Fréttablaðið - 24.06.2005, Síða 20
Seltirningum gefst á morgun
kostur á að kjósa á milli tveggja
skipulagstillagna, H- og S-til-
lögu, um Hrólfsskálamel og
Suðurströnd.
Munurinn á tillögunum felst
aðallega í því að svokölluð H-til-
laga gerir ráð fyrir því að knatt-
spyrnuvöllurinn við Suður-
strönd verði færður að Hrólfs-
skálamel, þar sem Ísbjörninn
stóð þar til hann var rifinn í
fyrra. Þannig verði hægt að
koma fyrir íbúðarbyggð bæði að
Hrólfsskálamel og við Suður-
braut og byggja 130 nýjar íbúð-
ir. S-tillagan gerir ráð fyrir að
hafa völlinn á sama stað og að 90
nýjar íbúðir verði byggðar.
Halldór Árnason, sem starf-
aði með rýnihópnum sem lagði
tillögurnar fram, segir það
mikilvægt fyrir Seltirninga að
nýta landrými sitt vel til íbúðar-
byggðar svo íbúum bæjarins
fækki ekki frekar. Því styðji
hann H-tillöguna. Hann segist
gruna að andstaðan við þá til-
lögu komi helst frá einbýlis-
húsaeigendum í nágrenni malar-
vallarins sem af einhverjum
ástæðum óttist að fá fjölbýlis-
hús í grennd við sig.
Hann bendir á að tillaga um
að færa knattspyrnuvöllinn yfir
að Hrólfsskála hafi komið fram
á íbúaþingi fyrir þremur árum
og síðan verið samþykkt af
skipulagsnefnd, æskulýðs- og
íþróttaráði og svo bæjarstjórn.
Hann skilji því ekki andstöðuna
við þessa tillögu nú. Þá muni
gervigrasvöllur við Hrólfs-
skálamel einnig nýtast skóla-
börnum í Mýrarhúsaskóla.
Þór Whitehead, sagnfræðing-
ur og íbúi á Seltjarnarnesi, er
Halldóri ósammála um ágæti H-
tillögunnar. Hann telur að
skólakrakkar vilji heldur hafa
stórt graslendi við skólann sinn
en gervigrasvöll til að leika sér
á í frímínútum. Þór telur að
samkvæmt H-tillögunni verði
aðkoman að miðbænum afar ljót
þar sem gert sé ráð fyrir að sex
20 metra háir flóðljósaturnar og
26 metra langur veggur blasi
þar við. „Þá verður varla nokk-
urri verslun komið fyrir í nýja
hverfinu ef völlurinn verður á
Hrólfsskálamel. Hvað á þá að
gera ef Eiðistorgið rýmir ekki
þær verslanir sem þarf í fram-
tíðinni?“ spyr hann. Þór telur að
ef fótboltavöllurinn fari á
Hrólfsskálamel verði svo
þrengt að honum að uppbygging
við hann verði nær ómöguleg.
Því verði örugglega farið að
huga að því að færa hann þegar
þurfi að endurnýja gervigrasið,
sem endist í um tíu ár.
Þór telur því skynsamlegri
framtíðaráform að hafa völlinn
við Suðurströnd þar sem er nóg
pláss og kappleikir angra ekki
aldraða og aðra sem munu búa
að Hrólfsskálamel. Hann segist
enn fremur ekki sjá af hverju
gervigrasvöllurinn verði að
vera nálægt búningsaðstöðu.
„Ég sé ekki að íþróttafólkinu
sem mun nota þennan völl verði
skotaskuld úr því að skokka
nokkra tugi metra til að komast
á völlinn.“ Einnig telur hann að
ef menn vilji hafa búningsklef-
ana nær vellinum sé hægt að
koma þeim fyrir norðanmegin á
húsinu við hlið vallarins við
Suðurströnd.
Halldór svarar því aftur á
móti til að ekki sé þörf á pláss-
frekri uppbyggingu við
gervigrasvöllinn og að allir for-
ráðamenn Gróttu séu hlynntir
því að hafa völlinn á Hrólfs-
skálamel. Því þyki honum
einkennilegt að aðrir sem þekki
síður til reyni að hafa vit fyrir
þeim um íþróttauppbyggingu
félagsins.
H-tillaga
Gervigrasvöllur við Hrólfsskálamel
-gerir ráð fyrir fleiri íbúum
-samnýting íþróttavallar og leiksvæðis
skólabarna
-samnýting íþróttavallar og
íþróttahúss
S-tillaga
Gervigrasvöllur við Suðurströnd
-gerir aðkomuna að miðbænum mun
fallegri þar sem gert er ráð fyrir háum
veggjum og flóðljósum nálægt
miðbænum í H-tillögu
-eyðileggur minna af útivistarsvæðum
-mun meiri möguleikar á frekari
uppbyggingu við nýja gervigrasvöllinn
-minnkar umferð við skólasvæði
Seltirningar deila um skipulag
Styr stendur um tvær tillögur sem uppi eru um hva› skuli gera vi› svæ›i› á Seltjarnarnesi flar sem Ís-
björninn var á›ur. Íbúar kjósa um tillögurnar á morgun og bæjarstjórnin er bundin af ni›urstö›unni.
Í lok síðasta mánaðar ákvað bæjar-
stjórn Seltjarnarness að láta niður-
stöðu kosninganna sem fram fara á
morgun um skipulagsmál bæjarins
vera bindandi. Þessu hefur almennt
verið fagnað þar í bæ, ekki síst af
Magnúsi Erlendssyni, sem var forseti
bæjarstjórnar Seltjarnarness í áratug.
Af hverju eru þessar kosningar svo
mikið gleðiefni?
