Fréttablaðið - 24.06.2005, Blaðsíða 2
2 24. júní 2005 FÖSTUDAGUR
Fyrrverandi Klu Klux Klan-maður sýndi enga iðrun:
Fær sextíu ára fangelsisdóm
FÍLADELFÍA, AP Edgar Ray Killen
fékk í gær sextíu ára fangelsis-
dóm, tuttugu ár fyrir hvert
mannsdrápanna þriggja sem hann
var sakfelldur fyrir á þriðjudag.
Killen var talinn hafa leitt hóp Klu
Klux Klan-manna sem myrtu þrjá
baráttumenn fyrir mannréttind-
um árið 1964.
Sjö af samverkamönnum
Killen voru dæmdir fyrir morð-
in árið 1967, en enginn þeirra sat
lengur inni en sex ár. Killen, sem
var prestur, var ekki sakfelldur
þá þar sem einn kviðdómend-
anna sagðist ekki geta sakfellt
prest.
Killen sýndi engin svipbrigði
þegar dómurinn var lesinn upp.
Karlmennirnir sem voru myrt-
ir voru allir í kringum tvítugt.
Tveir þeirra höfðu sérstaklega
ferðast frá New York til Miss-
issippi til að hjálpa blökkumönn-
um að skrá sig sem kjósendur.
Morðin á þremenningunum
vöktu mikinn óhug í Bandaríkjun-
um og ýttu undir það að löggjöf
sem staðfesti borgaraleg réttindi
blökkumanna var samþykkt sama
ár. Myndin „Missisippi Burning“
frá árinu 1988 var byggð á atburð-
unum. - grs
Formaður Verslunarráðs Íslands:
Ekki næg tengsl milli valds og ábyrg›ar
EFNAHAGSMÁL Þór Sigfússon,
framkvæmdastjóri Verslunar-
ráðs Íslands, segir að niðurstaða
Ríkisendurskoðunar um fjárlög
2004 veki upp spurningar um
tengsl valds og ábyrgðar hjá
forstöðumönnum ríkisstofnana.
„Það er búið að færa valdið
meira og meira til yfirmanna og
forstöðumanna en ábyrgðin
hefur ekki flust með,“ segir Þór.
Hann segir að þótt ný lög um
opinbera starfsmenn eigi að gefa
svigrúm til aukins aðhalds virð-
ist sem það hafi ekki verið nýtt
og forstöðumenn geti óáreittir
farið fram úr fjárheimildum ár
eftir ár. Þetta hefur að mati Þórs
mjög slævandi áhrif á aðra for-
stöðumenn sem vilja kappkosta
að halda sig innan heimilda.
„Það er efnahagsuppgangur
hér heima en það getur ekki
þýtt það að þjóðin hafi efni á því
að þetta stærsta fyrirtæki
landsins sé rekið þannig að það
fari langt út fyrir áætlanir,“
segir Þór. - þk
FRAMHALDSSKÓLAR Álíka margir
nýir nemendur sækja um að kom-
ast í framhaldsskóla nú og á síð-
asta ári, en sá árgangur var mjög
stór og erfitt var að finna öllum
stað í kerfinu. Nokkrir skólar hafa
nú þegar lokið öllum nýskráning-
um, en það eru þeir skólar sem
mest ásókn var í og fylltust í
fyrstu skráningalotu.
Óvenju mikil aðsókn var að
Verzlunarskóla Íslands, en 560
sóttu um hann sem aðalskóla. Af
þeim fengu hins vegar aðeins 340
skólavist og rúmlega hundrað
fleiri nemendum var vísað frá en
í fyrra. Aðrir fimmhundruð nem-
endur sem valið höfðu skólann til
vara áttu því enga von um að kom-
ast að. Aðstoðarskólastjóri Verzl-
unarskólans taldi sennilegt að
þetta væri mesta aðsókn í sögu
skólans. Á síðasta ári var aðeins
um hundrað vísað frá.
Kvennaskólinn þurfti að vísa
frá yfir helmingi umsækjenda. 256
sóttu um skólann sem fyrsta val en
aðeins var tekið við 135 nýnemum.
Þegar tekið er tillit til vara-
umsókna sem skól-
anum bárust hefur alls 187 um-
sóknum verið hafnað. Óvenju-
margir voru teknir í Kvennaskól-
ann á síðasta ári og því komust
færri að í ár.
Menntaskólinn í Reykjavík og
Menntaskólinn við Hamrahlíð höfðu
einnig lokið nýskráningum í gær.
Rafrænt innritunarkerfi fyrir
þá sem voru að ljúka grunnskóla
virðist almennt gefa góða raun.
Fljótlegt er að senda umsóknir
þeirra sem ekki komust inn í fyrsta
valskóla yfir á næsta skóla og betri
yfirsýn fæst yfir skráningarstöð-
una í heild. Einn skólastjórnandi
segist þó sakna þess að fá ekki
meiri upplýsingar um nemendur,
eins og til dæmis um skólasókn.
Aðrir skólar ljúka nýskráning-
um á næstunni. Þótt álíka margir
sæki um skólavist og á síðasta ári
er ástandið þó ekki jafn erfitt.
Vonast er til að allir sem þess óska
komist í framhaldsnám.
grs@frettabladid.is
Sparisjóður Skagafjarðar:
Deilurnar
lag›ar ni›ur
VIÐSKIPTI „Við erum ágætlega
sáttir við þessa niðurstöðu. Menn
töluðu í þá átt að vinna saman og
halda áfram á uppbyggingar-
braut,“ segir Valgeir Bjarnason,
en hann var í gær kosinn í stjórn
Sparisjóðs Skagfirðinga á aðal-
fundi.
