Fréttablaðið - 01.05.2005, Síða 24

Fréttablaðið - 01.05.2005, Síða 24
6 ATVINNA Leikskólann Vinagerði Langagerði 1 vantar leikskólakennara eða starfsmann með sambærilega menntun eða með góða reynslu í 100% stöðu sem fyrst. Einnig vantar starfsmann í hlutastarf vegna stuðnings við lítinn dreng.. Vinagerði hefur hugmyndafræði Reggio Emilio að leiðar- ljósi þar sem meginmarkmiðið í uppeldinu er að hvetja börnin til að nota öll skilningarvit sín, málin sín hundrað, og vinna markvisst að frumlegri og skapandi hugsun hjá börnunum. Áhugasamir hafi samband við Díönu leikskólastjóra í síma 553-8085 eða á póstfangið vinagerdi@simnet.is Hjúkrunarheimilið Fellsendi óskar eftir starfsfólki í aðhlynningu og í eldhús. Heimilið þjónar einstaklingum sem eiga við geðsjúk- dóma að stríða. Fellsendi er góður vinnustaður þar sem ríkir góður starfsandi. Starfshlutfall og vaktafyrir- komulag er samkomulagsatriði. Um er að ræða sumar- afleysingu og framtíðarstarf. Fellsendi er í 130 km fjar- lægð frá Reykjavík og í 20 km fjarlægð frá Búðardal. Upplýsingar veitir Ásta S.Sigurðardóttir hjúkrunarforstjóri í síma 434 1631 eða 849 7835. Netfangið er: asta@fellsendi.is Rafvirkjar – rafvirkjanemar Rafrún ehf. óskar að ráða rafvirkja og eða rafvirkjanema til starfa sem fyrst. Umsækjendur hafi samband við skrifstofu Rafrúnar ehf. að Gjótuhrauni 8 Hafnarfirði eða í síma 555 6060 og 896 1012. Járnsmiður/málmiðnaðarmaður. Fyrirtækið Járnsmiðja Óðins: Leitar að kraftmiklum og traustum járnsmið/málm- iðnaðrmanni eða einstakling með svipaða starfs- reynslu til að starfa með öflugum liðshóp. Um fram- tíðarstarf er að ræða. Starfið felst í mjög fjölbreyttri nýsmíði og uppsetn- ingum. Áhersla er lögð á frumkvæði, áreiðanleika, létta lund og þjónustulipurð auk sjálfstæðra vinnubragða og samstarfshæfni. Haldbær reynsla af sambærilegu er kostur. Allur tækjabúnaður er góður og nýlegur. Reyklaus vinnustaður. Umsóknarfrestur er til og með 20. maí. Gengið verð- ur frá ráðningu fljótlega. Allar umsóknir verða með- höndlaðar sem trúnaðarmál. Nánari upplýsingar eru veittar í síma 557-9300. Grunnskólakennari. Við Brúarásskóla er laus kennarastaða skólaárið 2005-2006. Brúarásskóli er samkennsluskóli fyrir nemendur í 1.-10.b., 23 km norðan við Egilsstaði. Í skólanum er vinna hafin við sérstaka stefnumótun í kennslu list- og verkgreina ásamt íþróttum og heilsurækt, sem miðar að því að auka veg þessara námsgreina til muna. Afar gott og heimilislegt andrúmsloft er ríkjandi og vinnuaðstaða er jafnframt góð. Kennslugreinar eru: Almenn kennsla á miðstigi. Tungumál og samfélagsfræði. Íþróttir. Við leitum að kraftmiklum og skapandi kennara sem hefur kjark og dug til að reyna nýja hluti. Í boði er nýtt og glæsilegt íbúðarhúsnæði á staðnum. Umsóknarfrestur er til 15. maí 2005. Allar nánari upplýsingar veitir Magnús Sæmundsson skólastjóri í síma 4700793/4711047 eða í netfangi magnuss@egilsstadir.is Kjöt- og fisktorg. Ferskar kjötvörur og Furðufiskar óska eftir að ráða starfsmann til að hafa umsjón með kjöt- og fisktorgi í verslun Hagkaupa í Smáralindinni. Um er að ræða fullt starf. Umsækjandi þarf að hafa reynslu og áhuga á að starfa með matvæli. Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu fyrir- tækisins að Síðumúla 34 í Reykjavík. Nánari upplýs- ingar eru veittar í síma 660-6300 og 699-4000 milli kl. 09.00 og 17.00 virka daga.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.