Fréttablaðið - 31.05.2005, Blaðsíða 25

Fréttablaðið - 31.05.2005, Blaðsíða 25
9ÞRIÐJUDAGUR 31. maí 2005 ROPE YOGA Bæjarhraun 22 / 220 Hafnarfjörður / 3. hæð til vinstri Kennari Guðbjörg Ósk Friðriksdóttir. Skráning er hafin í síma 555-3536 eða 695-0089 ropeyoga@internet.is stöðin Bæjarhrauni 22 Frábært sumartilboð kr. 7.900 ótakmörkuð mæting í júní. Gefðu öllum börnum sumargjöf Að hafa fallegar hendur veitir mér öryggi. Þess vegna hef ég LCN naglastyrkingu frá Heilsu og fegurð Hugrún Ungfrú Ísland. Hristir af sér vetrarforðann Guðlaugur Þór Þórðarson leggur mikið upp úr hreyfingu og finnst fjölbreytni mikilvæg. „Fyrir mig eins og flesta er alger nauðsyn að hreyfa sig, annars kemur það í bakið á manni,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson alþing- ismaður og segist vera nokkuð meðvitaður um að hreyfa sig en kannski ekki alltaf nógu duglegur. „Eina leiðin til að gera þetta af einhverju viti er að æfa reglulega í líkamsræktarstöð, en það hef ég gert lengi,“ segir Guðlaugur Þór. Auk þess að sækja líkamsrækt- arstöðina spilar hann fótbolta og körfubolta, hjólar með fjölskyld- unni, fer á skíði á veturna og út að hlaupa. Hann hefur líka vanið sig á að hlaupa alltaf upp stiga í stað þess að taka lyftu, en lykilatriðið segir hann að hafa fjölbreytni í hreyfingunni til að koma í veg fyrir stöðnun. „Stundum eru stig- arnir eina hreyfingin sem ég fæ, sérstaklega þegar mikið er að gera og erfitt að komast frá. Starf- ið mitt er bara þess eðlis að maður veit aldrei hvenær stund gefst,“ segir Guðlaugur Þór, en vinnan getur tekið mikið af hans tíma og segir hann það hafa orðið til þess að allir fótboltahópar sem hann spilar með hafa gefist upp á hon- um. „Já, það gefast allir upp á mér því ég mæti svo illa,“ segir Guðlaugur Þór og skellihlær. Nú þegar komið er að sumarfríi segist hann ætla að nota það til að hreyfa sig aðeins. „Ég er búinn að safna á mig smá vetrarforða sem ég þarf að losna við, svo mér verði ekki of heitt í sumar,“ segir Guð- laugur Þór og skellir upp úr. „Kon- an er nýbúin að skoða gamlar myndir og heimtar að ég fari í átak,“ segir Guðlaugur Þór kíminn og tilkynnir með stolti að hann ætli að læra tennis í sumar og hann hafi verið úti að hlaupa nú síðast í morgun. „Ég er nú kannski enginn brjálaður hlaupagarpur, en mér líður voða vel á eftir,“ segir Guðlaugur Þór. kristineva@frettabladid.is FRÉTTAB LAÐ IÐ /VALLI Guðlaugur Þór fer stundum út að hlaupa en það er eitt af mörgu sem hann gerir til að halda sér í formi.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.