Fréttablaðið - 24.06.2005, Page 42

Fréttablaðið - 24.06.2005, Page 42
Leifur Breiðfjörð glerlistamaður er staddur í Tékklandi ásamt eig- inkonu sinni, Sigríði G. Jóhanns- dóttur veflistakonu. Þau eru þar í boði Þóris Gunnarssonar, ræðis- manns Íslands í landinu. „Hann er svo vinalegur að hann ætlar að halda upp á afmælið mitt fyrir mig,“ segir Leifur glaðlega en hann býst við að um fimmtíu manns mæti í boðið sem haldið verður á herragarði Þóris í Tékk- landi. Þar mæta bæði vinir Leifs og Sigríðar frá Íslandi auk vina og kunningja Þóris. Í dag verður einnig opnuð vinnustofa og sýningargallerí á búgarði Þóris og eru Leifur og Sigríður fyrstu listamennirnir sem fá afnot af því. Þetta verður því sambland af vinnuferð og sumarfríi hjá þeim hjónum en brottfarardagur hefur ekki verið ákveðinn enn og allt eins líklegt að þau verði í Tékklandi stóran hluta sumarsins. Leifur var sæmdur fálkaorð- unni hinn 17. júní. „Það var stór- kostlegt,“ segir Leifur sem finnst hins vegar að margir aðrir eigi það einnig skilið að hljóta slíka viðurkenningu og nefndir sem dæmi Þóri ræðismann sem hafi staðið sig frábærlega í kynningu á landi og þjóð. Leifi finnst gott að hlaða batt- eríin í Tékklandi eftir miklar annir hér heima. Hann stóð að undirbúningi mikillar glerráð- stefnu sem haldin var í Gerðar- safni, auk þess sem hann setti upp eigin sýningu í tónlistarhús- inu. Leifur býst við að það verði mjög gaman hjá sér í kvöld en á þó ekki von á neinum afmælis- gjöfum. „Að hitta fólk og vera með góðu fólki er það sem skiptir mestu máli,“ segir Leifur, sem hefur smíðað mörg glerlistaverk um ævina. Þeirra frægast er að öllum líkindum í St. Giles dóm- kirkjunni í Edinborg en auk þess eru stórir steindir gluggar eftir Leif bæði í Hallgrímskirkju og Grafarvogskirkju. ■ 30 24. júní 2005 FÖSTUDAGUR PÉTUR H. BLÖNDAL (1944-) fæddist þennan dag. „Óskir manna vaxa yfirleitt hraðar en tekjurnar.“ - Pétur H. Blöndal er þingmaður Sjálfstæðisflokksins og hefur setið á Alþingi í tíu ár. timamot@frettabladid.is JAR‹ARFARIR 11.00 Aldís G. Einarsdóttir, Dalalandi 11, Reykjavík, verður jarðsungin frá Bú- staðakirkju. 11.00 Þröstur Valdimarsson, Keilufelli 33, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju. 13.00 Guðrún J. Möller, Dalbraut 14, Reykjavík, verður jarðsungin frá Bú- staðakirkju. 13.00 Einar Vigfús Jónsson, Köldukinn 20, Hafnarfirði, verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju. LEIFUR BREIÐFJÖRÐ Leifur stendur á tvennum tímamótum. Hann er sextugur í dag og var á dögunum sæmdur fálkaorðunni. Þennan dag árið 1983 snéri Sally Ride aftur til jarðar með geimskutlunni Challenger eftir sex daga geimflug. Sally var fyrsta bandaríska konan til að fara út í geim en sú þriðja í heiminum. Hin 32 ára Ride var fyrrverandi tennismeistari. Hún ákvað að gerast geimfari árið 1977 eftir að hún sá auglýsingu frá NASA í skólablaði en hún stundaði þá háskólanám í ensku og eðlis- fræði. Hún var ein af yfir þúsund kon- um og sjö þúsund körlum sem sóttu um 35 pláss í þjálfunar- prógrammi árið 1978. Þar kynnt- ist hún manni sínum sem einnig var geimfari. Sem flugverkfræðingur var það meginhlutverk Sallyar að fylgjast með stjórntækjum og ganga úr skugga um að allt gengi vel við flugtak og lendingu. Tveimur árum síðar skullu hörm- ungar yfir þegar Challenger geimskip sprakk í loft upp. Allir um borð létust og þar á meðal Christa McAuliffe sem átti að verða fyrsti kennarinn til að kom- ast út í geim. Sally Ride er eina manneskjan sem vann bæði að rannsókn Challen- ger- og Columbia-slysanna. Sally var geimfari til ársins 1987 þegar hún sagði upp störfum hjá NASA og tók til við kennslu í Stanford háskóla. Síðar varð hún prófessor og forstjóri geimvís- indastofnunar Kaliforníu. 