Fréttablaðið - 13.06.2005, Page 8
13. júní 2005 MÁNUDAGUR
MENNTASKÓLINN
VIÐ SUND
S é r h æ f ð u r b ó k n á m s s k ó l i
Í tilefni af innritun verða opnir dagar í Mennta-
skólanum við Sund dagana 13. og 14. júní frá
kl. 8.10 til kl. 19.00 báða dagana.
• NÁMSFRAMBOÐ
Gestum gefst kostur á að fræðast um skólann,
skoða sig um og kynna sér námsframboðið.
• RAFRÆN INNRITUN
Stjórnendur og námsráðgjafar verða til viðtals
og veita nemendum aðstoð við val og innritun.
Rafrænni innritun lýkur á miðnætti 14.júní.
VERIÐ VELKOMIN
Menntaskólinn við Sund | Gnoðarvogi 43 | 104 Reykjavík
sími: 580 7300 | www.msund.is
Opnir
dagar
A
4
H
Ö
N
N
U
N
A
R
S
T
O
FA
/
H
G
M
SAMGÖNGUR Rannsóknir verða gerð-
ar á íslenska vegakerfinu í sumar út
frá alþjóðlegum vegaöryggisstaðli
EuroRAP. „Þetta er alþjóðlegur
öryggisstaðall byggður á stöðluðu
kerfi um mat á öryggi vega. Hann
byggist á því að meta umhverfi,
mannvirki og annað sem tengist ör-
yggi vegarins,“ segir Runólfur
Ólafsson, framkvæmdastjóri FÍB.
Fulltrúar frá EuroRAP koma
hingað til lands og hafa umsjón með
athugunum. Til að byrja með verða
gerðar athuganir á helstu vegum í
um 50 km radíus frá höfuðborgar-
svæðinu. „Hugmyndafræðin með
EuroRAP er sú að við sem neytend-
ur getum haft hugmynd um aðstæð-
ur á þeim vegum sem við keyrum á,
þetta er því verkfæri fyrir hinn al-
menna neytanda og eins viðmiðun-
arstaðall fyrir vegagerðarmenn,
annars vegar milli svæða og hins
vegar milli landa,“ segir Runólfur.
Íslenskum vegum verða síðar
gefnar stjörnur frá einni upp í fjór-
ar eftir öryggi út frá EuroRAP.
Fyrstu niðurstöður rannsóknanna
verða birtar í haust.
- ifv
DÓMSTÓLAR Áfrýjað hefur verið til
Hæstaréttar dómi Héraðsdóms
Reykjavíkur í máli Japan Tobacco
og tóbaksverslunarinnar Bjarkar
frá því í lok apríl. Í honum var
hafnað kröfum um að stilla mætti
út tóbaksvörum í versluninni og
um að tóbaksframleiðandinn
mætti birta upplýsingar um
tóbaksvarning sinn, svo sem um
útlitsbreytingar pakkninga eða
breytingar á tóbaksblöndun.
Hróbjartur Jónatansson, lög-
maður fyrirtækjanna, telur ein-
stakt að sett hafi verið á sam-
skiptabann fyrirtækja og markað-
ar líkt og gert var með tóbaksvarn-
arlögum. Hann segir Evrópureglur
kveða á um að taka þurfi tillit til
viðskiptahagsmuna og hugverka-
réttinda við takmörkun á sölu og
dreifingu, en áréttar að fyrirtækið
sé ekki að mótmæla gildandi banni
á tóbaksauglýsingum.
Um miðjan maí var ríkið
einnig sýknað af kröfum tóbaks-
framleiðandans British American
Tobacco þar sem kröfur voru
áþekkar og hjá Japan Tobacco.
Jakob R. Möller, lögmaður fyrir-
tækisins, segir ekki búið að taka
ákvörðun um hvort því máli verði
áfrýjað, en fyrirtækið fékk þýdd-
an dóminn fyrst í hendur í byrjun
vikunnar.
- óká
Alþjóðlegur öryggisstaðall fvrir vegi:
Meta íslensku fljó›vegina
EURORAP Bíll líkur þessum., Mercedes Benz A-150, verður notaður við vegamat EuroRAP.
Japan Tobacco og verslunin Björk gegn ríkinu:
Tóbaksdómur fyrir Hæstarétt
Í TÓBAKSVERSLUNINNI BJÖRK Sölvi Óskarsson í tóbaksversluninni Björk við Bankastræti þarf að draga tjald fyrir hluta varningsins sem
hann hefur að bjóða í verslun sinni til að forðast brot á tóbaksvarnarlöggjöf.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA