Fréttablaðið - 24.06.2005, Side 56
Sjónvarpsstöðin Sirkus fer í loftið
í kvöld klukkan tíu með glæsilegri
dagskrá. Stöðin leggur áherslu á
afþreyingarefni, innlent sem er-
lent. Stöðin verður frístöð fyrir-
tækisins 365 með tæp áttatíu pró-
sent í dreifingu. Hægt verður að
ná henni inn á Digital Ísland,
Breiðbandið sem og á UHF.
Meðal þeirra íslensku þátta
sem verða á dagskrá stöðvarinnar
eru Kvöldþátturinn en umsjónar-
menn hans eru Guðmundur Stein-
grímsson, Halldóra Rut Bjarna-
dóttir og Sigríður Pétursdóttir.
Einnig mun þátturinn Sjáðu vera
á dagskránni sem og Íslenski
popplistinn, Geim Tíví auk þess
sem þættir af 70 Mínútum verða
endursýndir. Þessir fjórir þættir
voru á dagskrá sjónvarpsstöðvar-
innar Popptíví sem nú færist yfir
á Digital Ísland. Þau nýmæli hafa
þó orðið á tveimur þáttanna að
fegurðardrottningin Unnur Birna
Vilhjálmsdóttir mun stýra kvik-
myndaþættinum Sjáðu og Jónsi úr
Svörtum fötum mun kynna okkur
nýjustu og vinsælustu tónlistina í
Íslenska popplistanum.
Fjölmargir erlendir þættir
verða á dagskrá stöðvarinnar.
David Letterman er einn þeirra
sem og spennuþátturinn True Call-
ing sem fjallar um Tru Davis sem
hefur dulda hæfileika sem gætu
bjargað mannslífum. Dr. Vegas er
ekta dramaþáttur með Rob Lowe í
aðalhlutverki ásamt Joe Pantoli-
ano og Tom Sizemore. American
Dad er teiknimyndasería af bestu
gerð frá höfundum Family Guy
sem gefur þeim vinsælu þáttum
ekkert eftir. The Road to Stardom
with Missy Elliott er HipHop út-
gáfa af American Idol þar sem
valinn er besti HipHop / R&B
listamaðurinn í hópnum. Auk
þessara verða þættirnir Joan of
Arcadia, Fabulous Life of og
Rescue Me á dagskránni. Sirkus
mun svo kitla nostalgíufiðringinn í
maganum á áhorfendum með því
að sýna þeim gamla klassíska
þætti eins og Friends, Seinfeld og
The X-Files.
44 24. júní 2005 FÖSTUDAGUR
„Við ætlum að spila á húmorinn,
þetta er bara skemmtisýning. Við
spilum Bítlalögin og fabúlerum
kringum þau á skondinn hátt,“
segir Sigurjón Brink, sem frum-
sýnir í kvöld Bítl í Loftkastalan-
um með félögum sínum Jóhannesi
Ásbjörnssyni, betur þekktum sem
Jóa í Idol, og Pálma Sigurhjartar-
syni. „Sumir halda að við séum að
leika Bítlana, að þetta sé leiksýn-
ing, en svo er ekki,“ segir Sigur-
jón. Þríeykið kallar sýninguna
„tónleik“ enda er hún meira í ætt
við tónleika en söngleik.
„Þetta byrjaði þannig að ég og
Jói ákváðum að koma saman fyrir
einhverjum árum og halda eina
tónleika í Vesturporti, báðir mikl-
ir Bítlaaðdáendur. Þetta teygðist í
nokkra tónleika og í kjölfarið fór-
um við að spila á Hverfisbarnum
á fimmtudagskvöldum,“ segir
Sigurjón. „Við náðum svo góðri
stemningu á Hverfisbarnum. Það
er örugglega ár síðan að við sett-
umst niður og fórum að hugsa um
að gera sýningu úr þessu.“ Jó-
hannes og Sigurjón, kallaðir Jói
og Sjonni, hafa áður spilað með
Pálma á þjóðhátíð í Eyjum og við
ýmis önnur tilefni en þeir fengu
til liðs við sig Hilmi Snæ Guðna-
son til að koma Bítlasýningunni á
fjalirnar. „Leikstjórn og ekki leik-
stjórn, hann styður við bakið á
okkur í gegnum þetta. Það er svo-
lítið stórt stökk að fara frá
Hverfisbarnum í 400 manna leik-
hús, svo við þurftum góða menn
með okkur,“ segir Sigurjón.
