Fréttablaðið - 01.05.2005, Qupperneq 58
FÓTBOLTI „Þetta er sérstakur hópur
sem ég er með hér hjá Chelsea og
hann á þennan titil innilega skil-
inn,“ sagði Jose Mourinho, knatt-
spyrnustjóri Chelsea, eftir að liðið
tryggði sér enska meistaratitilinn
í fyrsta skipti í 50 ár í gær. Þá sigr-
aði liðið Bolton á útivelli með
tveimur mörkum gegn engu og
var það Frank Lampard sem skor-
aði bæði mörkin, það síðara hans
átjánda á leiktíðinni. Komst hann
þannig upp fyrir Eið Smára
Guðjohnsen á lista markahæstu
manna Chelsea í úrvalsdeildinni.
„Það getur enginn haldið öðru
fram en að við séum verðskuldað-
ir sigurvegarar. Ég er með frá-
bært fólk með mér, leikmenn og
þjálfara, og ég vil vera hjá Chel-
sea eins lengi og ég get. Hér á
hjarta mitt heima,“ bætti portú-
galski þjálfarinn við áður en hann
skálaði í kampavín við blaðamenn.
Veðbankar voru ekki lengi að
taka við sér og aðeins tveimur
mínútum eftir að flautað hafði
verið til leiksloka sendi breski
veðbankinn William Hill frá sér
tilkynningu þar sem kom fram að
Chelsea væri talið langlíklegastir
til að vinna titilinn á næsta ári.
Hill metur möguleika Chelsea
vera 10 á móti 11 en þar á eftir
koma Arsenal og Manchester
United, bæði með 4 á móti 11.
Lampard, sem af mörgum er
talinn eiga hvað mestan þátt í vel-
gengni Chelsea í ár, átti erfitt
með að hemja tilfinningar sínar í
leikslok. „Loksins, loksins er tit-
illinn kominn í hús. Við eigum
þetta skilið, stuðningsmennirnir
eiga þetta skilið. Þeir hafa verið
stórkostlegir í allan vetur. Eftir
vonbrigðin gegn Liverpool á
heimavelli í vikunni töldum við
að besta leiðin til að bæta þeim
upp frammistöðuna þar væri að
sigra hér í Bolton. Við gátum það
og nú er titillinn okkar. Nú ætlum
við að halda áfram og vinna
Liverpool á þriðjudag,“ sagði
Lampard, sem greinilega er ekki
enn orðinn saddur.
Fyrirliði Chelsea og leikmaður
ársins í Englandi, John Terry,
sagði tilfinninguna vera þá bestu
sem hann hefði nokkru sinni upp-
lifað. „Við erum búnir að bíða svo
lengi eftir þessum áfanga og nú
loksins höfum við náð honum.
Þetta er ótrúlegt, miklu betra en
ég átti von á,“ sagði Terry. Spurð-
ur hversu mikinn þátt Jose Mour-
inho ætti í titlinum sagði Terry
hann vera stóran. „Hann er frá-
bær og hefur gefið þessu félagi
ótrúlega mikið.“
Mourinho segir að margir sam-
verkandi þættir hafi leitt til
þeirrar velgengni sem Chelsea
hefur notið á leiktíðinni. „Hugar-
farið og þráin sem allir þeir sem
að félaginu koma búa yfir hefur
mest að segja. Við berjumst sam-
an, við vinnum saman og við grát-
um saman. Og í dag fögnum við
saman,“ sagði Mourinho.
vignir@frettabladid.is
22 1. maí 2005 SUNNUDAGUR
> Við hrósum ...
... sundkonunni Kristínu Rós
Hákonardóttur, sem gerði sér
lítið fyrir í gær og setti heims-
met í 50 metra skriðsundi á
Landsbankamóti Ármanns.
Kristín Rós synti á 35,3
sekúndum. Þá bætti hún
einnig Íslandsmetið í 200
metra skriðsundi.
> Við samgleðjumst ...
.... Eiði Smára Guðjohnsen,
leikmanni Chelsea, sem í
gær náði einhverjum
mesta áfanga sem náðst
hefur í íslenskri íþróttasögu.
Að vera stór hluti af liðinu
sem vinnur stærstu
knattspyrnudeild í heimi er
árangur sem lætur engan
Íslending ósnortinn. Til
hamingju Eiður, þú átt þetta
skilið!
Heyrst hefur ...
... að Hreiðar Guðmundsson,
markvörður ÍR-inga í handbolta, eigi í
viðræðum við KA um að koma norður á
næstu leiktíð og spila fyrir heimamenn.
Hálft ÍR-liðið er á leið annað og er
Hreiðar sagður hafa afar takmarkaðan
áhuga á að spila með liði sem er ekki í
fremstu röð.
60
SEKÚNDUR
Alfreð Gíslason er... toppmaður.
Hvaða leikkerfi er best í Champ-
ionship manager? 4-4-2 attacking.
Þín fyrirmynd í boltanum? Geir
Sveinsson.
Alfreð Gíslason eða Guðmundur
Guðmundsson? Alfreð Gíslason.
SS eða bratwurst? SS að sjálfsögðu.
Ein með öllu á Bæjarins bestu er
toppurinn.
Besti sóknarmaður heims? Ivano
Balic.
Erfiðasti andstæðingur? Ég sjálfur.
Besti varnarmaður heims? Didier
Dinart.
Æfingar eru... gaman, gaman.
Besti samherjinn? Oleg Kulesjov.
Mars eða Snickers? Snickers.
Hvað hefurðu verið þyngstur?
Tæplega 160 kg.
En léttastur? Um 92 kg.
MEÐ SIGFÚSI
SIGURÐSSYNI
19. júní sjóður
19. júní sjóður um kvennahlaup ÍSÍ í Garðabæ
auglýsir til umsóknar styrki til að efla og styrkja
þátttöku kvenna í íþróttum. Sjóðurinn er
stofnaður að tilstuðlan íþrótta- og tómstundaráðs
Garðabæjar og framkvæmdanefndar um
kvennahlaup í Garðabæ.
Veittir verða styrkir til verkefn sem miða að því
að styrkja og efla íþróttir kvenna. Stjórn sjóðsins
áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum ef
þær, að mati stjórnar, uppfylla ekki framangerint
markmið.
Í skriflegri umsókn skal koma fram nákvæm
lýsing á verkefni og hvernig umsækjandi sér fyrir
sér að verkefnið nýtist sem hvatning til eflingar
íþróttum kvenna.
Umsóknum skal skila til íþróttafultrúa á rafrænu
formi Gunnarer@gardabaer.is eða í
Íþróttamiðstöðina Ásgarð, 210 Garðabæ fyrir 17.
maí 2005. Hægt er að nálgast umsóknareyðublöð
og leiðbeiningar á heimasíðu Garðabæjar.
Ráðgert er að úthluta úr sjóðnum 11. júní 2005.
Nánari upplýsingar gefur Gunnar Örn Erlingsson,
íþróttafulltrúi Garðabæjar, síma 565-8044.
Stjórn 19. júní sjóðs
Enska úrvalsdeildin
BIRMINGHAM–BLACKBURN 2–1
0–1 Jonathan Stead (13.), 1–1 Robert Blake
(61.), 2–1 Emile Heskey (80.).
FULHAM–EVERTON 2–0
1–0 Collins John (15.), 2–0 Brian McBride (39.).
LIVERPOOL–MIDDLESBROUGH 1–1
0–1 Szilard Nemeth (4.), 1–1 Steven Gerrard
(52.).
MAN. CITY–PORTSMOUTH 2–0
1–0 Sylvain Distin (4.), 2–0 Robbie Fowler (16.).
NEWCASTLE–CRYSTAL PALACE 0–0
SOUTHAMPTON–NORWICH 4–3
0–1 David Bentley (3.), 1–1 Matt Oakley (7.),
2–1 Peter Crouch (20.), 2–2 Danny
Higginbotham, sjálfsmark (31.), 3–2 Graeme Le
Saux (39.), 3–3 Leon McKenzie (45), 4–3 Henri
Camara (88.).
BOLTON–CHELSEA 0–2
0–1 Frank Lampard (60.), 0–2 Frank Lampard
(76.).
STAÐA EFSTU OG NEÐSTU LIÐA
CHELSEA 35 27 7 1 67–13 88
ARSENAL 34 22 8 4 74–33 74
MAN. UTD 34 20 10 4 50–21 70
EVERTON 35 17 7 11 41–36 58
LIVERPOOL 36 16 7 13 49–37 55
BOLTON 36 15 9 12 45–41 54
-----------------------------------------------------------------
SOUTH. 36 6 13 17 42–62 31
C. PALACE 36 7 10 19 37–58 31
WBA 35 5 15 15 33–58 30
NORWICH 36 6 12 18 41–71 30
LEIKIR GÆRDAGSINS
FÓTBOLTI Þrátt fyrir að Chelsea sé
óumdeilanlega með sterkasta
liðið í enskri knattspyrnu í dag
þurfti liðið í gær að lúta í lægra
haldi fyrir erkifjendunum í
Manchester United í slagnum
um þjónustu eins eftirsóttasta
tánings veraldar, hins nígeríska
John Obi Mikel sem er til mála
hjá Lyn í Noregi.
Mikel, sem lék sinn fyrsta
leik fyrir Lyn í síðustu viku,
skrifaði undir fjögurra ára
samning við Man. Utd. og mun
hann halda til félagsins að loknu
tímabilinu í Noregi, í janúar árið
2006.
„Ég er sjálfur hissa á að ég
hafi valið Man. Utd. fram yfir
Chelsea,“ sagði Mikel, sem er
sóknarmaður, á blaðamanna-
fundi í gær, en meginástæða
valsins er sögð vera sú að hann
taldi sig eiga meiri möguleika á
að komast í liðið hjá United í
framtíðinni. „Ég er mjög ánægð-
ur með að hafa loksins bundið
enda á allar vangaveltur um
framtíð mína. Nú get ég loksins
farið að einbeita mér að því að
spila fótbolta. Það er frábært að
fá tækifæri hjá jafn stóru félagi
og Man. Utd. Það eru ekki marg-
ir á mínum aldri sem fá svona
tækifæri,“ bætti Mikel við.
Það var í fyrra sem Mikel fór
til reynslu hjá ensku stórliðun-
um og var hann ekki lengi að
vekja hrifningu. Jose Mourinho
lýsti Mikel sem „gulli“ eftir að
hafa séð til hans fyrst og var
hann að sögn mjög viss um að
Mikel myndi velja Chelsea.
Verður hann að láta sér enska
meistaratitilinn nægja því að í
slagnum um Mikel var það Alex
Ferguson sem bar sigur úr být-
um. -vig
Einn efnilegasti knattspyrnumaður heims:
Tók Manchester Utd.
fram yfir Chelsea
JOHN OBI MIKEL Þykir sóknarmaður
af guðs náð.
sport@frettabladid.is
Hjarta mitt á heima hjá Chelsea
Eiður Smári Guðjohnsen varð í gær fyrsti Íslendingurinn til að vinna enska meistaratitilinn í
knattspyrnu eftir að úrvalsdeildin var sett á laggirnar. Þá vill knattspyrnustjórinn Jose Mourinho vera
hjá Chelsea eins lengi og mögulegt er vegna þess að hann elskar félagið.
BESTIR Þó að leikmenn Chelsea hafi ekki fengið bikarinn afhentan í gær leyfðu þeir sér að fagna á Reebok-vellinum í Bolton í góða
stund. Hér brosir Eiður Smára Guðjohnsen til stjóra síns Jose Mourinho eftir að titilinn var í höfn. MYND: NORDIC PHOTO/GETTY IMAGES
Við berjumst saman,
við vinnum saman
og við grátum saman. Í dag
fögnum við saman.
,,