Fréttablaðið - 01.05.2005, Blaðsíða 18
18 1. maí 2005 SUNNUDAGUR
18 14 2 8 11 3 10 2 19 21 25 14
28 15 23 8 19 14 31 27
2 25 22 22 8 14 19 20 29 20 13 31 25 14
19 19 14 1 21 4 2 25 29
24 3 13 13 8 10 8 14 19 14 4 8
24 24 14 30 13 8 8 20
8 25 21 13 8 24 25 14 14 8 29 20
29 25 24 17 4 4 20 13 8 25 13
20 29 14 8 24 4 13 25 14 29 20 13
10 2 8 2 2 24 13 26
6 15 10 8 8 25 29 20 10 25 22 20
32 8 18 13 13 7 10 24 29
2 8 5 8 31 19 13 31 9 12 8 23 2 20
8 8 17 20 16 7 32 14
21 14 32 4 8 29 20 14 14 16 14 20
A
Á
B
Ð
D
E
É
F
G
H
I
Í
J
K
L
M
N
O
Ó
P
R
S
T
U
Ú
V
X
Y
Ý
Þ
Æ
Ö
Dregið verður næstkomandi fimmtudag kl. 12.
SMS-skeytið kostar 99 krónur.
VERÐLAUNAKROSSGÁTAN
NR. 5
Í sunnudagskrossgátu Fréttablaðsins eru gefnir
5 bókstafir sem á að færa inn í númeraða reiti.
Í dag er U til dæmis í reit merktum 25 og fer
þá U í alla aðra reiti með því númeri. R er í reit
númer 14 og fer í alla aðra reiti gátunnar núm-
er 14 o.s.frv. Til þess að leysa gátuna þarf að
finna út hvaða bókstafir eiga að standa í auðu
reitunum (bókstafirnir c, z, q og w eru ekki not-
aðir). Þegar því verkefni er lokið er hægt að
finna lausnarorð gátunnar, sem er í þetta sinn
karlmannsnafn sett saman úr stöfum reita
númer 11-8-10-6-3-14 (í þessari röð).*
Lausnarorðið er hægt að senda inn með SMS-skeyti í núm-
erið 1900. Dæmi um það hvernig SMS gæti litið út ef lausn-
arorðið væri Jón: þá sendir þú SMS sem segir:
JA LAUSN JON í númerið 1900.
3 14610811
Lausnarorð
*Ráðning gátunnar birtist í blaðinu eftir tvær vikur.
Lausn nr. 3 Þ A R I S Ý N I L E G T
F U N A A Æ Á J
R Æ Ð A N U P P S T Y T T A
Á V A U Ð U I U X
S K E L U R R A Þ R Æ L
A L T Ó R A B A
G A D D A F B A K T A L
A U K J A R V A L Í E
N O R S K A Æ D A Ð U R
É P N E M A A K
H Ö R Ð L Ó N I O R K A
Ú E M L G O S A Ð
M E N N I N G I N V I N N U
A N L A I I D R
P A N T A N I R F R I Ð
Hólmfríður Einarsdóttir
Vinningshafi krossgátunnar í
síðustu viku var:
Leystu krossgátuna! Þú gætir unnið
Idol pakka með stjörnunum Kalla
Bjarna, Jón Sigurðssyni, Ruben
Studdard og Clay Aiken.
U R Ð I N
Nú hef ég leitað fanga í einni
bóka Gísla Hjartarsonar á Ísafirði,
en hann hefur skrifað margar
bækur um vestfirskar þjóðsögur.
Saga Gísla er svona:
Í tíð ríkisstjórnar Alþýðuflokks
og Sjáflstæðisflokks sem sat við
völd 1991-95 var kempan Matthías
Bjarnason formaður sjávarútvegs-
nefndar. Varaformaður hans var
Össur Skarphéðinsson. Fór vel á
með þeim Vestfirðingunum.
