Fréttablaðið - 01.05.2005, Síða 61

Fréttablaðið - 01.05.2005, Síða 61
SUNNUDAGUR 1. maí 2005 25 Kevin Garnett á varamannabekknum LEIKSTJÓRNANDI - STEVE NASH Nasharinn er besti leikstjórnandinn í deildinni í dag. Er mjög skæður sóknarmaður sem finnur alltaf opna manninn og er erfiður við að eiga. SKOTBAKVÖRÐUR - KOBE BRYANT Kobe er mikill íþróttamaður og enginn efast um hæfileika hans þrátt fyrir vandræði utan vallar. Getur skorað að vild. LÍTILL FRAMHERJI - TRACY MCGRADY McGrady getur klárað leiki upp á eigin spýtur og er, rétt eins og Kobe, mikill sýningargripur. Hann er með troðslurnar og allan pakkann og það er alltaf unun að horfa á hann spila körfubolta. STÓR FRAMHERJI - DIRK NOWITZKI Dirk er hrikaleg byssa. Hann mætti kannski bæta sig varn- arlega séð en hann er engu að síður besti Evrópu- maðurinn í NBA í dag. MIÐHERJI - SHAQUILLE O’NEAL Shaq er tröllið sem enginn ræður við og klárlega besti miðherji deildarinnar í dag. SJÖTTI MAÐUR - KEVIN GARNETT Það er spurn- ing hvort Garnett yrði sáttur að koma af bekknum? En hann gefur sig allan í leikinn frá fyrstu mínútu til hinnar síðustu og er pottþéttur í því sem hann gerir. LIÐIÐ MITT > JÓN ARNÓR STEFÁNSSON SETUR SAMAN DRAUMALIÐIÐ SITT Í NBA-DEILDINNI Shaq „Þetta lið yrði besta lið allra tíma í NBA- deildinni og það yrði skandall ef það færi ekki taplaust í gegnum heilt leiktímabil.“ Nowitzki Steve Nash McGrady Bryant Garnett Alltaf hefur setið í mér setningin úr Drugstore Cow- boy, raunsæju eiturlyfjadrama Gus Van Sant, þegar höfuðpersónan leikin af Matt Dillon segir um karakter William S. Burroughs að hann hafi skotið minnst milj- ón dollara virði af heróíni í handlegginn á sér um æv- ina. Skelfilegt er að hugsa til þess hvað fólk sem ánetjast eitrinu þarf að leggja á sig til þess að fjár- magna neysluna og verður áhrifameira þegar hugsað er til þess að óskýr mörk eru á milli persónunnar sem rithöfundurinn Burroughs leikur í myndinni og hans sjálfs en þessi konungur ofskynjunarbókmenntanna barðist alla ævi við gríðarlega fíkn og eyddi lunganum af tekjum sínum í eitur af ýmsum sortum. Ofangreindar hugleið- ingar um fjármögnun- arkostnað fíknarinnar komu upp í kolli mínum í vikunni þegar ég las langa úttekt í ítölsku sport- blaði um áætl- aðan lyfja- kostnað ítölsku knattspyrnulið- anna síðustu árin. Tölurnar eru svo háar að mann grunaði að ítalskir reiknuðu ennþá í lírum en ekki evrum. Sláandi var hversu nákvæm- ar og ábyggilegar niðurstöðurnar eru, meðalliðið fer með jafn mikið fé í lyfjakaup og læknar á meðalheilsugæslustöð þar í landi skrifa út sínum sjúklingum til handa á einu ári. Innan við þrjátíu full- frískir karlmenn þurfa sumsé jafnmikið af hinum og þessum lyfjum að halda og nokkur þúsund venjulegra borgara! Leggur settur upp í Moskvu Víst er að þessir drengir fá ekki ódýrustu sortirnar og ekki spáð í ríkisniðurgreiðslur þegar læknar liðanna leggjast í skottulækningar sínar í leitinni að undra- kokkteilnum. Nánast vísindaskáldskaparbragur á list- anum yfir lyfin, ekki einungis sterar og pepperar í hávegum heldur úrval úr sérlyfjaskránni með áherslu á gigtarlyf, þunglyndislyf, lyf gegn vöðvarýrnun og hjartalyf. Síðastnefndi lyfjaflokkurinn hefur fengið mikla umfjöllun eftir að ítalska ríkissjónvarpið sýndi á fimmtudagskvöldið myndskeið þar sem Fabio Canna- varo, leikmaður Juventus og landsliðsfyrirliði Ítala, sést fá lyfið Neoton gefið í æð daginn fyrir úrslitaleik- inn í Evrópukeppni félagsliða 1999 en Cannavaro lék þá með Parma sem mætti Marseille í Moskvu og sigr- aði 3-0. Neoton er lyf sem jafnan er notað þegar hjartaaðgerð- ir eru framkvæmdar en læknar Parma virðast hafa