Sýningin Bítl verður sýnd í
Loftkastalanum á föstudags- og
laugardagskvöldum klukkan níu í
allt sumar. „Þetta er svona sýning
þar sem þú ferð út að borða, færð
þér einn kaldan og sest í leikhús-
sæti með bjórinn. Þetta er fyrst
og fremst stuðsýning. En þetta er
náttúrlega viðkvæmt mál, Bítl-
arnir, þannig að við reynum að
grínast ekkert með lögin sjálf. Við
einbeitum okkur að því að skila
góðum flutningi á lögunum í bland
við smá óútreiknanlegt grín,“
segir Sigurjón bítill. Hann bætir
við að þó að þeir félagar skemmti
sér konunglega á sýningunni
muni þeir spara Bítlana fyrir leik-
húsið og flytja lög eftir aðra höf-
unda á Hverfisbarnum í sumar.
rosag@frettabladid.is
UNNUR BIRNA FEGURÐARDÍS Hún
mun taka við af Ásgeiri Kolbeinssyni í kvik-
myndaþættinum Sjáðu. Þar fer hún yfir
nýjustu og vinsælustu myndirnar í kvik-
myndahúsunum.
KVÖLDÞÁTTURINN Þáttastjórnendurnir Guðmundur Steingrímsson, Halldóra Rut Bjarnadóttir og Sigríður Pétursdóttir munu taka á
daglegum fréttum og fjalla um þær í háðslegum tóni. Einnig kíkja gestir við og grínistar verða með innslög.
Grænjaxlar og
gamlir vinir á Sirkus
ÍSLENSKU BÍTLARNIR Þeir Sjonni, Jói og Pálmi á æfingu fyrir forsýninguna sem þótti
takast vel. „Fólk virðist fíla þennan húmor. Auðvitað dönsum við á línunni sums staðar,
við viljum ekki vera útreiknanlegir. Það verður að vera smá spenna í loftinu. Stór hluti af
þessu er spuni, engar tvær sýningar eru eins,“ segir Sigurjón.
Bítl frá barnum á svi›i›
Jay Kay me› fatalínu
Jay Kay, söngvari fönkhljómsveit-
arinnar Jamiroquai, hefur ákveðið
að deila sérstökum fatasmekk
sínum með almenningi. Hann
ætlar að setja fatamerki á mark-
aðinn áður en árið er liðið og mun
það heita Quai. Töffarinn segir að
fötin verði mjög sérstök, jafnvel
svolítið klikkuð og meðal annars
verða hinir frægu Jay Kay hattar
á boðstólum en þeir eru eins konar
vörumerki hans. Hann er einnig
mikill aðdáandi gamaldags fatnað-
ar og er líklegt að í fötunum megi
greina afturhvarf til eldri tíma.
„Hann mun byrja með litla fata-
línu í völdum búðum, en ef það
gengur vel mun hann stækka veld-
ið,“ sagði heimildarmaður. „Hann
ætlar að reyna að halda verðinu í
algjöru lágmarki svo fólk hafi efni
á fötunum.“
Jay Kay hefur því í nógu að
snúast því Jamiroquai gáfu út
sína nýjustu plötu, Dynamite,
fyrir nokkrum dögum síðan.
JAY KAY Söngvari Jamiroquai í einni af
sinni undarlegu múnderingum.