Fréttablaðið - 24.06.2005, Page 54

Fréttablaðið - 24.06.2005, Page 54
> Plata vikunnar ... HOT DAMN!: The Big’n Nasty Groove’O Mutha „Smári og Jenni ná virkilega vel saman og sanna það enn frekar, rétt eins og The White Stripes hafa gert, að dúettar geta hiklaust spjarað sig í rokkinu þrátt fyrir mikinn einfaldleika.“ FB 42 24. júní 2005 FÖSTUDAGUR [ SMS ] UM NÝJUSTU PLÖTURNAR [ TOPP 10 ] X-IÐ 977 - 22. JÚNÍ LEAVES The Spell COLDPLAY Speed of Sound QUEENS OF THE STONE AGE In My Head BECK Girl NINE INCH NAILS The Hand That Feeds CYNIC GURU Drugs THE BRAVERY Honest Mistake THE KILLERS Smile Like You Mean It KAISER CHIEFS Every Day I Love You Less And Less RASS Burt með kvótann * Listanum er raðað af umsjónar- mönnum stöðvarinnar 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Nýlega kom út önnur plata Kippa Kanínus sem nefnist Happens Secretly og sjá 12 tónar um dreif- ingu hennar hér á landi. Fyrsta plata hans, Huggun, kom út á vegum Tilraunaeldhússins og Eddu fyrir þremur árum og fékk hún hvarvetna góðar viðtökur. Kippi Kanínus er listamanns- nafn Guðmundar Vignis Karlsson- ar, sem um þessar mundir dvelst í Hollandi ásamt fjölskyldu sinni við nám, leik og störf. Hann stefn- ir að því að vera þar í tvö ár til viðbótar. Guðmundur segist alltaf hafa jafngaman af því að taka upp nýja tónlist. „Ég var búinn að koma mér upp stóru og miklu safni af upptökum yfir langan tíma. Síðan gengur tónlistin út á að búa til rétt samhengi fyrir þessi hljóð. Þetta er stórt og langt og krefjandi púsluspil,“ segir Guðmundur. Nýju plötunni hefur verið lýst sem frumlegri og melódískri raf- tónlist þar sem bregður fyrir orgelleik, strengjum og barna- söng. „Þetta eru hljóð úr umhverf- inu,“ segir Guðmundur. „Þau eru bara teygð og látin passa hvert við annað þannig að þau hljómi eins og þau eigi saman.“ Guðmundur, sem er 26 ára, byrjaði að semja tónlist þegar hann var í menntaskóla en var aldrei í neinum hljómsveitum. Nafnið Kippi Kanínus á sér ein- kennilega sögu. „Mamma lærði andlitsnudd þegar ég var fjög- urra eða fimm ára. Hún var að þylja upp það sem hún átti að læra fyrir prófin og ein nuddað- ferðin fyrir kinnvöðva hét Kippi Kanínus. Mér fannst þetta fyndið og mundi alltaf eftir þessu nafni.“ Guðmundur sækir áhrif sín úr ýmsum áttum og ekkert sérstak- lega frá öðrum raftónlistarmönn- um. „Ég hef verið mikið í kór og hef hlustað á tónlistina þar. Ann- ars hlusta ég á allt mögulegt, allan skalann.“ Guðmundur ætlar að halda tón- leika í Rotterdam og Köln í sept- ember og nóvember og vonast til að gefa nýju plötuna út erlendis á næstunni. freyr@frettabladid.is Krefjandi púsluspil Poppmetaltríóið Númer Núll hefur gefið út þriggja laga smá- skífu. Hljómsveitin hefur verið starfandi í núverandi mynd í eitt ár en Gestur Guðnason yngri, söngvari og gítarleikari, og Garð- ar Þór Eiðsson trommuleikari hafa starfað saman í fimm ár. Bassaleikari sveitarinnar heitir Jón Svanur Sveinsson. Gestur, sem einnig er í