f^rsvarsmanna F.l.B.
um fækkurCum 2 háseta á togur-
um nú, er kaldrifjaðri en menn
sjálfsagt almennt gera sér grein
fyrir og vægast sagt heldur köld
kveðja til þeirra sjómanna, sem
enn gefa sig 1 það að vera að stað-
aldri á togurum.
Það er eins og flestallir þing-
menn og ráðherrar, og raunar
lika blaðamenn og áðrir i starfi
fjölmiðla, hafi hliðrað sér hjá að
taka undir eða ræða um kröfur
F.I.B., elzta vinnuveitendafélags
landsins, um aukinn þrældóm á
togurunum.
Ef forráðamenn F.I.B. halda,
að vandi togaraútgerðarinnar
verði leystur með þvi að taka upp
á ný aukinn þrældóm á togurun-
um, þá ganga þeir i villu og ættu
að reyna að átta sig betur, áður
en lengra er haldið.
Samninganefndin.