Fréttablaðið - 01.05.2005, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 01.05.2005, Blaðsíða 16
D anska fríríkið Kristjanía ímiðborg Kaupmannahafn-ar er komið í sviðsljósið enn eina ferðina eftir að ungur maður var skotinn til bana í aðal- götu hverfisins í síðustu viku. Árásin var óvenju hrottafeng- in, en grímuklæddir menn skutu þar á hóp fólks, meðal annars með vélbyssu. Auk mannsins sem beið bana særðust þrír aðrir. Danska lögreglan telur líklegt að málið tengist uppgjöri milli hópa glæpa- manna en þó er ekki talið að fólk- ið sem skotið var á hafi átt per- sónulega sökótt við byssumenn- ina, heldur hafi þeir skotið á það af handahófi. Deilur glæpahópanna tengjast að öllum líkindum átökum vegna sölu eiturlyfja og þá aðallega á hassi en Kristjanía hefur um lang- an aldur verið miðstöð hassversl- unar í Skandinavíu. Eftir að sala á hassi fyrir opnum tjöldum á Pusher Street í Kristjaníu var bönnuð í fyrra blossuðu upp hat- römm átök milli glæpagengja um yfirráð yfir hasssölu í Kaup- mannahöfn. Einn maður hefur verið hand- tekinn vegna árásarinnar en hann er af íröskum uppruna og tilheyr- ir einu glæpagenginu. Hann er aukinheldur eigandi annars tveggja bíla sem byssumennirnir flúðu burtu í af vettvangi. Ýmsir spá því að þessi morð- árás sé upphafið að endalokum Kristjaníu en deilur hafa staðið um tilveru fríríkisins allt frá til- urð þess fyrir 34 árum. Og reynd- ar hefur endalokum þess verið margspáð gegnum tíðina. Ein milljón ferðamanna árlega Upphafið að Kristjaníu má rekja aftur til síðari hluta sjöunda ára- tugar síðustu aldar. Þá fóru íbúar Kristjánshafnar, en svo heitir hverfið sem Kristjanía er í, að ásælast svæði í hverfinu sem danski sjóherinn hafði yfirráð yfir. Vildi fólkið fá að nýta það sem útivistar- og leiksvæði fyrir sig og börn sín. Svæðið samanstóð af misgöml- um húsum og náði alls yfir 34 hektara. Húsin stóðu að mestu auð og þegar borgaryfirvöld sinntu í engu óskum íbúanna fór fólk að setjast að í húsunum í leyfisleysi og banni. Yfirvöld létu þetta óáreitt til að byrja með en þegar æ fleiri fóru að gera sig heima- komna í hverfinu var ákveðið að hrekja fólkið á brott. Þessi áform mættu hins vegar mikilli andstöðu, ekki aðeins meðal íbúa Kristjánshafnar, held- ur líka þorra íbúa Kaupmanna- hafnar, en á þessum tíma gekk mikil frjálsræðisbylgja yfir Vesturlönd í kjölfar stúdentaupp- reisnanna í París, Berlín og víðar sumarið 1968. Dönsk yfirvöld sáu að lokum sitt óvænna og haustið 1971 hafði sjóherinn sig á brott með allt sitt hafurtask frá Kristjaníu. Er litið á 26. september 1971 sem formleg- an stofndag fríríkisins Kristjaníu. Það hefur alla tíð verið umdeilt og þurft að berjast fyrir tilveru sinni, en um leið verið vinsæll ferðamannastaður, líklega sá vin- sælasti fyrir utan Tívolí. Áætlað er að um ein milljón ferðamanna heimsæki Kristjaníu árlega en íbúar eru um eitt þúsund manns. Hassverslunin eilíft deiluefni Einn af fylgifiskum frelsisbylgju hippaáranna kringum 1970 var frjálslegt viðhorf til neyslu á kannabisefnum. Dönsk stjórnvöld á þessum tíma voru afar umburð- arlynd í þessum efnum