Fréttablaðið - 28.06.2005, Blaðsíða 4
KAUP
Gengisvísitala krónunnar
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
USD
GBP
EUR
DKK
NOK
SEK
JPY
XDR
64,49 64,79
117,95 118,53
78,50 78,94
10,54 10,60
9,89 9,95
8,37 8,42
0,59 0,59
94,61 95,17
GENGI GJALDMIÐLA 27.06.2005
GENGIÐ
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
SALA
110,37 -1,59%
4 28. júní 2005 ÞRIÐJUDAGUR
Þjóðverjar vilja fá fast sæti í öryggisráði SÞ:
Bush segir hvorki af
né á um stu›ning
WASHINGTON, AP Gerhard Schröder,
kanslari Þýskalands, fundaði með
George W. Bush Bandaríkjaforseta
í gær. Fyrr um daginn fór kanslar-
inn formlega fram á það við þýska
sambandsþingið að greidd yrðu at-
kvæði um traust á ríkisstjórnina.
Kjarnorkuáætlun Írana var of-
arlega á baugi á fundi leiðtoganna
eftir að Mahmoud Ahmadinejad,
nýkjörinn forseti landsins, lýsti því
yfir að auðgun úrans yrði hafin að
nýju. Ríkisstjórnir á Vesturlöndum
óttast að Íranar hyggist nota úran-
ið til smíði kjarnorkuvopna. Því
skoruðu leiðtogarnir á Írana að láta
af vinnslunni enda yrði smíði
kjarnorkuvopna ekki liðin.
Bush og Schröder ræddu einnig
um áhuga Þýskalands á að fá fast
sæti í öryggisráði Sameinuðu þjóð-
anna. Bush gaf lítið út á kröfur
Þjóðverja í þessum efnum og sagði
aðeins að stjórn hans væri þeim
ekki mótfallin. Fyrst þyrfti hins
vegar að gera róttækar breytingar
á samtökunum áður en tímabært
væri að huga að slíku.
Áður en Schröder hélt til Was-
hington fór hann fram á við þýska
sambandsþingið að það greiddi at-
kvæði um traust á ríkisstjórn sína.
Kanslarinn býst við að traustsyfir-
lýsingin verði felld en þá getur
hann óskað eftir því við Horst
Köhler forseta að boðað verði til
kosninga.
Atkvæðagreiðslan verður að
líkindum á föstudag og kosning-
arnar svo með haustinu. ■
DÝRALÍF Full ástæða er til að vera á
varðbergi gagnvart spánarsnigl-
inum illræmda, sem fundist hefur
tvisvar hér á landi, að sögn Er-
lings Ólafssonar dýrafræðings
hjá Náttúrufræðistofnun Íslands.
Tveir spánarsniglar hafa fund-
ist í Reykjavík, annar í fyrra en
hinn árið þar áður. Annar fannst í
Vesturbænum og hinn í Ártúns-
holti. Báðir sniglarnir voru sendir
til Svíþjóðar þar sem staðfest
fékkst að um þessa tilteknu teg-
und væri að ræða.
„Það er ekki hægt að fullyrða
að þessi snigill hafi numið land
hér, þótt vissulega sé sú hætta
fyrir hendi,“ sagði Erling. „Það
kemur ekki í ljós fyrr en nú síð-
sumars hvort fleiri sniglar þess-
arar tegundar finnast en það að
sjá hann í sitt hvorum borgarhlut-
anum finnst mér benda til þess að
hann sé kominn.“
Spánarsnigillinn er skaðræðis-
skepna þar sem hann er landlæg-
ur. Hann leggst á ýmiss konar
gróður, til að mynda kál og kart-
öflukál, og skilur eftir sig sviðna
jörð. Hann er rauðbrúnn að lit,
mjög stór, allt upp í 12 – 15 sentí-
metra langur. „Hann étur allt sem
fyrir verður,“ segir Erling. „Það
er allt matur hjá honum, meira að
segja hundaskítur. Hann fer ekki
um í flokkum en getur verið
býsna þétt, allt upp í nokkra á fer-
metra.“
Spánarsnigillinn hefur dreifst
um alla Evrópu, þar á meðal um
Norðurlöndin. Hann er upprunn-
inn í Suður-Evrópu, til að mynda
Spáni og Portúgal, en hefur
dreifst til norðurs og austurs.
Hann getur borist með ýmsu móti,
að sögn Erlings, til dæmis með
grænmeti og plöntum sem fluttar
eru inn með rótum.
„Honum hefur fjölgað allsnar-
lega á Norðurlöndum og í Færeyj-
um og gert þar usla,“ segir Erling.
