Fréttablaðið - 01.05.2005, Page 14

Fréttablaðið - 01.05.2005, Page 14
Við hittumst á skrifstofuLúðvíks við Austurstrætiðá fertugasta og fyrsta af- mælisdegi hans. Úti skín sólin og þingmaðurinn er með skyrtu- ermarnar uppbrettar en bindið er á sínum stað. Það er mikið að gera enda skammt eftir af þinghaldinu og mörg mál bíða afgreiðslu. Lúðvík bendir á málverk Ei- ríks Smith af Jóni Baldvini Hannibalssyni þegar hann er spurður hvað hafi rekið hann út í pólitík en Lúðvík hefur setið á þingi í áratug. „Það má segja að Jón Baldvin hafi fengið mig í framboð á Suðurlandi á sínum tíma. Í fyrstu hafði ég ekki mik- inn áhuga, enda taldi ég mig á þeim tíma vera á leið til Bret- lands í framhaldsnám í sam- keppnis- og Evrópurétti. Svona geta tilviljanirnar verið.“ Lúðvík rifjar upp að Alþýðu- flokkurinn hafi haft svokallað pilsnersfylgi í könnunum en styrkleiki pilsners er rúm tvö prósent. „Ég man að daginn sem þessi könnun kom bauð Jón Bald- vin mér í mat og þá var ég harðá- kveðinn að segja honum endan- lega að ég hefði ekki áhuga. Ég taldi mig þá vera að fara að hitta brotinn mann með ónýtan flokk og lítið fylgi en hitti hins vegar mann sem var örugglega með 40 prósent fylgi, að minnsta kosti talaði hann þannig. Það var fyrst þá sem ég fór að hugsa um það í alvöru að slá til, enda hafði ég brennandi áhuga á stjórnmálum.“ Fjölskylda Lúðvíks hafði starf- að í Alþýðuflokknum; Oddur afi hans vann lengi á Alþýðublaðinu og Guðmundur föðurbróðir hans var formaður framkvæmda- stjórnar í mörg ár. Fyrstu afskipti Lúðvíks sjálfs af pólitík voru hins vegar í kosningabaráttunni 1995. „Það má segja að það hafi taf- ist aðeins,“ svarar hann aðspurð- ur um örlög framhaldsnámsins. Blöndal er barn síns tíma Á þingi hefur Lúðvík beint sjón- um sérstaklega að samkeppnis- málum enda metur hann vægi þeirra mikils. „Ég lít svo á að bar- átta fyrir öflugum samkeppnis- reglum sé á margan hátt verka- lýðsbarátta nútímans. Ef við ætl- um að byggja samfélagið á mark- aðsskipulagi þurfa að gilda strangar samkeppnisreglur svo verðmyndun, framboð og eftir- spurn á vörum séu eðlileg. Olíu- málið er dæmi um hvað gerist þegar rangt er haft við á markaði. Nýtt frumvarp um samkeppn- ismál er stórskaðlegt og það er sorglegt að þar ráði sjónarmið Verslunarráðs og Samtaka at- vinnulífsins á kostnað vilja launa- fólks og Neytendasamtakanna.“ Oft er tekist á af hörku í þing- inu og þar falla stór orð um menn og málefni. Lúðvík hefur tvívegis mátt sæta vítum frá Halldóri Blöndal þingforseta, nú síðast á dögunum. Hann gefur ekki mikið fyrir þessar áminningar. „Ég tek þetta ekki til mín enda sannfærð- ur um að Halldór hafði rangt við.“ Og Lúðvík er í raun ekkert sér- staklega hrifinn af Halldóri. „Þegar ég byrjaði á þingi var Ólafur G. Einarsson forseti. Hann naut virðingar allra því menn upplifðu hann sem forseta alls þingsins. Halldór hefur hins vegar valið að vera fyrst og fremst forseti ráðherranna og meirihlutans. Halldór er hold- gervingur þeirrar hugsunar að meirihlutinn eigi að ráða öllu og geti gert allt sem honum hugnast. Það er skilningur hans á lýðræð- inu. En það má einnig um hann segja að hann er barn síns tíma.