Fréttablaðið


Fréttablaðið - 24.06.2005, Qupperneq 44

Fréttablaðið - 24.06.2005, Qupperneq 44
24. júní 2005 FÖSTUDAGUR > Við hrósum ... ... gamla brýninu Sinisa Valdimari Kekic, sem sá til þess að Grindavík fékk þrjú stig í Dalnum í gær. Kekic er hreint ótrúlegur leikmaður sem virðist ekkert vera farinn að gefa eftir og á meðan svo er á Grindavík alltaf von um að hanga uppi í deild þeirra bestu. Heyrst hefur ... ... að Eyjamenn leiti víða þessa dagana eftir liðsstyrk í fótboltanum. Þeir misstu Magnús Má í gær og svo hafa þeir verið óheppnir með meiðsli sem og útlend- inga en tveir útlendingar liðsins voru ekki betri en svo að ÍBV lánaði þá til Selfoss, sem segir sína sögu um styrkleika þeirra. sport@frettabladid.is 32 > Við hrósum ... .... KR-ingum, sem brutu marga múra í gær. Leikmenn liðsins skoruðu jafn mörg mörk í gær og þeir höfðu gert í sex leikjum, Grétar Ólafur skoraði loksins í deildinni og þá má ekki gleyma því að Magnús Gylfason gaf blaðamanni viðtal aldrei þessu vant. FH-ingar voru alltaf skrefinu á undan Skagamönnum í leik li›anna í gærkvöld og unnu 2-0. fietta er fyrsti sigur FH á ÍA í deildarkeppni sí›an 1990. Loks sigraðist FH á Skagagrýlunni FÓTBOLTI Gestirnir byrjuðu leikinn af krafti í Kaplakrikanum í gær og fengu fyrsta færi leiksins þegar Sigurður Ragnar Eyjólfs- son átti bakfallsspyrnu sem Daði Lárusson varði vel. Nokkuð jafn- ræði var með liðunum stærstan hluta fyrri hálfleiks þótt FH virt- ist alltaf vera skrefinu á undan. Allan Borgvardt var besti maður vallarins og átti margar stórhættulegar sendingar sem sköpuðu hættuleg færi, til að mynda átti hann glæsilega send- ingu á Jón Þorgrím Stefánsson á 42. mínútu en fast skot Jóns fór framhjá markinu. Síðustu mínútur fyrri hálfleiks keyrðu heimamenn yfir gesti sína, fyrst skoraði Tryggvi Guð- mundsson frábært mark úr auka- spyrnu og Borgvardt bætti síðan við marki eftir sendingu frá Jóni Þorgrími rétt áður en flautað var til hálfleiks. Ólafur Þórðarson gerði tvær breytingar í hálfleik, tók Sigurð Ragnar og Hjört Júlíus af velli. Hjörtur var kominn með gult spjald og með sama áframhaldi hefði hann fengið rautt í seinni hálfleik. Ungir og efnilegir leikmenn Skagamanna sýndu góða takta í seinni hálfleiknum og voru stað- ráðnir í að sýna Ólafi að þeir væru tilbúnir í þetta. Þrátt fyrir að vera tveimur mörkum yfir hættu FH-ingar ekki og átti Atli Viðar Björnsson skalla í slá og Tryggvi skot í stöng í seinni hálfleiknum. Skagamenn fengu líka sín færi en eins og oft áður var heppnin ekki með þeim fyrir framan markið. Góður sigur FH-liðsins, sem spilaði vel sem heild og er enn með fullt hús. ÍA sýndi góða baráttu í seinni hálf- leik en það dugði einfaldlega ekki til og var þetta því fjórði leikur liðsins í deildinni í röð án sigurs. elvar@frettabladid.is Mostafa Marinó Anbari, aðstoðarþjálfari íslenska knattspyrnuliðsins Afríku og bróðir aðalþjálfarans Zakaria Elíasar Anbari, var fyrir skömmu dæmdur í tveggja mánaða leikbann fyrir að skrá Abdel Hamid Oulad Idriss á leik- skýrslu, en hann tók ekki þátt í leiknum. Eftir leikinn kom í ljós að hann var hafður á skýrslunni í stað Dejan Bilic, sem tók þátt í leiknum án þess að vera kominn með tilskilin leyfi til þess. Zakaria, sem oftast er kall- aður Zico, sagði þetta hafa verið mistök sem vonandi kæmu ekki fyrir aftur. „Ég kom aðeins of seint á leikinn og þess vegna sá bróðir minn um leikskýrsluna fyrir mig. Hann gerði þessi litlu mistök við gerð leikskýrslunnar og svo vissi hann ekki betur en að Dejan Bilic, sem var nýr leik- maður okkar, væri kominn með leikheimild. En við hjá Afríku höfum rætt þetta við Knattspyrnusamband Íslands og þeir útskýrðu þessi atriði vel fyrir okk- ur. Við látum þetta ekki koma fyrir aftur.“ Zico er annars bjart- sýnn á framhaldið og segir Afríku vera að styrkjast með hverjum leiknum. „Okkur hefur gengið ágætlega í sumar. Dejan Bilic kemur til með að styrkja lið okkar mikið, og svo erum við að fá nýjan leikmann frá Marokkó líka, sem vonandi á eftir að reynast okkur vel.