Fréttablaðið - 04.06.2005, Blaðsíða 52
36 4. júní 2005 LAUGARDAGUR
Vopnuð uppá-
halds ameríska
t a n n k r e m i n u
mínu hélt ég að
ég gæti aðlagast
íslensku samfé-
lagi á ný eftir
dvöl í Bandaríkj-
unum. Tann-
kremið var það
eina sem gat
ljóstrað upp um bandarískar taugar
mínar. Fljótlega sá ég að þetta yrði
erfiðara en ég hélt. Vinnufélagarnir
gerðu grín að kaneltyggjóinu mínu.
Á skemmtistöðum bæjarins er dans-
stíllinn minn farinn að líkjast
ískyggilega mikið bump nígrind
dansi Bandaríkjamanna. Ég ætlaði
að hreinsa af mér BNA-slikjuna með
því að kaupa mér harðfisk og skyr –
en harðfiskurinn er drulludýr (eins
og reyndar flest annað) og gamla
góða skyrið er svo súrt að það er
ekki étandi.
Nú vandaðist málið. Það er ekki
gott afspurnar að vera matvönd dek-
urdrós með Bandaríkin á heilanum.
(Sérstaklega ekki á alvarlegri frétta-
stofu þar sem aðaltískan er að gagn-
rýna Bandaríkjamenn sem mest). Í
fyrstu reyndi ég að útskýra málið.
Sko það er til sykurlaust jógúrt úti
sem er ekki nærri því jafnsúrt og
sykurlausa skyrið.
En auðvitað gerði þetta illt verra.
Vinir, vinnufélagar og vandamenn
eru nú orðnir langþreyttir á saman-
burði mínum á þessu og hinu í BNA
og á Íslandi. Þegar ég er í Bandarík-
junum lendi ég í því sama: íslenska
vatnið er miklu betra, íslensk tíska
er meira kúl...
Ég er sem sagt að uppgötva hið
fræga dívæded self. Sjálfið greyið er
klofið og helmingarnir lentu í röng-
um heimshluta. Þegar ég er á Íslandi
er ég amerísk og í Ameríkunni er ég
rammíslensk. En að pirringi vina og
vandamanna undanskildum – hvað
er svona slæmt við að hafa eitt
stykki dívæded self? Helmingarnir
eru nefnilega í góðum tengslum hvor
við annan, eins og heilahvelin tvö.
Einhvers staðar í sjálfinu er corpus
callosum sem gerir samskipti helm-
inganna auðveldari. Nú bíð ég bara
spennt eftir að geta skipt sjálfinu að-
eins meira. Næst á stefnuskránni er
að gerast 1/3 Frakki. ■
STUÐ MILLI STRÍÐA
RÓSA SIGNÝ GÍSLADÓTTIR REYNIR AÐ LOSA SIG VIÐ BANDARÍSKA SJÁLFIÐ
Klofið sjálf
M
YN
D
: H
EL
G
I S
IG
U
RÐ
SS
O
N
Eftir Patrick McDonnell
■ PONDUS
■ GELGJAN
■ KJÖLTURAKKAR
■ BARNALÁN
■ PÚ OG PA Eftir SÖB
Eftir Kirkman/Scott
Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
Eftir Frode Överli
Hvernig ætli
andardrátturinn sé.
Kardimommudropar eða
nýsteiktar vöfflur?
Hmnm.. Mygla!!
Sara.
Hver er það...?
Kærastan hans
Palla. Hún er
virkilega sæt
stelpa. Hann er al-
veg óður í hana.
Ég þekki
tilfinninguna. Ég hef ekki hitt
kærastann minn
í viku og ég er
að deyja úr til-
hlökkun að hitta
hann.
Ég held að ég hringi í
hann núna...
bið að
heilsa
Palla.
Hún var
ágæt hún
Tanja. „Var“?
Bölvun
nefrennslisins.
Hannes komdu
hérna!
Hannes,
sestu!
Hannes, náðu
í þetta!
Hannes, farðu
þangað!
Hannes, ekki
snerta!
Þú eyðir sannarlega miklum
tíma í að ráðskast með
bróður þinn.
Ég veit.
Hvernig heldur
þú að ég hafi
orðið svona
góð í því?