Fréttablaðið - 28.06.2005, Blaðsíða 19

Fréttablaðið - 28.06.2005, Blaðsíða 19
3ÞRIÐJUDAGUR 28. júní 2005 K R A F T A V E R K Nú er vert að huga að vörnum gegn skaðlegum geislum sólar. Viðkvæm húð þarf sólarvörn sem gefur ríkulega næringu og öfluga vörn. Sólarvarnarlína Börlind er sniðin að þörfum viðkvæmrar húðar. Hún er laus við óæskileg aukaefni og er því sérlega heppileg fyrir börn, fólk með viðkvæma húð og alla þá sem vilja vernda húðina á áfrifaríkan og náttúrulegan hátt. Í línunni er m.a. einstaklega kælandi og græðandi Afer sun. B Ö R L I N D S Ó L A R V Ö R N Náttúruleg vörn gegn skaðlegum geislum sólar Sólarvarnarlína Börlind er eingöngu unnin úr jurtum með virkum efnum náttúrunnar. Byggir upp eðlilega flóru í maga og meltingarvegi Framúrskarandi fyrir MELTINGUNA Fæst í apótekum, heilsubúðum og matvöruverslunum H Á G Æ Ð A A M E R ÍS K F Æ Ð U B Ó T A R E F N I Vertu fallega sólbrún(n) - innan frá Vísindalega staðfest. Imedeen Tan Optimizer - hylki verka innan frá og veita gylltan húðlit, sem helst lengur en þig hefur nokkurn tímann dreymt um. Hylkin undirbúa húðina fyrir sólina, minnka roða og viðkvæmni fyrir sól, verja húðina gegn öldrun af völdum sólar og örva myndun á fallegri sólbrúnku. Lilja Valdimarsdóttir, Hornaleikari: Til að vera frísk og svo er ég líka einbeittari. Ragnhildur Sigurðardóttir, Golfari: Keppnisgolf er mjög krefj- andi, þess vegna nota ég Rautt Eðal Ginseng. Þannig kemst ég í andlegt jafnvægi, skerpi athyglina og eyk úthaldið. Ragnheiður Runólfsdóttir, Sundþjálfari: Það er gott fyrir heilsuna og eflir mann í leik og starfi. SÖLVI GEFUR GÓÐ RÁÐ Misvísandi fræðsla Hvernig pumpar maður sig upp? Oft er ég spurður að hinu og þessu um hvernig og hversu mikið við getum breytt líkaman- um. Þessar spurningar geta verið ansi skondnar og stundum alveg ótrúlegar! Heimskt er heima alið barn – En... Það getur samt eng- inn sakað okkur um heimsku varðandi líkama okkar (og sál?) þegar við tökum tillit til hversu misvísandi „fræðslu“ við neyt- endur erum „beittir“ af hálfu söluaðila sem selja hvers kyns tæki, áhöld, búnað, bækur, fatn- að, fæðu, duft og pillur sem eiga, í það minnsta í sumum til- fellum, að geta leyst nær öll okkar vandamál. Hasarmyndablöð Þegar ég var lítill gaur las ég hasarmyndablöðin, bæði frá- bæru íslensku Tarzanblöðin og einnig bandarísku DC Comics- blöðin, með öllum sínum ofur- hetjum. Ekki er ólíklegt að þar hafi slæðst inn í ómótaðan huga minn, sem og annarra, fyrir- myndir af vöðvastæltum hetjum sem leystu öll vandamál með blöndu af kröftum og vitsmun- um. Vanskapaðar fyrirmyndir? Reyndar dettur mér í hug, bara meðan ég skrifa þennan stutta pistil, hversu mikið teiknimynda- hetjurnar m.a. í sjónvarpinu hafa breyst? Nú eru margar þeirra nær vanskapaðar útlitslega og jafnvel einnig upp á mál og mál- far og hegðun þeirra virðist oftar en ekki einkennast af sérstak- lega heimskulegum uppátækj- um. Spurning hvernig þessar fyr- irmyndir munu reynast börnum okkar? Auglýsingaskrum Aftur að heilsurækt. Ein auglýs- ing úr bandarísku hasarmynda- blöðunum sat eftir í minni mínu frá því í barnæsku. Þar var myndasería sem sýndi mann verða gífurlega vöðvastæltann. Aðferðin sem hann notaði var vægast sagt óvenjuleg því hann bókstaflega „pumpaði“ sig bara upp með einhvers konar pumpu. Á sínum tíma hugsaði ég: Hvar fær maður eiginlega svona pumpu? Engin pumpa! Því miður komst ég að því að það er engin svona pumpa til, í það minnsta ekki enn þá. Ef ég frétti af einni slíkri þá verð ég fyrstur til að tilkynna þér það, kæri lesandi. Þá getum við pumpað okkur upp á fullu og að minnsta kosti litið út fyrir að vera í rosa góðu formi... Hér og nú! Þangað til vonast ég til þess að við sjáumst úti í göngutúr, að skokka, hjóla, á línuskautum, í sundi, fótbolta, körfubolta, nú eða bara í Laugum þar sem ég vinn við að „pumpa“ fólk upp... Gangi þér vel! Þetta og önnur hollráð er að finna á vefsvæði Heilsuráðgjafar www.heilsuradgjof.is Sölvi Fannar Viðarsson Er framkvæmdastjóri Heilsuráðgjafar. Hann hefur starfað við einkaþjálfun og heilsuráðgjöf um árabil. 550 5000 AUGLÝSINGASÍMI

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.