“ Afríka er sem stendur í næstneðsta sæti síns riðils, C-riðils 3. deildar, með tvö stig eftir fimm leiki, en ÍH er efst með tólf stig. Afríku var jafnframt gert að greiða tólf þúsund krónur í sekt fyrir þessi mistök. Þetta er í annað sinn á stuttum tíma sem þjálfari meistaraflokksliðs er dæmdur í tveggja mánaða bann fyrir leikskýrslumistök, en Nói Björnsson, þjálfari Leifturs/Dalvíkur, var dæmdur í bann í vor. ÞUNGUR DÓMUR HJÁ KSÍ: AÐSTOÐARÞJÁLFARI AFRÍKU DÆMDUR Í TVEGGJA MÁNAÐA KEPPNISBANN Mistök sem koma ekki fyrir aftur LA N DS BA N K AD EI LD IN Það var mikið fjör og mikið skorað suður með sjó í gærkvöld: Fylkismenn héldu jöfnu í Keflavík FÓTBOLTI Þó það hljómi undarlega voru Keflvíkingar mun betri á heimavelli gegn Fylkisvelli í gær, í leik sem lauk með jafntefli, en þeir voru uppi á Skipaskaga í síð- ustu umferð, en þar unnu þeir sig- ur. Liðið var einfaldlega að spila mun betri knattspyrnu og var sóknarleikurinn þá sérstaklega öflugur. Fylkismenn voru einnig að leika fína knattspyrnu þó svo að þeir hafi oft gert betur. Leikurinn í gær var án efa einn af skemmtilegri leikjum sumars- ins. Bæði lið léku sókndjarfan bolta og leikmennirnir börðust af krafti, með fáeinum undantekn- ingum þó. Fylkismenn voru með undirtökin lengst af í leiknum án þess að ná að skapa færi í hverri sókn. Keflvíkingar voru hins vegar fljótir fram og iðulega stór- hættulegir þegar þeir færðust nær marki gestanna. Sem fyrr var Guðmundur Steinarsson öflugur en Stefán Örn Arnarson átti einnig mjög góðan leik og var ætíð skapandi. Vandamálið virðist vera hjá Fylkismönnum að þó svo að kant- mennirnir eiga nokkra ágæta spretti inni á milli eru þeir ein- faldlega ekki nógu snöggir að at- hafna sig og þannig verður oft lít- ið úr sóknarlotum þeirra. Þá virð- ist Viktori Bjarka hreinlega fyrir- munað að skora en hann fékk nokkur afar góð tækifæri til þess í leiknum. „Þetta var án efa einn af harð- ari leikjum sem ég hef spilað,“ sagði Keflvíkingurinn Stefán Örn eftir leik. „Liðin voru jöfn að stig- um fyrir leikinn og ætluðu ekkert að gefa eftir og urðu að lokum að sættast á jafntefli. En við lékum vel í dag og þrátt fyrir að það hafi vantað menn í liðið eins og Gest Gylfason og Hörð Sveinsson sýndi leikur okkar í kvöld styrk liðsins og að það kemur maður í manns stað. Hvað sjálfan mig varðar er auðvitað alltaf gott að skora. Nú er sjálfstraustið hjá mér komið upp í topp og þýðir ekkert annað en að halda áfram og bæta við fleiri mörkum.“ - esá 2-2 Keflavík, áhorf: 852 Erlendur Eiríksson (6) TÖLFRÆÐIN Skot (á mark) 12–13 (8–7) Varin skot Magnús 3, Ómar 2 – Bjarni 6 Horn 3–4 Aukaspyrnur fengnar 14–11 Rangstöður 4–8 Keflavík Fylkir *MAÐUR LEIKSINS KEFLAV. 4–4–2 Magnús 6 (57. Ómar 6) Guðjón Árni 6 Johansson 6 Baldur Sig. 7 Milicevic 5 Bjarni 4 (74. Isse –) Jónas Guðni 8* Gunnar H. 5 Hólmar Örn 6 Guðmundur 7 Stefán 7 FYLKIR 4–3–3 Bjarni Þórður 6 Arnar Þór 5 Ragnar 7 Valur Fannar 7 Gunnar Þór (sjm) 6 Helgi Valur 7 Guðni Rúnar 4 Hrafnkell 6 (46. Christian 6 Viktor Bjarki 6 Björgólfur 7 (89. Björn V. –) Eyjólfur 5 (88. Jón B. –) *MAÐUR LEIKSINS FH 4–3–3 Daði 7 Guðmundur 7 Tommy 6 Auðun 8 Freyr 7 Heimir 4 (68. Siim 6) Ásgeir 6 Davíð 5 (72. Baldur –) Jón Þorgrímur 6 (64. Atli Viðar 6) Tryggvi 7 Allan 8* ÍA 4–5–1 Bjarki 6 Kári Steinn 6 Gunnlaugur 5 Reynir 5 Guðjón Heiðar 4 Unnar 6 (65. Hafþór 6) Hjörtur 5 (46. Jón V. 6) Pálmi 6 Igor 6 Martin 5 Sigurður R. 4 (46. Andri 7) 2-0 Kaplakr., áhorf: 1622 Kristinn Jakobsson (7) TÖLFRÆÐIN Skot (á mark) 11–6 (6–3) Varin skot Daði 3 – Bjarki 2 Horn 4–4 Aukaspyrnur fengnar 10–11 Rangstöður 2–2 FH ÍA STERKUR Fylkismaðurinn Helgi Valur Daníelsson átti fínan leik fyri Fylki í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/HARII HÖRÐ BARÁTTA Bjarki Guðmundsson, markvörður ÍA, fer hér í úthlaup og nær að stöðva FH-inginn Jón Þorgrím Stefánsson. FH vann sjöunda leik sinn í röð. FRÉTTABLAÐIÐ/LÁRUS
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.