Eitt sinn í þorskbrestinum sem
þá gekk yfir fór nefndin vestur á
Ísafjörð að ræða bága afkomu við
forystumenn í sjávarútvegi. Þeir
félagarnir komu meðal annars í
frystihús Frosta hf. í Súðavík, en
Kofri ÍS 41 var einmitt gerður út
af Frosta þegar Össur tók út af
honum nærri drukknaður, eins og
fyrr er lýst. (Í annarri sögu í bók-
inni er sagt frá lífsháska sem
Össur lenti í 17 ára gamall um borð
í Kofra.)
Í kaffistofunni rifjuðu Súðvík-
ingar upp söguna og minntust þess
að Össur var svo þrekaður orðinn í
sjónum, að klofstígvélin höfðu
runnið af fótum hans niður í djúp-
ið. Össur bætti því við söguna, að
þegar hann hefði góðfúslega farið
þess á leit við útgerðina að hún
keypti handa honum ný stígvél, þá
hefðu menn snúið sér undan í for-
undran yfir frekjunni í þessum
reykvíska unglingi.
Matthías varð hneykslaður og
sagði að nú skyldu forvígismenn
Frosta fá að punga út fyrir glötuð
stígvél hins upprennandi krata-
foringja. Þegar leið á daginn hvarf
Matthías á fund Ingimars Hall-
dórssonar framkvæmdastjóra
Frosta. Kom hann nokkru síðar
með koníaksflöskur sem hann
lagði í kjöltu Össurar og kvaðst
hafa heimt af Frosta hf. sem síð-
búna greiðslu fyrir klofstígvélin.
Össur gladdist enda var Alþýðu-
flokkurinn ekki bindindisheyfing
þá fremur en aðra daga.
Brá svo við að óveður gerði, svo
að sjávarútvegsnefndin tepptist og
komst ekki suður og gisti á Hótel
Ísafirði. Össur kvaðst þá að hætti
sannra jafnaðarmanna vilja deila
koníakinu jafnt með trúuðum
íhaldsmönnum sem vantrúuðum
kommúnistum úr nefndinni og dró
tappa úr flösku. Varð þetta til að
gleðskapur hófst sem stóð undir
morgun og olli nokkurri truflun á
svefni annarra gesta.
Matti Bjarna stundi upp úr sér
undir morgun þegar hann staulað-
ist til hvílu:
Ég hef aldrei vitað menn
drekka svo innilega í minningu
gamalla stígvéla.
Svo bætti hann við um leið og
hann gekk úr salnum:
Þið megið þakka fyrir að Össur
tapaði ekki buxunum líka.
Saga af... þingmönnum
SIGURJÓN M. EGILSSON sigurjon@frettabladid.is
NÝJAR ÍSLENSKAR
ÞJÓÐSÖGUR
með Sigurjóni
Unnur Einarsson, Helgi Þorvaldsson, Eva Ólafsdóttir,
Ingibjörg Magnúsdóttir
Vinningshafar í SMS-leik síðustu viku voru:
Með hvaða liði spilaði Eiður Smári áður en hann fór til
Chelsea?
r) Tottenham s) Bolton b) Stoke
Hvað hefur Eiður Smári skorað mörg mörk á Englandi?
a) 50 i) 100 o)150
Með hvaða liði hóf Eiður atvinnumannaferil sinn?
g) PSV Eindhoven s) Lokeren l) Feyenoord
Hverjir eru andstæðingar Chelsea í undanúrslitum
Meistaradeildarinnar?
ó) Juventus t) AC Milan u) Liverpool
Með hvaða liði spilaði Arnór, faðir Eiðs, við góðan orðstír?
i) Glasgow Rangers n) Stuttgart r) Anderlecht
Merktu við rétt svör. Stafirnir fyrir framan hvert rétt svar
mynda lausnarorð sem þú sendir í þjónustunúmerið
1900.
Dæmi: Lausnarorðið er páfinn. Þú sendir skeytið JA
MYND PAFINN í þjónustunúmerið 1900.
Leystu gátuna: Þú gætir unnið plötu Mariah
Carey, The Emancipation of Mimi.
aSMS skeytið kostar
99 krónur.
SMS-GÁTAN:
Hvað veist þú um Eið Smára Guðjohnsen?
Sumar gjafir skipta
öll börn máli!
Gefum börnum góða sumargjöf