Fréttablaðið - 01.05.2005, Side 72
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R
FJÖLDI ANNARRA HELGARTILBOÐA ÞESSA HELGI OG NÆSTU HELGAR
SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 550 5000
Fussum svei
Hæstiréttur Íslands hefur stað-fest dóm Héraðsdóms Reykja-
ness yfir manni sem hafði lagt hend-
ur á eiginkonu sína. Maðurinn hlýtur
þriggja mánaða dóm, skilorðsbund-
inn í þrjú ár. Já, skilorðsbundinn
dóm fyrir árás á eiginkonu, gróft
heimilisofbeldi. Dómstólarnir segja
fussum svei, ekki má, við manninn
en aðhafast ekki frekar.
HVER má eiginlega berja hvern og
hvers vegna? Ljóst er að ekki er ætl-
ast til að ráðist sé á lækni úr laun-
sátri fyrir það eitt að vinna vinnuna
sína. Það sást á gæsluvarðhaldsúr-
skurði sem kveðinn var upp á dögun-
um, og vissulega er ágætt að þetta at-
riði liggi fyrir. Hins vegar er það allt
annað að berja maka sinn, nú eða
fyrrverandi maka ef út í það er farið,
en að berja sér óvenslað fólk. Það er
augljóst á þeirri meðferð sem slík
mál fá í íslensku réttarkerfi.
DÓMURUM í Héraðsdómi Reykja-
ness þótti eðlilegt að taka tillit til
þess að blessaður fyrrnefndur maður
hefði veist að konunni sinni í mikilli
bræði, bræði sem „gögn hnigu að“ að
konan hefði sjálf valdið, já, sjálf
valdið. Hæstiréttur Íslands skrifar
reyndar ekki undir þessi rök en
breytir samt ekki refsingunni, og við
fáum ekki einu sinni sérálit nema frá
einum dómara sem taldi sanngjarnt
að stytta skilorðsbundna dóminn,
meðal annars vegna þess að birst
hafði mynd í blaði af þessum óheppna
manni sem eiginkona hafði reitt til
reiði.
HVENÆR má þá gera kröfu um að
hver og einn axli ábyrgð á gjörðum
sínum og í hvaða tilvikum bera þeir
sem barðir eru að minnsta kosti
hluta ábyrgðarinnar vegna þess að
þeir hafa reitt þann sem ber til
reiði? Einhvern veginn hef ég alltaf
staðið í þeirri meiningu að hver og
einn beri ábyrgð á sínum gjörðum,
óháð því hvaða ytra áreiti hann
verður fyrir. En þetta er kannski
bara misskilningur. Eða hvernig er
nú aftur samspilið milli nauðgunar
og „eggjandi“ klæðnaðar? Ber ekki
fórnarlamb nauðgunar að hluta
ábyrgð ef það hefur ekki hulið hné
sín og bringu vel?
Á 21. ÖLDINNI er það staðfest á
tveimur dómsstigum í réttarríkinu
Íslandi að konur séu nánast rétt-
barðar ef þær hafa egnt menn sína
til reiði. Nægilegt sé að dæma fuss-
um svei fyrir slíkt brot.
BAKÞANKAR
STEINUNNAR
STEFÁNSDÓTTUR
Kappsamir starfsmenn Icelandair klippi› hér
Fer›afljónusta Iceland Express, Su›urlandsbraut 24, Sími 5 500 600
www.icelandexpress.is
Veldu
ód‡rustu bílaleigubílana
ód‡rustu gistinguna
ód‡rasta flugi›
N‡ttu flér vef Icelandexpress.is til a› finna hagstæ›ustu fer›amöguleikana í sumar. fiar finnur›u til dæmis
frábær tilbo› á flugi, bílaleigubílum og gistingu ví›s vegar um Evrópu. Taktu flér mús í hönd og bóka›u
sumarfríi› flitt á ód‡ran og au›veldan hátt á icelandexpress.is.
fiÚ ERT A‹EINS ÖRFÁUM MÚSARSMELLUM
FRÁ ÓD†RASTA SUMARFRÍINU!
TILBO‹ Á BÍLALEIGUBÍLUM
FÓLKSBÍLAR
LÚXUSBÍLAR
2.737 kr.
4.510 kr.
19.159 kr.
31.570 kr.
DAGSVER‹ VIKUVER‹
Barnaver›:
Ver› frá:
5.995 kr.
7.995 kr.*
* *A›ra lei› me› sköttum.Börn flurfa a› vera í fylgd
me› fullor›num.