Fréttablaðið - 04.06.2005, Qupperneq 54
38 4. júní 2005 LAUGARDAGUR
EKKI MISSA AF…
... sýningu Önnu Hallin í gall-
eríinu Suðsuðvestur í Reykjanes-
bæ. Sýningin ber nafnið Lend-
ing/Landing. Henni lýkur um
helgina.
... menningarhátíðinni á Grand
Rokk núna um helgina með tón-
leikum, málþingum, stuttmynda-
keppni og leiksýningu.
... Tilfinningatorginu í garðin-
um á bak við Kaffi Hressó, sem
stendur frá klukkan 14 til 18 í
dag.
Það varður óneitanlega heimsborgaralegt and-
rúmsloft sem einkennir Lækjargötuna í dag, þegar
röð sumardjasstónleika hefst í bakgarði Jómfrúar-
innar, nú tíunda árið í röð.
„Í upphafi vildum við skapa dönsk áhrif því að
djasstónleikar utanhúss eru algengir í Kaupmanna-
höfn á sumrin,“ segir Jakob Jakobsson smörre-
brödsjomfru, sem í sumar stendur fyrir tónleikum
alla laugardaga á milli fjögur til sex.
„Fyrsta árið sá Magnús Scheving trommuleikari um
tónleikaröðina, en allar götur síðan hefur Sigurður
Flosason tónlistarmaður haft veg og vanda af
skipulagningunni, en einmitt Sigurður og hans
kvartett opna tónleikaröðina í dag,“ segir Jakob
sem með djassinum vill lífga upp á miðbæinn.
„Fólk gengur að því vísu ár eftir ár að heyra hér
djass á laugardögum og fær sér hina heilögu
þrenningu: öl, snafs og smurbrauð. Reyndar segja
margir: „Nú þarf maður ekki lengur að fara til
Kaupmannahafnar. Maður er kominn hálfa leið“.“
Og að sögn Jakobs þykir tónlistarmönnum
skemmtilegt að spila í bakgarði Jómfrúarinnar.
„Það eru alltaf að aukast fyrirspurnir erlendra
djassbanda sem vilja hafa viðkomu hér á leið sinni
til frekari tónleikahalds um heiminn og nú þegar
eru skráðar þrjár erlendar sveitir í sumar.“
Kl. 20.00
Víólutónleikar verða í Salnum í Kópa-
vogi í kvöld. Þar flytja Lars Anders
Tomter víóluleikari, Gunilla Süssmann
píanóleikari og Sigrún Eðvaldsdóttir
fiðluleikari verk eftir Robert Schumann,
Isang Yun, Henry Vieuxtemps, Bjarne
Brustad og César Franck.
menning@frettabladid.is
Sumardjasstónleikar í bakgarði Jómfrúarinnar:
Gestir komnir hálfa lei› til Köben
Ólgandi hátíð alla helgina
!
■ ■ KVIKMYNDIR
16.00 Stuttmyndakeppni verður
haldin á Grand Rokk.
■ ■ TÓNLEIKAR
15.00 Big Kahuna leikur í Smekk-
leysu Plötubúð, Laugavegi 59.
20.00 Lars Anders Tomter víólu-
leikari, Gunilla Süssmann píanóleik-
ari og Sigrún Eðvaldsdóttir fiðluleik-
ari halda tónleika í Salnum í Kópa-
vogi.
20.30 Bob og Johnny Po spila á
Kaffi Hljómalind ásamt hljómsveit-
inni Jakobínarína.
23.00 Tónleikar með Trabant á
menningarhátíð Grand Rokk.
■ ■ LEIKLIST
15.00 Leikfélag Grand Rokk frum-
sýnir leikritið Lamb fyrir tvo eftir Jón
Benjamín í leikstjórn Lísu Pálsdótt-
ur á menningarhátíð Grand Rokk.
■ ■ OPNANIR
14.00 Kristín Blöndal opnar
myndlistarsýninguna Metamorphos-
is í galleríi Sævars Karls.