gert sér grein fyrir einhverjum gagnlegum áhrifum fyrir leikmennina eða hreinlega treyst á nafnið sem er dregið af því sem heitir á máli líffræðinnar að viðhalda einhverjum einkennum æskuskeiðs á fullorðinsaldri. Myndskeið þetta mun hafa verið tekið á upptökuvél Cannavaros sjálfs og sýnir leikmenn Parma skríkja og skemmta sér í læknisleik þar sem aðalsportið var að setja upp legg fyrir fyrirliðann, sem síðan nýtur lyfja- gjafarinnar og fer með gamanmál á meðan. Einhvern veginn rataði þessi kostulega upptaka í hendur manna sem sáu ástæðu til þess að koma spólunni til ríkis- sjónvarpsins. Lögfræðingar Cannavaros reyndu án ár- angurs að fá birtinguna stöðvaða en hafa haldið uppi miklum vörnum enda getur málið skaðað ímynd hans mjög. Þeir hafa bent á að atriðið sé algjörlega slitið úr samhengi og lyfið sé auk þess ekki á bannlista al- þjóða knattspyrnusambandsins og því ekkert óeðlilegt né ólöglegt á ferðinni. Löglegt en siðlaust Knattpyrnusambandið stendur með sínum manni og mun Cannavaro halda fyrirliðabandinu. „Það var ekki uppörvandi að sjá leikmann fá lyf í æð en Cannavaro hefur alltaf leikið af lífi og sál fyrir landsliðið og mun verða fyrirliði áfram,“ sagði forseti knattpyrnusam- bandsins, Franco Carraro, en bætti því við að þörf væri á skýrari lagasetningu í alþjóðaíþróttum um hvað væri talið viðeigandi. „Það að sjá fullkomlega heilbrigða íþróttamenn taka inn lyf fær mann til að staðnæmast. Við þurfum nýja löggjöf sem tryggir að ekki séu svona margar holur í kerfinu. Ekki síður þarf að huga að siðferðishliðinni.“ sagði Carraro, sem hefur þurft að glíma við stöðug lyfjahneyksli síðustu árin, einkum í kringum málaferlin yfir læknum Juventus sem fengu nýverið heldur létta dóma eftir löng réttarhöld. Leikmennirnir í því máli sluppu allir enda málið vandræðalegt fyrir alla aðila og miðað við þau bönn sem menn hafa hlotið undan- farin ár verður að efast um raunverulegan vilja knatt- spyrnuyfirvalda til að taka á vandanum. Einu málin sem er tekið á af festu eru þau sem lúta að hefð- bundnum eiturlyfjum á borð við kókaín. Virðist augunum lokað fyrir því að glundurkokkteilar skottulæknanna geta reynst leikmönnum enn hættu- legri en samkvæmisdópið. Landsliðsfyrirliði í læknisleik EINAR LOGI VIGNISSON: DÓPIÐ Á ÍTALÍU HVAÐ? HVENÆR? HVAR? 28 29 30 1 2 3 4 Sunnudagur MAÍ ■ ■ LEIKIR  17.00 ÍA og Þróttur mætast Í Egilshöllinni í undanúrslitum deildabikars karla í fótbolta.  19.00 KR og Breiðablik mætast Í Egilshöllinni í undanúrslitum deildabikars karla í fótbolta.  17.00 Valaur og ÍBV mætast á Stjörnuvelli í undanúrslitum deildabikars kvenna í fótbolta. ■ ■ SJÓNVARP  09.30 Meistaradeildin í hand- bolta á Sýn. Útsending frá leik Ciudad Real og Barcelona í meistaradeildinni í handbolta frá því í gær.  11.00 Bandaríska mótaröðin í golfi á Sýn. Mánaðarlegur þáttur um bandarísku mótaröðina í golfi.  11.50 Gillette-sportpakkinn á Sýn.  11.55 Enski boltinn á Skjá einum. Bein útsending frá leik Tottenham og Aston Villa í ensku úrvals- deildinni í fótbolta.  12.20 Meistaradeildin í fótbolta á Sýn. Fréttaþáttur um Meistara- deildina í fótbolta.  12.50 Ítalski boltinn á Sýn. Bein útsending frá leik Juventus og Bologna í ítölsku úrvalsdeildinni í fótbolta.  14.50 NBA-boltinn á Sýn. Útsending frá leik Washington Wizards og Chicago Bulls í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta.  15.00 Enski boltinn á Skjá einum. Bein útsending frá leik Charlton og Manchester United í ensku úrvals- deildinni í fótbolta.  