Fréttablaðið - 24.06.2005, Page 40
Sláttuvélin og stofnfjár-
bréfin
Þeir sem eiga stofnfé í Sparisjóði
Hafnarfjarðar gætu leyst út 40-50
milljónir króna ef sjóðurinn verð-
ur yfirtekinn. Umræðan í Hafnar-
firði er orðin eldfim vegna þessa
máls, enda er sparisjóðurinn einn
af hornsteinum byggðarlagsins.
Hins vegar finnst mörgum sérkenni-
legt að stofnfjárbréf, sem lengi þóttu
verðlaus pappír, séu nú orðin tug-
milljóna virði. Sagan segir nefni-
lega að þegar dánarbúunum hafi
verið skipt í Firðinum þá hafi stofn-
fjárbréfin yfirleitt verið það síðasta
sem ættingjarnir slógust um. Frekar
völdu menn garðsláttuvélina en verð-
laus stofnfjárbréf. Í Hafnarfirði hafa
margir áhyggjur af því að verði af yfir-
töku geti hún tvístrað heilu fjölskyldunum.
Fleiri sjóðir til sölu?
Það eru ekki bara stofnfjáreigendur í Sparisjóði
Hafnarfjarðar sem gætu leyst út mikinn
skyndigróða. Í Sparisjóði Mýrasýslu, einum stærsta
sparisjóði landsins, eru aðeins tveir stofnfjáreig-
endur: Sveitarfélögin Borgarbyggð og Hvítársíðu-
hreppur. Borgarbyggð á 97 prósent stofnfjár sem
er aðeins 3,8 milljónir króna. Ef sveitarfélögin
hefðu áhuga að selja bréfin, sem ætla má að
sé harla ólíklegur leikur, þá gætu þessar 3,8
milljónir orðið að einum og hálfum millj-
arði, sem er um það bil eigið fé spari-
sjóðsins. Sveitarfélögin væru ekki
lengi að finna kaupanda fyrir þetta
verð. Gengið í þeim viðskiptum
yrði því um 370. Sparisjóður
Mýrasýslu hefur sjálfur verið í
miklum stofnfjárkaupum en
hann keypti allt stofnfé í
Sparisjóði Ólafsfjarðar á dög-
unum.
MESTA HÆKKUN
ICEX-15 4.087*
KAUPHÖLL ÍSLANDS [ HLUTABRÉF ]
Fjöldi viðskipta: 230
Velta: 1.581 milljónir
+0,37%
MESTA LÆKKUN
MARKAÐSFRÉTTIR...
FL Group tilkynnti í gær að far-
þegafjöldi hjá Flugfélagi Íslands
hefði verið 3,2 prósentum meiri á
fyrstu fimm mánuðum ársins en
á sama tíma í fyrra.
Hjá Icelandair varð fjölgunin
hins vegar miklu meiri eða 16,1
prósent. Sætanýting hjá félaginu
var 80 prósent.
Fram kom í Morgunkorni Ís-
landsbanka í gær að lán
bankanna til heimilanna næmu
nú 410 milljörðum króna og
hefðu tvöfaldast frá í fyrra. Mestu
munar um innkomu bankanna á
íbúðalánamarkað.
Hlutabréfavísitalan Nikkei í
Tókýó hækkaði um 0,26 prósent í
gær og stendur í 11.577 stigum.
28 24. júní 2005 FÖSTUDAGUR
Sparisjóður Hafnar-
fjarðar hefur um langt
skeið verið ein helsta
valdastofnun bæjar-
félagsins. Hann er met-
inn á um tvo milljarða
króna en talið er að hlut-
ur hvers stofnfjáreig-
anda geti numið 45 millj-
ónum króna.
Eftir nokkru er að slægjast í
Sparisjóði Hafnarfjarðar (SPH),
sem átök hafa verið um að undan-
förnu. Stofnféð er metið á 2,1
milljarð króna samkvæmt þeim
tölum sem nefndar hafa verið
vegna hugsanlegrar yfirtöku.