17.00 Steinunn Harðardóttir og
Sæmundur Þór Helgason opna sýn-
ingu í Gallerí Tukt í Hinu Húsinu,
Pósthússtræti 3-5.
17.00 Vilhelm Anton Jónsson, Villi
naglbítur, opnar sína fyrstu opinberu
málverkasýningu á Kaffi Sólon,
Bankastræti 7.
■ ■ SKEMMTANIR
22.00 Harmonikuball/Sjómanna-
dagsball verður í Glæsibæ við Álf-
heima.
22.00 Dúettinn Sessý og Sjonni
leikur á Hótel Barbró, Akranesi.
Dj Nonni 900 og Áki pain á Pravda.
Hljómsveitin Karma skemmtir á
Oddvitanum á Akureyri með söngv-
arann Labba úr Mánum í farabroddi.
Atli skemmtanalögga á Traffic í
Keflavík.
Hljómsveitin Logar frá Vestmanna-
eyjum verður með stórdansleik í
Klúbbnum við Gullinbrú.
Hljómsveitin Tilþrif skemmtir í Vél-
smiðjunni á Akureyri.
Skítamórall skemmtir á Sjallanum,
Akureyri.
■ ■ ÚTIVIST
13.00 Menningarganga Birnu
Þórðardóttur á Blómadegi Skóla-
vörðustígsins hefst frá Skólavörðu-
holti.
■ ■ SAMKOMUR
14.00 Tilfinningatorgið verður í
garðinum á bak við Hressó til klukk-
an 18.
20.30 Hjörleifur Hjartarson og Íris
Ólöf Sigurjónsdóttir efna til
söngvöku í Minjasafninu á Akureyri.
Blómadagurinn verður haldinn í
annað sinn á Skólavörðustígnum
og mun þessi gata blóma, menning-
ar, handverks, hönnunar, sælkera og
heilsufæðis skarta sínu fegursta í
sumarbyrjun. Dyr verða opnar fyrir
gestum og gangandi til kl. 17.
■ ■ FÉLAGSLÍF
11.30 Áhugamannafélagið París
verður með félagsfund á Kringlu-
kránni.
■ ■ LISTAHÁTÍÐ
17.00 Pacifica kvartettinn leikur í
Hömrum, Ísafirði.
20.00 Söngkonan Anne Sofie von
Otter kemur fram í Háskólabíói
ásamt Bengt Forsberg píanóleikara.
■ ■ BJARTIR DAGAR
12.30 Dagur lúðrasveitanna í
Hafnarfirði hefst á því að lúðrasveitir
leika á ýmsum stöðum í miðbæ
Hafnarfjarðar.
14.00 Skógrækt í Undirhlíðum í
boði Skógræktarfélags Hafnarfjarðar.
Mæting við Kaldársel. Leiðsögumað-
ur er Jónatan Garðarsson.
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
1 2 3 4 5 6 7
Laugardagur
JÚNÍ
STÓRA SVIÐ
99% UNKNOWN - Sirkussýning
CIRKUS CIRKÖR frá SVÍÞJÓÐ
Þri 14/6 kl 20, Mi 15/6 kl 20, Fi 16/6 kl 20,
Fö 17/6 kl 20 Aðeins þessar sýningar
25 TÍMAR
Dansleikhús / samkeppni LR og Íd í samstarfi
við SPRON. Fi 9/6 kl 20 - 2.500,-
Einstakur viðburður
KALLI Á ÞAKINU
e. Astrid Lindgren
Í samstarfi við Á þakinu
Í dag kl 14 UPPS., Su 5/6 kl 14 - UPPS.,
Su 12/6 kl 14 UPPS, Su 12/6 kl 17,
Lau 18/6 kl 14, Su 19/6 kl 14 - UPPS.,
Su 26/6 kl 14, Lau 9/7 kl 14, Su 10/7 kl 14,
Su 17/7 kl 14, Su 24/7 kl 14
NÝJA SVIÐ/LITLA SVIÐ/ÞRIÐJA HÆÐIN
ALVEG BRILLJANT SKILNAÐUR
Einleikur Eddu Björgvinsdóttur.
