Fréttablaðið - 24.06.2005, Page 8
24. júní 2005 FÖSTUDAGUR
Ófri›arbáli› í Írak
vir›ist óslökkvandi
Ekkert lát er á vargöldinni í Írak en sí›astli›inn hálfan annan sólarhring
hafa tæplega fjörutíu manns be›i› flar bana. Seti› er um líf fleirra súnnía
sem vilja taka flátt í stjórnmálauppbyggingu landsins.
ÍRAK Tæplega fjörutíu manns fór-
ust í hryðjuverkaárásum víðs
vegar í Írak síðastliðinn sólar-
hring, þar á meðal virtur laga-
prófessor úr röðum súnnía sem
hafði lýst áhuga á að taka þátt í
samningu stjórnarskrár landsins.
Ekkert lát er því á ofbeldisverk-
um í landinu.
Seint í fyrrakvöld sprungu
fjórar bílsprengjur í Shula-hverf-
inu í Bagdad með þeim afleiðing-
um að 23 týndu lífi. Í gærmorgun
voru svo tvær bílsprengjuárásir
gerðar fyrir utan jafn margar
moskur í Karradah-hverfinu í
höfuðborginni. Sprengjurnar
sprungu nánast samtímis og biðu
fimmtán manns bana af þeirra
völdum en 28 særðust.
Árásirnar eiga það sammerkt
að vera allar gerðar í hverfum
sem einkum eru byggð sjíum og
framdar um það leyti sem flest
fólk er á götunum. Tilræðin í
Shula voru gerð rétt áður en út-
göngubannið tók gildi og því voru
margir á leið heim úr verslunum
og af veitingingahúsum. Karra-
dah-sprengjurnar sprungu hins
vegar snemma morguns þegar
margt fólk kaupir inn áður en
kæfandi hitinn færist yfir borg-
ina.
Samtökin Ansar al-Sunnah,
sem í eru súnníarabar og Kúrdar,
kváðust í yfirlýsingu á netinu
hafa staðið á bak við tilræðin í
fyrrakvöld.
Á miðvikudagskvöldið var svo
Jassim al-Issawi, lagaprófessor
úr hópi súnnía, skotinn til bana,
en hann hafði sóst eftir því að fá
að taka þátt í að semja stjórnar-
skrá landsins. Morðið var aug-
ljóslega framið til að fæla súnnía
frá því að taka þátt í stjórnmála-
uppbyggingu landsins. Ekki er
vitað hverjir bera ábyrgð á morð-
inu en al-Kaída í Írak hefur hótað
þeim súnníum dauða sem starfa
með ríkisstjórninni eða her-
námsliðinu.
1.240 Írakar hafa nú fallið í
átökum og tilræðum síðan ríkis-
stjórn Ibrahim al-Jaafari tók við
völdum. Rósturnar í landinu hafa
þannig aukist þvert á það sem
búist var við.
Samtök á borð við al-Kaída eru
vissulega ábyrg fyrir mörgum
dauðsfallanna en jafnframt
vegur þungt að óánægja súnnía
með hlut sinn í stjórn landsins
hefur vaxið stöðugt. Þeir höfðu
töglin og hagldirnar í stjórn
landsins þar til Saddam Hussein
var steypt af stóli en síðan hefur
hallað undan fæti. Atvinnuleysi í
landinu er ennþá mikið og upp-
byggingin hefur gengið hægar
fyrir sig en reiknað er með – ekki
síst vegna ótrausts öryggis-
ástands. Ástandið leiðir aftur á
móti til þess að æsingamenn
finna frjóan jarðveg í röðum
þeirra sem óánægðastir eru með
sinn hag. Þar með hefur myndast
vítahringur sem erfitt er fyrir
landsmenn að losna út úr.
sveinng@frettabladid.is
Leiðari sænska Aftonbladet:
Skammar norræna rá›herra
STJÓRNMÁL Utanríkisráðherrar
Norðurlandanna hittust í Brussel
á þriðjudag vegna ráðstefnu Evr-
ópusambandsins um ástandið í
Írak. Í kjölfar fundarins skrifuðu
utanríkisráðherrarnir grein í
Svenska Dagbladet þar sem þeir
lýstu sameiginlegri skoðun sinnu
um að standa skuli mynduglega að
uppbyggingu lýðræðis í Írak. Í
greininni stendur að enginn hafi
efni á því að uppbygging í Írak
mistakist.
Í gær birtist svo leiðari í
sænska blaðinu Aftonbladet þar
sem þessi grein utanríkisráðherr-
anna er gagnrýnd harðlega. Í leið-
aranum segir að þótt utanríkis-
ráðherrarnir impri mikið á örygg-
isvandanum sem nú er í Írak og
tali fullum hálsi um harðæri í
landinu í meira en tuttugu ár sé
ekki minnst einu orði á ólöglegt
stríð Bandaríkjamanna í Írak. Í
leiðaranum segir að utanríkisráð-
herrarnir taki upp málstað Banda-
ríkjastjórnar án nokkurrar gagn-
rýni, kokgleypi áróður Bush-
stjórnarinnar og hundsi aðrar
upplýsingar.
-oá
DAVÍÐ ODDSSON Utanríkisráðherrar
Norðurlandanna skrifuðu sameiginlega
grein í Svenska Dagbladet þar sem þeir
lýstu yfir samstöðu um uppbyggingu í Írak.
STÖÐUG SORG Ættingjar Jassim al-Issawi, lagaprófessorsins sem myrtur var fyrir að vilja taka þátt í samningu stjórnarskrár Íraks, voru að
vonum miður sín út af morðinu. Þúsundir íraskra fjölskyldna hafa misst ástvini sína undanfarnar vikur.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
P