Eigið fé sjóðsins var í árslok
3,1 milljarður króna. Fjárfestar
eru því tilbúnir að meta virði
stofnfjár sem 70 prósent af eigin
fé. Samkvæmt þessu er gengi á
stofnfjárbréfum í sparisjóðnum
um 135, sem þýðir að hver stofn-
fjáreigandi fengi í sinn hlut um
45 milljónir króna.
Sparisjóður Hafnarfjarðar,
sem var stofnaður árið 1902, hef-
ur gríðarlega sterka stöðu í sínu
byggðarlagi og hefur verið lyk-
illinn að völdum innan bæjar-
félagsins. Meðal stofnfjáreig-
enda eru stjórnmálamenn og for-
ystumenn í hafnfirsku athafna-
lífi. Lengi vel einokaði hann
bankastarfsemi á starfssvæðinu.
Starfsmenn sparisjóðsins eru
um 120 og eru rekin fjögur útibú
á vegum hans, þar af eitt í
Garðabæ.
Sparisjóðurinn hefur í gegn-
um tíðina ávallt skilað hagnaði
og verið í fararbroddi innan
sparisjóðafjölskyldunnar. En
þrátt fyrir mikinn fjárhagslegan
styrk hefur sparisjóðurinn átt
undir högg að sækja á undan-
förnum árum og arðsemi eigin
fjár verið langtum minni en í til-
fellum SPRON, Sparisjóðs vél-
stjóra (SPV), Sparisjóðsins í
Keflavík (SPKef) og Sparisjóðs
Mýrasýslu (SPM). Á síðasta ári
skilaði sjóðurinn 320 milljóna
króna hagnaði en gengishagnað-
ur af sölu verðbréfa var einn og
sér 615 milljónir króna.
Þótt sparisjóðurinn hafi ekki
átt við rekstrarvanda að stríða
hefur hann tapað miklum fjár-
munum vegna útlánatapa. Hann
hefur afskrifað 1,3 milljarða
króna á síðustu fjórum rekstrar-
árum og lagt inn tæpa tvo millj-
arða á sama tímabili til að mæta
frekari töpum. Á þessum árum
tapaði sjóðurinn miklum fjár-
munum vegna útlána sem veitt
voru í góðærinu í kringum alda-
mótin.
Ljóst er að með betri afkomu
sjóðsins eykst verðmæti hans til
muna.
eggert@frettabladid.is
Peningaskápurinn…
Actavis 40,30 -0,25% ... Atorka 5,90 –
... Bakkavör 38,60 +0,52% ... Burðarás 15,00 +0,67% ... FL Group 15,50
– ... Flaga 3,95 -0,75% ... Íslandsbanki 13,30 +0,38% ... KB banki 526,00
+0,19% ... Kögun 59,60 -0,67% ... Landsbankinn 16,90 +1,81% ... Marel
58,10 +1,40% ... Og fjarskipti 4,07 +3,83% ... Samherji 12,10 – ...
Straumur 12,15 – ... Össur 81,00 -1,22%
*Tölur frá 15.40 í gær. Nýjustu tölur á Vísi.
Tekist á um valda-
stofnun í Hafnarfirði
Ætla að veita greiðan að-
gang að orkulindum
beggja fyrirtækja.
Bláa lónið hf. hefur fest kaup á
Hreyfingu – heilsurækt og verður
velta sameinaðs félags á annan
milljarð króna. Ágústa Johnson
segir fyrirtækin sameinast um að
veita viðskiptavinum sínum
greiðan aðgang að orkulindum
beggja fyrirtækjanna auk þess að
bjóða upp á spennandi nýjungar í
náinni framtíð. 150 manns starfa
hjá sameinuðu fyrirtæki.
