Fréttablaðið - 31.05.2005, Blaðsíða 10
31. maí 2005 ÞRIÐJUDAGUR
Starfsmenn sveitarfélaga og launanefndin semja:
Tuttugu prósenta hækkun
KJARAMÁL Kjölur og önnur félög
starfsmanna sveitarfélaga í
Starfsgreinasambandinu og Sam-
flotinu svonefnda skrifuðu undir
nýjan kjarasamning við launa-
nefnd sveitarfélaga síðastliðið
sunnudagskvöld. Þrjú til fjögur
þúsund starfsmenn sveitarfélaga
víðs vegar um land eiga aðild að
samningnum.
Anna Jakobína Björnsdóttir,
formaður Kjalar, segir að samn-
ingurinn gildi frá 1. apríl til 30.
nóvember 2008 og feli í sér liðlega
20 prósenta launahækkun á samn-
ingstímanum. Ný launaflokkaröð-
un tekur gildi 1. júní 2006 sem
kemur sumum hópum til góða en
öðrum ekki. Samningurinn gerir
meðal annars ráð fyrir þriggja
prósenta hækkun launa 1. janúar
ár hvert út samningstímann.
Félög bæjarstarfsmanna í
Kópavogi, Hafnarfirði og á Akra-
nesi slitu samningaviðræðum á
laugardag vegna ágreinings um
starfsmat og áhrif þess á kaup og
kjör. Félögin þrjú töldu tilboð
nefndarinnar óviðunandi og
kröfðust sérstakrar bókunar í
kjarasamningi fyrir þá sem
starfsmat nær ekki til.
- jh
Eldflaugama›urinn
s‡ndi Ólafi Alpana
Samstarf í tækni- og lyfjaflróun er efst á baugi í opinberri heimsókn Indlands-
forseta, en hann kynnti sér einnig vi›vörunarkerfi Íslendinga vegna jar›-
skjálfta og annarra náttúruhamfara.
BESSASTAÐIR Ólafur Ragnar Gríms-
son, forseti, og ríkisstjórn Íslands
tóku formlega á móti dr. A.P.J.
Abdul Kalam Indlandsforseta á
Bessastöðum klukkan 10.15 í gær-
morgun. Eftir móttökuna ræddu
þeir saman í rúman hálftíma áður
en þeir ræddu við íslenska og ind-
verska blaðamenn. Á fundinum
ræddu forsetarnir samstarf land-
anna og þá einkum í tækni- og lyfja-
þróun.
Dr. Abdul Kalam er geimverk-
fræðingur að mennt og er einn virt-
asti vísindamaður Indverja, oft kall-
aður Eldflaugamaðurinn. Í störfum
sínum sem forseti hefur hann eink-
um einbeitt sér að því að Indland
verði orðið þróað iðnríki árið 2020,
en staða Indlandsforseta í stjórn-
kerfinu er sambærileg og staða for-
seta Íslands. Ólafur Ragnar sagði
frá því á blaðamannafundinum að
dr. Abdul Kalam hefði skellt tölvu
upp á borðið og sýnt vikugamlar
myndir sem nýjasti gervihnöttur
Indverja hafi tekið af Ölpunum, og
líkti Ólafur Ragnar þeirri sýningu
við gönguferð í gegnum Alpana.
Eftir blaðamannafundinn fóru
forsetarnir ásamt fylgdarliði sínu á
Nordica Hotel á viðskiptaráðstefnu
sem efnt var til af íslensk-indverska
verslunarráðinu, sem stofnað var í
byrjun mánaðarins. Um 100 gestir
voru á ráðstefnunni. Að henni lok-
inni heimsótti dr. Abdul Kalam
höfuðstöðvar Actavis í Hafnarfirði
og lagði þar hornstein að nýrri
byggingu.
Því næst var haldið upp í Há-
skóla Íslands þar sem Páll Skúlason,
rektor Háskólans, og Magnús Jóns-
son veðurstofustjóri tóku á móti
honum. Veðurstofan var með sér-
staka dagskrá um viðvörunarkerfi
vegna jarðskjálfta og annara nátt-
úruhamfara, en einnig heimsóttu
forsetarnir Norrænu eldfjallastöð-
ina og hittu stúdenta í Öskju. Að lok-
um heimsótti Indlandsforseti
Stjórnstöð almannavarna í Skógar-
hlíð. Um kvöldið buðu íslensku for-
setahjónin síðan til kvöldverðar í
Listasafni Íslands.