„Nágrannaþjóðum okkar hefur
ekki tekist að útrýma honum, þrátt
fyrir ýmsar tilraunir. Ég á eftir að
kynna mér þau mál betur.“
Spánarsnigillinn fjölgar sér
eins og aðrar sniglategundir með
því að verpa eggjum. Erling segir
að bæði eggin og ungviðin lifi af
veturinn. Það kemur því í ljós með
haustinu hvort þessi vágestur er
kominn til að vera.
jss@frettabladid.is
BOÐORÐIN TÍU Í DÓMSHÚSI Hæstiréttur
Bandaríkjana taldi ekki samræmast stjórn-
arskránni að boðorðin væru til sýnis, eins
og í þessu dómhúsi í Kentucky.
Dómhús í Bandaríkjunum:
Bann vi› bo›-
or›unum tíu
BANDARÍKIN, AP Hæstiréttur Banda-
ríkjanna hefur úrskurðað að
dómhús skuli héðan af ekki hafa
boðorðin tíu til sýnis. Dómhúsin
sem um ræddi voru í fylkinu Kent-
ucky og taldi dómurinn að trúarleg
merking boðorðanna þar væri svo
mikil að hún gengi gegn stjórnar-
skrárreglu um aðskilnað ríkis og
kirkju. Níu dómarar dæmdu málið,
fimm voru fylgjandi ákvörðuninni
og fjórir á móti, sem þykir til marks
um hversu umdeilt það er. Dómur-
inn staðfesti að það gengi ekki gegn
stjórnarskránni að sýna boðorðin á
öðrum opinberum stöðum. ■
Héraðsdómur Reykjavíkur:
Síminn ska›a-
bótaskyldur
DÓMSMÁL Landssíma Íslands var í
gær gert að greiða fyrirtækinu
Gullveri frá Stykkishólmi rúma
eina milljón króna ásamt dráttar-
vöxtum sem leigu vegna fjar-
skiptamasturs fyrirtækisins á lóð
Gullvers.
Hafði Gullver keypt húsnæði og
lóð að Aðalgötu 7 af ríkissjóði árið
2001 en á henni stóð mastur sem
Síminn átti og notaði. Töldu eig-
endur Gullvers að Síminn ætti að
greiða leigu vegna eigendaskipt-
anna en Síminn féllst ekki á það.
Féll dómur Héraðsdóms Reykja-
víkur Gullveri í hag í gær. -aöeByltingarsinnar:
Hundra›
nemar í haldi
NEPAL, AP Ekkert hefur heyrst frá
tæplega hundrað menntaskóla-
nemum í Nepal síðan þeim var
rænt af byltingarsinnum fyrir
fimm dögum. Rán af þessu tagi eru
algeng í Nepal, þar sem uppreisn-
armenn úr hópi kommúnista hand-
sama nemendur í skólum sínum og
fræða þá um boðskap sinn í tvo til
þrjá daga. Stjórnvöld í Nepal hafa
sérstakar áhyggjur af þessu ráni
vegna þess að ekkert hefur heyrst
frá unglingunum í fimm daga.
Þrátt fyrir þetta verður engin
lögregla send á staðinn, þar sem
skólinn er á svokölluðu hættu-
svæði og hvorki lögreglustöðvar
né herstöðvar þar í grennd. ■
VEÐRIÐ Í DAG
SLEGIÐ Á LÉTTA STRENGI Enda þótt grunnt hafi verið á því góða á milli ríkisstjórna Þýskalands
og Bandaríkjanna eftir Íraksstríðið fór vel á með þeim Schröder og Bush í Washington í gær.
SPÁNARSNIGILL Þessi spánarsnigill fannst í Ártúnsholti í byrjun september 2004. Annar fannst í Vesturbænum árið áður.
Ska›ræ›isd‡r kann
a› hafa numi› land
Full ástæ›a er til a› óttast a› spánarsnigillinn illræmdi hafi flegar numi› land
hér. Hann er mjög stór, étur allt sem fyrir ver›ur og skilur eftir svi›na jör›.
Tveir sniglar hafa fundist hér, annar í Vesturbænum en hinn í Ártúnsholti.
NEPALSKIR HERMENN Stjórnvöld ætla
hvorki að senda lögreglu né hermenn
þrátt fyrir að menntaskólanema hafi verið
saknað í fimm daga.
BANDARÍKIN
RAÐMORÐINGI JÁTAR GLÆPI
Réttarhöld standa nú yfir í
Wichita, Kansas, yfir Dennis
Rader. Hann viðurkenndi fyrir
dómi í gær að hafa myrt tíu
manns á árunum 1974-91 í kyn-
ferðislegum tilgangi. Rader er
betur þekktur sem BTK – Bind-
Torture-Kill (binda-pynta-drepa)
– en með þeirri skammstöfun
undirritaði hann bréf til fjölmiðla
þar sem ódæðunum var lýst.