Fréttablaðið - 01.05.2005, Blaðsíða 70

Fréttablaðið - 01.05.2005, Blaðsíða 70
34 1. maí 2005 SUNNUDAGUR Sumar gjafir skipta öll börn máli! Gefum börnum góða sumargjöf Vefsíða nokkur hefur valið tíu áhugaverðustu staðina sem kepp- endur Amazing Race hafa heim- sótt í þeim sex seríum sem hafa verið sýndar og lenti Grindavík okkar Íslendinga í fjórða sæti. Á síðunni www.askmen.com er tekið fram að lesendur séu um fimm milljónir á mánuði og ættu niðurstöður valsins því að vera nokkuð haldbærar. Á síðunni segir meðal annars: „Ísland er einn áhugaverðasti og jafnframt vanmetnasti staður í heimi. Landslagið einkennist af eldfjöllum og hrauni þar sem hverir og jarðhitaböð eru ekki óalgeng sjón. Sá staður sem trekkir mest að í Grindavík og er vinsæll á meðal túrista er Bláa lónið, sem er náttúrulegt jarð- hitabað með læknandi öflum.“ Auk þessa er bent á ísklifur sem spennandi möguleika í Grinda- vík og er það sagt vera frægt meðal klettaklifrara um allan heim. Óskar Sævarsson er ferða- og markaðsmálafulltrúi Grindavík- ur auk þess að vera forstöðumað- ur Saltfisksetursins. Val síðunn- ar gleður hann að sjálfsögðu og segir hann þáttinn hafa verið frá- bæra kynningu fyrir Grindavík. „Ég merki þetta í talsverðum fjölda heimsókna á síðuna www.grindavik.is. Ætli það sé ekki bara hægt að tengja það beint við þetta. Fólk sér nafnið Grindavík í þessari grein á síð- unni og fer og flettir því upp á netinu og fær þá okkar síðu. Þetta er nú aldeilis skemmtilegt og sýnir hversu öflugur auglýs- ingamiðill internetið er,“ segir hann glaðlega. Bláa lónið er að sögn Óskars vinsælasti staður Grindavíkur eins og við má búast en þar á eftir kemur Saltfisksetrið. „Setrið er næststerkasti staðurinn á Suður- nesjunum samkvæmt könnun sem Rögnvaldur Guðmundsson gerði. Ekki má svo gleyma því að Bláa lónið er í Grindavík og við njótum góðs af þeirri kynningu. Það er augljóst að Amazing Race hefur gert okkur Grindvíkingum gott og megum við vera þakklát fyrir þessa góðu kynningu.“ hilda@frettabladid.is Fjórði mest spennandi staður í heimi BLÁA LÓNIÐ Þeir staðir sem höfðu betur en Grindavík í valinu eru Manyara-vatn í Tanz- aniu sem lenti í þriðja sæti, bærinn Alleppey í Indlandi varð í öðru sæti og fyrsta sætið hreppti Rio de Janeiro í Brasilíu. Hlynur Áskelsson, betur þekktur undir nafninu Ceres 4, gaf út geisladiskinn Í uppnámi fyrir fjórum árum. Þar er meðal ann- ars lagið „Stoke er djók“, þar sem Ceres spáir fyrir um enda- lok Stoke-ævintýrsins með þeim orðum að betra hefði verið að kaupa sér pylsu og kók en hluta- bréf í Stoke. Þessi spádómur hef- ur ræst að mestu leyti. Íslensku fjárfestarnir vilja selja hlut sinn í félaginu og sagði Magnús Krist- insson, stjórnarformaður Stoke, að þetta væri versta fjárfesting sem hann hefði farið í á síðustu tíu árum. „Ég er með spádómsgáfu en tala þó ekki við hina framliðnu, læt aðra um það,“ segir Hlynur. „Fjárfestarnir hefðu betur átt að tala við mig,“ heldur hann áfram og segist strax hafa séð að fjár- festingin væri ekki skynsöm. „Stundum er einfaldlega betur heima setið en af stað farið,“ segir Ceres. „Þeir fengu Guðjón Þórðarson, sem hafði gert góða hluti hér heima, en það þýðir ekkert að fá þjálfara af litlu landi til þess að gera einhverja hluti í stórri deild,“ segir Ceres og minnist þess að hann hafi les- ið grein um að Guðjón hafi þótt framarlega í mjólkursýrupróf- um en slík próf noti enginn í dag. „Kannski var þetta eitthvert mikilmennskubrjálæði eftir jafnteflið gegn Frökkum á Laugardalsvellinum 1998,“ segir hann og hlær. „Annars óska ég þeim alls hins besta og vona að þeir geti nýtt eitthvað af þessari reynslu í framtíðinni.