Fréttablaðið - 01.05.2005, Qupperneq 60
Að æfa tæpar 1.100 klukku-
stundir á ári og brenna allt
að 9.000 hitaeiningum dag
hljómar í fyrstu eins fjarri
raunveruleikanum og
mögulegt er. Þetta er engu
að síður það sem besti
skíðagöngumaður allra
tíma, Björn Dæhlie, gerði á
sínum gullaldarárum.
Fréttablaðið hitti Dæhlie í
vikunni og ræddi við hann
um fortíðina og framtíð, Ís-
land og afreksmenn.
U mrædd gullaldarárDæhlie voru á tímabilinu1991-1999. Þá vann hann
til 14 verðlauna á þremur
Ólympíuleikum, þar af átta gull-
verðlaun, auk þess að vinna fjölda
heims- og Evrópumeistaratitla.
Að öllu samanlögðu er verðlauna-
afrakstur Dæhlie á ferlinum
nokkuð sem fáir, ef nokkrir, aðrir
afreksmenn geta státað af.
Í dag hefur hann dregið sig úr
sviðsljósinu og frá því að hann
hætti keppni um aldamótin hefur
Dæhlie skrifað bækur, haldið
fyrirlestra og starfað í sjónvarpi.
Þá stofnaði hann sitt eigið bygg-
ingafyrirtæki sem og fatahönnun-
arfyrirtæki sem vinnur nú hörð-
um höndum við að búa til skíða-
línu sem nýjar kynslóðir munu
koma til með að klæðast á
Ólympíuleikum næstu ára.
Þá æfir hann „ekki nema“
fimm sinnum í viku að eigin sögn
og fer mestur tími hans í að sinna
konu sinni og tveimur börnum.
„Eftir að ég kynntist fjöl-
skyldulífinu fengu skíðin að fara á
hilluna. Ég reyni að eyða sem
mestum tíma með fjölskyldunni
minni. Hún er það mikilvægasta í
lífinu,“ segir þessi dáðasti íþrótta-
maður Noregs fyrr og síðar og sá
sem oft hefur verið nefndur boð-
beri þessarar skíðaíþróttar á síð-
ari árum.
Í rúm tíu ár helgaði Dæhlie sig
skíðagöngunni, einni af alerfið-
ustu íþróttagreinum heims, þar
sem eina leiðin til árangurs er
æfing, æfing og aftur æfing.
Henni sinnti Dæhlie með svo þrot-
lausum hætti að erfitt er að gera
sér í hugarlund.
Þegar hann var upp á sitt allra
besta æfði Dæhlie hátt í fimm
klukkustundir á dag, þar sem
mestur tíminn fór í að hlaupa.
Hann hljóp tugi kílómetra á degi
hverjum þar sem dagleg brennsla
var um 9.000 hitaeiningar að
meðaltali – fjórfaldur ráðlagður
dagskammtur fyrir meðalmann.
Það segir sig sjálft að til að
brenna þvílíku magni af hitaein-
ingum þarf að borða ansi mikið og
segir Dæhlie að sykur sé besti
vinur skíðagöngumannsins.
„Þegar mest var fór sólarhringur-
inn að langmestu leyti í þrjá ein-
falda hluti; æfa, borða og sofa,“
segir hann.
Súrefnisinntaka er hlutur sem
skíðagöngumenn verða að hafa í
lagi og til að auka hana er ein-
faldasta ráðið að æfa sem mest.
Til að undirstrika hversu góðu
formi Dæhlie var í má geta þess
að aðeins einn maður í sögunni
hefur mælst með meiri súrefnis-
inntöku en hann – spænski hjól-
reiðagarpurinn Miguel Indurain.
Súrefnisinntaka Dæhlie mældist
95 en sá spænski var einu stigi
hærri. Til samanburðar má nefna
að það þykir afburðagott þegar
knattspyrnumaður mælist með
súrefnisinntöku upp á 65-70.
„Ég geri mér fyllilega grein
fyrir því að þetta hljómar eins og
bilun þegar svona er að orði kom-
ist. En þetta er það sem þarf til að
komast í hóp þeirra bestu,“ segir
Dæhlie.
Eiður er sönnun
Nú hefur Dæhlie tekið að sér
að halda utan um hóp tólf skíða-
manna af Norðurlöndunum sem
eiga það sameiginlegt að hafa
verið valdir í svokallaðan hóp
vonarstjarna VISA. Þrír íslenskir
skíðamenn eru í hópnum, þau
Kristján Uni Óskarsson, Dagný
Linda Kristjánsdóttir og Elsa
Guðrún Jónsdóttir, og er mark-
miðið að komast á Vetrarólympíu-
leikana sem haldnir verða á næsta
ári í Tórínó á Ítalíu. Það var vegna
sinnar miklu reynslu sem Dæhlie
var beðinn um að vera þessum
hópi innan handar og það var eftir
að hann hafði sett sig í spor hinna
ungu skíðamanna sem hann ákvað
að slá til.