“ Lúðvík sakar ríkisstjórnina um valdhroka og finnst stjórnarflokk- arnir í raun eiga lítið erindi. „Ég held að ákveðin vatnaskil hafi orð- ið þegar Framsóknarflokkur og Sjálfstæðisflokkur fengu endur- nýjað umboð í kosningunum 1999. Þá var EES-samningurinn ekki lengur sú hugmyndafræði sem þeir gátu haldið í og þeir vöknuðu upp við hálfgerða erindisleysu. Þá braust valdhrokinn út. Þá urðu einnig vatnaskil hvað varðar sam- ráð við aðila vinnumarkaðrins.“ Ingibjörg vænlegur kostur Þrátt fyrir gagnrýni Lúðvíks og annarra á ríkisstjórnarflokkanna fengu þeir umboð kjósenda til að halda samstarfinu áfram eftir kosningarnar 2003. Minntur á það svarar hann: „Það er rétt, og kannski segir það meira um okkur en þá. Kjósendum hefur kannski fundist stjórnarandstöðuflokk- arnir of tættir og sundurleitir og skorta festu. Fyrir vikið hafa þeir ekki treyst okkur. Það er ekki óeðlilegt að það taki tíma að skapa stjórnmálaflokki trúverðugleika. En ég held að nú sé stjórnarand- staðan að ná þeim stöðugleika sem þarf til að taka við völdum.“ Landsfundur Samfylkingarinn- ar er í farvatninu og barátta Ingi- bjargar Sólrúnar Gísladóttur og Össurar Skarphéðinssonar um formannsbættið í algleymingi. Lúðvík telur bæði ágæta kosti. „Össur hefur tryggt sinn sess, hann tók við flokknum og hefur leitt hann í gegnum uppvaxtarár- in. Hann hefur vaxið og fest sitt nafn á spjöld sögunnar. Ingibjörg aftur á móti braut á bak aftur veldi Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík og sigraði í þrennum kosningum. Aðferðafræðin í borg- inni hvað varðar umgengni við fólk, lýðræði og ákvarðanatöku er ólík því sem gerist hjá ríkisstjórn- inni. Ingibjörg á merkilega sögu, hún hefur farið vel með vald og sýnt að hún er góður stjórnandi.“ Ætlarðu að kjósa hana? „Hún er í það minnsta mjög vænlegur kost- ur,“ segir Lúðvík en vill ekki kveða fastar að orði. Og spurður hvort hann sjálfan langi til að verða varaformaður, eins og sumir hafa stungið upp á, svarar hann: „Ef flokkurinn vill fá mig til verka er ég tilbúinn til þess.“ Lúðvík telur málið ekki skýrast fyrr en á landsfundinum og segir vilja formannsins skipta miklu máli. Mikilvægast sé að forystan sé samstíga. Framsóknarmenn taugaveiklaðir Samfylkingin hefur lengi talað fyrir opnu bókhaldi stjórnmála- flokka og gegnsæi í fjármálum. Á dögunum upplýstu þingmenn Framsóknarflokksins um hluta- bréfaeign og annað og Vinstri grænir fylgdu í kjölfarið. Lúðvík lítur á útspil framsóknarmanna sem taugaveiklun. „Það er afar sérstakt í ljósi sögunnar ef Fram- sóknarflokkurinn er orðinn for- ystuafl um siðbót í íslenskum stjórnmálum. Hans hlutverk hefur verið að gæta hagsmuna; fyrst Sambandsins og svo annarra fyrirtækjablokka. Ég upplifi þetta útspil sem taugaveiklun, þeir finna ekki fjölina sína og varpa því út sprengjum spunameistar- anna til að hylja það sem máli skiptir.“ En er Framsóknarflokkurinn ekki einmitt að gera það sem Sam- fylkingin hefur talað um? „Við viljum að þingið setji lög um þessi efni því við óttumst að ef hver flokkur geri þetta fyrir sig verði þetta marklaust. Hver á að fylgja eftir siðareglum Framsóknar- flokksins? Ætlar þingflokksfor- maðurinn hverju sinni að lesa skattskýrslur þingmanna og fylgjast með hvort menn hafi keypt og selt hlutabréf? Við í Samfylkingunni settum okkur starfs- og siðareglur 1999 en eftirfylgni þeirra hefur fjarað út því það er enginn til að fylgja þeim eftir.