Fréttablaðið - 24.06.2005, Side 6

Fréttablaðið - 24.06.2005, Side 6
6 24. júní 2005 FÖSTUDAGUR Ræningjar eru aðsópsmiklir þessa dagana: Starfsfólki ógna› me› steikarhnífi LÖGREGLUMÁL Vopnað rán og til- raun til annars slíks voru gerð á höfuðborgarsvæðinu í fyrra- kvöld. Á ellefta tímanum í fyrrakvöld ógnaði ung kona afreiðslustúlku á veitingastaðnum American Style við Nýbýlaveg með steikarhnífi og krafðist peninga. Afgreiðslu- stúlkan forðaði sér inn í eldhús. Konan gerði þá sjálf tilraunir til að opna sjóðvélar staðarins en þær misheppnuðust með öllu. Starfsmenn hringdu strax í lög- reglu en konan var horfin þegar lögregla kom á vettvang. Lögreglan í Kópavogi telur líklegast að konan hafi fengið hnífinn á staðnum. Um það bil hálftíma síðar var gerð sams konar tilraun í Lyfju við Lágmúla en þá var árásarkon- an vopnuð sprautunál. Hún náði nokkru magni af lyfseðilskyldum lyfjum og var horfin þegar lög- reglumenn komu að. Lögreglan í Reykjavík handtók í gærdag konu um tvítugt sem grunuð er um ránið í Lyfju en ekki fæst gefið upp að svo stöddu hvort hún sé einnig grunuð um ránstilraunina á American Style. Jafnframt handtók lögreglan í Reykjavík karlmann sem grunað- ur er um rán á rítalíni og öðrum lyfjum í Lyfju við Háaleitisbraut síðasta föstudag en hann var einnig vopnaður sprautunál. -jse Pólverjar sem komu til landsins fyrir tilstuðlan Geymis ehf.: Komnir me› öll tilskilin leyfi ATVINNUMÁL „Ég er kominn með alla pappíra og leyfi og þessir menn eru nú starfandi fyrir mig á löglegan hátt,“ segir Sverrir Pétur Pétursson, málarameistari og eigandi SPP Málunar ehf. Fjórir af þeim Pólverjum sem hingað komu fyrir tilstuðlan Geymis og störfuðu án heimilda og á lágum launum voru á mála hjá SPP Málun. Sverrir fullyrðir að hann hafi á engan hátt komið að launasamningum eða kjaravið- ræðum við mennina fjóra. „Það fór alfarið í gegnum Geymi og ég forvitnaðist ítrekað um hvort ekki hefði verið gengið frá öllum leyfum og launum og mér var aftur og aftur tjáð að svo væri.“ Hann segist hins vegar hafa komist að því að skömmum tíma liðnum að ekki væri allt með felldu. Þá varð gerð gangskör að því að bæta úr því sem þurfti og fékk fyrirtækið aðstoð til þess arna. „Þessir menn eru aftur komnir til starfa hjá mér og ég hef fengið fyrir þá tilskilin leyfi og málinu því vonandi lokið hvað þá snertir.“ -aöe fir‡st á um Va›lahei›argöng Ákve›i› hefur veri› a› breyta undirbúningsfélagi vegna Va›lahei›arganga í framkvæmdafélag og stór- auka hlutafé. A›standendur verkefnisins segja fjármálastofnanir áhugasamar um fjármögnun en eftir á a› semja vi› samgönguyfirvöld. JARÐGANGAGERÐ Á aðalfundi Greiðrar leiðar á Akureyri síðast- liðinn miðvikudag var samþykkt að breyta félaginu úr undirbún- ingsfélagi vegna Vaðlaheiðar- ganga við Eyjafjörð í fram- kvæmdafélag. Jafnframt var ákveðið að auka hlutafé félagsins úr 4,4 milljónum króna í allt að 100 milljónir króna. Pétur Þór Jónasson, stjórnarformaður Greiðrar leiðar, segir að fram- kvæmdin hafi verið kynnt fyrir samgönguyfirvöldum og í sumar muni félagið óska eftir formleg- um viðræðum við Sturlu Böðvars- son samgönguráðherra um að- komu ríkisins að verkefninu. „Stjórn félagsins hefur rætt við fjármálastofnanir um hugsanlega fjármögnun Vaðlaheiðarganga og lýstu þær allar yfir miklum áhuga á að koma að verkefninu,“ segir Pétur Þór. Áætlanir Greiðrar leiðar gera ráð fyrir að heildarkostnaður við sjö kílómetra löng göng undir Vaðlaheiði verði rúmir fjórir milljarðar króna. Fram til þessa hafa undirbúningsrannsóknir verið kostaðar af Kaupfélagi Ey- firðinga en auk þess samþykkti stjórn KEA í fyrra að leggja Greiðri leið til allt að 100 milljón- ir króna eftir að félaginu hefði verið breytt í framkvæmdafélag, eins