„Ég hefði ekki slegið hendinni
á móti slíkri hjálp þegar ég var
tvítugur. Svona stuðningur eins og
VISA er að sýna er ekkert minna
en ómetanlegur og hjálpar Íslend-
ingum til að komast á stærsta
íþróttaviðburð heims,“ segir
Dæhlie og á þar við Ólympíu-
leikana.
„Mitt hlutverk er að miðla til
þeirra því sem ég hef lært á mín-
um ferli og gefa þeim ráð um allt
milli himins og jarðar – tækni,
undirbúning, keppni, æfingar,
fjölmiðla og einfaldlega lífsstílinn
sem íþróttamaður,“ segir Dæhlie,
sem þannig leggur sitt af mörkum
til skíðaíþróttarinnar.
Þrátt fyrir að hafa margoft
verið beðinn um það hefur Dæhlie
ekki tekið að sér þjálfun skíða-
göngumanna. Fjölskylda hans og
fyrirtækin tvö eiga hug hans allan
auk þess sem hann sinnir áhuga-
málum sínum af miklum móð. Til
að sinna tveimur þeirra, skotveiði
og fiskveiði, hefur Dæhlie í
tvígang lagt leið sína til Íslands.
„Ísland er dásamlegt land og
það var æðislegt að veiða þar. Ég
á alveg örugglega eftir að koma
aftur.“
Dæhlie segist lítið þekkja til ís-
lenskra íþróttamanna fyrir utan
skíðamennina þrjá. Einn kemur
þó fljótlega upp í hugann. „Eiður
Smári Guðjohnsen. Frábær leik-
maður og einn af þeim bestu í
enska boltanum,“ segir Dæhlie,
sem er mikill áhugamaður um fót-
bolta og þá sérstaklega þann
enska.
„Það að Eiður Smári skuli vera
lykilmaður í stærsta knattspyrnu-
liði heims finnst mér aðdáunar-
vert. Að Ísland, 300 þúsund
manna eyja í Atlantshafinu, skuli
eiga slíka afreksmenn sannfærir
mig enn frekar um að fleiri ís-
lenskir íþróttamenn geti náð jafn
langt, eins og til dæmis skíða-
mennirnir ungu,“ segir Dæhlie og
bendir á íslensku krakkana í af-
rekshópnum sem eiga, að undan-
skildum Kristjáni Una, enn eftir
að ná ÓL-lágmörkunum. „Ég hef
fulla trú á að þau geti komist á ÓL
og gert góða hluti þar.“
vignir@frettabladid.is
24 1. maí 2005 SUNNUDAGUR
ÍSLAND ER
DÁSAMLEGT
LAND
SUNNUDAGSVIÐTALIÐ > BJÖRN DÆHLIE
Þetta hljómar eins
og bilun en þetta er
það sem þarf til að komast í
hóp þeirra bestu.
,,
Eiður Smári er
frábær leikmaður og
einn af þeim bestu í enska
boltanum.
,,
BJÖRN DÆHLIE Er afskaplega hógvær og lítillátur í framkomu og lítur alls ekki stórt á sjálfan sig eins og miklir afreksmenn eiga
gjarnan til. Á næsta ári verður hann þremur íslenskum skíðamönnum innan handar og ætlar hann eftir fremsta megni að reyna að
hjálpa þeim að komast á Vetrarólympíuleikana í Tórínó á næsta ári.
SÁ BESTI Dæhlie var nánast ósigrandi í skíðagöngunni á tíunda áratugnum og hefur
hann unnið til fleiri verðlauna á vetrarólympíuleikum en nokkur annar í sögunni.
Úrslitin ráðin í þýsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu:
Bayern varð meistari
FÓTBOLTI Bayern München
tryggði sér í gær þýska meist-
aratitilinn í fótbolta í 18. skiptið
með 4-0 stórsigri á Kaisers-
lautern á útivelli. Þótt enn séu
þrjár umferðir enn óleiknar í
Þýskalandi voru Bæjarar krýnd-
ir meistarar því liðið náði með
sigrinum í gær 11 stiga forskoti á
toppnum og því ómögulegt fyrir
önnur lið að ná því að stigum.
Hollenski framherjinn Roy
Maakay skoraði þrennu fyrir
Bayern í gær en áður hafði Mich-
ael Ballack komið sínum mönn-
um yfir.
Felix Magath, stjóri Bayern,
sagði eftir leikinn að sínir menn
ættu titilinn fyllilega skilinn.
„Við höfum verið besta liðið síð-
ustu tíu mánuði og það hefði
verið rán hefði einhver tekið af
okkur þennan bikar,“ sagði
Magath og Ballack tók í sama
streng. „Við höfum sannað að við
erum með langbesta liðið. Í kvöld
ætlum við að leyfa okkur að
fagna þeirri staðfestingu,“ sagði
Ballack með kampavínsflöskuna
í hendi.
SILFURSKJÖLDURINN Leikmenn
Bayern stigu stríðsdans í fagn-
aðarlátunum eftir leikinn í gær.