Fréttablaðið - 01.05.2005, Blaðsíða 19

Fréttablaðið - 01.05.2005, Blaðsíða 19
MÓTTAKA OG SALA Í VERSLUN Við leitum að dugmiklum einstaklingi til móttöku og afgreiðslu í verslun okkar. Óskað er eftir að viðkomandi búi yfir hæfileikum til að kynna og selja sérhæfðar vörur og hafi góða tungumálakunnáttu og þjónustulund. Starfssvið • Móttaka, símvarsla og afgreiðsla. • Kynning og sala í verslun. • Erlend samskipti og önnur tilfallandi verkefni. Eiginleikar, menntunar- og hæfniskröfur • Stúdentspróf. • Framúrskarandi hæfileikar til sölu- og afgreiðslustarfa. • Gott vald á íslensku og ensku, og jafnvel dönsku eða þýsku. • Jákvætt viðmót og öguð vinnubrögð. • Reykir ekki. Nánari upplýsingar eru veittar á vefsetri Eirbergs, www.eirberg.is, þaðan sem senda má umsókn og stutta ferilskrá. Umsóknarfrestur er til 10. maí. Eirberg ehf. er innflutnings- og þjónustufyrirtæki. Fyrirtækið hefur á að skipa fagmenntuðu starfsfólki sem leggur metnað sinn í að veita sjúkrahúsum, heilbrigðisstofnunum, fagfólki og einstaklingum faglega ráðgjöf og persónulega þjónustu. Í verslun Eirbergs að Stórhöfða 25 eru seldar vandaðar heilbrigðisvörur, hjúkrunar- og dagrekstrarvörur, hjúkrunar- og heilsurúm, vinnuhollustuvörur, hjálpartæki og vörur sem auðvelda fólki daglegt líf. Í versluninni eru einnig leigðir út hjólastólar og göngugrindur og veitt ráðgjöf varðandi notkun hjálpartækja. Eirberg leggur áherslu á að hver starfsmaður fái að njóta sín í starfi og hafi svigrúm til að ná settum markmiðum í góðum hópi. Stefna fyrirtækisins er að hafa traust starfsfólk sem nái framúrskarandi árangri og sýni viðskiptavinum virðingu og trúnað. Viltu leggja okkur lið? Eirberg Eirberg ehf. • Stórhöfða 25 • 110 Reykjavík • Sími 569 3100 • Fax 569 3101 • eirberg@eirberg.is • www.eirberg.is Þjónustumenn í Garðabæ. Kælismiðjan FROST ehf. óskar eftir að ráða þjónustu- menn til bæði framtíðarstarfa og sumarafleysinga. Æskilegt er að umsækjendur: - hafi reynslu af vinnu við kælikerfi, - 2.-3. stig vélstjórnar eða vélfræðimenntun, - séu reglusamir, - hafi góða þjónustulund, - geti unnið sjálfstætt. Starf þjónustumanna er mjög fjölbreytt og felst m.a. í uppsetningu nýrra kælikerfa og breytingum ásamt við- bótum á eldri kerfum, reglubundinni þjónustu, fjar- gæslu, og upptektum á kerfishlutum. Kælismiðjan FROST ehf. rekur tvær starfsstöðvar; höfuðstöðvar á Akureyri og útibú í Garðabæ. Áhugasamir sendi upplýsingar um menntun, starfs- reynslu og fjölskylduhagi til: Kælismiðjan FROST ehf. Fjölnisgötu 4B 603 Akureyri bt. Framkvæmdastjóra eða á tölvupósti á frost@frost.is merkt “Starfsumsókn” eða hafi samband í síma 461-1700 / 894-4721. Kælismiðjan Frost ehf. frost@frost.is * www.frost.is Hún þjónar til borðs á ítalska veitingastaðnum La Vita e’Bella langt fram á kvöld og er svo mætt til sama starfs á Bautanum morguninn eftir. Stúlkan heitir Lilja Sigurðardóttir og býr á Akureyri. „Ég er aðallega að vinna á La Vita e’Bella. Byrja þar klukkan 17 og er fram til 23-24 en svo tek ég oft vaktir á Bautanum líka þegar þarf,“ segir Lilja og brosir fallega. Þessir tveir staðir eru í sama húsi í miðbæ Akur- eyrar eins og margir kannast við og í hönd- um sömu eigenda. Lilja kveðst vera ekta Akureyringur. Hún lauk stúdentsprófi fyrir jólin og stefn- ir á frekara nám en fékk sér vinnu í veit- ingageiranum um sinn og kveðst afar ánægð. „Þetta hentar mér mjög vel. Mér finnst frábært að vinna svona á kvöldin og eiga oft frí fram eftir dögum. Þá getur maður notað tímann til að spóka sig í sólinni hér á Akureyri,“ segir hún glettnislega. Bendir á að ekki þurfi hún að missa af skemmtanalífinu heldur því það byrji hvort sem er ekki fyrr en eftir miðnætti. „Svo er þetta bara rosalega skemmtilegt starf,“ bætir hún við. „Maður kynnist mörgum því hingað kemur auðvitað fjöldi fólks. Það er líka dásamlegt að sjá hverju góður matur fær áorkað. Fólk kemur kannski inn alvar- legt í bragði og þreytt og svo þegar er það byrjað að borða gerbreytist yfirbragðið. Þess vegna fylgir þessu starfi svo mikil gleði. Ég gæti vel hugsað mér að læra til þjóns í framtíðinni.