16.50 Spænski boltinn á Sýn. Bein útsending frá leik Barcelona og Albacete í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta.  19.00 Inside the US PGA Tour 2005 á Sýn.  19.30 NBA-boltinn á Sýn. Bein útsending frá fjórða leik New Jersey og Miami í úrslitakeppni NBA- deildarinnar í körfubolta.  22.00 US PGA Zürich Classic á Sýn. Mótið er liður í bandarísku mótaröðinni í golfi.  22.00 Helgarsportið á RÚV. Farið verður yfir íþróttaviðburði helgarinnar.  01.00 ítalski boltinn á Sýn. Útsending frá leik Juventus og Bologna frá því fyrr um daginn. Tveir hörkuleikir í Egilshöllinni Fréttablaðið fékk Leif Garðarsson til að spá í undanúrslitaleiki deildabikars karla í knattspyrnu sem fara fram í dag í Egilshöllinni. Skaginn mætir Þrótti og Breiðablik spilar við KR. FÓTBOLTI Undanúrslit deildabikars karla í knattspyrnu fara fram í Egilshöllinni í dag. ÍA og Þróttur mætast klukkan 17.00 og tveimur tímum síðar hefst leikur KR og Breiðabliks. 1. deildar lið Breiðabliks kom mjög á óvart með því að slá út Ís- lands- og deildabikarmeistara FH-inga í vítaspyrnukeppni í átta liða úrslitunum en þau fjögur lið sem komust í undanúrslitin eru einmitt tvö efstu liðin úr hvorum undanriðli. Fréttablaðið heyrði í Leifi Garðarssyni, aðstoðarþjálfara FH-liðsins, og fékk hann til þess að spá í leiki dagsins. „Skagamenn hafa misst nokkra lykilmenn frá því í fyrra en þeir eru alltaf að fá inn unga og efni- lega leikmenn sem hlaupa í skörð- in. Skagamenn voru með frábær- an 2. flokk í fyrra sem við í FH töpuðum sem dæmi fyrir í úrslita- leik á Íslandsmóti undir 23 ára liða. Það er alveg ljóst að þar eru strákar sem geta tekið við keflin- um í meistaraflokksliðinu,“ segir Leifur um breytingar á Skagalið- inu. „Þróttararnir eru eins og öll lið sem Ásgeir er með, að reyna að spila fótbolta þó að þeir kannski svæfi svolítið andstæðinginn með rólegu spili aftarlega á vellinum. Miðað við það sem ég hef séð til Valsmanna kom það mér svolítið á óvart að Þróttarar skyldu vinna þá í átta liða úrslitunum. Það sýnir að þeir hafa eitthvað til brunns að bera. Ég held að hvorugt þessara liða sem eru að koma upp, Þróttur og Valur, standi hinum átta liðun- um svo langt að baki. Ég held að þetta verði mjög jafn leikur en kannski maður segi að hefðin sigri og Skaginn fari áfram,“ segir Leifur. Leifur ber taugar til síns gamla félags en hefur einnig hrifist af liði Breiðabliks í vetur. Bjarni Jóhannesson og lærisveinar hans slógu FH-ingana einmitt út úr keppni í átta liða úrslitunum og segir Leifur það hafa verið sanngjörn úrslit. „Breiðablik var mun betri aðil- inn í fyrri hálfleik í okkar leik. Blikarnir voru viljugir, vinnusam- ir og duglegir og það er oft það sem skiptir höfuðmáli í þessu. Ég vona fyrir Bjarna hönd að þeim gangi vel í sumar. Þeir mæta þarna mörgum af mínum gömlu lærisveinum í KR sem hafa verið að stíga sín fyrstu skref í meist- araflokki. Auðvitað vill maður sínum afkvæmum vel,“ segir Leifur, sem þjálfaði yngri flokka hjá KR fyrir nokkrum árum áður en hann hélt í Hafnarfjörðinn. „Það hefur kannski verið beðið eftir því að Blikarnir gerðu eitt- hvað á sig í þessum undirbúnings- leikjum en ef þeir mæta með sama dugnað og kraft og þeir mættu með í fyrri hálfleik á móti okkur geta þeir strítt KR-ingum. Ég get því alveg séð fyrir mér tvo hörkuleiki þó að maður hallist þó að því að Akranes og KR spili úrslitaleikinn. Þetta verður örugglega fín skemmtun og ég er viss um að menn hafa ekkert betra að gera seinnipartinn en að fara á þessa leiki,“ segir Leifur að lokum og það er alveg óhætt að taka undir orð hans. ooj@frettabladid.is SPÁÐ Í SPILIN Leifur Garðarsson, aðstoðarþjálfari FH-liðsins, á von á tveimur jöfnum leikjum í undanúrslitum deildabikarsins í dag.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.