hljóm- sveitinni Stórsveit Nix Nolte, er margreyndur í tónlistarbransan- um því hann hefur auki starfað með hljómsveitunum Skátum og 5tu herdeildinni. „Við hugsum þessa smáskífu sem tvö lög af væntanlegri breiðskífu og eitt bónuslag. Við eigum upptekið efni á heila plötu sem á eftir að hljóð- blanda,“ segir Gestur. „Við höfum verið að fá mjög góðar viðtökur þó fólk sé latt við að mæta á tón- leika yfir höfuð,“ bætir hann við. Eiríkur Hilmisson og Sigurður Bjóla, yfirhljóðmaður í Þjóðleik- húsinu, hljóðblönduðu smáskífuna og ber Gestur þeim vel söguna. „Eiríkur vinnur í Þjóðleikhúsinu og Sigurður rak eyrun í þetta og vildi fá að vera með,“ segir hann. „Hann tekur þátt í einstaka verk- efnum sem vekja áhuga hans.“ Númer Núll spilar á Þinghús- bar á Hvammstanga annað kvöld ásamt reykvísku kvennasveitinni Viðurstyggð. ■ KIPPI KANINUS Raftónlistarmaðurinn Kippi Kanínus hefur gefið út sína aðra plötu sem nefnist Happens Secretly. tonlist@frettabladid.is Í SPILARANUM HJÁ RITSTJÓRNINNI Bubbi: Paradís, Hölt hóra: Love Me Like You Elskar mig, Rain: Experiment of Day, Kippi Kaninus: Happens Secretly, DJ Margeir: PZ’ 05 – Dansa meira og Khonnor: Handwriting. > B ub bi > H ölt hóra Jóhannes Birgir Pálmason, sem kallar sig Rain, hefur gefið út plötuna Experiment of Day. Jóhannes, sem er einnig í rappsveitinni Twisted Minds, lýsir nýju plötunni sem tilrauna- kenndu hiphopi. „Það eru margar stefnur á plötunni og lögin blandast saman,“ segir Jóhannes um gripinn. „Platan stoppar aldrei og þetta er eins og að hlusta á eitt lag.“ Birkir úr hljómsveitinni Forgotten Lores aðstoðar Jóhannes í laginu Telepathic Translation, sem er eina lag plötunnar sem er rappað á íslensku. Jóhannes, sem hefur verið í tónlistinni í tíu ár, segist vera undir áhrifum frá mörg- um hljómsveitum en nefnir sérstaklega Buck 65 frá Kanada. Einnig má greina á plötunni áhrif frá rappar- anum Sage Francis, sem hefur gefið út tvær plötur á undanförnum árum sem hafa fengið mjög góðar viðtökur gagnrýnenda. > Popptextinn ... „He called up the House of Lust ordered a five foot two, but to his sur- prise, this lady was a dude.“ Lagið Hot Damn, That Woman Is a Man er byggt á sannsögulegum atburðum um ungan mann sem lenti í heldur óskemmtilegri lífs- reynslu í Amsterdam. NÚMER NÚLL Frá vinstri: Jón Svanur Sveinsson, Gestur Guðnason og Garðar Þór Eiðsson. Heldur efsta sætinu Nýjasta plata Coldplay, X&Y, hefur gert frábæra hluti á vinsældalist- um síðan hún kom út í byrjun mán- aðarins. Platan er í efsta sæti bandaríska vin- sældal is tans aðra vikuna í röð og hefur selst í 1,1 millj- ón eintaka. Í öðru sæti er nýjasta plata Foo Fighters, In Your Honor, sem seldist í 310.000 eintök- um sína fyrstu viku á lista sem er þrisvar sinnum meira en síðasta plata sveitarinnar, One by One, seldist fyrstu vikuna. Í þriðja sæti á listanum er ný plata frá strákunum í Backstreet Boys sem nefnist Never Gone. ■ Bubbi: Ást „Ást er nokkurs konar uppgjör Bubba við ástar- mál sín. Þrjú lög skara fram úr en meiri Barða- stemningu vantar í afganginn.