og því varð Kristjanía fljótlega miðstöð hassverslunar í Kaupmannahöfn og jafnvel allri Skandinavíu. Brátt urðu þessi viðskipti þó mikill þyrnir í augum danskra yfirvalda og hafa verið það alla tíð síðan og um leið einn helsti ásteytingarsteinn íbúa fríríkisins og borgaryfirvalda í Kaupmanna- höfn. Deilur um þessa verslun hafa líka verið tilefni innbyrðisátaka meðal íbúa Kristjaníu hvað eftir annað og af síðustu fréttum að dæma virðist ekkert lát þar á. Lögreglan í Kaupmannahöfn hefur hvað eftir annað látið til skarar skríða gegn eiturlyfjasölu í Kristjaníu en án verulegs árang- urs. Þegar við blasti að ríkisstjórn borgaraflokkanna í Danmörku sem tók við eftir kosningarnar 2001 myndi gera alvöru úr því að rýma Kristjaníu ef ekki yrði tekið á þessum vanda sáu sölumenn- irnir sitt óvænna og fjarlægðu hassverslanir sínar af Pusher Street. Sú aðgerð hefur þó fjarri orðið til þess að útrýma þessari verslun úr Kristjaníu. Hún hefur þess í stað horfið undir yfirborð jarðar og í kjölfarið leitt af sér þau átök glæpahópa sem nú ógna tilveru Kristjaníu. Lögreglan hefur brugðist af hörku við þessu og má segja að umsátursástand hafi ríkt í Kristj- aníu undanfarna daga. Lögreglan hefur haft þar mikinn viðbúnað og handtekið fjölda fólks fyrir að hafa hass í fórum sínum og ýmis önnur smáafbrot. Hafa tugir þurft að gista fangageymslur lögregl- unnar vegna þessa. Óveðursskýin hrannast upp En það eru ekki bara átök glæpa- hópa sem skapa óvissu um fram- tíð Kristjaníu. Stjórnvöld vilja koma skikki á húsnæðismál í hverfinu, rífa gömul og úr sér gengin hús og byggja ný í stað- inn. Þessu eru íbúar Kristjaníu ekki mótfallnir en deilur standa hins vegar um eignarfyrirkomu- lag. Heimamenn, sem eru sam- eignarfólk að upplagi, vilja hafa þann háttinn á áfram en stjórn- völd vilja að hús og íbúðir verði í eigu einstaklinga eins og gengur og gerist annars staðar í Dan- mörku. Og þau vilja enn fremur að íbúar Kristjaníu leggi fram kröfur um eignarhluta sína í öðrum húsum í hverfinu, og hafa gefið þeim frest til 1. júlí að skila þeim inn. Þessu hafna íbúarnir með öllu og er við búið að dóm- stólar verði að skera úr um þetta. Mikilvægasti þátturinn í að Kristjanía fái að lifa er þó fólginn í stuðningi almennings við frírík- ið, sem hefur verið mikill alla tíð. Vaxandi ofbeldi og glæpastarf- semi í Kristjaníu mun þó án efa grafa undan þessum stuðningi og létta þar með róðurinn fyrir þá sem vilja koma Kristjaníu fyrir kattarnef. ■ 16 1. maí 2005 SUNNUDAGUR Ofbeldi ógnar framtíð Kristjaníu PUSHER STREET Í KRISTJANÍU Það var á þessum slóðum í Kristjaníu sem ungur maður var skotinn til bana í síðustu viku. Lögreglan hefur haft mikinn viðbúnað á svæðinu síðan. Skotárás og morð á götu úti í Kristjaníu stefnir framtíð þessa 34 ára gamla fríríkis í miðborg Kaupmannahafnar í voða. Lögregla handtekur fólk í stórum stíl fyrir kannabisnotkun. Yfirvöld vilja uppbyggingu hverfisins og breytingar á eignarfyrir- komulagi fasteigna. Sigurður Þór Salvarsson kynnti sér sögu Kristjaníu og framtíðarhorfur fríríkisins.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.