og nú er búið að gera. Í rekstrarlíkani sem forsvars- menn Greiðrar leiðar hafa unnið með vegna fjármögnunar og reksturs ganganna er gert ráð fyrir um 500 milljóna króna stofn- framlagi frá ríkinu til gerðar Vaðlaheiðarganga, jafnframt því sem virðisaukaskattur verði felld- ur niður með sama hætti og gert var við gerð Hvalfjarðarganga. Í næsta mánuði hefst undir- búningur rannsóknarborana sem varpa eiga ljósi á jarðlögin í heið- inni og gert er ráð fyrir að jarð- fræðiskýrsla vegna útboðs verði tilbúin í febrúar á næsta ári. „Að fenginni þeirri skýrslu munum við taka upp viðræður við land- eigendur á því svæði þar sem göngin verða byggð,“ segir Pétur Þór. Samkvæmt nýjum tilgangi félagsins mun Greið leið standa fyrir kynningarstarfi, áætlana- gerð, jarðfræðirannsóknum, um- hverfismati og samningum við ríki og fjárfesta vegna Vaðlaheið- arganga. „Greið leið mun jafn- framt fjármagna gerð ganganna og reka þau með innheimtu veggjalda en við reiknum með að veggjöldin verði helmingi lægri en þau sem nú eru innheimt af vegfarendum um Hvalfjarðar- göng. Eftir að öll lán vegna fram- kvæmdanna verða greidd upp, og hlutafé hefur verið greitt til baka til eigenda með hæfilegri ávöxt- un, mun Greið leið afhenda ríkis- sjóði göngin,“ segir Pétur Þór. kk@frettabladid.is Stjórnsýslukvörtun: Vilja stö›va skólameistara MENNTAMÁL Félag framhaldsskóla- kennara hefur lagt fram stjórn- sýslukvörtun við menntamála- ráðuneytið fyrir hönd Ingibjargar Ingadóttur, enskukennara við Menntaskólann á Ísafirði. Aðalheiður Steingrímsdóttir, formaður félagsins, segir Ólínu Þorvarðardóttir, skólameistara MÍ, hafa farið gróflega út fyrir valdsvið sitt þegar hún ákvað á dögunum að óháður aðili ætti að endurfara yfir próf Ingibjargar án þess að kvörtun hefði borist. Hún vill að ráðuneytið stöðvi Ólínu í tilraunum sínum til að bola Ingibjörgu frá skólanum. ■ Geisladiskar heimsins: firi›jungur ólöglegur MADRÍD, AP Hópur tónlistarútgef- enda hefur gefið út skýrslu þar sem því er haldið fram að einn af hverjum þremur tónlistargeisla- diskum sem seldust í heiminum á síðasta ári hafi verið útgefinn í trássi við lög um höfundarrétt. Í þessari sömu skýrslu kemur fram að tónlistariðnaðurinn hafi orðið af 4,6 milljörðum Banda- ríkjadala á síðasta ári, um 300 milljörðum íslenskra króna, og í 31 landi sé markaður fyrir ólög- legar útgáfur stærri en markað- urinn fyrir þær löglegu. Stærsti markaðurinn fyrir sjó- ræningjadiska er í Kína en þar er talið að um 85 prósent af seldum geisladiskum séu ólöglegir. Lítið er um sölu sjóræningja- diska hérlendis og hefur Íslendingur verið hrósað fyrir vikið. ■ Verður Alfreð Þorsteinsson góður forseti borgarstjórnar? SPURNING DAGSINS Í DAG: Hefur ASÍ farið offari í máli pólsku verkamannanna sem vinna fyrir Geymi ehf.? Niðurstöður gærdagsins á visir.is 55,36% 44,64% Nei Já Farðu inn á fréttahluta visir.is og segðu þína skoðun KJÖRKASSINN KOMNIR AFTUR TIL VINNU Hluti þeirra Pólverja sem hingað komu gegnum Geymi ehf. hefur fengið atvinnuleyfi og munu starfa hér áfram. Myndin tengist fréttinni ekki. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M AÐALFUNDARFULLTRÚAR Þrjátíu hluthafar eiga hlut í Greiðri leið. Stærstu hluthafar eru Akureyrarbær, 35,91 prósent, KEA, 22,67 prósent, og Þingeyjarsveit, 11,33 prósent. Aðrir hluthafar eiga allir innan við 10 prósenta hlut hver. AKUREYRI SÉÐ ÚR VAÐLAHEIÐI Gangamunninn að vestanverðu verður að líkindum nálægt þessum stað en áður en það verður ákveðið endanlega þarf að gera rannsóknar- boranir sem ásamt annarri gagnavinnslu kostar allt að 60 milljónir króna. AMERICAN STYLE Misheppnuð tilraun var gerð til að ræna staðinn í fyrrakvöld.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.