Fréttablaðið - 04.06.2005, Page 41
LAUGARDAGUR 4. júní 2005
það er þá satt,
varaliturinn er
það eina sem
skiptir máli!“
„
Nýir LOVELY ROUGE varalitir,
þeir klæða þig betur.
Útsölustaðir | Hagkaup snyrtivörudeildir | Lyfja | Apótekið Grafarvogi | Apótekið Iðufelli | Árnes Apótek | Bjarg Akranesi | Jara Akureyri | Lyfjaval Mjódd
Kaupauki
Með kaupum á Lovely
Rouge varalit fylgir flott
burstasett frá Bourjois!
Gildir á meðan birgðir endast.
í dag laugardag frá kl. 13 til 17
Kynning á nýjum
varalit frá Bourjois
Í Lyfju Laugavegi
Snyrtifræðingur
verður á staðnum
og gefur góð ráð.
FAGNAÐ Stúdentar í háskólanum í Bre-
men fagna útskriftinni innilega.
75 ÁRA SKÓLASTARF Líf og fjör verður í
porti Austurbæjarskóla í dag.
Afmæli Aust-
urbæjarskóla
75 ára afmæli Austurbæjarskóla
verður fagnað með viðeigandi hætti
í dag. Skrúðganga leggur af stað
niður Barónsstíg klukkan 11 og fer
sem leið liggur niður Laugaveg, upp
Klapparstíg og Skólavörðustíg og til
baka að skólanum um Eiríksgötu og
Barónsstíg.
Þema göngunnar er tíminn sem
skólinn hefur starfað og munu nem-
endur túlka tískusveiflur og tíðar-
anda áranna 1930 til 2005. Slag-
verkssveitir leika við hvurn sinn
fingur og í fararbroddi verða fána-
berar og fólk búið þjóðbúningum.
Fjölmenningarsamfélag skólans
mun að auki setja sinn svip á hátíð-
arhöldin.
Að göngunni lokinni verður safn-
ast saman í skólaportinu og grillað,
leikið og sprellað.
Þess verður sérstaklega minnst
að öld er liðin frá fæðingu Stefáns
Jónssonar, rithöfundar og eins ást-
sælasta kennara skólans fyrr og síð-
ar og meðal annars mun Vilborg
Dagbjartsdóttir rifja upp kynni sín
af honum.
Klukkan þrjú í dag hefjast svo
rokktónleikar í portinu. ■
GAMLI BÆRINN Gömlu húsin á Hvann-
eyri
LANDBÚNAÐARHÁSKÓLINN
Á HVANNEYRI:
Augl‡sir eft-
ir gömlum
kúskum
Landbúnaðarháskólinn á Hvanneyri
óskar eftir gömlum og ungum kúsk-
um, vinnumönnum og öðrum starfs-
mönnum, sem deila minningum frá
Hvanneyri fyrir árlegan kúskadag
sem haldinn verður þann 13. ágúst
næstkomandi.
Stórt og umfangsmikið skólabú
hefur alla tíð verið rekið á Hvann-
eyri og á öldum áður þurfti marga
starfsmenn við búreksturinn og þá
ekki síst kúska.
Efnt verður til sérstakrar sögu-
dagskrár í tengslum við daginn og
verður Búvélasafnið opið að vanda.
Veitingar verða fáanlegar í verslun-
armiðstöðinni Kertaljósinu, sem er í
gömlu hestaréttinni þar sem oftar
en ekki þurfti kúska við.
Myndir og annað sem varpað
getur ljósi á starfssöguna á Hvann-
eyri eru vel þegnar en hafa þarf
samband við ráðsmann með fyrir-
vara til að hægt sé að búa þær til
sýningar í tæka tíð. ■