Í dag mun dr. Abdul Kalam
meðal annars snæða hádegisverð
með Halldóri Ásgrímssyni forsætis-
ráðherra á Þingvöllum og heim-
sækja Nesjavelli og kynna sér starf-
semina þar. Heimsókninni lýkur á
morgun.
grs@frettabladid.is
ÍSAFJARÐAR
5.199 kr.
Flug aðra leiðina.
Bara á www.flugfelag.is
Takmarkað sætaframboð!
Milli Reykjavíkur og
AKUREYRAR
5.299kr.
Flug aðra leiðina.
Bara á www.flugfelag.is
Takmarkað sætaframboð!
Milli Reykjavíkur og
flugfelag.is
1. - 7. júní
EGILSSTAÐA
5.999
Flug aðra leiðina.
Bara á www.flugfelag.is
Takmarkað sætaframboð!
Milli Reykjavíkur og
kr.
GRÍMSEYJAR
3.499 kr.
Flug aðra leiðina.
Bara á www.flugfelag.is
Takmarkað sætaframboð!
Milli Akureyrar og
VOPNAFJARÐAR/
ÞÓRSHAFNAR
4.499
Flug aðra leiðina.
Bara á www.flugfelag.is
Takmarkað sætaframboð!
Milli Akureyrar og
kr.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
E
H
F.
/S
IA
.I
S
F
LU
2
85
59
0
5/
20
05
Börn, 2ja–12 ára, í fylgd með fullorðnum,
greiða 1.940 kr. aðra leiðina.
flugfelag.is
FYLGST MEÐ VIÐBRÖGÐUM Í SKÓGARHLÍÐ Ólafur Ragnar Grímsson og dr. A.P.J. Abdul Kalam heimsóttu Björgunarmiðstöðina í
Skógarhlíð í gær. Á blaðamannafundi sem haldinn var á Bessastöðum fyrr um daginn varð þeim tíðrætt um annars vegar elsta og hins
vegar fjölmennasta lýðveldi heims.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
AL
LI
ARNA JAKOBÍNA BJÖRNSDÓTTIR
Formaður Kjalar.
BAGDAD, AP Allt að þrjátíu manns
týndu lífi í sjálfsmorðssprengju-
árás í bænum Hillah í Írak í gær. Á
meðan handtóku bandarískar her-
sveitir háttsettan stjórnmálamann
úr hópi súnnía í misgripum.
Sprengjutilræðið í Hillah í gær-
morgun var vandlega skipulagt en
þá smeygðu tveir menn með
sprengjur innanklæða sér í hóp 500
lögreglumanna sem mótmæltu nið-
urskurði í þeirra röðum. Til að
valda sem mestum skaða kveiktu
þeir á vítisvélum sínum með einnar
mínútu millibili og þegar yfir lauk
lágu allt að þrjátíu manns í valnum.
„Ég sá allt í einu risastóran eld-
hnött og líkamsleifar fljúgandi um
allt. Í kjölfarið tóku lögreglumenn
að skjóta upp í loftið í örvæntingu
sinni,“ sagði Jiwad Kadhim Hamid,
sjónarvottur að harmleiknum.
Íraskar og bandarískar öryggis-
sveitir héldu í gær áfram aðgerðum
sínum gegn uppreisnarmönnum.
Bandarískir hermenn handtóku í
misgripum Mahsen Abdul-Hamid,
leiðtoga stærsta stjórnmálaflokks
súnnía og fyrrverandi forseta
íraska ráðgjafarráðsins sem sett
var á fót í kjölfar innrásarinnar
2003. Honum var sleppt skömmu
síðar. Flokkur hans hafði áður varað
við því að í skjóli aðgerðanna yrðu
saklausir borgarar áreittir. ■
Enn er ráðist að lögreglumönnum í Írak:
Tugir falla í tvöfaldri sjálfsmor›sárás
M
YN
D
/AP
SÁR EN Á LÍFI Lögreglumaður frá Hillah
lætur gera að sárum sínum á sjúkrahúsi í
bænum í gær. Allt að þrjátíu manns dóu í
árásinni og á annað hundrað særðist.