“ Sjálfur er Ceres köttari, sem er heiti yfir stuðningsmenn Þróttar. „Því miður falla öll liðin sem ég held með niður um deild, en ég vona að slíkt verði ekki raunin í sumar,“ segir Ceres, en Þróttarar spila í úrvalsdeildinni í sumar eftir að hafa unnið sér þar sæti á síðasta ári. „Þegar ég vel mér uppáhaldslið er það ekki ár- angurinn sem skiptir máli heldur baráttan,“ segir Ceres en af er- lendum liðum hefur hann haldið með Wimbledon, þegar Vinnie Jones var upp á sitt besta, Watford og Hansa Rostock, sem nú er í fallsæti. „Ég hefði kannski bara átt að halda með Stoke,“ segir hann og hlær. Stoke-lagið er þó ekki eini spádómurinn sem ræst hefur ný- lega. Innistæðulaus er heiti á lagi þar sem Ceres spáir því að veldi flottu strákanna á glæsikerrun- um í þakíbúðunum muni hrynja og þeim verði stungið inn. „Þetta vissi ég allan tímann,“ segir Ceres og forvitnilegt verður að sjá hverju hann spáir næst. freyrgigja@frettabladid.is FRÉTTIR AF FÓLKI HIN HLIÐIN HIN HLIÐIN Á GUÐMUNDI KARLSSYNI, ÞJÁLFARA ÍSLANDSMEISTARA HAUKA Í KVENNAHANDBOLTA. Hvernig ertu núna? Ég er bara sáttur. Augnlitur: Græn augu með brúnum blett. Starf: Fasteignasali. Stjörnumerki: Steingeit. Hjúskaparstaða: Giftur með fjögur börn. Hvaðan ertu? Frá Hafnarfirði. Helsta afrek: Börnin mín. Helstu veikleikar: Fljótfærni. Helstu kostir: Heiðarleiki. Uppáhaldssjónvarpsþáttur: Sopranos. Uppáhaldsútvarpsþáttur: Síðdegisútvarpið á Bylgjunni. Uppáhaldsmatur: Nautalundir með bernaise-sósu. Uppáhaldsveitingastaður: Ítalía. Uppáhaldsborg: Köln. Mestu vonbrigði lífsins: Að hafa ekki fengið að halda áfram þjálfun karlaliðs Hauka eftir að ég gerði þá að Ís- landsmeisturum árið 2000. Áhugamál: Íþróttir, þar á meðal golf. Viltu vinna milljón? Já. Jeppi eða sportbíll? Jeppi. Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú yrðir stór? Skip- stjóri. Hver er fyndnastur/fyndnust? Siggi T. Hver er kynþokkafyllst(ur)? Angelina Jolie. Trúir þú á drauga? Nei. Hvaða dýr vildirðu helst vera? Steingeit. Hvaða dýr vildirðu ekki vera? Rotta. Áttu gæludýr? Nei. Besta kvikmynd í heimi: Gaukshreiðrið. Besta bók í heimi: Ég lifi. Næst á dagskrá: Golfferð til Flórída. 5.1.1960 Fljótfær en heiðarlegur ...fær Eiður Smári Guðjohnsen fyrir að styrkja Neistann, styrkt- arfélag hjartveikra barna, með því að gefa treyjuna sem hann klæddist í úrslitaleik ensku deildabikarkeppninnar fyrir skömmu. HRÓSIÐ Svanhildur Hólm Valsdóttirheimsótti sjónvarpsdrottninguna Opruh Winfrey á dögunum, eins og frægt er orðið. Spjalli Opruh og Svanhildar var sjónvarpað í Banda- ríkjunum á mánudaginn en þar kynnti Svanhildur Ameríkönum ís- lenska þjóðarrétti á borð við hrútspunga og brennivín. Það þarf ekki að fjölyrða um landkynningar- gildi heimsóknar Svanhildar en á heimasíðu Opruh er hamrað á því að kynlífið á Íslandi sé villt og að þar éti konur súkkulaði í tonnavís án þess að fitna. Ef þetta er ekki nóg til þess að kveikja áhuga á Ís- landsheimsóknum trompa Oprah og Svanhildur með því að vekja at- hygli á lostætinu úldnum hákarli og hrútspungum sem þykja ekki síður ljúffengir. Þá er ítrekað að landið er frægt fyrir fegurð þarlendra kvenna, líkamsrækt- aræði og að þar sofi ungbörn úti í kuld- anum. Svanhildur mætti til leiks með hákarl og punga frá Baut- anum á Akureyri og færir Oprah staðnum sem hún kallar „The Bull“ sérstakar þakkir fyrir liðlegheitin. Ekki ónýt aug- lýsing það. Enn ríkir óvissa um hvenær viðtal Opruh við Svanhildi verður sýnt í ís- lensku sjónvarpi en þeir sem geta ekki beðið geta pantað þáttinn á myndbandi eða útprent af handrit- inu á vefnum www.oprah.com. SJÓNVARPSDAGSKRÁ VIKUNNAR » CERES 4 Spádóma Ceresar er hægt að nálgast á heima- síðunni ceres4.com. HLYNUR ÁSKELSSON: SPÁÐI FYRIR UM STOKE CITY Forspár Ceres 4
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.