“ FB British Sea Power: Open Season „Það er ekki mikil von í nýjustu von Breta. Ef þetta er afli breska sjóveldisins, þá legg ég til að við hendum af stað öðru þorskastríði, því við myndum valta yfir þá.“ BÖS Coldplay: X&Y „Coldplay kaupa sér nýtt hljómborð og gera enn eina „örugga“ plötu. Full af grípandi lögum sem við eigum öll bókað eftir að fá hundleið á áður en útvarpsstöðvarnar hætta að spila þau.“ BÖS Fourt Tet: Everything Ecstatic „Ekki bara ein magnaðasta plata sem hefur kom- ið út á þessu ári, heldur ein magnaðasta plata sem hefur verið gefin út í sögu raftónlistar. Fullt hús stiga.“ BÖS Jane: Berserker „Annar helmingur Animal Collective færir sig enn dýpra í undarlegheitin og mallar saman ambíent tónlist við krútt-elektróník. Falleg grúskaraplata sem róar taugarnar.“ BÖS System of a Down: Mezmerize „System of a Down nær að gera hið ótrúlega og standast ótrúlegar væntingar fólks með því að gefa út aðra frábæra plötu. Lög Mezmerize eru sterk, textasmíðar því miður lakari.“ BÖS Jack Johnson: In Between Dreams „Notaleg plata sem reynir að sannfæra hlust- anda sinn um hversu yndislegt lífið er. Og á ör- ugglega eftir að takast það í mörgum tilfellum.“ BÖS Birgir Örn Steinarsson & Freyr Bjarnason Gítarleikari sn‡r aftur Hljómsveitin The Cure hef- ur endurráðið gamla gítar- leikarann sinn Porl Thomp- son sem spil- aði með sveit- inni 1976 til 1978 og 1983 til 1993. The Cure varð fyrir áfalli á dögunum þegar gítarleik- arinn Perry Bamonte og hljóm- borðsleikarinn Roger O’Donnell hættu í sveitinni og skildu eina eftir þá Robert Smith, Simon Gallup og Jason Cooper. Hljómsveitin mun spila í fyrsta sinn opinberlega með nýju upp- stillingunni á tónlistarhátíð á Spáni þann 5. ágúst. ■ Eldsvo›i hjá Ash Íslandsvinirnir í Ash lentu í hon- um kröppum á dögunum þegar eldur kviknaði í rútu þeirra eftir tónleika í Knitting Factory í Los Angeles. Eftir að mikill reyk- ur hafði komið í rút- una tókst að s l ö k k v a eldinn með s l ö k k v i - tæki. Þurfu l i ð s m e n n Ash að bíða úti á götu í nokkurn tíma eftir nýrri rútu. Keyrðu þau rútuna sjálf til San Francisco þar sem þau héldu vel heppnaða tón- leika skömmu síðar. Þar tileinkaði söngvarinn Tim Wheeler rútufyr- irtækinu og bílstjórum þess lagið Burn Baby Burn. ■ RAIN Jóhannes Birgir Pálmason hefur gefið út plötuna Experiment of Day. Tilraunakennt hiphop CHRIS MARTIN Söngvari Coldplay hlýtur að vera í skýj- unum þessa dagana yfir nýju plötunni. THE CURE Robert Smith og félagar í The Cure hafa endur- heimt gamla gítarleik- arann sinn. ASH Rokksveitin Ash lenti í lífsháska í Banda- ríkjunum á dögunum. ARNAR GUÐJÓNSSON Hljómsveitin Leaves er í efsta sæti X-listans með lagið The Spell af væntanlegri plötu sinni The Angela Test. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V AL G AR Ð U R Smáskífa frá Númer Núll

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.