Fréttablaðið - 01.05.2005, Síða 29
11
ATVINNA
Landhelgisgæsla Íslands
óskar eftir aðstoðarvarðstjóra
í stjórnstöð stofnunarinnar.
Starfssvið:
• Afgreiðsla beiðna sem koma vegna leitar-, björgunar- og
löggæslumála, svo og annarra málaflokka er heyra undir
verksvið Landhelgisgæslunnar.
• Fjarskipti við skip, loftför og aðrar einingar
Landhelgisgæslunnar.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Siglingafræðiþekking.
• Góð staðkunnátta.
• Reynsla af störfum tengdum sjó eða flugi er skilyrði.
• Þekking og reynsla af skipa og/eða flugfjarskiptum.
• Gott vald á íslensku og ensku, ritaðri og talaðri.
• Samskiptahæfileikar, sjálfstæði og metnaður
til faglegra starfa.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Starfsmannafélags
ríkisstofnana og fjármálaráðherra.
Um er að ræða vaktavinnu.
Umsóknir með upplýsingum um menntun og starfs-
reynslu skulu berast Landhelgisgæslu Íslands,
Seljavegi 32, 101 Reykjavík, fyrir 17. maí nk. merktar
„umsókn-stjórnstöð“.
Nánari upplýsingar veita Ásgrímur Ásgrímsson
deildarstjóri, (asgrimur@lhg.is) í síma 860-2922 eða
Svanhildur Sverrisdóttir starfsmannastjóri,
(svanhildur@lhg.is) í síma 545-2000. Sparisjóðabanki Íslands hf. er viðskiptabanki í eigu allra sparisjóða í landinu og var hann stofnaður 1986. Auk þjónustu og viðskipta
við sparisjóði á bankinn margvísleg viðskipti við fjármálafyrirtæki og aðra viðskiptamenn hér á landi og erlendis, þó ekki almenning.
Bankinn leggur áherslu á gott starfsumhverfi og staðlaðar mælingar sýna mikla ánægju starfsfólks.
Frekari upplýsingar veitir Kristján Sigurðsson, staðgengill framkvæmdastjóra viðskiptastofu.
Sími: 540 4000, tölvupóstfang: kristjan@icebank.is.
Skriflegar umsóknir sendist fyrir 10. maí 2005 til Sparisjóðabanka Íslands, Rauðarárstíg 27,
105 Reykjavík merktar Laus störf í fjárstýringu eða á tölvupóstfangið icebank@icebank.is
Sérfræ›ingar
í fjárst‡ringu
Sparisjóðabanki Íslands hyggst efla fjárstýringu bankans þannig að hún verði enn betur í stakk
búin að sinna lykilhlutverki sínu innan bankans ásamt því að veita sparisjóðum og öðrum
viðskiptamönnum framsækna þjónustu. Leitað er að eftirfarandi starfsfólki:
Sérfræðingi í greiningu. Áhersla er lögð á greiningu á almennu efnahagsástandi og öðrum þáttum sem hafa
áhrif á gengisþróun gjaldmiðla og vaxtaþróun. Viðkomandi mun einnig taka þátt í því þróa og kynna einstaka
þjónustuþætti fjárstýringar.
Sérfræðingi á millibankaborði fjárstýringar. Meginverkefni á millibankaborðinu snúa að viðskiptum á
millibankamarkaði, verðlagningu fjármálaafurða og stöðutöku bankans í gjaldeyri og verðbréfum auk annarra
hliðstæðra verkefna. Starfsreynsla er skilyrði.
Sérfræðingum (miðlurum) á söluborði fjárstýringar. Viðkomandi munu annast samskipti við viðskiptamenn
fjárstýringar, vera þeim til ráðgjafar í gjaldeyrisviðskiptum og áhættustýringu auk þess að taka þátt í þróun
og verðlagningu þjónustuþátta fjárstýringar. Starfsreynsla er skilyrði.
a
b
c
Ei
n
n
t
v
ei
r
o
g
þ
r
ír
3
4
1.
0
22
Búsetudeild Akureyrarbæjar
Forstöðumaður tómstundastarfs
og dagþjónustu eldri borgara
Óskum eftir að ráða starfsmann til að veita
forstöðu þjónustumiðstöð fyrir eldri borgara.
Í starfinu felst m.a.
• umsjón með og dagleg stjórn 16 rýma dagvistar
fyrir eldri borgara
• umsjón með og dagleg stjórn tómstundatilboða bæjarins
fyrir eldri borgara
• samstarf við notendur þjónustunnar
• starfsmannahald
• rekstrarábyrgð
• þátttaka í þróunarstarfi Búsetudeildar
Menntunar- og hæfniskröfur
• háskólamenntun sem nýtist í starfinu
• reynsla af starfi með eldri borgurum og þekking á
málefnum þeirra
• hæfni í mannlegum samskiptum, sveigjanleiki og jákvæðni
• áhugi á og hæfni til að starfa með notendum þjónustunnar
• reynsla af stjórnun, rekstri og starfsmannahaldi er æskileg
Laun eru skv. kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags við
Launanefnd sveitarfélaga.
Skriflegar umsóknir ásamt ferilskrá berist til Búsetudeildar
Akureyrarbæjar, Glerárgötu 26, 600 Akureyri fyrir 15. maí
næstkomandi. Umsóknareyðublöð fást í þjónustuanddyri
Akureyrarbæjar, Geislagötu 9 og á vefsíðu Akureyrarbæjar
http://www.akureyri.is
Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt
um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin.
Tekið verður tillit til samþykktar bæjarstjórnar Akureyrar um
jafnréttismál við ráðningu í starfið.
Nánari upplýsingar veitir Kristín Sigursveinsdóttir
í síma 460-1407 og á netfanginu kristin@akureyri.is
Flash-hálfsdags
Tískuverslunin Flash óskar eftir starfskrafti á aldrinum
30-45 ára hálfann daginn. Þarf að vera hress, hafa mikla
þjónustulund og reynslu af sölustörfum. Umsóknir með
upplýsingum um aldur og fyrri reynslu skilist í verslunina
eða á flash@islandia.is fyrir fimmtudaginn 5 apríl.
Óskum eftir löggildum bílasala til starfa.
Reynsla æskileg. Bílasala á góðum stað.
Umsóknarfrestur til 5. maí.
Umsóknir sendist á netfangið box@frett.is
merkt „bíll“.