Fréttablaðið - 01.05.2005, Blaðsíða 72

Fréttablaðið - 01.05.2005, Blaðsíða 72
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is VI Ð S EG J U M F R É T T I R FJÖLDI ANNARRA HELGARTILBOÐA ÞESSA HELGI OG NÆSTU HELGAR SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 550 5000 Fussum svei Hæstiréttur Íslands hefur stað-fest dóm Héraðsdóms Reykja- ness yfir manni sem hafði lagt hend- ur á eiginkonu sína. Maðurinn hlýtur þriggja mánaða dóm, skilorðsbund- inn í þrjú ár. Já, skilorðsbundinn dóm fyrir árás á eiginkonu, gróft heimilisofbeldi. Dómstólarnir segja fussum svei, ekki má, við manninn en aðhafast ekki frekar. HVER má eiginlega berja hvern og hvers vegna? Ljóst er að ekki er ætl- ast til að ráðist sé á lækni úr laun- sátri fyrir það eitt að vinna vinnuna sína. Það sást á gæsluvarðhaldsúr- skurði sem kveðinn var upp á dögun- um, og vissulega er ágætt að þetta at- riði liggi fyrir. Hins vegar er það allt annað að berja maka sinn, nú eða fyrrverandi maka ef út í það er farið, en að berja sér óvenslað fólk. Það er augljóst á þeirri meðferð sem slík mál fá í íslensku réttarkerfi. DÓMURUM í Héraðsdómi Reykja- ness þótti eðlilegt að taka tillit til þess að blessaður fyrrnefndur maður hefði veist að konunni sinni í mikilli bræði, bræði sem „gögn hnigu að“ að konan hefði sjálf valdið, já, sjálf valdið. Hæstiréttur Íslands skrifar reyndar ekki undir þessi rök en breytir samt ekki refsingunni, og við fáum ekki einu sinni sérálit nema frá einum dómara sem taldi sanngjarnt að stytta skilorðsbundna dóminn, meðal annars vegna þess að birst hafði mynd í blaði af þessum óheppna manni sem eiginkona hafði reitt til reiði. HVENÆR má þá gera kröfu um að hver og einn axli ábyrgð á gjörðum sínum og í hvaða tilvikum bera þeir sem barðir eru að minnsta kosti hluta ábyrgðarinnar vegna þess að þeir hafa reitt þann sem ber til reiði? Einhvern veginn hef ég alltaf staðið í þeirri meiningu að hver og einn beri ábyrgð á sínum gjörðum, óháð því hvaða ytra áreiti hann verður fyrir. En þetta er kannski bara misskilningur. Eða hvernig er nú aftur samspilið milli nauðgunar og „eggjandi“ klæðnaðar? Ber ekki fórnarlamb nauðgunar að hluta ábyrgð ef það hefur ekki hulið hné sín og bringu vel? Á 21. ÖLDINNI er það staðfest á tveimur dómsstigum í réttarríkinu Íslandi að konur séu nánast rétt- barðar ef þær hafa egnt menn sína til reiði. Nægilegt sé að dæma fuss- um svei fyrir slíkt brot. BAKÞANKAR STEINUNNAR STEFÁNSDÓTTUR Kappsamir starfsmenn Icelandair klippi› hér Fer›afljónusta Iceland Express, Su›urlandsbraut 24, Sími 5 500 600 www.icelandexpress.is Veldu ód‡rustu bílaleigubílana ód‡rustu gistinguna ód‡rasta flugi› N‡ttu flér vef Icelandexpress.is til a› finna hagstæ›ustu fer›amöguleikana í sumar. fiar finnur›u til dæmis frábær tilbo› á flugi, bílaleigubílum og gistingu ví›s vegar um Evrópu. Taktu flér mús í hönd og bóka›u sumarfríi› flitt á ód‡ran og au›veldan hátt á icelandexpress.is. fiÚ ERT A‹EINS ÖRFÁUM MÚSARSMELLUM FRÁ ÓD†RASTA SUMARFRÍINU! TILBO‹ Á BÍLALEIGUBÍLUM FÓLKSBÍLAR LÚXUSBÍLAR 2.737 kr. 4.510 kr. 19.159 kr. 31.570 kr. DAGSVER‹ VIKUVER‹ Barnaver›: Ver› frá: 5.995 kr. 7.995 kr.* * *A›ra lei› me› sköttum.Börn flurfa a› vera í fylgd me› fullor›num.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.