Fréttablaðið - 01.05.2005, Blaðsíða 17

Fréttablaðið - 01.05.2005, Blaðsíða 17
Tölvunám eldri borgara Faxafen 10 • 108 Reykjavík • Sími: 544 2210 • www.tsk.is • skoli@tsk.is Grunnur 30 kennslustunda byrjendanámskeið. Engin undirstaða nauðsynleg, hæg yfirferð með þolinmóðum kennurum. Aldurstakmark 60 ára og eldri. Á námskeiðinu er markmiðið að þátttakendur verði færir að nota tölvuna til að skrifa texta, setja hann snyrtilega upp og prenta, fara á internetið, taka á móti og senda tölvupóst. Þátttakendur læra að koma sér upp ókeypis tölvupóstfangi. Kennsla hefst 9. maí og lýkur 30. maí. Kennt er mánudaga og miðvikudaga kl 13 - 16. Verð kr. 19.500,- Vegleg kennslubók innifalin. Framhald I 30 kennslustunda námskeið, hentar þeim sem lokið hafa byrjendanámskeiðinu eða hafa sambærilega undirstöðu. • Upprifjun • Æfingar í Word ritvinnslu • Leit og vinnsla á internetinu og meðferð tölvupósts. • Excel kynning Kennsla hefst 10. maí og lýkur 31. maí. Kennt er þriðjudaga og fimmtudaga kl 13 - 16. Verð kr. 19.500,- Vegleg kennslubók innifalin. SUNNUDAGUR 1. maí 2005 Borgar Þór Heimisson er 34 ára gamall Húsvíkingur sem búið hefur í Kristjaníu undanfarin átta ár. Hann lætur vel af því að búa þarna en viðurkennir að morðið í síðustu viku og aðgerðir lögeglu í kjölfarið hafi fengið á íbúa fríríkisins. „Fólk er sjokkerað yfir þessu og óttaslegið, en samt kom þetta ekki beint á óvart því menn hafa átt von á einhverju sem þessu,“ segir hann. Þar á hann við að íbúar Kristjaníu hafi varað lögregluna við afleiðingum þess að loka versl- unum hasskaupmanna á Pusher Street. Og nú sé komið á daginn að verstu spár manna hafi ræst. Endalausar viðræður við stjórnvöld Borgar Þór segir íbúa Kristjaníu hins vegar ekki óttast það sérstak- lega að þessi átök glæpahópa sem blossað hafa upp stofni framtíð fríríkisins í hættu. Hann bendir á að meðan Kristjanía njóti almenns stuðn- ings meðal Dana verði erfitt fyr- ir yfirvöld að ganga hart fram í að knýja fram breytingar á bú- setu þeirra sem búa þarna. Við- ræður standi vissulega yfir við stjórnvöld um nauðsynlega upp- byggingu á svæðinu en þær gangi stirðlega og á meðan hafi stjórnvöld lagt blátt bann við öll- um framkvæmdum. „Fólk er orðið afar þreytt á þessum endalausu viðræðum við ríkisstjórnina og auðvitað hund- óánægt að vera bannað að vinna að uppbyggingu og endurbótum á húsunum sínum,“ segir Borgar Þór. Ekkert á förum frá Kristjaníu Eignafyrirkomulag fasteigna í Kristjaníu hefur verið þyrnir í augum stjórnvalda. Öll hús í hverfinu eru í sameign íbúanna og þeir borga síðan ákveðið af- notagjald sem stjórn hverfisins ákveður. Borgar Þór greiðir til dæmis um 1.200 danskar krónur á mánuði í afnotagjald af því húsnæði sem hann býr í og pen- ingarnir renna síðan í sameigin- legan sjóð sem sér um viðhald og greiðir borginni fyrir vatn og rafmagn. Borgar Þór segist ekkert á förum frá Kristjaníu þrátt fyrir þá óvissu sem ríkir í hverfinu þessa dagana. „Það getur vel verið að það verði einhverjar breytingar á Kristjaníu í fram- tíðinni og íbúarnir gera sér grein fyrir því að breytinga er þörf. Ég hef hins vegar enga trú á að þessu verði lokað. Kristjanía er einfaldlega orðin of stór hluti af danskri sögu til þess að það gerist,“ segir hann. - ssal BORGAR ÞÓR HEIMISSON OG TÍKIN MIRA Kann því vel að búa í Kristjaníu og hefur ekki trú á að fríríkinu verði lokað. Kristjaníu verður ekki lokað úr þessu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.