„Af því að þetta er íbúalýðræði í
sinni skýrustu mynd og aldrei áður
hefur neitt stjórnvald beitt þessu
áður líkt og við gerum. Þetta er því
lexía fyrir stóra bróður okkar hér í
grendinni um það hvernig skipulags-
mál og íbúalýðræði eiga að virka. Í
raun vonum við að öll bæjarfélög
læri af þessu.“
En verður sátt um niðurstöðuna
þó hún sé ákveðin af íbúum?
„Áratuga reynsla mín af Seltirning-
um er sú að þeir séu svo þroskaðir
og lýðræðislega sinnaðir að þeir
sætti sig við þá niðurstöðu sem úr
kosningunum kemur.“
MAGNÚS ERLENDSSON
FYRRVERANDI FORSETI
BÆJARSTJÓRNAR SELTJARNARNESS
Lexía fyrir
stóra bró›ur
ÍBÚALÝÐRÆÐI Á SELTJARNARNESI
SPURT & SVARAÐ
20 24. júní 2005 FÖSTUDAGUR
Á morgun verður kosið um skipulagsmál á
Seltjarnarnesi þar sem í boði eru tvær skipu-
lagstillögur. Önnur þeirra er kölluð H-tillagan
og gerir hún ráð fyrir fleiri íbúum en hin sem
kölluð er S-tillagan. Fylgismenn H-tillögurnar
hafa lagt áherslu á það að íbúum fjölgi á Sel-
tjarnarnesi en þar fækkaði íbúum á síðasta
ári enda er landsvæði af skornum skammti.
Hvernig hefur íbúaþróunin verið á Seltjarn-
arnesi?
Á fjórða áratug síðustu aldar hófst þéttbýlis-
myndun við Lambastaðahverfi á Seltjarnarnesi
en það er svæðið fyrir neðan Nesveg þar sem
keyrt er inn í bæinn frá Reykjavík.
Á sjötta áratugnum fór íbúunum að fjölga
verulega og náði þessi þróun hámarki árið
2000. Eftir það fór að að gæta stöðnunar
vegna skorts á byggingarsvæðum. Árið 2004
voru íbúarnir 4.547 og hafði fækkað lítillega
frá árinu áður.
Hver er saga Seltjarnarnessbæjar?
Sú var tíðin að umdæmi Seltjarnarness náði
yfir Reykjavík og Kópavog og alla leið að Blá-
fjöllum. Reykjavík fékk kaupstaðarréttindi árið
1786 og skar sig þá frá og Kópavogur sömu-
leiðis árið 1948. Árið 1974 fékk Seltjarnarnes
kaupstaðarréttindi en þá voru íbúarnir 2.500
talsins. Það má því segja að ekkert sveitar-
félag hafi misst jafn stórt og mikilvægt land-
svæði og Seltjarnarnes.
Hverjir ráða á Seltjarnarnesi?
Sigurgeir Sigurðsson sjálfstæðismaður var
ráðinn sveitarstjóri árið 1965 og kosinn til
embættisins ári síðar. Allar götur síðan hefur
Sjálfstæðisflokkurinn farið með stjórnar-
taumana. Sigurgeir varð fyrsti bæjarstjórinn
árið 1974 og hafði gegnt slíku starfi lengst
allra Íslendinga þegar hann ákvað að bjóða
sig ekki fram í síðustu sveitarstjórnarkosning-
um árið 2002.
Enginn misst jafn miki› land
FBL GREINING: ÍBÚAÞRÓUN Á SELTJARNARNESI
fréttir og fró›leikur
SVONA ERUM VIÐ
Íbúalýðræði í fyrsta sinn:
Tímamóta-
kosningar
SVEITARSTJÓRNARMÁL Niðurstöður
kosninganna á Seltjarnarnesi
sem fara fram á morgun um
skipulagsmál við Suðurströnd og
Hrólfsskálamel eru bindandi
fyrir bæjarstjórnina. Jónmund-
ur Guðmarsson bæjarstjóri
segir þetta vera tímamót hér á
landi þar sem ekki hafi þekkst að
stjórnvöld hafi gengið svo langt
að leggja skýra valkosti í hendur
bæjarbúa og bjóða þeim að taka
bindandi ákvörðun um niður-
stöðu máls. Hins vegar hafi
stjórnvöld staðið fyrir skoðana-
könnunum og kosningum með
flóknum reglum þar sem stjórn-
málamenn telji sig svo óbundna
af niðurstöðunni.
Bæjarstjórinn segir því að
íbúarnir stigi skref samráðs og
lýðræðis á morgun sem hingað
til hafi ekki verið stigið til fulls.
Heimild: Hagstofan
H-TILLAGA Gerir ráð fyrir að gervigrasvöllur komi á Hrólfsskálamel og íbúðarbyggð þar
sem malarvöllurinn er neðan við Valhúsaskóla. Samkvæmt henni verða byggðar 130 nýjar
íbúðir sem hýsa myndu um það bil 350 íbúa.
S-TILLAGA Gerir ráð fyrir að gervigrasvöllur komi þar sem malarvöllurinn er nú við
Suðurströnd og einungis verði íbúðarbyggð á Hrólfsskálamel. Samkvæmt henni verða
byggðar 90 nýjar íbúðir sem hýsa myndu um það bil 240 íbúa.
HRÓLFSSKÁLAMELUR VIÐ SUÐUR-
STRÖND Framtíð þessa svæðis hefur skipt
Seltirningum í tvær fylkingar.
JÓN SIGURÐUR EYJÓLFSSON
BLAÐAMAÐUR
FRÉTTASKÝRING
SKIPULAGSMÁL