Í kvöld kl 20, Su 5/6 kl 20, Fi 9/6 kl 20,
Fö 10/6 - UPPS., kl 20, Lau 11/6 kl 20,
Þri 14/6 kl 20, Fi 16/6 kl 20, Lau 17/6 kl 20,
Su 18/6 kl 20
Síðustu sýningar
Börn 12 ára og yngri fá frítt í
Borgarleikhúsið í fylgd
fullorðinna
- gildir ekki á barnasýningar
Miðasölusími 568 8000
midasala@borgarleikhus.is
Miðasala á netinu www.borgarleikhus.is
Miðasalan í Borgarleikhúsinu er opin:
10-18 mánudaga og þriðjudaga, 10-20
miðviku-, fimmtu- og föstudaga
12-20 laugardaga og sunnudag
Hátíð hafsins hefst þegar fjöldi
skipa í Reykjavíkurhöfn flautar
inn hátíðina á slaginu 10 í dag. Há-
tíðin er haldin í tilefni af sjó-
mannadeginum, sem er farinn að
breiða svolítið úr sér því hátíðin
verður bæði á laugardegi og
sunnudegi.
Margt verður til gamans gert,
meðal annars verður haldin dorg-
veiðikeppni á hafsögupramman-
um í Suðurbugt, áhafnir skipa
fara í knattspyrnukeppni og reip-
tog á Þróttarvellinum í Laugardal,
siglingakeppni Brokeyjar verður
ræst með fallbyssuskoti og sett
verður á laggirnar flöskuskeyta-
smiðja í tjaldi á hafnarbakkanum
þar sem myndlistarkonan Helga
Katrín Hjálmarsdóttir aðstoðar
fólk við að búa til flöskuskeyti.
Þegar skeytin eru tilbúin verður
siglt með þau út á Sundin og flösk-
unum kastað út í hafsauga.
Sjóminjasafn Íslands verður
einnig opnað í dag að Grandagarði
8. Fyrsta sýning safnsins er
helguð hundrað ára afmæli
togaraveiða á Íslandi því nú í ár
eru liðin hundrað ár frá því fyrsti
togarinn, Coot, kom til landsins.
Togarar höfðu geysimikil áhrif á
atvinnulíf og hagkerfi landsins og
verður þeirri sögu gerð góð skil á
sýningunni.
Á Miðbakkanum í Reykjavík
verða ennfremur opnaðar fjórar
sýningar. Ein þeirra er skrautlegt
safn fiska sem Hafrannsóknar-
stofnun hefur safnað undanfarnar
vikur. Hinar þrjár eru ljósmynda-
sýningar.
„Höfnin og hernámið“ nefnist
sýning á ljósmyndum sem sýna
hlutverk Reykjavíkurhafnar á
hernámsárunum. „Fiskisagan
flýgur“ er sýning á svarthvítum
ljósmyndum Kristins Benedikts-
sonar, sem hann tók bæði úti á sjó
og í sjávarplássum víða um land
á áttunda áratug síðustu aldar.
Loks verður opnuð sýningin
„Ljósmyndir við sjóinn“ sem er
sérstæð og falleg sýning á ljós-
myndum sem grunnskólabörn
hafa tekið. Fjölmargt fleira verð-
ur í boði bæði í dag og á morgun,
en í kvöld verður haldið glæsilegt
sjómannahóf á Broadway þar
sem um þúsund manns mæta í
mat og skemmta sér á dansleik
við undirleik Milljónamæring-
anna. ■
JAKOB SMÖRREBRÖDSJOMFRU OG SIGURÐUR
FLOSASON TÓNLISTARMAÐUR Sigurður ríður á
vaðið síðdegis í dag og spilar eðaldjass með kvartett
sínum í bakgarði Jómfrúarinnar í Lækjargötu.
FRÁ HÁTÍÐINNI Í FYRRA Hátíð hafsins verður haldin í Reykjavík núna um helgina í tilefni af sjómannadeginum á morgun.