Fréttablaðið - 24.06.2005, Page 27

Fréttablaðið - 24.06.2005, Page 27
Smáauglýsingar byrja í dag á bls. 6 Flokkar Bílar & farartæki Keypt & selt Þjónusta Heilsa Skólar & námskeið Heimilið Tómstundir & ferðir Húsnæði Atvinna Tilkynningar Góðan dag! Í dag er föstudagur 24. júní, 175. dagur ársins 2005. REYKJAVÍK 2.56 13.30 00.04 AKUREYRI 1.31 13.15 00.56 Heimild: Almanak Háskólans Sólarupprás Hádegi Sólarlag Rúnar Matthíasson kennari sér um matseldina heima hjá sér og tekur lambakjöt fram yfir allt annað. „Já, ég er mikill lambakjötsmaður þó ég eldi að sjálfsögðu hvað sem er. Mér finnst skemmtilegast að elda lamb og svo finnst mér það langbest.“ Rúnar er grilllaus með öllu frá því grillið hans gafst upp í fyrrasumar, en hann grillar þó stundum hjá tengdapabba. „Annars elda ég lambið bara í ofni, helst lambafíle eða læri. Ég krydda þá með timjan, rósmarín og miklum hvítlauki. Sósuna geri ég alltaf upp á gamla mátann, baka hana upp og með- lætið er yfirleitt heimagert kartöflugratín eða kartöflusalat með mikilli púrru.“ Rúnar bjó í Svíþjóð í tíu ár en tileinkaði sér ekki matarhefðir Svía. „Mér finnst þeir ekki eiga svo ríka matarhefð. Reyndar var bæði gott og skemmtilegt að borða vatna- krabbann þeirra í ágúst en Janssons frastelse, lútfiskur og surströmming höfðar ekki til mín. Það sem mér fannst best í Svíþjóð var svokallað fleskkarre, sem er mjúkur hluti af grís.“ Rúnar hefur þróað sína matargerð í takt við tímann og notar mun meira græn- meti en hann ólst upp við. „Það er svo margt sem hefur breyst til hins betra og þó ég byggi á gömlum hefðum úr foreldra- húsum breytast venjurnar í samræmi við heilbrigðari lífshætti og meira vöruúrval. Ég er þó ekki fyrir pasta eða ítölsku línuna yfir höfuð.“ Í staðinn fyrir vatnakrabbann, sem er það eina sem Rúnar saknar af mat frá Sví- þjóð, eldar hann humar. „Það skemmti- legasta við vatnakrabbann voru hefðirnar í kringum hann; það var heilmikil kúnst að opna hann til að ná kjötinu rétt úr og alltaf hrökkbrauð og sterkur Vesterbotten-ostur með, að ógleymdum bjór og snafs. En ís- lenskur humar er æðislegur og gaman að eiga við hann, sérstaklega grillaðan, eins og lambakjötið, í miklum hvítlauk.“ edda@frettabladid.is Lamb, lamb og aftur lamb tilbod@frettabladid.is Stafræn myndavél með tengi- stöð er á tilboði hjá Hans Petersen og kostar nú 34.900 en var áður á 39.900. Vélin heitir Kodak EasyShare LS755 og er fimm milljón pixla, ásamt aðdrætti og góðum skjá. Fín fyrir sumarmyndatökurnar. Íþróttafatnaður og boltar eru á sumartilboði hjá versluninni le coq sportif sem er í Síðumúla 17. Þetta eru franskar vörur með merkinu le coq og þær eru langflestar á 50% af- slætti þessa dagana, jafnvel allt niður í 70%. Stutt- buxur eru þar frá 1.490 og bolir frá 790 kr. Einnig er mikið úrval af íþróttaskóm. Rúskinnsjakkar í líflegum litum eru á 20% afslætti í versl- uninni Fataprýði í Glæsibæ. Um nokkur snið er að ræða. Sem dæmi um verð má nefna jakka með sportlegu sniði er voru upphaflega á 24.600 kr. en seljast nú á 18.320. Brúðarskór úr satíni eru á út- sölu í versluninni Drang- ey í Smáralind. Þeir eru til í þremur gerð- um og kostuðu áður 7.700 kr. en kosta nú 4.900. Eitthvað til at- hugunar fyrir brúðir sumarsins. Rúnar er matgæðingur af gamla skólanum þó hann hafi vissulega breyst svolítið í takt við tíðarandann. LIGGUR Í LOFTINU í tilboðum FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR ATVINNA BRÚÐKAUP TILBOÐ o.fl. KRÍLIN Þegar mér er heitt þá byrja ég alltaf að leka! Alltaf tilboð í Innliti BLS. 5 ][ SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000 OG Á visir.is ÞÚ GETUR PANTAÐ SMÁAUGLÝSINGAR Á visir.is FR ÉT TA B LA Ð IÐ /G VA

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.