24. JÚNÍ 1983 ÞETTA GERÐIST MERKISATBURÐIR 1000 Kristnitakan. Kristin trú er lögtekin á Alþingi á Þing- völlum við Öxará. 1865 Keisaraskurði er beitt í fyrsta sinn hér á landi. Barnið lifði en móðirin dó. 1875 Fyrsta ferðin yfir Vatnajökul er farin af enskum vísinda- manni og fjórum Íslending- um. 1901 Picasso heldur sína fyrstu stóru sýningu í París. 1934 Gunnar Thoroddsen er kos- inn á þing, 23 ára. 1968 Ráðherrafundur Atlants- hafsbandalagsins er hald- inn á Íslandi í fyrsta sinn. 1988 Vatnsrennibrautin er tekin í notkun í Laugardalslaug. Sally Ride kemur til jar›ar Þakkir Innilegar þakkir fær einnig frændfólk og vinir hér heima og erlendis, fyrrum starfsfélagar og söngfélagar fyrir norðan og þið öll, sem senduð mér hlýjar kveðjur með símtölum, blómum og gjöfum þennan dag. Blessunaróskir og kveðjur, Björg Baldvinsdóttir Hjartans þakkir til barna minna og fjölskyldna þeirra, sem héldu mér höfðinglega afmælisveislu á 90 ára afmælinu þann 16. júní. Ástkær sonur okkar, stjúpsonur, bróðir og barnabarn, Arent Pjetur Eggertsson Sindragötu 4, Ísafirði, verður jarðsunginn frá Ísafjarðarkirkju laugardaginn 25. júní klukkan 14.00. Berglind Sveinsdóttir Pálmi Ó. Árnason Kristrún Sif Gunnarsdóttir Jóna Sigurlína Pálmadóttir Sveinn Jóhann Pálmason Ingibjörg Kristjánsdóttir Sveinn Jóhannsson Eggert Hjartarson Gríma Huld Blængsdóttir Lára Ósk Eggertsdóttir Gunnar Smári Eggertsson Laura Claessen. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Fanney Halldórsdóttir frá Sviðningi, Skagabyggð, andaðist þriðjudaginn 21. júní á Heilbrigðisstofnuninni Blönduósi. Útförin auglýst síðar. Börn, tengdabörn og barnabörn Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, Ólína Jörundsdóttir Eikjuvogi 17, Reykjavík, sem lést á Landspítalanum Fossvogi mánudaginn 20. júní verður jarð- sungin frá Grafarvogskirkju þriðjudaginn 28. júní kl. 15. Svavar Kristjónsson Guðný Svavarsdóttir Sveinn Óttar Gunnarsson Jörundur Svavarsson Sif Matthíasdóttir Erla Kristín Svavarsdóttir Smári Ragnarsson Lilja Steinunn Svavarsdóttir Bjarni Jónsson Auður Ólína Svavarsdóttir og barnabörn. AFMÆLI Í tilefni sextugsafmælis Kristjáns Axelssonar frá Bakkakoti, 22. júní, verður opið hús í þjónustumiðstöð BSRB í Munaðarnesi,föstudaginn 24. júní nk. frá kl. 20. Léttar veitingar og heitt á könnunni. 50 ára er á sunnudaginn 26. júní, Kristín Helgadóttir, Kristnibraut 79, Reykjavík. Maður hennar er Marteinn Sigurbjörn Björnsson. Þau taka á móti gestum á afmælis- daginn milli kl. 16.00 og 19.00 í Lionsheimil- inu, Sóltúni 20. Afmælisveisla á herragarði LEIFUR BREIÐFJÖRÐ: GLERLISTAMAÐUR ER SEXTUGUR 14.00 Friðmundur Leonard Herman verður jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju. 14.00 Helgi Geirmundsson, Miðtúni 21, Ísafirði, verður jarðsunginn frá Ísafjarðar- kirkju. 15.00 Friðrik Fáfnir Eiríksson, frá Hesti, Ársölum 5, Kópavogi, verður jarðsung- inn frá Fossvogskirkju. 15.00 Óli Þór Ingvarsson rafvirkjameist- ari, Álftamýri 40, verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni. 15.00 Þórður Annas Jónsson, frá Gests- stöðum, áður til heimilis í Markholti 7, Mosfellsbæ, verður jarðsunginn frá Lágafellskirkju. ANDLÁT Knútur Kristján Gunnarsson húsgagna- bólstrari lést á sjúkrahúsinu í Lundi, Sví- þjóð, föstudaginn 17. júní. Fanney Halldórsdóttir frá Sviðningi, Skagabyggð, andaðist þriðjudaginn 21. júní á Heilbrigðisstofnuninni Blönduósi. Víkingur Þór Björnsson fyrrverandi eld- varnareftirlitsmaður, Munkaþverárstræti 2, Akureyri, lést á heimili sínu þriðjudag- inn 21. júní. www.steinsmidjan.is

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.