“ Lög um eftirlaun þingmanna og ráðherra hafa líka verið til um- ræðu síðustu daga en um leið og Lúðvík gagnrýnir ákveðna þætti málsins segist hann sammála öðrum. „Það er óskaplega sorglegt að horfa á stjórnmálamenn, sem hafa verið í forystu fyrir ríkis- stjórnum, skríða út úr pólitíkinni í skjól hjá ríkisvaldinu til að þiggja bitlinga. Mér finnst til dæmis ekki að Davíð Oddsson eigi að þurfa að skríða á milli manna og biðja um vinnu. Menn sem hafa gegnt for- sætisráðherraembætti jafn lengi og hann eiga að geta hætt með reisn. Hins vegar er tvítaka launa frá ríkinu algjörlega fáránleg.“ Engar vítur í Skerjafirði Margt hefur breyst í lífi Lúðvíks Bergvinssonar síðan hann var kjörinn á þing fyrir tíu árum. Hann hefur eignast tvö börn með konu sinni Þóru Gunnarsdóttur, félagsfræðingi og starfsmanni Kvikmyndamiðstöðvar, og fyrir vikið er tilveran önnur. „Þetta er dásamlegt. En það þarf auðvitað að vakna klukkan sex á morgnana og sækja svo börnin á leikskóla klukkan fimm. Þetta getur verið púsluspil en við Þóra skipuleggj- um okkur vel. Svo hefur tengda- móðir mín verið óskaplega dugleg við að hjálpa okkur.“ Það má annars heita sérstakt að Þóra er komin af miklu sjálf- stæðisfólki. „Þetta gengur vel,“ svarar Lúðvík spurður um gang- inn í sambúðinni í þessu ljósi. Og þau hjónin tala um stjórnmál eins og annað á heimilinu sínu í Skerjafirðinum, án alvarlegs ágreinings. Og án þess að vítum sé beitt. ■ 14 1. maí 2005 SUNNUDAGUR Stökktu til Rimini 26. maí frá kr. 39.990 Heimsferðir bjóða ótrúlegt tilboð á síðustu sætunum til Rimini þann 26. maí. Þú bókar og tryggir þér sæti og 4 dögum fyrir brottför færðu að vita hvar þú gistir. Munið Mastercard ferðaávísunina Verð kr. 39.990 í viku Verð kr. 49.990 í 2 vikur Netverð á mann, m.v. 2, 3 eða 4 í stúdíó/íbúð í 1 eða 2 vikur - ath. enginn barnaafsláttur. Flug, skattar, gisting og íslensk fararstjórn. Stökktu tilboð 26. maí. Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • Akureyri sími 461 1099 • www.heimsferdir.is Síðustu sætin FJÖLSKYLDAN Í SKERJAFIRÐINUM Lúðvík með Jóhönnu Leu í fanginu og Þóra heldur á Bjarna Þór. LÚÐVÍK BERGVINSSON ALÞINGISMAÐUR Fæddur: 29. apríl 1964 Menntun: Lögfræðingur. Fyrri störf: Fulltrúi sýslumanns- ins í Vestmannaeyjum, deildar- stjóri hjá Rannsóknarlögreglu rík- isins og yfirlögfræðingur í um- hverfisráðuneytinu. Fjölskylda: Kvæntur Þóru Gunn- arsdóttur, félagsfræðingi og starfsmanni Kvikmyndamiðstöðv- ar, og á með henni Jóhönnu Leu sem er tveggja og hálfs árs og Bjarna Þór sem er níu mánaða. Áhugamál: Fjölskyldan, stjórn- mál, knattspyrna (lék með meist- araflokkum ÍBV, ÍA, Leifturs og ÍK), golf (er með 8 í forgjöf), skák (grípur stundum í hraðskák í tölvunni til að dreifa huganum) og lestur góðra bóka. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /S TE FÁ N Frá pilsnersfylgi til fullvaxta flokks Lúðvík Bergvinsson er reiðubúinn til að verða varaformaður Samfylkingarinnar ef eftir því verður leitað. Hann gefur lítið fyrir þingvítur Halldórs Blöndal og nýbirtar fjárhagsupplýsingar framsóknarmanna en telur að forystumenn í stjórnmálum til langs tíma eigi að geta hætt með reisn. Björn Þór Sigbjörnsson spjallaði við Lúðvík um pólitík og börn.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.