“ gun@frettabladid.is Góður matur fyllir fólk gleði atvinna@frettabladid.is Nýr kjarasamningur starfs- manna hjá Flugstöð Leifs Eiríks- sonar, sem greidd hafa verið atkvæði um síðustu daga, hefur verið samþykktur af félagsmönnum SFR. Þátttaka í at- kvæðagreiðslunni var um 87% en alls greiddu 100 atkvæði um samn- inginn af 115 sem voru á kjörskrá. Já sögðu 60 en nei sögðu 40. Fyrri samningur var felldur í atkvæða- greiðslu starfs- manna í mars síð- astliðnum og var þá gengið til við- ræðna að nýju, sem leiddu til breytinga á samningnum sem nú hafa verið samþykktar. Þetta kemur fram á vefnum sfr.is. Einn réttur - ekkert svindl er yfirskrift 1. maí í ár og vísar það til átaks verkalýðshreyfingarinn- ar gegn undirboðum á vinnu- markaði og svartri atvinnustarf- semi með erlendu verkafólki. Þessu átaki verður hleypt af stokkunum 2. maí. Haldið verður upp á alþjóðlegan bar- áttudag verkafólks í dag, 1. maí, með hefðbundnum hætti og mun VR samkvæmt venju bjóða félagsmönn- um sínum í kaffi og meðlæti á Broad- way að útifundi loknum. Félagsmálaráðherra, Árni Magnússon, flutti ræðu um fjöl- skyldustefnu á Ís- landi og lögin um fæðingarorlof á ráð- stefnu í Berlín á dögunum. Á fund- inum vöktu ís- lensku fæðingaror- lofslögin sérstaka athygli, hið háa hlutfall karla sem tekur fæðingarorlof og öflug þátttaka kvenna í at- vinnulífinu, sem er ein sú hæsta í Evrópu (80%). Í Þýska- landi er atvinnuþátttaka kvenna lág (65%), aðgangur að barna- gæslu er mjög takmarkaður og karlar taka fæðingarorlof í litl- um mæli. Lilju finnst gaman að þjóna til borðs og gæti vel hugsað sér að gera það að framtíðarstarfi. LIGGUR Í LOFTINU í atvinnu MEST LESNA ATVINNUBLAÐ LANDSINSER ÞÍN ATVINNUAUGLÝSING HÉR? Góðar atvinnhorfur BLS. 2 Atvinnuleysi í Frakklandi BLS. 2 Baráttudagur verkalýðsins BLS. 2 Saumnálar og skurðgröfur BLS. 8 SMÁAUGLÝSINGAR byrja í dag á bls. 22 FLOKKAR & FJÖLDI Bílar & farartæki Keypt & selt Þjónusta Heilsa Skólar & námskeið Heimilið Tómstundir & ferðir Húsnæði Atvinna Tilkynningar Góðan dag! Í dag er sunnudagur 1. maí, 121. dagur ársins 2005. REYKJAVÍK 4.59 13.25 21.52 AKUREYRI 4.32 13.09 21.50 Heimild: Almanak Háskólans Sólarupprás Hádegi Sólarlag STÖRF Í BOÐI Framkvæmdastjóri Grunnskólakennari Járnsmiður/málmiðnaðar- maður Geislafræðingur Starfsfólk í uppvask Herbergisþernur Starfsfólk í ræstingar Markaðsstjóri Aðstoðamaður Kennarar Móttaka Kerfisfræðingur Sala í verslun Sjúkraliðar Hjúkrunarnemar ÞÚ GETUR PANTAÐ SMÁAUGLÝSINGUNA Á visir.is HÚN BIRTIST Í FRÉTTABLAÐINU OG VÍSI AÐEINS 995 KRÓNUR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000 OG Á visir.is FR ÉT TA B LA Ð IÐ /G U N . Nýjar siðareglur fyrir starfsmenn fara illa í Þjóð- verjana og fyrirtækið lendir ítrekað upp á kant við stéttarfélag verslunarmanna þar í landi. Í aprílhefti Business Week er umfjöllun um stöðu fyrirtækisins í Þýskalandi og tínd til nokkur atriði sem vekja óánægju starfsmanna. Eitt þeirra er bann gegn ástarsambönd- um yfir- og undirmanna sem þýsku starfsmennirnir túlka sem hömlur á eðlilega skrifstofurómantík. Í reglum Wal-Mart eru starfsmenn einnig hvatt- ir til að tilkynna yfirmönnum um óæskilega hegðan samstarfsmanna en Þjóðverjum finnst slík klöguskjóðuhegðan heldur aumleg. Wal-Mart er stærsta verslanakeðja heims með ársveltu upp á 285 milljarða dollara, rúmlega 17.100 milljarða íslenskra króna, en fyrirtækið er þekkt fyrir að ganga á rétt starfsmanna sinna um allan heim. Engan skrifstofurómans, takk! BANDARÍSKA VERSLANAKEÐJAN WAL-MART Á ERFITT MEÐ AÐ FÓTA SIG Í ÞÝSKALANDI.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.