Fréttablaðið - 01.05.2005, Síða 57
gerst hefur á Kárahnjúkum.
Þremenningarnir Ísak Þór
Davíðsson frá Reykjavík og Sig-
urður Jón Björgvinsson og Davíð
Þórólfsson frá Húsavík vinna við
álversbygginguna á vegum Kollu-
fells, dótturfyrirtækis Ístaks og
ÍAV. Þeir sjá um verkefni af ýms-
um toga, rífa innan úr húsum,
setja upp húsgögn og einangra
pípulagnir svo að dæmi séu nefnd.
„Það er mjög góður aðbúnaður
og allt gert fyrir starfsfólk sem
hægt er að gera,“ sögðu þeir þar
sem þeir voru á leið í mat í mat-
salnum Golden Duck einn daginn í
vikunni. Þeir töldu matinn góðan
og ekkert hægt að kvarta undan
laununum. Rætt væri um að
breyta fyrirkomulaginu þannig að
þeir ynnu lengra á daginn níu
daga og fengju svo fimm daga frí
í stað þess að vinna tíu daga og fá
svo fjögurra daga frí.
Allar áletranir í starfsmanna-
þorpinu eru á þremur tungumál-
um: íslensku, ensku og pólsku.
Sjálfsagt að fólk komi heilt heim
Hrönn Pétursdóttir, starfsmanna-
stjóri Fjarðaáls, bendir á að slysa-
tíðni sé talsverð á Íslandi, um einn
af hverjum 60 starfsmönnum í
framkvæmdum slasist, um einn
af hverjum 120 almennt í þjóð-
félaginu. Hlutfallið sé allt annað
hjá Bechtel og Fjarðaáli, þar sem
hlutfallið sé einn af um eða yfir
1.000 starfsmönnum. Það sé sjálf-
sögð krafa að starfsmenn komist
heilir heim til sín á kvöldin og því
séu strangar öryggiskröfur og
kröfur um réttan búnað. Öryggis-
kröfurnar eru óvenjustrangar
miðað við það sem gengur og
gerist á Íslandi en starfsmenn
hafa í langflestum tilfellum vanist
þeim vel.
Hrönn Pétursdóttir er kynn-
ingar- og starfsmannastjóri. Hún
fluttist austur í haust þegar hún
festi kaup á glænýju húsi á Reyð-
arfirði. Hrönn leggur áherslu á að
Fjarðaál sé mannlegt fyrirtæki
sem gott sé að starfa hjá. Íbúarnir
á staðnum sé jákvæðir, þeir geri
sér grein fyrir því að ástandið nú
sé ekki alltaf eðlilegt. „Það er
örugglega langt frá því eðlilegt
hversu mikil umferð er af trukk-
um hérna í gegn en ég held að fólk
sé ákveðið í því að nýta tækifærin
og láta hlutina ganga upp,“ segir
hún.
„Þetta verður stöðugt sýni-
legra. Maður kemst ekki hjá því
að sjá að þetta er alltaf að aukast
og á eftir að verða meira.“
Á næstu vikum verða haldnir
kynningarfundir á sex stöðum á
landinu fyrir þá sem hafa áhuga á
að selja þjónustu og vörur austur
og í framhaldi af því verður kann-
að með væntanlega starfsmenn í
álverinu. Hrönn segir að ekki sé
hægt að tala um að starfsmenn-
irnir séu ófaglærðir. Þeir hafi
mismunandi grunnmenntun en fái
þjálfun við hæfi. Þegar hefur
verið ráðinn fræðslustjóri hjá
Alcoa-Fjarðaáli.
ghs@frettabladid.is
SUNNUDAGUR 1. maí 2005 21
MÁLÞING UM HÁSKÓLA
FRAMTÍÐARINNAR
Málþing á vegum Háskólans og Magna Charta-stofnunarinnar
um málefni háskóla. Til þingsins koma nokkrir af helstu
sérfræðingum Evrópu í málefnum æðri menntastofnana og
þinghaldið er liður í stefnumótunarstarfi á þessu sviði.
Málþingið er öllum opið og fer fram í Odda, stofu 101.
Mánudagur 2. maí
kl. 13:30-15:00
VERKEFNI HÁSKÓLA Í BREYTTUM HEIMI
Ingjaldur Hannibalsson prófessor við Háskóla Íslands
Andrei Marga fyrrv. rektor Háskólans í Cluj-Napoca í Rúmeníu
Francisco Naishtat prófessor við Háskólann í Buenos Aires
í Argentínu
kl. 15:30-18:00
YNGRI FRÆÐIMENN UM MÁLEFNI HÁSKÓLA HORFA TIL
FRAMTÍÐARINNAR
Henrik Enroth frá Stokkhólmsháskóla
Diego Lucci frá Háskólanum í Napólí
Guðrún Geirsdóttir dósent við Háskóla Íslands
Þriðjudagur 3. maí
kl. 13:30-15:00
HUGMYNDIR UM HÁSKÓLA FRAMTÍÐARINNAR
Roderick Floud rektor London Metropolitan University á
Englandi og varaforseti Samtaka evrópskra háskóla
Jón Torfi Jónasson prófessor við Háskóla Íslands
Páll Skúlason rektor Háskóla Íslands
kl. 15:30-17:00
PALLBORÐSUMRÆÐUR
Madeleine Green forstöðumaður Center for Institutional
and International Initiatives við American Council on
Education í Washington
Germain Dondelinger yfirmaður málefna æðri menntunar
hjá ráðuneyti menningar og rannsókna í Lúxemborg
Roderick Floud rektor London Metropolitan University
Kristín Ingólfsdóttir verðandi rektor Háskóla Íslands
Hélène Lamicq fyrrv. rektor Université Paris XII í Frakklandi
Páll Skúlason rektor Háskóla Íslands
Magna Charta-stofnunin var sett á laggirnar árið 1998 á
vegum Samtaka evrópskra háskóla (EUA) og Háskólans í
Bologna. Hlutverk stofnunarinnar er að fylgjast með fram-
kvæmd þeirra meginmarkmiða um skipulag og rekstur háskóla
sem skilgreind eru í Magna Charta Universitatum (yfirlýsingu
um markmið og forsendur háskóla). Frekari upplýsingar um
stofnunina má finna á www.magna-charta.org.