Deilur hafa verið í stjórn
sparisjóðsins vegna sölu Kaupfé-
lags Skagfirðinga á stofnfé til
tengdra aðila og ákvörðunar um
fjórföldun stofnfjár.
Vildu gömlu stofnfjáreigend-
urnir ógilda gjörningana fyrir
dómi, sem KS-menn féllust ný-
lega á.
Á aðalfundinum í gær var
ákveðið að tvöfalda stofnféð og
að fylkingarnar fengju hvor tvo
menn í stjórn.
Gísli Kjartansson, í Sparisjóði
Mýrarsýslu, er formaður stjórn-
arinnar og oddamaður. – bg
33 ára maður:
Situr inni í
18 mánu›i
DÓMSTÓLAR Í dómi Héraðsdóms
Reykjavíkur á þriðjudag var 33
ára gamall maður dæmdur í 18
mánaða fangelsi.
Enn fremur var áréttuð ævi-
löng ökuréttarsvipting yfir hon-
um og einnig gert upptækt bit-
vopn og tæplega eitt og hálft
gramm af amfetamíni sem á hon-
um fannst.
Maðurinn reyndi í september í
fyrra að ræna Péturspöbb á
Höfðabakka með táragasbrúsa.
Auk þess ók hann bifreiðum án
tilskilinna ökuréttinda og undir
áhrifum amfetamíns og sljóvg-
andi lyfja við ýmis tækifæri. Þar
við bætist að hann sveik út vörur
hjá þremur fyrirækjum í borg-
inni, einu þarf hann að greiða
rúmlega 200.000 króna bætur. -óká
Hlutafjárútboð Actavis:
Mikil
eftirspurn
VIÐSKIPTI Mikil eftirspurn var eftir
bréfum sem í boði voru til kaups í
forgangsréttarútboði Actavis
Group sem lauk í gær.
Alls voru boðnir til sölu rúm-
lega 543 milljón hlutir á verðinu
38,50 kr. á hlut, eða að andvirði
20,9 milljarðar króna. Alls tóku
þátt hluthafar sem eiga 96,1 pró-
sent hlutafjár og óskuðu þeir alls
eftir nær 795 milljónum hluta að
andvirði 30,6 miljarðar króna. Það
samsvarar 46,2 prósenta um-
framáskrift eftir þeim hlutum
sem í boði voru eða 9,7 milljörðum
meira en var til sölu.
- hh
LÖGREGLA
HANDTEKINN MEÐ KANNABISEFNI
Lögreglan í Borgarnesi handtók
mann á þrítugsaldri eftir að lítið
magn af kannabisefnum fannst í
bíl hans í fyrrinótt. Hann var
stöðvaður á þjóðveginum rétt
fyrir utan bæinn við venjubundið
eftirlit en þegar lögreglu grunaði
hann um að vera undir áhrifum
fíkniefna hóf hún leit í bílnum.
Honum var sleppt að lokinni yfir-
heyrslu og málið telst upplýst.
FRAMLENGT VARÐHALD Gæslu-
varðhald yfir bresku pari, sem
talið er hafa stolist úr landi með
Norrænu með tvo bílaleigubíla
með sér auk meintra fjársvika
hér, var í Héraðsdómi Reykjavík-
ur í gær framlengt til 30. júní. Í
ljós hefur komið að vegabréf
mannsins var falsað.
MENNTASKÓLINN Í KÓPAVOGI Stjórnendur
skólans hafa náð tökum á margra ára rekstr-
arvanda en skólinn hefur stækkað mjög ört.
Fjárhagsvandi MK:
Hefur komist
fyrir vandann
SKÓLAMÁL Menntaskólinn í Kópa-
vogi hefur náð tökum á langvar-
andi rekstrarhalla sem rekja má
allt aftur til ársins 1996 og hefur
síðustu ár verið afgangur af
rekstri skólans. Þetta kemur fram
í greinargerð Ríkisendurskoðunar
um fjárlög ársins 2004.
Menntaskólinn óx mun hraðar
en gert var ráð fyrir í fjárlögum.
Frá árinu 1998 hafa húsnæði og
nemendafjöldi skólans rúmlega
tvöfaldast.
Ríkisendurskoðun segir enn
fremur nauðsynlegt að samkomu-
lag náist milli skólans og mennta-
málaráðuneytisins um úrlausn á
uppsöfnuðum halla sjóðsins gagn-
vart ríkissjóði frá fyrri árum. - grs
SPURNING DAGSINS
Jóhann, er flér illa vi› síma?
„Nei, og ég vil ekki selja hann. En síma-
staurar eru úrelt fyrirbæri sem eiga ekkert
erindi hér lengur.“
Jóhann Sveinbjörnsson er fallbyssumeistari á
Seyðisfirði. 17. júní hæfði fallbyssuskot hans
gamlan símastaur í bænum.
GAGNRÝNIR HIÐ OPINBERA Þór Sigfússon telur að tengslin milli valds og ábyrgðar séu
ekki nægilega sterk í opinberum stofnunum.
Á LEIÐ Í RÉTTARSALINN Killen er átt-
ræður og ófær um að ganga.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
P
Hundru›um nema
synja› um skólavist
Fjórir framhaldsskólar hafa flegar loki› n‡skráningum. Meta›sókn var a›
Verzlunarskóla Íslands og Kvennaskólinn flurfti a› vísa frá yfir helmingi um-
sækjenda. N‡tt rafrænt skráningarkerfi vir›ist gefa gó›a raun.
VERZLUNARSKÓLI ÍSLANDS Sennilega er þetta mesta aðsókn í sögu skólans.
KVENNASKÓLINN Tæplega helmingi þeirra sem sóttu um hann sem fyrsta skóla þurfti að
vísa frá.