Fréttablaðið - 04.06.2005, Qupperneq 46
Birgitta segist alltaf hafadreymt um að vera söng-kona og því sé starfið henn-
ar í raun draumur sem rættist.
„Ég ætlaði reyndar að verða söng-
kona eða prinsessa og ég bíð því
bara eftir að fá seinni óskina upp-
fyllta líka,“ segir hún og skelli-
hlær dillandi hlátri og blaðamað-
ur er ekki efins um að hægt væri
að krýna stúlkuna sem
poppprinsessu Íslands.
„Það er ótrúlegt tækifæri að fá
að vinna við þetta og ég á eigin-
lega bágt með að trúa því sjálf.
Mér finnst svo stutt síðan ég var
heima á Húsavík að gera alla
brjálaða með sönglinu í mér. Ég
man að á ferðalögum með fjöl-
skyldunni þá sat ég aftur í með
bróður mínum og hann var oft
mjög fúll þegar ég gaulaði alla
leiðina í marga klukkutíma. En
þetta hefur greinilega virkað vel,
verið góð æfing,“ segir Birgitta
ánægð með lífið.
„Ég er rosalega hamingjusöm í
dag og mér líður vel. Sumarið
leggst vel í mig, ég hlakka til að
gefa út nýja plötu, við í Ávaxta-
körfunni förum til Kína í júlí sem
er alveg yndislegt og ég get ekki
annað sagt en að lífið sé gott,“
segir hún kát.
Gott að kíkja í sveitina
Eins og margir vita er Birgitta
Húsvíkingur í húð og hár og hefur
sterkar taugar til staðarins. „Ég
finn það oft að ég er stundum svo-
lítið saklausari í hugsun en aðrir
hér í Reykjavík en það var samt
aðallega svona fyrstu árin eftir að
ég flutti. Ég mun samt alltaf vera
svolítill larfur í mér og finnst
alltaf jafn yndislegt að koma út á
land og kíkja í heimsókn á Húsa-
vík. Það er svo yndislegt, eins og
að vera kominn í annan heim og
stórkostlega gott að geta kúplað
sig út úr fjörinu,“ segir hún
dreymin.
„Mér finnst stundum sorglegt
hvað Íslendingar fara mikið til út-
landa en þekkja kannski landið
sitt ekki neitt. Við eigum svo mik-
ið af frábærum stöðum sem ynd-
islegt er að heimsækja. Við erum
voðalega þjóðernissinnuð í kjaft-
inum og dásömum landið við út-
lendinga en svo grípum við fyrsta
tækifæri sem gefst og ferðumst
til útlanda.“
Forréttindi felast í starfinu
Aðspurð um tilfinninguna að vera
jafn þekkt á Íslandi og raunin er
og að sjá slúðurfyrirsagnir í blöð-
unum um einkalíf sitt segir hún:
„Þetta er bara eitthvað sem venst
og hefur í rauninni aldrei haft sér-
lega vond áhrif á mig. Maður veit
þá bara af því að það er slúður í
gangi og veit að það er tímabund-
ið. Mér finnst þetta aðallega fynd-
ið og þegar ég er stödd í búð og sé
allt í einu mynd af sjálfri mér með
fáránlegri fyrirsögn þá er erfitt
að bregðast öðruvísi við en að
fara að hlæja,“ segir hún og bætir
við að kostir frægðarinnar séu
mun fleiri.
„Það eru forréttindi að fá að
vinna við það sem ég hef unun af
og að það skuli vera til fólk sem er
tilbúið að hlusta á tónlistina mína.
Ég gæti ekki beðið um meira. En
það er nauðsynlegt að hafa gaman
af því að gefa af sér ef fólk er á
annað borð í svona starfi.
Við tókum okkur frí í hálft ár
og gerðum ekki neitt. Í millitíð-
inni gaf ég út plötu því það er nú
bara þannig að maður getur ekki
bara hætt að vinna vinnuna sína.
Ánægð með nýliðana
Poppheimurinn er alltaf að breyt-
ast og nýtt fólk að bætast í hópinn.
Birgitta er þó bara ánægð með
samkeppnina og líst vel á áhuga-
verða nýliða. „Það er alltaf gaman
að fá fleira tónlistarfólk í brans-
ann og gaman hvað flóran er orð-
in fjölbreytt. Hildur Vala er mjúk
og skemmtileg ballöðu-söngkona,
Nylon er í poppinu fyrir unga
fólkið og mér finnst þetta ekkert
nema gott.“
Aðspurð hvort hún eigi ein-
hverja íslenska uppáhaldstónlist-
armenn segir hún: „Frá því að ég
var unglingur hefur Sálin alltaf
verið í miklu uppáhaldi hjá mér.
Gummi og Stebbi eru alveg brillj-
ant teymi í laga- og textagerð og
ég hef alltaf litið mikið upp til
þeirra. Sérstaklega er ég hrifin af
gömlu tónlistinni. Einnig hafði ég
rosalega gaman af Todmobile og
Nýdanskri en annars er ég algjör
alæta á tónlist og að mínu mati er
mikilvægt að hafa breiðan tónlist-
arsmekk. Ég get ekki ímyndað
mér að það sé gott að vera mjög
litaður af einhverju Idoli og fara
ósjálfrátt að apa eftir og ná
þarafleiðandi ekki að vera maður
sjálfur í tónlistinni.
Nýr trommari slær taktinn
Eins og flestir vita hefur Írafár
skipt um trommara og því mun
Jóhann Bachmann ekki tromma
lengur með sveitinni en Arnar
Gíslason tekur við. „Skítamórall
er að gefa út plötu í sumar og
Hanni er náttúrulega að tromma
með þeim líka. Það gekk ekki al-
veg upp því við erum að fara út til
að taka upp plötuna okkar. En
Addi er alveg brilljant trommari
og svolítill rokkari í sér sem er
mjög skemmtilegt.
Það er gaman að fá svona
ferskar hugmyndir inn í hljóm-
sveitina en Addi hefur verið að
tromma með Ensími og Súrefni.
Sumarið er fullskipað hjá Íra-
fári og þau ætla að spila hér og
þar en aðalatriðið er þó að vinna
næstu plötu. „Strax eftir Verslun-
armannahelgina förum við út og
klárum plötuna. Í haust byrja svo
lætin, stefnan er að gefa plötuna
út um mánaðamótin október og
nóvember og þá förum við í helj-
arinnar tónleikaferð um allt land-
ið.“
Nú þegar er eitt lag komið í
spilun á útvarpsstöðvum en það er
lagið Leyndarmál. Þetta er fyrsta
lagið af væntanlegri plötu og í
sumar mun Írafár eiga tvö ný lög
á plötunni Svona er sumarið 2005.
Þetta eru þó einu lögin sem fólk
fær að heyra af plötunni áður en
hún kemur út.
Írafársstíllinn breytist ekki
Aðspurð hvort tilfinningin í
hljómsveitinni eða tónlistinni sé
ólík nú þegar nýr trommari er
kominn í sveitina segir Birgitta að
munurinn sé ekki mikill. „Hann
Addi er svo hress og jákvæður og
fellur svo vel inn í hópinn að þetta
er bara mjög skemmtilegt. Auð-
vitað er ekki gaman að þurfa að
skipta um trommara en þó svo að
Addi og Hanni séu mjög ólíkir
trommarar þá mun Írafársstíllinn
haldast. Eflaust mun þó verða
hægt að greina einhverjar breyt-
ingar á hljómnum en það er bara
skemmtilegt því engin hljómsveit
vill standa í stað.“
Þegar Birgitta lítur yfir farinn
veg og feril þeirra í Írafári minn-
ist hún sérstaklega á hversu
skemmtilegt hafi verið að taka
upp plötu númer tvö.
„Þá gátum við leyft okkur að
taka músíkina einu skrefi lengra.
Við fórum yfir í meira rokk en það
eru að mínu mati algjör forrétt-
indi að fá að leika sér svolítið með
tónlistina. Mér finnst tónlistin
okkar hafa þróast vel og mér
finnst hún rosalega lík okkur. Við
höfum aldrei reynt að gera eitt-
hvað sem er vinsælt eða reynt að
herma eftir öðrum heldur gerum
við bara það sem við fílum. Svo er
það einungis heppni að fólk virð-
ist vera að fíla það,“ segir Birgitta
ánægð með að vera aftur komin á
skrið með sveitinni.
„Það er ótrúlegt hvað maður
saknar þessa og æðislegt að vera
aftur farin að spila með strákun-
um. Við tókum nú þessa hálfsárs
pásu aðallega til þess að hvíla okk-
ur sjálf. Útkoman er sú að við
erum betur í stakk búin til að
byrja aftur af fullum krafti og
getum sungið áfram fyrir fólk af
því að okkur langar til þess. Við
erum ekkert þreytt og komum tví-
efld til baka.“ segir þessi lífsglaða
og duglega söngkona sem mun í
dag skemmta á fjölskyldudegi
Sjóvár ásamt Vigni félaga sínum
úr Írafár. Þau spila nokkur lög
fyrir utan íþróttahúsið á Strand-
götu í Hafnarfirði klukkan hálf-
fjögur í dag. ■
30 4. júní 2005 LAUGARDAGUR
Alltaf svolítill
larfur í sér
Söngkonan Birgitta Haukdal er komin aftur fram á
sjónarsvi›i› me› hljómsveit sinni, Írafár, eftir hálfs
árs pásu. Hún heldur flví áfram a› vinna hjörtu Ís-
lendinga í sumar me› einstakri útgeislun sinni og
bjartri söngrödd. Borghildur Gunnarsdóttir spjall-
a›i vi› poppprinsessuna um lífi› og tilveruna.
Sendu SMS skeytið JA MMF á
númerið 1900 og þú gætir unnið.
12. hver vinnur.
Vinningar eru:
Miðar f. 2 Mr & Mrs Smith
Glæsilegur varningur tengdur
myndinni t.d. úr og bolir
DVD myndir
Margt fleira.
Vinningar verða afhendir hjá BT Smáralind. Kópavogi.
Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb.
99 kr/skeytið.
SMS leikur
BIRGITTA HAUKDAL Hljómsveitin Írafár hefur tekið upp þráðinn þar sem frá var horfið eftir hálfs árs pásu og að sjálfsögðu með glæsi-
stúlkuna Birgittu í framlínunni. Þau eru búin að hvíla sig vel og snúa aftur endurnærð og til í tuskið. Birgitta samdi eitt lag á síðustu
plötu Írafárs og því forvitnilegt að vita hvort hún muni endurtaka leikinn. „Ég hef alveg verið að semja eitthvað en Viggi er bara svo
góður lagasmiður að það er erfitt að keppa við hann,“ segir hún og hlær. „En það er ekkert ákveðið með það. Ég hef alltaf verið
þannig að ég vil ekki senda neitt frá mér nema ég sé hundrað prósent ánægð með það. Þetta gengur voðalega vel hjá okkur þannig
að hann semur lögin og ég textana en það er aldrei að vita nema ég geti laumað einu af mínum lögum inn á plötuna.“