Ágústa Johnson mun áfram
gegna starfi framkvæmdastjóra
Hreyfingar en hún hefur verið
framkvæmdastjóri allt frá stofnun
fyrirtækisins árið 1998. Grímur
Sæmundsen, framkvæmdastjóri
Bláa lónsins, verður stjórnarfor-
maður Hreyfingar. -dh
Bláa lóni› kaupir Hreyfingu
Og fjarskipti 3,83%
Landsbankinn 1,81%
Marel 1,40%
Össur -1,22%
Jarðboranir -0,95%
Flaga -0,75%
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU:
Umsjón: nánar á visir.is
Yfir 200 titlar á lægra verði
ÓDÝRARI TÍMARIT
Gerðuverðsamanburð
NÝ SENDING AF TÍM
ARITUM
Kauptækifæri skapast ef
hlutabréfaverð lækkar
um 10 til 20 prósent.
Hægt getur á verðþróun hluta-
bréfa að mati Landsbankans en
ekki eru miklar líkur á verð-
lækkun. Nokkrar ástæður sem
helst styðja þetta mat eru að
mikið fé hefur verið sótt á mark-
aðinn, líklega fer að draga úr
peningamagni í umferð og líf-
eyrissjóðir minnka líklega við sig
hlutabréf á næstu misserum.
Í Sérriti greiningardeildar
Landsbankans um innlendan
hlutabréfamarkað kemur fram að
ef til lækkunar kæmi, til að
mynda um 10 til 20 prósent,
myndu skapast kauptækifæri á
markaðinum og því líklegt að slíkt
verðþróun snúist fljótt við. Verð-
bóla hafi þó ekki myndast sem
kalli á umtalsverða verðleið-
réttingu.
Á árinu hafa fyrirtæki á
markaði verið dugleg við að
sækja sér pening og samtals hafa
þau náð í 125 milljarða króna í út-
boðum. Frekari hlutafjárútboð
eru framundan og á Landsbank-
inn von á að um 130 milljarðar
verði sóttir með hlutafjárút-
boðum á árinu. Líklega hægir það
á verðhækkun hlutabréfa.
Úrvalsvísitalan hefur hækkað
um 21 prósent frá áramótum en
verðmat Landsbankans á stærstu
hlutafélögunum í Kauphöllinni
gefur tilefni til að ætla að ávöxtun
bréfanna verði tæp sjö prósent á
næstu 12 mánuðum. Sú 16
prósenta hækkun sem hafi verið
frá þeim tímapunkti eigi því stoð-
ir í auknu virði félaganna.
Miklir peningar hafa verið í
umferð sem hafa leitt til hækk-
unar á hlutabréfaverði. Aðgerðir
Seðlabankans gætu leitt til minni
kaupþrýstings og jafnvel lækk-
unar á hlutabréfaverði þó ekki
fyrr en á næsta ári að mati Lands-
bankans. -dh
FYRIRTÆKI HAFA SÓTT 125 MILLJARÐA Á ÁRINU Edda Rós Karlsdóttir, forstöðu-
maður greiningardeildar Landsbankans.
Hægir á hækkunum
hlutabréfaver›s
VELTA SAMEINAÐS FÉLAGS ER Á ANNAN MILLJARÐ Grímur Sæmundsen, fram-
kvæmdastjóri Bláa lónsins, og Ágústa Johnson, framkvæmdastjóri Hreyfingar.
YFIRLIT YFIR FIMM STÆRSTU
SPARISJÓÐINA Í LOK ÁRS 2004
Hagnaður * Eignir ** Eigið fé **
SPRON 1.465 68,7 5,9
SPH 319 38,6 3,1
SPV 683 29,7 5,0
SPKEF 409 26,3 2,7
SPM 192 15,9 1,4
Alls 3.068 179,2 18,1
* Í MILLJÓNUM KRÓNA
* Í MILLJÖRÐUM KRÓNA
SPARISJÓÐUR HAFNARFJARÐAR Stofnféð er metið á yfir tvo milljarða samkvæmt
þeim tölum sem hafa heyrst. Bættur rekstur gæti aukið virði sjóðsins til muna.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N