Fréttablaðið - 24.06.2005, Page 22

Fréttablaðið - 24.06.2005, Page 22
Segir rá›uneyti› ekki hafa fari› fram úr fjárheimildum Gu›ni Ágústsson landbúna›arrá›herra vísar á bug fréttum um a› rá›uneyti sitt hafi fari› milljar›a fram úr fjárheimildum. fivert á móti hafi fla› skila› meira en 300 milljóna króna afgangi í sinni tí› a› teknu tillliti til fjáraukalaga og sértekna. Guðni Ágústsson landbúnaðarráð- herra mótmælir harðlega fram- setningu Fréttablaðsins síðastlið- inn þriðjudag þar sem sagði í fyrirsögn að ráðuneyti hans hefði farið alls um þrjá milljarða króna fram úr fjárlögum árin 1999 til 2003. „Blaðið birti fréttina án þess að styðjast við upplýsingar um fjár- aukalög. Þar fór verr því fréttin er röng, ekki byggð á réttum for- sendum,“ segir Guðni. Hann segir að sönn mynd af fjárheimildum og útgjöldum fáist með því að taka ekki aðeins tillit til heimilda í fjárlögum heldur einnig fjárauka- laga sem og annarra tekna. „Á þessum fimm árum námu viðbót- arheimildir í fjáraukalögum um 1,6 milljörðum króna og breyting- ar á tekjum merktar landbúnaði urðu einnig meiri eða sem nemur 1,6 milljörðum króna. Þannig verður ljóst að á árunum frá 1999 til ársloka 2004 var ráðuneyti mitt meira en 300 milljónum króna innan heimilda,“ segir Guðni. Í nýrri skýrslu Ríkisendurskoð- unar er meðal annars fjallað um framkvæmd fjárlaga hjá landbún- aðarráðuneytinu. Uppsafnaður halli embættis yfirdýralæknis er þar talinn vera um 80 milljónir króna auk 90 milljóna króna vegna gjaldþrota sláturhúsa. Landbúnað- arháskólinn á Hvanneyri hefur farið alls um 144 milljónir króna fram úr heimildum á þremur árum og Háskólinn á Hólum í Hjaltadal hefur á þremur árum farið alls um 110 milljónir króna fram úr heim- ildum. Ríkisendurskoðun segir um embætti yfirdýralæknis að óviðun- andi sé að ekki skuli gripið til að- gerða gegn hallarekstrinum miklu fyrr af hálfu forstöðumanns og ráðuneytis. Í svipaðan streng er tekið varðandi rekstrarvanda Landbúnaðarháskólans á Hvann- eyri og talið óviðunandi að skólinn sé rekinn með halla á þessu ári. „Ljóst er að rekstrarumfang var langt út fyrir fjárheimildir árið 2004. Yfir 50 milljóna króna halli myndaðist vegna fjósbyggingar. Það er ekki hægt í fljótu bragði að sjá að Landbúnaðarháskóli Íslands hafi nægjanlega traustan fjárhags- grundvöll miðað við núverandi stöðu,“ segir í skýrslunni. Ríkisendurskoðun telur jafn- framt að forstöðumaður og ráðu- neyti hafi brugðist allt of seint við rekstrarvanda Háskólans á Hól- um. Lagt er til að rekstrinum verði breytt nú þegar til samræmis við fjárheimildir og mælst er til þess að ráðuneytið taki af skarið í þeim málum sem lögð hafi verið fyrir það. Ríkisendurskoðun telur að skoða þurfi hvort raunhæft sé að reka fleiri en einn landbúnaðar- háskóla og vísar til þess að kostn- aður í skólunum á Hvanneyri og Hólum sé tveimur til þremur millj- ónum króna meiri á hvern nem- anda en í öðrum háskólum. Í skýrslunni er talið verulega ámæl- isvert að stjórnendur stofni nýja deild við skólann án þess að full- nægjandi heimildir liggi fyrir. Guðni Ágústsson segir að skól- arnir hafi verið sókndjarfir á síð- ustu árum. „Miklar væntingar eru bundnar Landbúnaðarháskóla Ís- lands og Hólaskóla, nemendum fjölgar og mörg ný tækifæri blasa við í landbúnaði. Ég lít ávallt á það sem verkefni mitt að stofnanir innan landbúnaðarráðuneytisins séu reknar innan fjárheimilda en einnig að þær fái það sem þær þurfa til þess að sinna verkefnum sínum,“ segir Guðni Ágústsson. ■ Málefni erlends verkafólks hefur mjög verið til umræðu að undan- förnu, þar sem stéttarfélög telja að margir vinnuveitendur greiði þeim laun sem eru undir þeim lágmarks- kjörum sem það á rétt á að fá. Þór- unn Sveinbjörnsdóttir, hjá Eflingu- stéttarfélagi, segir algengt að erlent verkafólk þekki ekki réttindi sín. Er algengara að brotið sé á erlendu verkafólki en ís- lensku? „Það er svona ívið meira um það myndi ég telja. Þannig er að þetta fólk hefur yfirleitt ekki mjög góða ís- lenskukunnáttu og þar liggur vand- inn. Við höfum heldur ekki kjara- samninga nema á íslensku þannig þetta getur verið mjög erfitt fyrir fólkið. Við höfum núna sóst eftir því til félagsmálaráðuneytisins að þýða kjarasamninga yfir á erlend tungu- mál og bíðum eftir svari.