Í Háskóla Íslands 2.-3. maí
Karl Heimir Búason á Eskifirði:
Flytur til Reyðarfjarðar
REYÐARFJÖRÐUR Karl Heimir Búa-
son er fæddur og uppalinn á
Eskifirði. Hann seldi íbúðina
sína á Eskifirði í haust og hefur
nú keypt þriggja herbergja 90
fermetra íbúð á sjöundu hæð í
blokk á Reyðarfirði fyrir 14
milljónir króna. Hann fær íbúð-
ina afhenta í júní og flytur þá til
Reyðarfjarðar.
Gömlu íbúðina keypti hann á
2,8 milljónir fyrir tíu árum en
seldi hana á 7,7 milljónir og er
ánægður með þau viðskipti. Karl
Heimir ætlaði alltaf að kaupa
hús á Eskifirði en fann ekkert
sem honum líkaði enda hafa ekki
verið miklar byggingafram-
kvæmdir þar.
Karl Heimir tekur fullan þátt
í uppbyggingunni í Fjarða-
byggð. Hann rekur Valhöll á
Eskifirði og tekur við rekstri
Félagslundar á Reyðarfirði á
næstunni. Hann hefur í bígerð
að hefja þar kvikmyndasýning-
ar því að bíó hefur hvergi verið
í Fjarðabyggð síðustu árin nema
á Seyðisfirði.
„Ég tel að unga fólkið sé að
flýja héðan frekar en hitt. Það
hættir ekki við að fara í skólann
en kemur hingað í vinnu á sumr-
in og fer svo aftur,“ segir hann.
-ghs
Molinn á Reyðarfirði:
Ánægð með viðtökur
VERSLUN Jóna Björg Óskarsdóttir
og maður hennar, Víglundur Jón
Gunnarsson, hafa opnað tísku-
verslunina Pex í Molanum á
Reyðarfirði. Þau hafa rekið aðra
tískuverslun í Neskaupstað í 15
ár og einnig verið með fata-
hreinsun.
Jóna Björg er ánægð með við-
tökurnar í Molanum. „Við vildum
stækka við okkur og það er mikið
að gerast hér svo að við ákváðum
bara að koma hingað með versl-
un. Við búum í Neskaupstað en
erum með starfsfólk héðan,“
segir hún.
Jóna Björg segir að verslun-
inni hafi verið vel tekið. „Það eru
allir voðalega jákvæðir og mikið
af fólki að flytja heim. Íbúunum
fjölgar hérna í öllum hverfum.
Það hefur ekki enn komið í ljós
hvaða áhrif það hefur á verslun-
ina, við höfum bara haft opið í
viku, en við vonum að þetta hafi
jákvæð áhrif,“ segir hún.
„Kannski koma Fjarðabúar
meira hingað að versla og fara
ekki upp á Hérað eða til Akur-
eyrar að versla. Vonandi skilja
þeir meira eftir heima hjá sér
frekar en að fara burt til að
versla.“ -ghs
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
Ágúst Benediktsson, löggiltur fasteignasali, og Karl Heimir Búason, rekstraraðili Valhall-
ar og Félagslundar, auk þess sem hann starfar fyrir Egersund Ísland sem setur upp
veiðarfæri.
Í NÝJU VERSLUNINNI Jóna Björg
Óskarsdóttir, athafnakona í Fjarða-
byggð, rekur tískuverslunina Pex í Mol-
anum á Reyðarfirði ásamt manni sín-
um, Víglundi Jóni Gunnarssyni. Þau eru
með aðra tískuverslun í Neskaupstað.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
FLUTTI TIL REYÐARFJARÐAR Hrönn Pétursdóttir sinnir kynningarmálum og starfs-
mannamálum hjá Alcoa-Fjarðaáli. Hún keypti sér einbýlishús í haust og flutti austur.
ÞREMENNINGAR FRÁ REYKJAVÍK OG HÚSAVÍK Þremenningarnir Ísak Þór Davíðsson frá Reykjavík og Sigurður Jón Björgvinsson og
Davíð Þórólfsson frá Húsavík vinna við álversframkvæmdirnar og sjá um verkefni af ýmsum toga; rífa innan úr húsum, setja upp húsgögn
og einangra pípulagnir svo að dæmi séu nefnd. „Það er mjög góður aðbúnaður og allt gert fyrir starfsfólk sem hægt er að gera,“ sögðu
þeir.