“ Hvað breytist með því að þýða kjarasamninga? „Það er auðvitað ekki nauðsynlegt að þýða kjarasamningana alveg. Það þarf að þýða að minnsta kosti hluta þeirra svo þeir sem hér starfa geti fengið upplýsingar um réttindi sín og skyldur samkvæmt samningun- um. Upplýsingaflæðið til fólksins er takmarkað og þess vegna þarf að koma skilaboðunum einhvern veg- inn til þess.“ Hvaða tungumál þarf að þýða á? „Það er auðvitað fyrst og fremst enska en svo er orðið nauðsynlegt að þýða yfir á pólsku finnst mér því mikið af pólsku fólki er komið hing- að til lands.“ ÞÓRUNN SVEINBJÖRNSDÓTTIR Fyrsti varaformaður Eflingar-stéttarfélags. fi‡›a kjara- samninga ERLENT VERKAFÓLK OG KJARASAMNINGAR SPURT & SVARAÐ FJÁRHEIMILDIR OG GJÖLD LANDBÚNAÐARRÁÐUNEYTISINS Í FIMM ÁR ALLAR FJÁRHÆÐIR Í MILLJÓNUM KRÓNA Ár fjárlög fjárlög, gjöld mismunur frávik fjáraukalög 1999 8.530 9.121 9.346 -225 -2,5 % 2000 8.971 9.471 9.520 -31 -0,3 % 2001 10.526 11.424 11.039 385 3,4% 2002 10.821 11.514 11.610 -96 -0,8% 2003 11.465 12.389 12.096 293 2,4% samtals 50.313 53.920 53.594 326 0,6% 22 24. júní 2005 FÖSTUDAGUR Ríkisendurskoðun hefur verið í fréttum að undanförnu, fyrst vegna rannsóknar á hæfi Halldórs Ásgrímssonar forsætisráðherra við sölu ríkisbankanna og aftur fyrir umfjöllun sína um útgjöld ríkisstofnana. Hlutverk Ríkis- endurskoðunar er hins vegar býsna fjölbreytt. Ábyrgðin gagnvart Alþingi Samkvæmt lögum um Ríkisendurskoðun starfar stofnunin á vegum Alþingis og ber ábyrgð gagnvart því. Forstöðumaður stofnun- arinnar, ríkisendurskoðandi, er skipaður af forsætisnefnd Alþingis til sex ára í senn og skal engum vera háður í störfum sínum. Hann ræður sjálfur starfsfólk til stofnunarinn- ar og getur ýmist að eigin frumkvæði eða samkvæmt óskum þingmanna krafist skoðun- ar á einstökum málum sem falla undir starf- semi Ríkisendurskoðunnar. Endurskoða reikn- inga ríkisfyrirtækja Ríkisendurskoðun er falið að endurskoða ríkis- reikning og reikninga allra þeirra stofnana, sjóða og annarra þar sem kostnaður er greidd- ur af ríkissjóði. Einnig skal stofnunin endur- skoða reikninga þeirra stofnanna sem reknar eru á ábyrgð ríkissjóðs. Við endurskoðun skal Ríkisendurskoðun kanna hvort reikningar séu í samræmi við heimildir í fjárlögum og fjáraukalög- um. Grípa ekki til aðgerða Samkvæmt reglugerð um framkvæmd fjárlaga skal meta hvort grípa eigi til sér- stakra aðgerða ef rekstrar- kostnaður ríkisstofnana fer meira en fjögur prósent fram yfir fjárlög og fjárauka- lög. Í nýútkominni skýrslu Ríkisendurskoðunar er bent á að á síðasta ári fóru um 120 af nærri 520 ríkisstofn- unum yfir þetta fjögurra prósenta mark. Þegar slík staða kemur upp getur Ríkisendurskoðun ekki grip- ið til annarra aðgerða en að benda ríkisstjórn á misbrest- ina. Fjárrei›ur ríkisins grandsko›a›ar FBL GREINING: RÍKISENDURSKOÐUN fréttir og fró›leikur SVONA ERUM VIÐ ALIFUGLAKJÖTFRAMLEIÐSLA Á ÍSLANDI 1990: 1.519 TONN 1995: 1.952 TONN 2003: 5.706 TONN Heimild: Bændasamtök Íslands JÓHANN HAUKSSON BLAÐAMAÐUR FRÉTTASKÝRING FJÁRLÖG Að viðbættum fjáraukalögum og öðrum tekjuliðum skilar landbúnaðarráðuneytið lið- lega 300 milljóna króna afgangi í tíð Guðna Ágústssonar landbúnaðarráðherra. GUÐNI ÁGÚSTSSON LANDBÚNAÐARRÁÐHERRA „Að öllu samanlögðu hefur landbúnaðarráðuneytið skilað nokkrum afgangi en ekki þriggja milljarða króna halla í minni tíð.“ SIGURÐUR ÞÓRÐARSON RÍKISENDURSKOÐANDI

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.